Morgunblaðið - 23.08.1987, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1987
B 3
böll þegar allir þessir ungu menn
voru á síldarvertíðinni. Hún kveðst
muna eftir balli sem efnt var til á
Langatanga eitt haustið. Þá lágu
togaramir fyrir framan í ágústmán-
uði. Það var skemmtilegt ball.
Þama kom Haukur Thors, en hann
var sá sem þau höfðu mest sam-
band við af framkvæmdastjórum
Kveldúlfs og dætur hans Ragn-
heiður og Margrét. Líka Guðmund-
ur skipstjóri á Skallagrími og
Snæbjöm skipstjóri á Agli Skal-
lagrímssyni og stýrimenn þeirra,
sem stóðu fyrir ballinu. Aldrei seg-
ist hún þó muna eftir slagsmálum
á staðnum, nema hvað einu sinni
sló maður með gijóti til annars.
Allir urðu dauðskelkaðir og sóttu
lækninn.
Fólkið tíndist burt
En sfldin fór sína leið og hvarf
af miðunum, og 1940 hætti Kveld-
úlfur starfseminni á Hesteyri.
Fólkið fór að tínast í burtu eftir að
vélamar þögnuðu.,, Það var hálf
ömurlegt að horfa á eftir vinafólki
sínu“ segir Sigrún. Sölvi var
hreppsstjóri frá 1942 og leit eftir
eignum Kveldúlfs. Á skrifstofunni
var til ritvél, mikill gripur, sem
hann pikkaði á allt sem afgreiða
þurfti. Plögg frá hreppnum og
Kveldúlfi lágu svo hjá honum eftir
að öllu var lokið.
Hvalurinn og síldin
horfin
„Síðast var orðið allt of erfitt að
vera þama. Við vomm 3-4 í heim-
ili. Höfðum 3-4 kýr og þótt Djúp-
báturinn kæmi eftir mjólkinni var
ekki hægt að koma brúsunum út í
hann ef eitthvað var að veðri. Fyrir
kom að Sölvi fór á sjó til að fá í
soðið, ef einhvem fisk var að fá.
Hann var með trillu. Fékk sér spil
og skorður og gat þannig sett bát-
inn upp einn. Setti alltaf skorðumar
fyrir eftir því sem báturinn færðist
upp. En fiskurinn fór líka. Það gerði
dragnótin. Haustið 1950 fór móður-
bróðir Sölva og hans fólk, en við
þraukuðum áfram í tvö ár. Þá flutt-
umst við til Bolungarvíkur að
vetrinum. Við hjónin og gömul kona
sem hjá okkur var, Dagný Jóns-
dóttir, vomm síðustu útflytjendum-
ir. Dagný hafði komið með
einstæðri móður sinni til foreldra
Sölva, Betúels Jónsson og Önnu í
Höfn og fylgdi fjölskyldunni upp frá
því. Sölvi gat ekki flutt í burtu fyrr
en fólkið var allt flutt úr Aðalvík-
inni, því skiptiborð símans var á
Hjalteyri og við sáum um það. En
þama um haustið gerði svo hríðar-
veður og við voram ein með tvo
stráka. Það vora alltaf hjá okkur
krakkar frá ísafirði eða Bolung-
arvík, sem mörg hafa haldið tryggð
við okkur fram á þennan dag. Sá
sem var hjá okkur síðast kom til
okkar á fjórða ári. Einum ungum
vini okkar höfum við svo gefið hús-
ið okkar á Hesteyri og hundrað í
jörð, svo hann geti nýtt sér það og
hafi þarna eigendaréttindi. Hann
heldur því við. Við heyjuðum þar
fyrstu sumurin eftir að við fóram.
Æltuðum að hafa þar kindur, en
fengum ekki • að flytja fé á milli
vegna mæðiveikivarna."
„Síðustu árin komu ekki margir,
þó fengum við góða gesti á sumrin.
Það mun hafa verið um 1950 að
Osvaldur Knudsen kom og tók kvik-
mynd sína um Hornstrandir hjá
okkur. Með honum fyrsta sumarið
kom Halldór Laxness. Hann sat
mikið inni með kort og spurði mig
heilmikið, en ég gat lítið sagt hon-
um því ég var ekki kunnug inni í
Djúpi. Hann var víst að skrifa
Gerplu þá. Ég sagði þegar hann
fékk Nóbelsverðlaunin að ég væri
ósköp fengin að hann var ekki bú-
inn að fá þau þegar hann gisti hjá
okkur. Sumarið eftir kom Osvaldur
aftur og gisti með samferðafólki
sínu og fór þá út í Grannavík."
Við höfum setið lengi á spjalli.
Sigrún Bjarnadóttir er svo
skemmtileg kona og kát.„Það er
ekkert að verða gamall ef maður
heldur heilsu", segir þessi kona,
sem lifði heimabyggð sína.
i-jróóleikur og
X. skemmtun
fyrir háa sem lága!
Allar útsöluvörur seldar á stórlækkuðu verði.
Glugginn,
Laugavegi 40, Kúnsthúsinu.
* Megrunarleikfimi \
* Líkamsrækt \
* Morgunleikfimi \
* Leikfimi fyrir konur eldri en 45 ára '
* Leikfimi fyrir barnshafandi konur
* Leikfimi fyrir konur með barn á brjósti
* Sjúkraleikfimi
* Frúarleikfimi
* Þrektímar
* Eróbik
* Low impact
* Hádegistímar
• v •:* ': iy--iiiii. i-':-M:
- '
Opn unartilboð:
4 vikur í leikfimi
og 5 tímaríljós
kr. 2.390
Verð: Kr. 1.750
fyrir 4 vikur í leikfimi
10 tímar í ljós kr. 1.700
36 peru ljósa-
bekkir með 3
andlitsljósum
(spegilperur og
pending fótur)
Opið alla virka
daga og um helgar
frákl. 10-23.30
VJSA
LÍKAMSRÆKX (X. IJÓS
BÆJARHRAUNI4 VIÐ KEFLAVIKURVECINN