Morgunblaðið - 19.05.1987, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 19.05.1987, Qupperneq 5
/IÞROTT1R ÞRSXJUDAGUR 19. MAÍ 1987 B 5 t KNATTSPYRNA / 2. DEILD Þróttur - UBK 0:1 Ingvaldur gerði eina mark UBK VARNARMAÐURINN Ingvaldur Gústafsson skoraði sigurmark Breiðabliks á 15. mínútu gegn Þrótti í 2. deild íslandsmótsins í knattspyrnu á gervigrasinu í Laugardal í gærkvöldi. Blikarnir byrjuðu betur í gær- kvöldi og áttu nokkur færi sem ekki nýttust fyrsta stundarfjórð- unginn. Ingvaldur Gústafsson, vamarmaður, brá sér þá í sóknina og skoraði fyrir Breiða- blik og reyndist það eina mark leiksins. Hann óð upp að vítateig Þróttar, vamarmaður komst á milli og hugð- ist senda boltann til markvarðar en hann var ekki með á nótunum og Ingvaldur fylgdi vel á eftir og skor- aði af stuttu færi í autt markið. Valur Jónatansson skrifar Blikamir voru betri framan af leikn- um og léku þá oft skemmtilega á milli sín án þess þó að skapa sér hættuleg færi. Þróttarar sóttu stíft undir lokin og freistuðu þess að jafna og skall oft hurð nærri hælum við mark Breiðabliks. Öm Bjama- son varði þá oft vel. Baráttan var mikil í liði Þróttar og hafðu þeir alveg eins átt skilið að jafna í lokin. Bestu leikmenn þeirra vom Atli Helgason og Theódór Jó- hannsson. Hjá Breiðablik var Ingvaldur bestur. Guðmundur Bald- ursson og Guðmundur Guðmunds- son vom góðir í fyrri hálfleik en döluðu er líða tók á leikinn. Jón Þórir átti einnig ágæta spretti. Þrír leikmenn fengu að líta gula spjaldið, Atli Helgason og Sverrir Pétursson, Þrótti og Guðmundur Guðmundsson, UBK. Haður leiksins: Ingvaldur Gústafsson, UBK. Morgunblaðið/Þorkeil GuAmundur Baldursson, UBK, á hér i höggi við einn leikmann Þróttar i gærkvöldi. Hann hefur nú snúið heim eftir tveggja ára dvöl á Möltu. VÍKIKIGDR - LEIFTUR 2:1 Sanngjörn úrslit „ÞETTA voru sanngjörn úrslit. Fyrsta markið, sem viö gáfum þeim, setti okkur út af laginu, en baráttan var góö undir lokin og viA lærum af þessu, tapiA þjappar okkur enn betur sam- an og viA eigum eftir að gera betur," sagAi Óskar Ingimund- arson, þjálfari Leifturs, eftir leikinn á gervigrasinu í Laug- ardal á sunnudaginn. Víkingur sótti meira, en skyndi- sóknir Leifturs vom hættuleg- ar án þess að ganga upp. Trausti Ómarsson skoraði fyrsta markið á 35. mínútu. Þórður Steinþór Marelsson gaf fyrir Guóbjartsson markið frá hægri, skrifar Þorvaldur Jónsson hljóp út, en sló bolt- ann beint til Atla Einarssonar, hann gaf strax á Einar Einarsson, sem fann Trausta á auðum sjó og eftir- leikurinn var auðveldur. Einar skoraði annað mark Víkings á 59. mínútu eftir að Trausti hafði misnotað tvö dauðafæri. í fyrra skiptið stóð hann fyrir opnu marki, en lyfti yfír, en Þorvaldur varði vel í það seinna, hélt samt ekki boltan- um, sem hrökk til Einars og honum brást ekki bogalistin. Ólafsfírðingar hrisstu af sér slenið undir lok leiksins og á síðustu mínútu skoraði Hafsteinn Jakobs- son úr vítaspymu. Þung sókn Leifturs endaði með sendingu Óskars þjálfara á Steinar bróður sinn, en Jón Otti Jónsson markvörð- ur braut á honum, þar sem hann var í góðu færi við markteiginn. „Við gerðum allt of mörg mistök og einbeitninguna vantaði. Leiftur lék ágætlega undir lokin, en við sigmðum og það er ánægjulegt, þó margt þurfi að laga,“ sagði Sedov, þjálfari Víkings. Allt spil Víkings snerist í kringum Jóhann Þorvarð- arson og Einar átti góða spretti. Þorvaldur Jónsson var góður í marki Leifturs og Gústaf Ómarsson var sterkur. Gylfí Orrason dómari byijaði ágæt- lega, en var ekki nógu ákveðinn, hefði oft mátt dæma hendi, sem hann aldrei gerði. Maður leiksins: Jóhann Þorvarðarson, Víkingi KS - ÍBÍ 2:1 Heimamenn betri SIGLFIRÐINGAR hófu keppn- ina í 2. deild meA því aA vinna ísfirAinga meA tveimur mörk- um gegn einu í frekar slökum leik á malarvellinum á Siglufirði á sunnudaginn. jr Isfirðingar náðu forystunni i leiknum mað marki Birgis Ólafs- sonar á 11. mínútu. Hann fékk þá boltann einn og óvaldaður innan vítateigs KS og Frá skoraði af stuttu Rögnvatdi færi. Sigfirðingar Þórðarssyni jöfnuðu á 26. á Siglufirði mínútu. Tekið var innkast á móts við vítateig ÍBÍ. Mark Duffield framlengdi innkastið með skalla inn í vítateiginn og þar var Hafþór Kolbeinsson og skallaði áfram í netið yfir Heiðar í marki ísfirðinga. Heimamenn skoruðu síðan sigur- markið á 64. mínútu. Bjöm Ingi- mundarson skoraði það með viðstöðulausu skoti frá vítateig eft- ir fyrirgjöf frá Friðfinni Jónssyni. Glæsilegt mark. ísfírðingar fengu svo upplagt tækifæri til að jafna leikinn á síðustu mínútu er Kristinn Krsitjánsson fékk knöttinn einn og óvaldaður innan vítateigs KS, en skaut framhjá. Leikurinn bar þess merki að vera fyrsti leikur þessara liða í sumar. Leikmenn ekki alveg komnir í fulla leikæfingu. Baráttan var í fyrirrúmi hjá liðunum og ekki mikið um mark- tækifæri. Siglfirðingar voru þó meira með knöttinn og sigurinn verðskuldaður. ísfirðingamir, Kristinn Krsitjánsson og Gunnar Guðmundsson, fengu að líta gula spjaldið hjá dómaranum. Björn Ingimundarson var bestur í liði KS og Mark Duffield komst einnig vel frá leiknum. Hjá ÍBÍ var Kristinn Kristjánsson bestur. MaAur loiksins: Bjöm Ingimundarson, KS. Morgunblaðið/Júlíus Olnbogaskot Olnbogaskot eru ekki leyfileg í knatt- spymu, en hér var ekkert dæmt. 1R - EINHERJI 1:1 ^ Fyrsta stig ÍR ÍR nældi sér í eitt stig úr sínum fyrsta leik í 2. deild er þeir gerAu jafntefli, 1:1, viA Einherja frá VopnafirAi á gervigrasinu á Laugardaginn. Leikurinn var frekar slakur enda var mikill vindur og setti hann mark sitt á leikinn. Einheiji lék undan vindinum í fyrri hálfleik og voru meira með boltann. Eina færi hálfleiksins átti Geir Magnússon fyrir ÍR er hann komst einn innfyrir en markvörður Einheija, Hreggviður Agústsson, verði vel. ÍR-ingar komu meira inn í leikinn í seinni hálfleik enda með vindinn í bakið. Páll Rafnsson skoraði fyrsta mark íslandsmótsins fyrir ÍR á 74. Valur Jónatansson skrifar mínútu. Hann varð skyndilega á auðum sjó fyrir framan mark Vopn- fírðinga. Hann lék á markvörðinn og renndi knettinum í netið. Ein- heiji jafnaði aðeins tveimur mínút- um síðar er Einar Ólafsson handlék knöttinn innan vítateigs ÍR. Kristj- án Davíðsson skoraði síðan af öryggi úr vítaspymunni. Úrslit leiksins verða að teljast sann- gjöm. Ef marka má þennan leik verða þessi lið í botnbaráttunni í sumar. Kristján Davíðson og Eríkur Sverrisson vom bestu leikmenn Einheija en hjá ÍR vora Guðjón Ragnarsson og Bragi Bjömsson bestir. Sveinn Sveinsson dæmdi leikinn vél. Hann sýndi Baldri Kjartanssyni og Kristjáni Davíðssyni, Einheija, gula spjaldið. Maður lciksins: Kristján Davíðsson, Einherja. ÍBV - Selfoss 2:2 Bergur hetja Eyjamanna í Vestmannaeyjum hófst ís- landsmótiA í 2. deild meA jeik heimamanna og Selfoss. í byrj- un var allt útlit fyrir aA Eyja- menn fengju slæma útreiA. Eftir 10 mínútna leik var staAan orAin 2:0 fyrir Selfoss, en heimamenn náAu aA jafna. Fyrra mark Selfoss kom á 3. mínútu eftir að Bjöm Axelsson hafði leikið upp vinstri kannt Eyja- manna og gaf botann fyrir markið á Jon Gunnar Bergs Frá GunnariMá sem stóð einn og Sigurfinnssyni óvaldaður í vítateig iVestmanna- jBy og sk0raði af eyjum öryggi. Á 10. mínútu bættu þeir öðra markinu við og var Bjöm Axelsson þar að verki. Útlitið var því orðið nokkuð dökkt hjá heimamönnum. Það rofaði þó aðeins til á 38. mínútu þegar Berg- ur Ágústsson branaði upp allan völl og sendi þramuskot í mark Selfyssinga, óveijandi yfir Hreiðar markvörð. Glæsilegt mark. í fyrri hálfleik má segja að Selfyss- ingar hafi verið öllu ákveðnari, áttu nokkur færi til að bæta við mörk- um. Þeir höfðu öll völd á miðju vallarins og var eins og dálítið Morgunblaöið Gunnar Már Sigurfinnsson Eyjamenn tefla nú fram mjög breyttu liði frá því í fyrra. reiðuleysi væri á uppdekkunum heimamanna. En eftir því sem á leið lagaðist það og heimamenn komust meira inn í leikinn. Eftir mikla pressu heimamanna í síðari hálfleik uppskára þeir laun erfiðisíns. Á 53. mínútu skoraði Bergur Ágústsson annað stórgott mark, eftir góðan undirbúning Inga Sigurðssonr. Eftir markið tók ÍBV öll völd á vellinum og sköpuðu leik- menn liðsins sér oft góð færi. Selfyssingar laumuðu þó inn á milli stórhættulegum skyndisóknum. Því má segja að jafntefli hafi verið sanngjöm úrslit í ágætum leik. Lið ÍBV var mikið breytt frá síðasta keppnistímabili. Meðalaldur liðsins aðeins rúm 19 ár. Hjá ÍBV var Bergur Ágústsson bestur og áttu vamarmenn Selfoss oft í miklum vandræðum með hann. Þá var Elías Friðriksson góður. Hjá Selfyssing- um var Bjöm Axelsson sprækur framanaf. Þá var Eyjamaðurinn, Þórarinn Ingólfsson, góður ásamt Jóni Gunnari Bergs. Maður leiksins: Bergur Ágústsson, ÍBV.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.