Morgunblaðið - 22.05.1987, Page 14

Morgunblaðið - 22.05.1987, Page 14
14 C MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987 HVAÐ ERAD GERAST UM FÉLAGSLÍF Hótel Örk: Hlaðborð, sund og sauna „Brunch" að amerískum sið á Hótel Örk á sunnudögum milli kl. 12 og 15. Orðið „Brunch" samanst- endur af ensku orðunum breakfast og lunch sem þýða morgunverður og hádegisverður. Hér er um að ræða hlaöborð með köldum og heitum réttum, s.s. stórsteikum, síld, eggjum.beikoni og ávöxtum. Matargestir fá frítt í sundlaug og sauna. Helmings afsláttur er fyrir börn undir 12 ára aldri. Fastar áætlunarferðir eru farnar frá Umferðamiðstöðinni til Hvera- gerðis.__________________ SÖFN Póst- og síma- minjasafnið: Opið á sunnudögum og þriðjudögum Póst- og símamálastofnunin hef- ur opnaö safn, Póst- og símaminja- safnið, í gömlu símstööinni að Austurgötu 11 í Hafnarfirði. Þar getur að líta safn fjölbreytilegra muna og tækja er tengjast póst- og símaþjónustu á fslandi. Fyrst um sinn verður safnið opið á sunnudög- um og þriðjudögum kl. 15-18. Aðgangur er ókeypis. Þeir sem vilja skoða safnið utan opnunartíma hafi samband við safnvörð í síma 54321. Þjóðminjasafn íslands: Opið fjóra daga vikunnar Þjóðminjasafn íslands er opið laugardaga, sunnudaga, þriöjudaga og fimmtudaga frá kl. 13.00 til 16.00. Sjóminjasafnið: Lokað vegna breytinga Sjóminjasafn íslands verður lok- að vegna breytinga þangað til í byrjun júní. Þá verður opnað aftur með sýn- ingu um íslenska árabátinn og byggir sú sýning á bókum Lúðvíks Kristjánssonar „íslenskum sjávar- háttum". Til sýnis verða kort og myndir úr bókinni auk veiðarfæra, líkana o.fl. Árbæjarsafn: Opið eftir samkomulagi Enginn fastur opnunart ími er í Árbæjarsafni en safnið er opið eftir samkomulagi. Síminn er 84412. Listasafn Einars Jónssonar: Safn og garður Listasafn EinarsJónssonarer opið alla laugardaga og sunnudaga kl. 13.30 til 16. Höggmyndagaröur- inneropinndaglegafrákl. 11 til 17. Ásgrímssafn opið Ásgrímssafn er opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga milli kl. 13.30 og 16.____________ MYNDLIST Gallerí Borg: Vignir Jóhannsson sýnir í Galleri Borg, Pósthússtræti 9, stendur nú yfir sýning Vignis Jó- hannssonar. Á sýningunni eru olíumyndir og krítarteikningar unnar á þessu ári í Nýju-Mexico, þar sem Vignir er nú búsettur. Sýningunni líkur 2. júní. Sýning Eddu Jóns- dóttur Laugardaginn 23. maí kl. 14 til 18 opnar Edda Jónsdóttir sýningu í Gallerí Borg, nýja sýningarsalnum í Austurstræti 10 á annarri hæð. Á sýningunni verða rúmlega tuttugu vatnslitaþrykk og ætingar unnar seinni hluta ársins 1986 og á þessu ári. Sýningunni lýkur 3. júní. Báðir salirnir eru opnir frá kl. 14 til 18 um helgar, frá kl. 12 til 18 á mánudögum og frá kl. 10 til 18 aðra virkadaga. Listasafn ASÍ: Norrænn heimilis- iðnaður Laugardaginn 23. maí kl. 14 verð- ur opnuð norræn heimilisiönaðar- sýning í Listasafni ASÍ við Grensásveg. Sýningin var unnin i tilefni norræns heimilisiðnaðarþings ÍKuopio, Finnlandi. Þema þingsins var vöruþróun í heimilisiðnaði, frá hugmynd til fullmótaðra hluta og tók hvert land mið af þvi við undir- búning sinn sýningar. Sýningin er mjög fjölbreytt að efni, allt frá textíl- vinnu af ýmsum toga til málm- og beinsmíði. Sýningin er opin virka daga kl. 14 til 20 og um helgar kl. 14 til 22. Athugið að sýningunni lýkur sunnu- daginn31.maí. Ingólfsbrunnur: Ófeigur Ólafsson sýnir vatnslita- myndir Ófeigur Ólafsson sýnir vatnslita- myndirí Ingólfsbrunni, Miðbæjar- markaðinum. Opið er á verslun- artíma alla virka daga. Sýningin er sölusýning. Ásmundarsalur: „Frakkland og Bandaríkin - nýir straumar í mód- ernisma" Sýningin „Frakkland og Banda- ríkin - nýir straumar í módernismar" stendur nú yfir í Ásmundarsal við Freyjugötu. I ár minnast menn þess víða um heim að 100 ár eru liöin frá fæðingu eins helsta brautryðj- anda módernismans í arkitektúr, fransk-svissneska arkitektsins Le Corbusier. M.a. af því tilefni fannst sýningarráði Arkitektafélags íslands við hæfi að fá hingað til lands sýn- ingu sem á einhvern hátt fjailaði um módernismann og stöðu hans nú. Fyrir valinu varð þessi sýning sem Si'ðasta sýning á Rympu verður á sunnudag ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ: Rympa á rusla- haugnum - sfðasta sýning Barnaleikritið Rympa á ruslahaugnum eftir Herdísi Egilsdóttur verður sýnt á stóra sviðinu á sunnudag kl. 15. Leikstjóri er Kristbjörg Kjeld, hönnuður leikmyndar og bún- inga er Messíana Tómasdóttir, dansahöfundur Lára Stefánsdóttir, Ijósahönnuður Björn Bergsteinn Guð- mundssson, enJóhann G. Jóhannsson útseturtónlistina og stjórnar hljómsveit á sviðinu. Tónlist og dans setja mikinn svip á leikinn. Leikritið ge- rist á ruslahaug, sem er iðandi af li'fi og munu rúmlega 20 ungir ballettdansarar sjá til þess. Sigríður Þorvaldsdóttir leikur skemmtilega skassið Rympu, sem býr á ruslahaugn- um með hauslausa tuskukarlinum Volta. Það verður aldeilis búhnykkur fyrir hana þegar tvö börn birtast á öskuhaugun- um á flótta frá heimili og skóla. unnin var í samvinnu franska arki- tektsins Michel Kagan og hins kunna enska fræðimanns Kenneth Frampton. Sýningin verður opin alla daga frá kl. 14 til 18. Sýningin mun standa til 24. maí. Hilmar Fredriksen og Laila Haugen Þau munu öll dveljast hér á landi meðan á sýningunni stendur. Menningarstofnun Bandaríkjanna: Lindargata 49: Sýning Reynirs Sig- urðssonar Nústenduryfirsýning Reynirs Sigurðssonar í húsi Samtakanna “78 að Lindargötu 49. Reynir sýnir þar 25 pastelmyndir og olíumálverk. Reynirstundaði nám við MHÍ og hefur sl. sex ár haldiö einkasýningar og tekið þátt í samsýningum heima og erlendis. Sýningin er opin fimmtudaga, föstudaga, laugardaga og sunnudaga frá kl. 17-23. Sýn- ingunni lýkursunnudaginn 24. maí. Nýlistasafnið: KEX Nú stendur yfir í Nýlistasafninu og MÍR salnum norsk sýning. Er sýningarhaldið liður í skiptisýningar áætlun milli islands, Svíþjóðarog Noregs. Hugmyndin er að hvert þessara landa fái að kynnast þvi sem ungir listamenn eru að gera í hinum tveimur löndunum. Áður hafa sýningarnar verið til sýnis í Kultur- huset í Stockhólmi og UKS í Osló. Þessi sýningarkeðja hefur hlotið nafnið „KEX". Norsku þátttakendurnireru þess- ir: Ingrid Book.Svanhild Heggedal, Reidar Kraugerud, Hege Lenne, Gerd Tinglum, Marianne Bratteli, Anna Fugaro sýnir collagemyndverk Nú stendur yfir sýning Önnu Fug- aro á collage myndverkum í sýning- arsal Menningarstofnunnar Bandaríkjanna að Neshaga 16. Myndirnar eru allar nýja, um 20 tals- ins, og allar til sölu. Sýningin verður opin daglega frá kl. 9 til 17.30, á fimmtudögum verður opið til 20 og um helgarfrá 14til22.Sýningunni lýkur þriðjudaginn 26. maí kl. 17.30. Gallerí 119: Plaggöt og grafik í Gallerí 119, viðJ.L. húsið, stend- ur nú yfir sýning á plaggötum og grafíkverkum eftir þekkta listamenn. Opiðerfrá 12 til 19 virkadaga, 12 til 18 laugardaga og 14 til 18 sunnu- daga. „í smáu formi“ í anddyri Norræna hússins stend- ur yfir sýning á skúlptúrum eftir 5 norræna listamenn: Claes Hake frá Svíþjóð, Finn Hjortskov Jensen frá Danmörku, Veikko Myllerfrá Finnl- andi, Michael O’Donnell frá Noregi og Rögnu Róbertsdóttur frá íslandi. Hér er um farandsýningu að ræða sem kemurfrá Norrænu listamiö- stöðinni í Sveaborg. Á sýningunni eru 27 verk, öll í litlu formi og unnin i mismunandi efni; tré, brons, poly- ester, reipi o. fl. Sýningin stendur til 25. maí og er opin daglega kl. 9 til 19, nema sunnudaga kl. 12 til 19. Gallerí Gangskör: Skúlptúrsýning Þórdísar A. Sigurð- ardóttur Nú stenduryfirsýning á verkum Þórdísar A. Sigruöardóttur í Gallerí Gangskör. Þetta erfyrsta einkasýn- ing Þórdísar en hún hefurtekið þátt í nokkrum samsýningum áður. Flest verkin á sýningunni eru unnin á þessu ári. Þau eru aðalega úr járni, steinsteypu og pappa. Sýningin er opin kl. 12 til 18 virka daga en kl. 14 til 18umhelgar. Gallerí grjót: Samsýning Stein- unnarog Ragnheið- ar Sýning á höggmyndum úr leir, gleri og járni eftir Steinunni Þórarins- dóttur og grafíkverkum eftir Ragn- heiði Jónsdóttur stendur nú yfir í Gallery grjót. Verkin voru á nýjaf- stöðnum einkasýningum þeirra. Opið virka daga frá kl. 12 til 18. Kjarvalsstaðir: Níels Hafstein sýnir Á Kjarvalsstöðum stendur nú yfir sýning á verkum eftir Níels Hafstein og berhúnyfirskriftina „Svartirog hvitirhestar". Sýningin er byggð á minnum úr þjóðsögum, goðafræði, kristinni trú, hernaði, ævintýrum og skáldskap, og fjallar um líf og hreyfingu, kyrrð og dauða. Á sýningunni eru skúlpt- úrarúrtréog stáli, ísaumað klæði, útklippt og grafið látún. Fylgirhverju verki stutturtexti. Sýningu Níelsar Hafstein lýkur annan í hvítasunnu. Sýning ívars Val- garðssonar Á kjarvalsstöðum stendur yfir sýning á verkum ívars Valgarðsson- ar. Á sýningunni eru fjórir skúlptúrar úr steinsteypu, og veggmyndir mál- aðar á tré og stál. Sýningu ívars Valgarðssonar lýkur annan í hvíta- sunnu. Krákan: Sýning Snædísar Þorleifdóttur Sýning Snædísar Þorleifdóttur stendurnú yfirá Krákunni, Laugar- veg 22. Á sýningunni eru 15 pastelverk, olíupastel og þurrpastel, öll unnin árið 1987. Sýningin stend- urímánuð. Krákaneropinfrákl. 11.30 til 23.30. Gallerí LangbrókTextíll: Listmunir sýndir að staðaldri Textílgalleríið Langbrók, Bók- hlöðustíg 2, sýnirvefnað, tauþrykk, myndverk, fatnað og fleiri listmuni. Opið þriðjudaga til föstudaga kl. 12-18 og laugardaga kl. 11-14. Norræna húsið: Norski listamaður- inn Yngve Zakarias sýnir Á morgun, Jaugardag, kl. 15 verð- uropnuð sýning á verkum norska myndlistarmannsins Yngve Zakar- ias í sýningarsölum Norræna hússins. Á sýningunni eru bæði málverk og grafík. Yngve Zakarias hefur haldið einkasýningará Norðurlöndunum og i Þýskalandi og tekið þátt í sam- sýningum i Finnlandi, Júgóslavíu, Þýskalandi og Ítalíu. Sýningin verður opin kl. 14 til 19 alla dagatil 14.júni. TÓNLIST Skíðaskálinn Hveradölum: Haukur Mortens og hljómsveit Haukur Mortens og hljómsveit koma fram og spila í skíðaskálnam-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.