Morgunblaðið - 22.05.1987, Blaðsíða 14
14 C
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987
HVAÐ
ERAD
GERAST
UM
FÉLAGSLÍF
Hótel Örk:
Hlaðborð,
sund og sauna
„Brunch" að amerískum sið á
Hótel Örk á sunnudögum milli kl.
12 og 15. Orðið „Brunch" samanst-
endur af ensku orðunum breakfast
og lunch sem þýða morgunverður
og hádegisverður. Hér er um að
ræða hlaöborð með köldum og
heitum réttum, s.s. stórsteikum,
síld, eggjum.beikoni og ávöxtum.
Matargestir fá frítt í sundlaug og
sauna. Helmings afsláttur er fyrir
börn undir 12 ára aldri.
Fastar áætlunarferðir eru farnar
frá Umferðamiðstöðinni til Hvera-
gerðis.__________________
SÖFN
Póst- og síma-
minjasafnið:
Opið á sunnudögum
og þriðjudögum
Póst- og símamálastofnunin hef-
ur opnaö safn, Póst- og símaminja-
safnið, í gömlu símstööinni að
Austurgötu 11 í Hafnarfirði. Þar
getur að líta safn fjölbreytilegra
muna og tækja er tengjast póst-
og símaþjónustu á fslandi. Fyrst um
sinn verður safnið opið á sunnudög-
um og þriðjudögum kl. 15-18.
Aðgangur er ókeypis. Þeir sem vilja
skoða safnið utan opnunartíma hafi
samband við safnvörð í síma
54321.
Þjóðminjasafn íslands:
Opið fjóra daga
vikunnar
Þjóðminjasafn íslands er opið
laugardaga, sunnudaga, þriöjudaga
og fimmtudaga frá kl. 13.00 til
16.00.
Sjóminjasafnið:
Lokað vegna
breytinga
Sjóminjasafn íslands verður lok-
að vegna breytinga þangað til í
byrjun júní.
Þá verður opnað aftur með sýn-
ingu um íslenska árabátinn og
byggir sú sýning á bókum Lúðvíks
Kristjánssonar „íslenskum sjávar-
háttum". Til sýnis verða kort og
myndir úr bókinni auk veiðarfæra,
líkana o.fl.
Árbæjarsafn:
Opið eftir
samkomulagi
Enginn fastur opnunart ími er í
Árbæjarsafni en safnið er opið eftir
samkomulagi. Síminn er 84412.
Listasafn Einars
Jónssonar:
Safn og garður
Listasafn EinarsJónssonarer
opið alla laugardaga og sunnudaga
kl. 13.30 til 16. Höggmyndagaröur-
inneropinndaglegafrákl. 11 til 17.
Ásgrímssafn opið
Ásgrímssafn er opið sunnudaga,
þriðjudaga og fimmtudaga milli kl.
13.30 og 16.____________
MYNDLIST
Gallerí Borg:
Vignir Jóhannsson
sýnir
í Galleri Borg, Pósthússtræti 9,
stendur nú yfir sýning Vignis Jó-
hannssonar. Á sýningunni eru
olíumyndir og krítarteikningar unnar
á þessu ári í Nýju-Mexico, þar sem
Vignir er nú búsettur. Sýningunni
líkur 2. júní.
Sýning Eddu Jóns-
dóttur
Laugardaginn 23. maí kl. 14 til
18 opnar Edda Jónsdóttir sýningu
í Gallerí Borg, nýja sýningarsalnum
í Austurstræti 10 á annarri hæð. Á
sýningunni verða rúmlega tuttugu
vatnslitaþrykk og ætingar unnar
seinni hluta ársins 1986 og á þessu
ári. Sýningunni lýkur 3. júní.
Báðir salirnir eru opnir frá kl. 14
til 18 um helgar, frá kl. 12 til 18 á
mánudögum og frá kl. 10 til 18
aðra virkadaga.
Listasafn ASÍ:
Norrænn heimilis-
iðnaður
Laugardaginn 23. maí kl. 14 verð-
ur opnuð norræn heimilisiönaðar-
sýning í Listasafni ASÍ við
Grensásveg. Sýningin var unnin i
tilefni norræns heimilisiðnaðarþings
ÍKuopio, Finnlandi. Þema þingsins
var vöruþróun í heimilisiðnaði, frá
hugmynd til fullmótaðra hluta og
tók hvert land mið af þvi við undir-
búning sinn sýningar. Sýningin er
mjög fjölbreytt að efni, allt frá textíl-
vinnu af ýmsum toga til málm- og
beinsmíði.
Sýningin er opin virka daga kl.
14 til 20 og um helgar kl. 14 til 22.
Athugið að sýningunni lýkur sunnu-
daginn31.maí.
Ingólfsbrunnur:
Ófeigur Ólafsson
sýnir vatnslita-
myndir
Ófeigur Ólafsson sýnir vatnslita-
myndirí Ingólfsbrunni, Miðbæjar-
markaðinum. Opið er á verslun-
artíma alla virka daga. Sýningin er
sölusýning.
Ásmundarsalur:
„Frakkland og
Bandaríkin -
nýir straumar í mód-
ernisma"
Sýningin „Frakkland og Banda-
ríkin - nýir straumar í módernismar"
stendur nú yfir í Ásmundarsal við
Freyjugötu. I ár minnast menn þess
víða um heim að 100 ár eru liöin
frá fæðingu eins helsta brautryðj-
anda módernismans í arkitektúr,
fransk-svissneska arkitektsins Le
Corbusier. M.a. af því tilefni fannst
sýningarráði Arkitektafélags íslands
við hæfi að fá hingað til lands sýn-
ingu sem á einhvern hátt fjailaði um
módernismann og stöðu hans nú.
Fyrir valinu varð þessi sýning sem
Si'ðasta sýning á Rympu verður á sunnudag
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ:
Rympa á rusla-
haugnum
- sfðasta sýning
Barnaleikritið Rympa á ruslahaugnum eftir Herdísi
Egilsdóttur verður sýnt á stóra sviðinu á sunnudag kl. 15.
Leikstjóri er Kristbjörg Kjeld, hönnuður leikmyndar og bún-
inga er Messíana Tómasdóttir, dansahöfundur Lára
Stefánsdóttir, Ijósahönnuður Björn Bergsteinn Guð-
mundssson, enJóhann G. Jóhannsson útseturtónlistina
og stjórnar hljómsveit á sviðinu.
Tónlist og dans setja mikinn svip á leikinn. Leikritið ge-
rist á ruslahaug, sem er iðandi af li'fi og munu rúmlega 20
ungir ballettdansarar sjá til þess. Sigríður Þorvaldsdóttir
leikur skemmtilega skassið Rympu, sem býr á ruslahaugn-
um með hauslausa tuskukarlinum Volta. Það verður aldeilis
búhnykkur fyrir hana þegar tvö börn birtast á öskuhaugun-
um á flótta frá heimili og skóla.
unnin var í samvinnu franska arki-
tektsins Michel Kagan og hins
kunna enska fræðimanns Kenneth
Frampton. Sýningin verður opin alla
daga frá kl. 14 til 18. Sýningin mun
standa til 24. maí.
Hilmar Fredriksen og Laila Haugen
Þau munu öll dveljast hér á landi
meðan á sýningunni stendur.
Menningarstofnun
Bandaríkjanna:
Lindargata 49:
Sýning Reynirs Sig-
urðssonar
Nústenduryfirsýning Reynirs
Sigurðssonar í húsi Samtakanna
“78 að Lindargötu 49. Reynir sýnir
þar 25 pastelmyndir og olíumálverk.
Reynirstundaði nám við MHÍ og
hefur sl. sex ár haldiö einkasýningar
og tekið þátt í samsýningum heima
og erlendis. Sýningin er opin
fimmtudaga, föstudaga, laugardaga
og sunnudaga frá kl. 17-23. Sýn-
ingunni lýkursunnudaginn 24. maí.
Nýlistasafnið:
KEX
Nú stendur yfir í Nýlistasafninu
og MÍR salnum norsk sýning. Er
sýningarhaldið liður í skiptisýningar
áætlun milli islands, Svíþjóðarog
Noregs. Hugmyndin er að hvert
þessara landa fái að kynnast þvi
sem ungir listamenn eru að gera í
hinum tveimur löndunum. Áður hafa
sýningarnar verið til sýnis í Kultur-
huset í Stockhólmi og UKS í Osló.
Þessi sýningarkeðja hefur hlotið
nafnið „KEX".
Norsku þátttakendurnireru þess-
ir: Ingrid Book.Svanhild Heggedal,
Reidar Kraugerud, Hege Lenne,
Gerd Tinglum, Marianne Bratteli,
Anna Fugaro sýnir
collagemyndverk
Nú stendur yfir sýning Önnu Fug-
aro á collage myndverkum í sýning-
arsal Menningarstofnunnar
Bandaríkjanna að Neshaga 16.
Myndirnar eru allar nýja, um 20 tals-
ins, og allar til sölu. Sýningin verður
opin daglega frá kl. 9 til 17.30, á
fimmtudögum verður opið til 20 og
um helgarfrá 14til22.Sýningunni
lýkur þriðjudaginn 26. maí kl. 17.30.
Gallerí 119:
Plaggöt og grafik
í Gallerí 119, viðJ.L. húsið, stend-
ur nú yfir sýning á plaggötum og
grafíkverkum eftir þekkta listamenn.
Opiðerfrá 12 til 19 virkadaga, 12
til 18 laugardaga og 14 til 18 sunnu-
daga.
„í smáu formi“
í anddyri Norræna hússins stend-
ur yfir sýning á skúlptúrum eftir 5
norræna listamenn: Claes Hake frá
Svíþjóð, Finn Hjortskov Jensen frá
Danmörku, Veikko Myllerfrá Finnl-
andi, Michael O’Donnell frá Noregi
og Rögnu Róbertsdóttur frá íslandi.
Hér er um farandsýningu að ræða
sem kemurfrá Norrænu listamiö-
stöðinni í Sveaborg. Á sýningunni
eru 27 verk, öll í litlu formi og unnin
i mismunandi efni; tré, brons, poly-
ester, reipi o. fl. Sýningin stendur
til 25. maí og er opin daglega kl. 9
til 19, nema sunnudaga kl. 12 til 19.
Gallerí Gangskör:
Skúlptúrsýning
Þórdísar A. Sigurð-
ardóttur
Nú stenduryfirsýning á verkum
Þórdísar A. Sigruöardóttur í Gallerí
Gangskör. Þetta erfyrsta einkasýn-
ing Þórdísar en hún hefurtekið þátt
í nokkrum samsýningum áður. Flest
verkin á sýningunni eru unnin á
þessu ári. Þau eru aðalega úr járni,
steinsteypu og pappa. Sýningin er
opin kl. 12 til 18 virka daga en kl.
14 til 18umhelgar.
Gallerí grjót:
Samsýning Stein-
unnarog Ragnheið-
ar
Sýning á höggmyndum úr leir,
gleri og járni eftir Steinunni Þórarins-
dóttur og grafíkverkum eftir Ragn-
heiði Jónsdóttur stendur nú yfir í
Gallery grjót. Verkin voru á nýjaf-
stöðnum einkasýningum þeirra.
Opið virka daga frá kl. 12 til 18.
Kjarvalsstaðir:
Níels Hafstein sýnir
Á Kjarvalsstöðum stendur nú yfir
sýning á verkum eftir Níels Hafstein
og berhúnyfirskriftina „Svartirog
hvitirhestar".
Sýningin er byggð á minnum úr
þjóðsögum, goðafræði, kristinni trú,
hernaði, ævintýrum og skáldskap,
og fjallar um líf og hreyfingu, kyrrð
og dauða. Á sýningunni eru skúlpt-
úrarúrtréog stáli, ísaumað klæði,
útklippt og grafið látún. Fylgirhverju
verki stutturtexti. Sýningu Níelsar
Hafstein lýkur annan í hvítasunnu.
Sýning ívars Val-
garðssonar
Á kjarvalsstöðum stendur yfir
sýning á verkum ívars Valgarðsson-
ar. Á sýningunni eru fjórir skúlptúrar
úr steinsteypu, og veggmyndir mál-
aðar á tré og stál. Sýningu ívars
Valgarðssonar lýkur annan í hvíta-
sunnu.
Krákan:
Sýning Snædísar
Þorleifdóttur
Sýning Snædísar Þorleifdóttur
stendurnú yfirá Krákunni, Laugar-
veg 22. Á sýningunni eru 15
pastelverk, olíupastel og þurrpastel,
öll unnin árið 1987. Sýningin stend-
urímánuð. Krákaneropinfrákl.
11.30 til 23.30.
Gallerí LangbrókTextíll:
Listmunir sýndir
að staðaldri
Textílgalleríið Langbrók, Bók-
hlöðustíg 2, sýnirvefnað, tauþrykk,
myndverk, fatnað og fleiri listmuni.
Opið þriðjudaga til föstudaga kl.
12-18 og laugardaga kl. 11-14.
Norræna húsið:
Norski listamaður-
inn Yngve Zakarias
sýnir
Á morgun, Jaugardag, kl. 15 verð-
uropnuð sýning á verkum norska
myndlistarmannsins Yngve Zakar-
ias í sýningarsölum Norræna
hússins. Á sýningunni eru bæði
málverk og grafík.
Yngve Zakarias hefur haldið
einkasýningará Norðurlöndunum
og i Þýskalandi og tekið þátt í sam-
sýningum i Finnlandi, Júgóslavíu,
Þýskalandi og Ítalíu. Sýningin verður
opin kl. 14 til 19 alla dagatil 14.júni.
TÓNLIST
Skíðaskálinn Hveradölum:
Haukur Mortens og
hljómsveit
Haukur Mortens og hljómsveit
koma fram og spila í skíðaskálnam-