Morgunblaðið - 23.08.1987, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1987
B 15
t
Hér sérðu þrjér
vaxtatölur.
Hver þeirra er hæst?
S
cn
>'
Nú hafa vextir af spariskírteinum
ríkissjóðs hækkað í allt að 8,5% umfram
verðtryggingu. Þar með hefur ríkissjóður
tekið af ailan vafa um hvaða sparnaðarleið
sé þér öruggust; því þegar vel er að gáð
eru spariskírteini ríkissjóðs vænlegri
kostur en víða býðst þrátt fyrir að
vextirnir séu þeir sömu eða jafnvel
hærri.
Þrír nýir flokkar
spariskírteina
rikissjóðs.
Ríkissjóður íslands er nú að hefja sölu
á nýjum flokkum spariskírteina sem
bera vexti á bilinu 7,2% til 8,5% eftir
lengd lánstíma. Nýju skírteinin eru:
1. Söfnunarskírteini sem greiðast eftir 2
ár með 8,5% ársvöxtum umfram verð-
tryggingu-
2. Söfnunarskírteini sem greiðast eftir 4
ár með 8,0% ársvöxtum umfram verð-
tryggingu.
Söfnunarskírteinin safna árlega vöxtum,
vaxtavöxtum og verðbótum sem þú
færð greitt í einu lagi að lánstímanum
loknum.
3. Hefðbundin spariskírteini með 6 ára
binditíma en allt að 10 ára lánstíma og
7,2% ársvöxtum umfram verðtrygg-
ingu. Að binditímanum loknum eru
skírteinin innleysanleg hvenær sem er
af hálfu eiganda, en hægt er að láta þau
standa í allt að 4 ár í viðbót með 7,2%
ársvöxtum. Þannig getur þú rúmlega
tvöfaldað höfuðstólinn á tíu árum.
Örugg og arðbær
sparnaðarleið.
Spariskírteini ríkissjóðs eru arðbær
sparnaðarleið og öruggari og traustari
fjárfesting er vandfundin. Ríkissjóður
tryggir þér að vextirnir lækka ekki með-
an á lánstímanum stendur og þú getur
því verið öruggur um að sparifé þitt
beri góða raunvexti til langs tíma.
Hafðu þetta í huga
þegar þú ávoxtar
sparifé þitt.
Spariskírteini ríkissjóðs bera ekkert
stimpilgjald og eru auk þess tekju- og
eignaskattsfrjáls.
Fjárfestir þú í spariskírteinum ríkis-
sjóðs getur þú selt þau í gegnum Verð-
bréfaþing íslands, þótt binditíminn sé
ekki útrunninn.
Spariskírteini ríkissjóðs eru innlent
lánsfé og þannig getur þú lagt þitt af
mörkum til að draga úr erlendri skulda-
söfnun og treysta efnahag þjóðarinnar.
Að þessu leyti hagnast þú enn frekar
með því að fjárfesta í spariskírteinum
ríkissjóðs.
Allt þetta hefur í för með sér, að spari-
skírteini ríkissjóðs eru án efa einn álit-
legasti kosturinn fyrir sparifé þitt. Þótt
sumir bjóði hærri vexti er ávinningur-
inn með fjárfestingu í spariskírteinum
ríkissjóðs mun meiri en vextirnir segja
til um.
Allir geta keypt
spariskírteini
ríkissjóðs.
Spariskírteini ríkissjóðs eru gefin út í
fimm verðgildum þannig að allir ættu að
geta keypt skírteini. Verðgildin eru:
5.000, 10.000, 50.000, 100.000 og
1.000.000.
Þú færð spariskírteini ríkissjóðs í
Seðlabanka íslands og hjá löggiltum
verðbréfasölum sem eru m.a. viðskipta-
bankarnir, ýmsir sparisjóðir og pósthús
um land allt.
RÍKISSJÓÐUR ÍSIANDS