Morgunblaðið - 19.05.1987, Síða 1
AUKM. 3.169/SfA
BLAÐ ALLRA L A N D S M A N N A
I
j
;
ÞRIÐJUDAGUR 19. MAI
BLAÐ
HANDBOLTI
Páll Björgvins
þjálfar HK
Steinartil liðsins?
Hannes og Pálmi í Fram
PÁLL Björgvinsson hefur verið ráðinn þjálf-
ari 2. deildarliðs HK í Kópavogi næsta vetur
og nokkrar líkur eru á því að Steinar Birgis-
son, fyrrum félagi Páis hjá Vikingi, sem leikið
hefur í Noregi undanfarið, gangi til iiðs við
HK einnig, samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins. Það er þó ekki ijóst enn, en
HK-menn lifa í voninni. Aðrir heimildarmenn
segja það einnig sterklega koma til greina
hjá Steinari að ganga í Víking á ný.
Hannes Leifsson, sem í vor varð bikarmeistari
með Stjömunni, hefur nú ákveðið að leika
með sínu gamla félagi Fram næsta vetur. Það er
því ljóst að Framarar mæta sterkari til leiks í
haust en þeir voru í vetur því allar líkur eru á að
Atli Hilmarsson komi heim og leiki með liðinu.
Þá hefur homamaðurinn Pálmi Jónsson ákveðið
að ganga í Fram. Hann var með Val síðastliðinn
vetur en fékk lítið að spreyta sig. Hann lék áður
með FH.
Hannes er gamall Framari. Hann lék með liðinu
í yngri flokkunum og í meistaraflokki þar til vorið
1980. Þá gerðist hann þjálfari Þórs í Vestmanna-
eyjum og var hjá liðinu í tvö ár. Eftir það lék hann
á ný með Fram í tvö ár, en hefur undanfarin fjög-
ur ár leikið með Stjömunni í Garðabæ.
Fimmtugasti
titiil IA
Skagamenn eru ákveðnir í að
standa sig vel í knattspyrnunni í
sumar eins og undanfarin ár þrátt
fyrir að þeir hafi misst marga
„gamla refi“ frá því í fyrra. Ungu
strákarnir hafa staðið fyrir sínu.
Hér gera Skagamenn harða hríð
að marki Fram í leik íslandsmeist-
aranna og bikarmeistaranna.
Morgunblaðið/Bjarni
1987
BILAR: TIMARIMIR TVENNIR/B10