Morgunblaðið - 17.05.1987, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAÍ 1987
B 31
Hrun ameríska heimsveldisins
(Le décline de l’empire américan)
er athyglisverð kanadísk kvikmynd
eftir Denys Arcand, sem hlotið
hefur góðar viðtökur gagnrýnenda
og vakið umtai á kvikmyndahátí-
ðum. Henni hefur verið líkt við allt
frá verkum Bergmans til Rhomers
til The Big Chill og jafnvel kynlífs-
fræðinganna Masters og Jo-
hnsons.
Persónur myndarinnar eru átta,
fjórar konur og fjórir karlar, og flest
samtöl þeirra snúast um kynlíf.
„Ameríska heimsveldið" er
gamanmynd sem byggir mest á
samtölum en leikararnir eru
frönskumælandi Kanadamenn.
Myndin segir frá og lýsir samræð-
um vinafólks sem hittist dagstund.
í fyrri helmingi hennar heyrum við
karlmennina og konurnar tala sitt
í hvoru lagi um reynslu þeirra af
kynlífi og í seinni helmingnum hitt-
Leikstjórinn, Denys Arcand.
Vinafólkið í myndinni Hrun ameríska heimsveldisins. Henni hefur
m.a. verið líkt við The Big Chill.
blandað skondnum, heimspekileg-
um athugasemdum um hvort hin
taumlausa leit einstaklingsins að
hamingju og vellíðan í nútímanum
sé merki um hrun ameríska heims-
veldisins.
„Þetta er kvikmynd sem fæst
við einkalíf," segir leikstjórinn Den-
ys Arcand í viðtali þegar hann var
spurður út í nafngiftina á mynd
sinni. „Dominique (persóna í
myndinni) segir að öllu okkar
einkalífi sé stjórnað af þeirri stað-
reynd að við erum að upplifa „Hrun
ameríska heimsveldisins", þeirri
staðreynd að nú höfum við engar
fjölskyldur, engin hjónabönd . . .
Hér áður gifti fólk sig og vissi að
það yrði saman það sem eftir lifði.
Nú hugsar fólk ekki þannig; fjöldi
hjónaskilnaða eykst, einstaklingar
kjósa að búa einir. . . Áður vann
fólk hörðum höndum til að tryggja
börnum sínum bjartari framtíð.
Núna segir fólk: „Nei, ég vil vera
hamingjusamur núna og börnin
bjarga sér. Þannig er ástandið
núna og í myndinni finnst Dom-
inique að lífið sé á niðurleið þegar
fólk hugsar: „Ég ætla ekki að fórna
sjálfum mér lengur. Ég vil mín
þægindi núna.““
ast svo hóparnir og halda tallsínu
áfram. Inní samræðurnar er m.a.
Laugarásbíó:
Hrun ameríska
heimsveldisins
Framleiðendurnir Ted Field og
Robert W. Cort eru stoltir af því
að Outrageous Fortune sé fyrsta
„félagamyndin" (buddy-film) með
konum. „Undanfarin tuttugu ár
hafa kvennahreyfingar breytt mjög
hugmyndum manna um samskipti
kynjanna," segir Cort, „en samt
hafa kvikmyndirnar aldrei fjallað
um konur sem vini og söguhetjur
í hasargamanmyndum." Það er
hér með leiðrétt.
Handritið skrifaði hin unga og
efnilega Leslie Dixon, en hún vakti
sérstaka athygli fyrir velunnið verk
verandi næstum því nýliði í grein-
inni; þetta er hennar annað handrit
og það fyrsta, sem kvikmynd er
gerð eftir. „Ég vissi það strax þeg-
ar ég var tíu ára að ég vildi skrifa,"
segir hún og foreldrar hennar
hvöttu hana til þess. Hún er nú á
góðri leið með að verða einn eftir-
sóttasti handritahöfundur í Holly-
wood.
Bette Midler á litríkan söng- og
leikferil að baki en með gaman-
myndunum Down and Out in
Beverly Hills, Ruthless People og
nú Outrageous Fortune er hún
komin í hóp fremstu gamanleikara.
„Mér fannst þetta vera fyndnasta
handrit síðan ég las Ruthless
People," segir hún.
Shelley Long, sem er að feta
sig úr sjónvarpsleiknum inní heim
kvikmyndanna, tekur í sama
streng þegar hún er spurð að því
hvers vegna hún ákvað að leika í
þessari mynd frekar en öðrum sem
henni buðust. Handritið „var svo
fyndið", segir hún.
Leikstjórinn, Arthur Hiller, leiðbeinir Long og Peter Coyote fyrir
tökur.
(Long). Þær hittast í inntökuprófi
hjá frægum leiklistarkennara og
það er hatur við fyrstu sýn. Þær
komast að því, báðum til mikillar
hrellingar, að sami maðurinn (Coy-
ote) hefur verið að heilla þær
uppúr skónum. Sá hverfur allt í
einu á vægast sagt dularfullan
hátt og leiða þær saman hesta
sína í leit að honum að fá úr því
skorið hvor sé í meira uppáhaldi.
Þær vita að sjálfsögðu ekki að um
leið flækjast þær i hringiðu al-
þjóðlegra njósna þar sem ástin á
hvergi upp á pallboröið hjá mönn-
um.
VERTU ÞINN EIGIN
DAGSKRÁRSTJÓRI
THE SEDUCTION Mynd-
arlegur en geðveikur Ijós-
myndari verður ástfanginn af
MORGAN FAIRCHILD, fái
hann ekki að njóta hennarfái
það enginn. Spenna frá upp-
hafi til enda.
paujmah ivrnjiHt-s wtkknatxjnal pi*t
1AUK KNCE MICHAEL
OIJVIER CAINE
in JOSBFH L. M/WKU'.WICZ
SLEUTH
Myndin er byggð á verðlauna-
leikriti og báðir, LAURENCE
OLIVIERog MICHAELCA-
INE, voru nefndirtil Óskars-
verðlauna fyrir leik sinn.
Myndin kemur áhorfandanum
á óvart frá upphafi til enda.
MEMORIAL DAY
Víetnamstríðið skelfdi banda-
rísku þjóðina. Þeir sem lifðu
það af eru aldrei síðan ótta-
lausir. Mynd sem tilnefnd var
til margra verðlauna.
JEALOUSY
Þrjár sjálfstæðar myndir um
margfrægt efni:
AFBRÝÐISEMI
Fjöldinn allur af þekktum
leikrurum kemur fram í þess-
um myndum.
WILDEHHESS FAMILT
THE ADVENTURES OF
THE WILDERNESS
FAMILY
Sönn saga um nútímafjöl-
skyldu sem sneri baki við
siðmenningunni og hvarf út í
óbyggðir.
Sérstaklega falleg og góð fjöl-
skyldumynd.
D2NT
AN8WER
™KPH0NEI
ISLENSKUR TEXTI
SUmnjs Wpttmi>r«l«nd • fto • 8«n I •joL
<>nd inlMxluvVnji N>thn!*» Wocth <>>> th« Kitlvr
I’KHfuttMt. Wiiitpn Uitwtprt h» 8>>tu->t Hjramn
tvevotÍMf Pwiiivtet M<<h*pl Iiihpiv
Ci> Pr»»dvtPi <011 W'iilet f*vttp
DONT ANSWER
THEPHONE
Ekki svara í símann ... Hann
veit að þú ert ein.
Með betri spennumyndum
sem komið hafa.
ÞESSAR MYNDIR FÁST Á ÖLLUM
BETRI MYNDBANDALEIGUM LANDS-
INS.
V&S DREIFING
REYKJAVÍKURVEGI68.
SÍMAR: 652005 og 652015
<