Morgunblaðið - 22.05.1987, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987
C 11
Cease Fire á skilið miklu betri
útleigu en raun ber vitni. Hún
gefur áhorfandanum innsýn í
þær raunir sem skaddaöir menn
á sái og líkama lentu í þegar
heim var komið. Það hefur margt
verið rætt og ritað um Vietnam-
stríðið og gerðar um það fjöl-
margar misgóðar myndir. Og nú
er nýtt Vietnam-myndaflóö á
leiðinni með ekki ómerkari mynd
en Platoon og nýjasta verk
Kubricks í fararbroddi. f smæð
sinni og hreinskilni, þar sem ekki
er verið að reyna að sýnast held-
ur setja fram trúverðuga lýsingu
á andstyggilegum efirhreytum
enn andstyggilegra stíðs, tel óg
að þessi yfirlætislausa mynd eigi
talsverðan tilverurétt meðal
risanna.
MYNDBÖND
Sæbjörn Valdimarsson
FERDALAG
IMATTY
The Journey of Natty Gann
☆ ☆ ☆
Leikstjóri Jeremy Kagan. List-
ræn stjórnun Paul Sylbert.
Tónlist James Horner. Kvik-
myndatökustjóri Dick Bush,
BSC. Handrit Jeanne Rosen-
berg. Aðalleikendur Meredith
Salenger, John Cusack, Ray
Wise. Walt Disney/Silver
Screen Partners II 1985.
The Journey of Natty Gann
hefst á hápunkti kreppuár-
anna í Chicago. Ray Wise er boðin
vinna vestur við Kyrrahafströnd-
ina, að líkindum vegna afskipta
fyrir bættum kjörum verkamann-
anna. Hann verður að yfirgefa
borgina í miklum flýti og fær því
ekki tækifæri til að hafa uppá 14
ára einkadóttur sinni, Meredith
Selenger, og taka hana með sér.
Móðirin er látin.
En Salinger lætur sér fátt fyrir
brjósti brenna og heldur ótrauð á
puttanum í vesturátt. Á þessum
árum voru lestirnar helstu sam-
göngutækin og gripa- og flutninga-
vagnar að auki gjörnýttir af
atvinnuleysingjum, flækingum og
rónum. í þessum ævintýrlega sel-
skap leggur Salenger í reisu sína
þvert yfir meginlandið. Henni til
halds og trausts verður John
Cusack, annar umkomuleysingi í
leit að illskárra hlutskipti. Að auki
tekst vinátta með stúlkunni og
heldur óáárennilegum úlfi sem
fylgir henni á leiðarenda og kemur
oft til hjálpar þegar illa stendur á.
Eftir margvísleg ævintýri lýkur
þessari háskaferð á farsælan hátt.
Tjong er Disneymynd eins og
við þekkjum þær bestar. Fyrsta
flokks skemmtiefni fyrir alla fjöl-
skylduna, vel gerð í hvívetna og
umfram allt mannleg og bætandi.
Það vekur athygli hve vandvirknis-
lega hún er gerð, með ólíkindum
hversu vel hefur tekist að endur-
skapa liðinn tíma og andrúmsloft
með búningum, leiksviði og leik-
munum. Efnið er líflegt þvi ferða-
lagið er á allan hátt hið ævintýra-
Kennsla eða
kraftave
MOL
Vítiseldar/Cease Fire ★ ★ 'h
Leikstjóri David Nutter.
Framleiðandi William Grefe.
Aðalleikendur Don Johnson,
Lisa Blount, Robert F. Lions.
Bandarísk 1984.
að skal tekið fram í upphafi
|Jað umrædd mynd hefur far-
ið litla frægðarför á myndbanda-
leigur landsmanna. Legið þar
lengst af og rykfallið. Þar má
kenna að nokkru leyti um ákaf-
lega slæmri kápu sem fælt hefur
viðskiptavini frá myndinni sem
m.a. státar af einum vinsælasta
sjónvarpsleikara samtímans,
Don Johnson, (Miami Vice).
Hér fer Johnson með hlutverk
fyrrverandi Vietnam-hermanns
sem missir allt í einu atvinnuna
og þá taka slæmar endurminn-
ingar úr stríðinu að hrjá hann á
nýjan leik. í endalausri atvinnu-
leit kynnist hann fleirum sem
svipað er komið fyrir og það er
ekki tekið út með sældinni að
ná fótfestu á ný.
EINN
America 3000 ★
Leikstjóri og handrit David
Engelbach. Framleiðendur Golan
og Globus. Kvikmyndataka David
Gurfinkel. Tónlist Tony Berg.
Aðalleikendur Chuck Wagner,
Laurene Landon, William
Wailace, Victoria Barrett, Camilla
Sparv. Israelsk. Cannon Films
1986.
Það dylst ekki að þessi yfir-
gengilega vitlausi farsi er einn
af banabitum Cannon-kvikmynda-
fyrirtækisins, sem nú riðar til falls.
Ekki stór, svona vænn moldar-
hnefi ofan á kistuna.
Eins og nafnið bendir til á mynd-
in að gerast árið 3000. í kjarnorku-
stríði hefur nánast öllu mannkyn-
inu verið útrýmt og kvenpeningur-
Heavenly Pursuits ★ ★
Leikstjóri og handrit Charies Gormley. Kvik-
myndatökustjóri Michel Couiter. Klipping John
Gow. Tónlist B.A. Anderson. Framleiðandi Mic-
hael Relph. Aðalleikendur Tom Conti, Helen
Mirren, Brian Pettifer, David Hayman, Jennifer
Balck, Dave Andrson. Bresk. Island Fitm í sam-
vinnu við Skreba 1987.
w
Iskóla hinnar blessuðu Edith i Skotlandi ætlar
allt af göflunum að ganga. En þetta er skóli
kaþólskra og heitir eftir stúlku sem fyrir krafta-
verk hlaut sjónina aftur á árum fyrri heimsstyrjald-
ar.
Meðal kennara skólans eru þau Helen Mirren
og Tom Conti, sem þykir sopinn góður. Nú fara
að gerast ýmis illútskýranleg atvik við skólann.
Conti fer í rannsókn og þá kemur í Ijós að hann
er með ólæknandi krabbameinsæxli við heilann.
Það hverfur svo nokkru síðar. Þá hrapar hann
ofan af þaki skólans án þess að skrámast og tor-
næmir nemendur komast á skrið.
Skólayfirvöldum er illa við þetta fjaðrafok og
er nemendum og kennurum bannað að hafa nokk-
uð samband við fjölmiðla. Þvi kann Conti illa og
grípur til eigin ráðstafanna til að útskljá málið.
Hér fáum við innsýn í kaþólskan unglingaskóla
og það andrúmsloft er ærið framandi Við erum
lítið inni kraftaverkaskráningum og öðrum geist-
legum atburðum sem þar ber á góma. Ekki er
heldur til bóta að leikstjórn er slök og efnisþráður-
inn ómarkviss. Aukapersónur illa sniðnar og
flöktandi. Þau Tom Conti og Helen Mirren standa
sig hinsvegar allbærilega, (þó svo að Conti hafi
ekki enn sést nálgast sitt sögufræga Reuben,
Reuben-banastuð) og bjarga því sem bjargað verð-
ur með traustum, jarðbundnum leik.
DARHNEJFI
legasta, hálfgerður samnefnari
fyrir þau margvíslegu þjóðfélags-
vandamál sem skutu upp kollinum
í örbirgð kreppunnar. Að auki fáum
við nasaþefinn af ósköp sætu og
sakleysislegu ástarævintýri!
Telpuhnátan Meredith Salenger
stendur sig afbragðsvel í stóru
aðalhlutverki, sömuleiðis Cusack
og Wise, annars hefur tekist prýði-
lega að velja í hlutverkin yfir höfuð.
Og ekki má gleyma úlfinum, sem
á köflum stelur senunni. En aðal-
stjörnur myndarinnar eru handrits-
höfundur og þeir sem réðu útliti
hennar. Úrvalsskemmtun fyrir alla
aldurshópa.
inn tekið völdin. (Það er sjálfsagt
ekki víðsfjarri framtíðarórum ein-
hverra landa vorra, frekar innan
seilingarl). Eru kvenmennirnir vits-*
munaverurnar en karlhróin — sem
virðast ekki ná langt yfir þrítugt,
frekar en konurnar — eru ýmist
notaðir sem áburðarjálkar, til
skemmtunar og þeir útvöldu til að
viðhalda mannkyninu.
En þegar hér er komið sögu er
óeining brostin í lið kvenna og
nokkrir af karlgörmunum taka sig
til og uppfræða þær dálítið um ást
og umhyggju.
Þvílíkur déskotans samsetning-
ur. Það lítur út fyrir að Golan/
Globus-tvíeykið hafi ekki haft
nokkurt auga fyrir gengi þeirra
verka sem þeir stóðu fyrir, það
sannar þessi mynd og fjölmargar
aðrar sem hafa kolfallið hvarvetna
á jarðríki þar sem þær hafa verið
sýndar. Þeir höfðu einnig allnokkra
tilburði í frammi við að reyna að
kaupa sér klassaímynd, slíkt hefur
heldur ekki gengið sem best. Hér
viröast þeir einna helst vera að
undirbúa jarðveginn fyrir aftur-
komu til Israels þar sem þessi
ósköp eru tekin og unnin algjörlega
af þarlendum gyðingum.
Því miður, það er ekki margt um
Ijósa punkta í America 3000, ekki
einu sinni þó maður leiti með sínu
kristilegasta hugarfari og öll er
myndin heldur viðvaningslega
gerð. Aumt er að sjá konugreyið
Camillu Sparv sem á síðasta ára-
tug vermdi lokrekkju Bob Evans,
sem þá var einn valdamesti fram-
leiðandi í Hollywood-borg. Og lék
sér lítil stúlka að legg og skel á
Skánarströndum. Það hefur verið
ólíkt heilbrigðara og öfundsverð-
ara líf.