Morgunblaðið - 23.08.1987, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1987
Bretland:
Hætta að orga á 90 km hraða
í BRESKA blaðinu Independent segir nýlega frá bresk-
um föður, sem var orðinn alveg örvilnaður yfir sífelldum
gráti og hávaða í kornungum syni sínum og hefur fund-
ið upp tæki sem læknar magakveisu í börnum og öskrin,
sem henni hljóta óhjákvæmilega að fylgja. Tækið líkir
eftir bifreið á 90 kílómetra hraða.
Armando Cuervo var orðinn
svo þreyttur á orginu í syni
sínum, sem hélt vöku fyrir fjöl-
skyldunni klukkustundum
saman, að hann var „farinn að
leiða hugann að bamamis-
þyrmingum," að eigin sögn.
Hann hringdi loks eina nóttina
í lækni sinn klukkan hálfþijú
að nóttu og bað um hjálp.
„Ég sagði honum að hann
yrði að gera eitthvað í málinu
og hann sagði ég mætti koma,“
sagði Cuervo. En á leiðinni til
læknisins gerðist nokkuð ein-
kennilegt. Gráturinn hætti og
er komið var á áfangastað var
barnið steinsofandi.
Margir foreldrar hafa eflaust
tekið eftir því sama og Cuervo,
að bílferðir róa böm þeirra oft
á tíðum. En þessi reynsla varð
kveikjan að uppfínningu Cuerv-
os - „Veisofanda". Hann sótti
um styrk hjá Bamaheilbrigðis-
stofnuninni í Bretlandi til þess
að hanna tækið og fékk hann.
„Velsofanda" er komið fyrir
undir vöggu viðkomandi org-
andi bams og ruggar henni
mjúklega eins og bíll með nýja
höggdeyfa myndi gera. Tækið
líkir einnig eftir hvini bifreiðar
á 90 kílómetra hraða. Prófanir
Cuervos hafa leitt í ljós að 85%
bamanna, sem fengu að kynn-
ast „Velsofanda" hættu öllu
orgi og látum og sofnuðu vært
og rótt eins og fyrirmyndarböm
eiga að gera.
EINMITT NÚNA
/
/
ER RETTITIMINN
Hitastig lofts og sjávar eins og við Norðurlandabúar viljum hafa það -
með nægu sólskini fyrir alla.
Aðstaða til íþróttaiðkana á sjó og landi eins og amerískir atvinnumenn
vilja hafa hana - á heimsvísu.
Skemmtistaðir og iistviðburðir þar sem allir finna eitthvað fyrir sig - að
sjáifsögðu.
En! Florida býður upp á fleira en baðstrendur og skemmtanalíf.
Farið ekki á mis við DISNEY WORLD - SEA WORLD - CYPRESS
GARDENS og CAPE CANAVERAL.
ATHUGiÐ: í fyrra seldist upp í fyrstu ferðirnar á örfáum dögum. Ef við
lítum á verðið mætti ætla að það sama gerðist nú.
Lítum á tvö dæmi:
A. 11 DAGAR: Quality Inn, Orlando í 3 nætur og Colonial Gateway Inn,
St. Pete Beach í 7 nætur. Verð: 22.010 kr.*
B. 21 DAGAR: Quaiity Inn, Orlando í 6 nætur og Colonial Gateway Inn,
St. Pete Beach í 14 nætur. Verð: 26.530 kr.*
* Verðið er meðalverð fyrir tvo fullorðna og tvö böm (2-11 ára) saman í herbergi og tekur gildi 15. sept.
Boðið er upp á fríar áætlunarferðir frá flugvelli og til St. Pete Beach.
Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum.
Söluskrifstofur Hugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni.
FLUGLEIÐIR
Upplýsingasími 25100.
B 17
POTT-
ÞETTAR
PERUR
AGOÐU
fi|l 1
Allar RING bílaperur
bera merkið (f)
sem þýðir að þœr
uppfylla ýtrustu
gæðakröfur E.B.E.
í
i
i
RING bílaperurnar
fást á bensínstöðvum
Skeljungs