Morgunblaðið - 17.05.1987, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 17.05.1987, Qupperneq 22
P.S ÍT „9n, •- . 22 B MORGUNBLABIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAÍ 1987 fclk í fréttum Enn sem fyrr eru götur Cannes hlaðnar ungum og upprennandi smástirnum, sem eru ófeimin við að fletta sig klæðum til þess að ná athygli lostafullra ljósmyndara, en af þeim er enginn skortur svo sem öld- ungis augljóst má vera. Hér sést Framjois Mitterrand sæma Liz merki Heiðursfylking- arinnar. Cannes V Vart hefur farið fram hjá neinum lesanda þessarar síðu að ákaft er nú fagnað í frönsku borginni Cannes, en þar fer nú fram fertug- asta kvikmyndahátíðin, sem við borgina er kennd. Upp á síðkastið hafa hátíðahöldin aukist ef eitthvað er, en hátíðinni lýkur ekki fyrr en eftir helgi. Síðastliðið miðvikudagskvöld var haldinn mikill hátíðakvöldverður, þar sem m.a. var sýnd klukkutíma- löng kvikmynd, sem sett var saman úr gömlum myndum, sem tekið hafa þátt í samkeppninni um verð- launin eftirsóttu — Gullpálmann. Meðal þeirra sem komu til sýn- ingarinnar voru Elizabeth Taylor, Catherine Deneuve, Paul Newman og fleiri stórstjömur kvikmynda- himinsins. Elizabeth kom reyndar hálftíma seint og þá með leikarann George Hamilton sér við hlið. í stað þess að setjast við hlið Yves Mont- and, eins og henni stóð til boða, beið hún aftast í salnum þar til að sýningu lokinni. Þegar hún svo gekk loks fram í salinn vakti hún allra athygli fyrir smekkvísan klæðaburð, en hún var í rauðum satín-kjól og þótti Liz óhrædd við að sýna holdið, enda um stórglæsi- lega konu að ræða. Catherine Deneuve kom hins vegar á réttum tíma og sat við hlið Montand allan tímann og fór hið besta á með þeim. Hún var einnig rauðklædd og var í síðum danskjól, sem Yves Saint Laurent hannaði af alkunnri snilld. Að sögn voru þama svo margar stjömur samankomnar, að nær væri að tala um stjömumerki! Claudia Cardinale fór fyrir ítölun- um, Michael York fyrir Bretunum og meðal Bandaríkjamannanna vom stjömur eins og Diane Keaton og Elliot Gould. En þrátt fyrir að Liz hafi verið ögn sein fyrir þá um kvöldið, þá lét hún slíkt ekki henda sig á fímmtu- dag, en þá gekk hún á fund Mitterrands Frakklandsforseta í Elysée-höll í París. Tilefnið var að vera tekin í Frönsku heiðursfylking- una, en það er æðsti heiður sem nokkmm hlotnast á franskri gmndu. Taylor kom sem fyrr sagði á til- settum tíma og var í hvítum kjól og skóm við, með bleika rós í hendi. Mitterrand hrósaði henni fyrir starfsferilinn og minntist á hversu erfítt það hlyti að vera að byija jafnung og hún og halda sínu striki allar götur síðan. Þá hrósaði hann henni ennfremur fyrir framlag sitt til baráttunnar gegn alnæmi, sn sem kunnugt standa Frakkar fram- arlega í þeirri herferð. Elizabeth, sem er 55 ára gömul, náði fyrst frægð sem bamastjama og lék í myndum eins og „National Velvet", sem gerö var árið 144. Síðar vann hún til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í myndunum „Butt- erfíeld 8“ árið 1960 og „Who’s Afraid of Virginia Woolf“ árið 1966. Vel fór greinilega á með þeim, en hvað Catherine hvíslar í eyra . hans er jafnleynilegt og það sem Óðinn hvíslaði. Meðai keppenda um Gullpálmann í Cannes er þau sem hér sjást: þau Barbara Hershey, Andrei Konchalovsky og Jill Clayburgh, en þær stöllur leika í mynd Konchalovskys, Feimið fólk. Dali dalar... eða hvað? Dali sestur í helgan stól. Fyrir skömmu var blaðamanni breska blaðsins Observer leyft að heimsækja Salvador Dali, þó svo að engu væri lofað um það hvort meistarinnn kærði sig um að hitta hann eður ei. Þegar blaða- maður kom inn var honum fylgt framhjá svefnherbergi Dalis inn í biðstofu hans. Dali kvartaði venju samkvæmt yfir því að hann væri of þreyttur til þess að taka á móti gestum, en kom þó einum skilaboðum á framfæri — jafnijar- stæðukenndum og hans var von og vísa: „Segið lesendum yðar frá því að eitt sinn hafí mér verið sýndur sá heiður — á yndislegum stað með sundlaug, sem kallast Les Baux og er skammt frá Avignon — að vera gestur bresku konungsfjölskyldunnar." Svo mörg voru þau orð. Dali sneri baki við heiminum árið 1982 þegar kona hans Gala lést. Hann lét skjóta lokum fyrir alla glugga á kastala þeirra í Pubol, neitaði að taka á móti gest- um og borðaði lítt sem ekki. Þannig stóðu mál í þijú ár, en þá kviknaði í svefnherbergi Dalis og munaði mjóu að hann brynni inni. Þá vóg hann aðeins 50 kg. Þó það virðist mótsagnakennt þá bjargaði bruninn líklega lífi hans, því að hann tók sig upp og flutti sig um set. Altítt er að heimili frægra listamanna séu gerð að söfnum eftir dauða þeirra, en Dali tókst að snúa þessu við. Hann kom á fót safni um sig í borginni Figueras árið 1974, en áratug síðar ákvað hann að flytja inn. Þar hefur Dali hreiðrað um sig og gerir fátt annað en að anda. Sérviska Dalis hefur þó aldrei verið meiri en nú. Eitt sinn var Dali sælkeri, sem sendi eftir fær- ustu matreiðslumönnum heims, þegar hann vildi svo vera láta. Nú neitar hann að eta á þeirri forsendu að hann geti ekki kyngt, en læknar segja það fírru eina. En meðan hann segist ekki geta kyngt fær hann vökvanæringu í gegnum nefið. Dali segist ekki getað staðið, þó svo að læknar hans telji að því sé engin fyrir- staða nema vilji gamla mannsins. Hann vill ekki lesa þó svo að hann geti það. Hann teiknar ekki þrátt fyrir að hann sé líkast til fullfær um það. Þá verður æ erfiðara að skilja hann, en þegar hann vill er hann fullkomlega skýrmæltur. Sumir telja að skýringu á þessu einkennilega athæfi sé að finna í viðtali, sem við Dali var tekið fyr- ir nokkrum árum. Þegar hann var spurður hvort hann hygðist ein- hverntímann taka af sér grímuna svaraði hann: „Ég hef þegar hug- leitt það að leggjast í híði. Sú gríma er hreint öldungis ógagnsæ, þvi enginn veit hvort maður er lifandi eða dauður.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.