Morgunblaðið - 11.07.1987, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1987
21
Majones blandað með þeyttum
rjómanum, gúrkan sett út í og syk-
ur settur eftir smekk.
Frönsk sósa
3 hlutar olíu,
1 hluti edik,
salt og pipar,
Best er að hrista saman olíu og
edik, salt og pipar sett eftir smekk.
Þessi sósa geymist í 1—2 vikur í
lokuðu íláti í kæliskáp.
Spönsk salatsósa
1 bolli majones,
*A bolli ristaðar jarðhnetur,
'/< bolli brytjuð græn paprika,
Vi bolli biytjaðar ólífur (má
sleppa),
2 matsk. brytjaður graslaukur,
V2 tsk. salt,
Vi bolli tómatsósa.
Ollu blandað saman og þynnt
með örlitlu hvítvíni ef vill. Skammt-
urinn verður um það bil U/2 bolli
af sósu.
Súrmjólkur- eða
jógúrtsósa
1 peli súrmjólk eða hrein jógúrt,
Vi tsk. salt,
‘A tsk. pipar,
V« tsk. sinnepsduft,
1 tsk. Worchestersósa,
örlítill cayenne-pipar,
1 matsk. edik,
örlítið hvítlauksduft ef vill.
Ollu blandað saman og kælt fyr-
ir notkun. Magn sósu er ca. 1 bolli.
Sósa úr majonesi og
sýrðum rjóma
Safi úr einni sítrónu,
V2 bolli majones,
Vi bolli sýrður rjómi,
Vi tsk. pipar,
1 matsk. sykur,
dál. timian,
dál. paprikuduft.
Öllu blandað saman, sérlega góð
sósa á hvítkálssalat.
Greiðsla kostnaðar
við greiðslukort:
Eins og seðla-
notendur
greiði prent-
un seðla
- segir Einar Einars-
son framkvæmda-
stjóri Visa Islands
EINAR S. Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Visa Islands telur
að hugmyndir rikisstjórnarinn-
ar um að þeir sem noti greiðslu-
kort greiði kostnað af þeim,
jafngildi því að þeir sem nota
seðla væru látnir greiða fyrir
prentun þeirra sem kostar tugi
milljóna á hveiju ári. Ef allar
þær upphæðir sem greiddar
væru með greiðslukortum ættu
að greiðast með seðlum yrði það
mjög kostnaðarsamt og auk þess
fæli það í sér meiri vinnu fyrir
verslunareigendur og þjónustu-
staði.
„Margháttuð viðskipti fara
fram, sem ekki ættu sér stað ef
fólk gæti ekki hagnýtt sér þennan
greiðslumáta. Og af þessum við-
skiptum fær ríkið söluskatt," sagði
Einar í samtali við Morgunblaðið.
„Ég get ekki séð að verðlagning
í verslunum, til dæmis á tískuvör-
um, og á þjónustu eða gosdrykkj-
um á veitingastöðum myndi lækka
ef notendur ættu að greiða allan
kostnað. Enda hefur enginn viður-
' kennt, ekki einu sinni kaupmanna-
samtökin, að vöruverð hafi hækkað
við notkun greiðslukorta."
Brids
Arnór Ragnarsson
Eins og áður hefur komið fram
virðist þátttaka í sumarbrids 1987
vera að færast í auknum mæli yfir
á þriðjudagana í stað fimmtudaga
sem þótt hafa „bestir" til þessa
(sjónvarpsleysi o.þ.h.). Má af því
draga þá ályktun, að helgarnar á
sumrum séu að færast framar og
hefjist á fimmtudagssíðkvöldum, í
stað föstudaga áður.
Sl. fimmtudag mættu 46 pör til
leiks og var spilað í þremur riðlum.
Úrslit urðu (efstu pör):
A-riðill Stig
Lovísa Eyþórsdóttir —
ÓlínaKjartansdóttir 238
Alda Möller —
Nanna Ágústsdóttir 237
Guðlaugur Sveinsson —
Magnús Sverrisson 236
Guðrún Jóhannesdóttir —
Gróa Guðnadóttir 234
Hermann Tómasson —
Jón Ingi Björnsson 230
B-riðill Stig
Magnús Ólafsson —
Páll V aldimarsson 212
Bjöm Arnarsson —
Guðlaugur Ellertsson 191
Birgir Öm Steingrímsson —
Þórður Bjömsson 178
Anna Þóra Jónsdóttir —
Hjördís Eyþórsdóttir 173
Úlfar Guðmundsson —
Þorfínnur Karlsson 164
C-riðill Stig
Ármann J. Lárusson —
Jón Steinar Ingólfsson 244
Jacqui McGreal —
Þorlákur Jónsson 237
Baldur Bjartmarsson —
Guðmundur Þórðarson 231
Marsibil Ólafsdóttir —
Þómnn Guðmundsdóttir 226
Erlendur Jónsson —
Oddur Jakobsson 225
Og eftir 16 spilakvöld í' sum-
arbrids er staða efstu spilara orðin
þessi: Sveinn Sigurgeirsson 228,
Jacqui McGreal 227, Jón Stefánsson
209, Þorlákur Jónsson 199, Þórður
Björnsson 137, Anna Þóra Jóns-
dóttir, Hjördís Eyþórsdóttir 131,
Hulda Hjálmarsdóttir, Þórarinn
Andrewsson 129, Óskar Karlsson
122, Ragnar Jónsson 114 og Anton
R. Gunnarsson 113.
Og enn er minnt á (að gefnu til-
efni) að sumarbrids er spilaður á
hveijum þriðjudegi (húsið opnar kl.
18) og fimmtudegi (húsið opnar kl.
17.30) að Sigtúni 9 (gengið inn að
austan). Allt spilaáhugafólk vel-
komið meðan húsrúm leyfir. Hvert
spilakvöld er sjálfstæð keppni. Að-
stoð veitt við myndun para.