Morgunblaðið - 23.08.1987, Page 15

Morgunblaðið - 23.08.1987, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1987 B 15 t Hér sérðu þrjér vaxtatölur. Hver þeirra er hæst? S cn >' Nú hafa vextir af spariskírteinum ríkissjóðs hækkað í allt að 8,5% umfram verðtryggingu. Þar með hefur ríkissjóður tekið af ailan vafa um hvaða sparnaðarleið sé þér öruggust; því þegar vel er að gáð eru spariskírteini ríkissjóðs vænlegri kostur en víða býðst þrátt fyrir að vextirnir séu þeir sömu eða jafnvel hærri. Þrír nýir flokkar spariskírteina rikissjóðs. Ríkissjóður íslands er nú að hefja sölu á nýjum flokkum spariskírteina sem bera vexti á bilinu 7,2% til 8,5% eftir lengd lánstíma. Nýju skírteinin eru: 1. Söfnunarskírteini sem greiðast eftir 2 ár með 8,5% ársvöxtum umfram verð- tryggingu- 2. Söfnunarskírteini sem greiðast eftir 4 ár með 8,0% ársvöxtum umfram verð- tryggingu. Söfnunarskírteinin safna árlega vöxtum, vaxtavöxtum og verðbótum sem þú færð greitt í einu lagi að lánstímanum loknum. 3. Hefðbundin spariskírteini með 6 ára binditíma en allt að 10 ára lánstíma og 7,2% ársvöxtum umfram verðtrygg- ingu. Að binditímanum loknum eru skírteinin innleysanleg hvenær sem er af hálfu eiganda, en hægt er að láta þau standa í allt að 4 ár í viðbót með 7,2% ársvöxtum. Þannig getur þú rúmlega tvöfaldað höfuðstólinn á tíu árum. Örugg og arðbær sparnaðarleið. Spariskírteini ríkissjóðs eru arðbær sparnaðarleið og öruggari og traustari fjárfesting er vandfundin. Ríkissjóður tryggir þér að vextirnir lækka ekki með- an á lánstímanum stendur og þú getur því verið öruggur um að sparifé þitt beri góða raunvexti til langs tíma. Hafðu þetta í huga þegar þú ávoxtar sparifé þitt. Spariskírteini ríkissjóðs bera ekkert stimpilgjald og eru auk þess tekju- og eignaskattsfrjáls. Fjárfestir þú í spariskírteinum ríkis- sjóðs getur þú selt þau í gegnum Verð- bréfaþing íslands, þótt binditíminn sé ekki útrunninn. Spariskírteini ríkissjóðs eru innlent lánsfé og þannig getur þú lagt þitt af mörkum til að draga úr erlendri skulda- söfnun og treysta efnahag þjóðarinnar. Að þessu leyti hagnast þú enn frekar með því að fjárfesta í spariskírteinum ríkissjóðs. Allt þetta hefur í för með sér, að spari- skírteini ríkissjóðs eru án efa einn álit- legasti kosturinn fyrir sparifé þitt. Þótt sumir bjóði hærri vexti er ávinningur- inn með fjárfestingu í spariskírteinum ríkissjóðs mun meiri en vextirnir segja til um. Allir geta keypt spariskírteini ríkissjóðs. Spariskírteini ríkissjóðs eru gefin út í fimm verðgildum þannig að allir ættu að geta keypt skírteini. Verðgildin eru: 5.000, 10.000, 50.000, 100.000 og 1.000.000. Þú færð spariskírteini ríkissjóðs í Seðlabanka íslands og hjá löggiltum verðbréfasölum sem eru m.a. viðskipta- bankarnir, ýmsir sparisjóðir og pósthús um land allt. RÍKISSJÓÐUR ÍSIANDS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.