Morgunblaðið - 03.09.1987, Side 16
H38M3TS3? .8 ÍT
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987
16 B______
HVAÐ
ER AÐ
GERAST?
Söfn
Arbæjarsafn
I Árbæjarsafni er nú hægt að skoða
gamla slökkviliösbíla. Þarereinnig sýnd-
ur uppgröftur frá Viöey og miðbæ
Reykjavíkurog líkön af Reykjavík. Safnið
er opið alla daga nema mánudaga frá
10—18.
Ámagarður
I sumar er sýning á handritum í Árna-
garði. Þar má meðal annars sjá Eddu-
kvæði, Flateyjarbók og eitt af elstu
handritum Njálu. Opiö er á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum frá klukk-
an 14—16.
Ásgrímssafn
Sumarsýning Ásgrímssafns stendur nú
yfir. Sýnd eru oliumálverk, vatnslitamynd-
ir og teikningar. Þetta er úrval af verkum
Ásgrfms, mest landslagsmyndir. Ágríms-
safn er við Bergstaöastræti og þar er
opiö alla daga nema laugardaga frá kl.
13.30-16.
Ásmundarsafn
Um þessar mundir stendur yfir i Ásmund-
arsafni sýningin Abstraktlist Ásmundar
Sveinssonar. Þargefurað lita 26 högg-
myndir og 10 vatnslitamyndir og teikning-
ar. Sýningin spannar 30 ára timabil af
ferli Ásmundar, þann tíma sem listamað-
urinn vann að óhlutlægri myndgerð. (
Ásmundarsafni er ennfremur til sýnis
myndband sem fjallar um konuna i list
Ásmundar Sveinssonar. Þá eru til sölu
bækur, kort, litskyggnur, myndbönd og
afsteypuraf verkum listamannsins. Safn-
ið veröur opið daglega frá kl. 10 til 16 í
sumar.
Kjarvalsstaðir
Laugardaginn 5. septemberkl. 14.00
opnar á Kjarvalsstöðum sýning á olíumál-
verkum Helga Þorgils Friðjónssonar.
Sýningunni Iýkur20. september.
Ustasafn ASÍ
Listasafn ASl og verkamannafélagiö
Dagsbrún standa að samsýningu fjög-
urra frístundalistamanna í Dagsbrún,
sem haldin er í salarkynnum Listasafns
ASÍ. Sýningin eropin virka daga kl.
16—20 en um helgar kl. 14—22. Sýning-
unni lýkur 13. september nk.
Myntsafnið
Myntsafn Seðlabanka/Þjóðminjasafns er
i Einholti 4. Þar er kynnt saga íslenskrar
peningaútgáfu. Vöruseðlarog brauð-
peningar frá síöustu öld eru sýndir þar
svo og oröur og heiöurspeningar. Líka
er þar ýmis forn mynt, bæði grísk og
rómversk. Safniö er opiö á sunnudögum
milli kl. 14og 16.
Sjóminjasafnið
Sjóminjasafnið hefur nú opnað nýja sýn-
ingu um árabátaöldina. Hún byggirá
bókum Lúðviks Kristjánssonar „fslensk-
um sjávarháttum". Sýnd eru kort og
myndir úr bókinni, veiðarfæri, líkön og
fleira. Sjóminjasafnið er að Vesturgötu 6
í Hafnarfirði. Það er opiö alla daga nema
mánudagafráklukkan 14—18.
Þjóðminjasafnið
Þjóðminjasafnið er við Hringbraut. Þar
eru meðal annars sýndir munir frá fyrstu
árum (slandsbyggðarog íslensk alþýðu-
list frá miðöldum. Einnig ersérstök
sjóminjadeild og landbúnaöardeild til
dæmis er þar uppsett baðstofa. Einnig
er í safninu sýningin „Hvað er á seyði?"
þar sem rakin er saga eldhúss og elda-
mennsku frá landnámi til okkar daga.
Safnið er opið alla daga frá 13.30— 16.
Landsbókasafn
Handritadeild Landsbókasafns er í Safna-
húsinu við Hverfisgötu. I andyri þess
hefur verið sett upp sýning um Gísla
Konráðsson í tilefni þess að 200 ár eru
liöin frá fæðingu hans. Sýningin eropin
á virkum dögum.
Tónlist
Duus—hús
Djassunnendureiga á vísan að róa þar
sem Heiti potturinn í Duus er. Þar er
leikinn lifandi djass á hverju sunnudags-
kvöldi kl. 9.30. Um þessa helgi býður
Friörik Theódórsson gestum í spuna.
Myndlist
GalleríBorg
I Gallerí Borg við Austurvöll stendur yfir
sýning á verkum eftir Gest og Rúnu.
(Gestur Þorgrímsson og Sigrún Guðjóns-
dóttir.). Gestur sýnir höggmyndir en
Sigrún veggmyndir unnar á glerflísar og
teíkningar. Þetta eru allt nýleg verk. Sýn-
ing þeirra er opin virka daga frá kl. 10— 18
og frá kl. 14—18 um helgar. Sýningunni
lýkur 15. september.
Nýlistasafnið
í Nýlistasafninu við Vatnsstíg eru tvær
myndlistarsýningar. Það eru þau Hjördís
Frímann og Hallgrímur Helgason sem
þar sýna olíumálverk og teikningar. Sýn-
ingin stendur til sunnudagsins 6. sept-
ember og er opin frá 16—20 daglega,
en 14—20 um helgar.
Listasafn Háskólans
Nýlega var sett upp í sýning á verkum í
eigu Listasafns Háskóla íslands, í Odda,
nýja hugvisindahúsinu. Um er að ræða
grafík, teikningar og málverk. Sum þess-
ara verka hafa verið keypt undanfarna
mánuði en önnur eru úr frumgjöfinni.
Aðgangur er ókeypis að sýningunni en
húneropindaglegafrá 13.30—17.
GalleríGrjót
Nú stendur yfir samsýning á verkum allra
meðlima Galleri Gjót. Sýningin er opin
virka daga frá kl. 12 til 18.
Gallerí List
Þetta nýja gallerí er i Skipholti 50 C.
Sýnd verða verk eftir unga og gamla lista-
menn og fjölbreytnin í hávegum höfð.
Langbrók
Textílgalleríiö Langbrók, Bókhlöðustíg 2,
sýnir vefnaö, tauþrykk, myndverk, módel-
fatnaö og fleiri listmuni. Opið er þriöju-
daga til föstudaga kl. 12— 18 og
laugardaga kl. 11—14.
Mokka—kaffi
Bandarískur Ijósmyndari, Michael Gunt-
er, sýnir nú svart—hvitar Ijósmyndir í
Mokka—kaffi. Myndirnareru allarteknar
á islandi. Sýningin er opin alla daga til
klukkan 23.30.
Listmálarafélagið
i Gallerí (slensk List, Vesturgötu 17, er
samsýning Listmálarafélagsins. Þareru
sýnd verk 14 þekktra listamanna. Þetta
er sölusýning með því fyrirkomulagi að
kaupendur verka geta tekiö þau strax
með sér heim og eru þá önnur sett upp
í staðinn. Listamennirnir sem sýna eru:
Karl Kvaran, Pétur Már, Bragi Ásgeirs-
son, Ágúst Petersen, Jóhannes Jóhann-
esson, SigurðurSigurðsson, Björn Birnir,
Kristján Davíðsson, Guðmunda Andrés-
dóttir, Hafsteinn Austmann, Gunnar örn,
Einar Þorláksson, Valtýr Pétursson og
Elías B. Halldórsson. Sýningin er opin
mánudaga til föstudaga frá kl. 09.00 til
17.00. Sýningunni lýkur 20. september.
Svart á Hvrtu
Föstudaginn 4. september kl. 20 opnar
í Gallerí Svart á Hvitu við Óðinstorg sýn-
ing á grafík- og vatnslitamyndum Helga
Þorgils Friðjónssonar. Sýningin er opin
alla daga nema mánudaga frá kl. 14—18
og stendurtil 20. september.
Hafnargallerí
í dag 27. ágúst, opnar Matthew James
Driscoll Ijósmyndasýningu ÍHafnargall-
eríi, Hafnarstræti 4 (yfir bókaverslun
Snæbjarnar). Ásýningunni eru 55 lit-
myndir teknar víðsvegar í Evrópu og
Bandaríkjunum á sl. 8 árum, en flestar
þeirra eru frá Islandi. Sýningin er opin á
venjulegum verslunartíma og henni lýkur
9. sept.
Gullni haninn
Á veitingahúsinu Gullna hananum eru
Þingvallamyndir Sólveigar Eggerz til sýn-
is. Myndirnar eru landslag og fantasíur
frá Þingvöllum, unnar með vatnslitum og
olíukrít. Þæreru allartil sölu.
Gallerí Hallgerður
Kristján Kristjánsson sýnir í Galleri Hall-
gerði, Bókhlöðustíg 2,20 Collages
(klippi)-myndir og ber sýningin yfirskriftina
„DreamsThat Money Can Buy". Efni
myndanna ersótt í heim drauma og
veruleika. Sýningin, sem ersölusýning,
er opin frá 2—6, og henni lýkur 13. sept-
ember.
Skíðaskálinn
Árleg sumarsýning þeirra Bjarna Jóns-
sonar og Astrid Ellingsen er hafin í
Skíðaskálanum í Hveradölum en þar sýna
þau málverk og prjónakjóla, um hverja
helgi.
Eden
Sigurpáll Á. ísfjörð heldur myndlistarsýn-
ingu í Eden í Hveragerði. Sýnir hann þar
36 vatnslita- og olíumyndir sem allar eru
til sölu. Þetta er 12. sýning Sigurpáls.
Sýningin stendurtil 7. september.
Þrastarlundur
Á sumrin eru myndlistarsýningar í Þrast-
arlundi. Nú sýnir Unnur Svavarsdóttir yfir
20 myndir, Akrýle og Pastel. „Af fingrum
fram'' er nafn sýningarinnar og er tilkom-
ið vegna þess að myndirnar koma af
sjálfu sér eða ósjálfrátt. Þetta er 14.
einkasýning Unnar. Sýningin stendur til
20. september.
Ferðalög
Sumardvöl í Básum
Útivist býður upp á ferðir i skála félagsins
í Básum í Þórsmörk. Lagt er af staö á
miövikudögum og sunnudögum klukkan
átta og á föstudagskvöldum klukkan 20.
Farið er til baka sömu daga en fólk ræð-
ur hve marga daga það dvelur.
Útivist
Um helgina 4.-6. september eru tvær
helgarferðir hjá Útivist. 1. Þórsmörk —
Goðaland. Gist verður í góðum skálum
Útivistar i Básum. Aöstaða er öll mjög
góð. Gönguferöir eru við allra hæfi. Farar-
stjóriverðurBjarki Haröarson. Lagt
verður af stað kl. 20.00.
2. Haustferð á Kjöl. Glst I skála á miðj-
um Kili. Göngu- og skoðunarferðir um
Þjófadali, Hveravelli og Kerlingarfjöll,
slóðir Fjalla-Eyvindar. Fariö á grasafjall.
Fararstjóri: Nanna Kaaber.
Þrjár dagsferðir eru á vegum Útivistar
sunnudaglnn 6. september. Kl. 8.00
er dagsferð í Þórsmörk. Stansað 3—4
klst. í Mörkinni. Verð kr. 1000.-. Kl. 10.30
er Klóarvegur — Villlngavetn. Gengin
verðurgamla þjóðleiðin frá Hverageröi í
Grafning. Verð kr. 700.-. Kl. 13.00 Grafn-
ingur — Hagavfk. Berjaferð og létt ganga
um fjölbreytt land sunnan Þingvallavatns.
Verðkr. 600.-. (ferðirnar er frítt fyrir börn
ifylgd fulloröinna. Brottförerfrá BS(,
bensínsölu.
Ath. Það þarf ekki að panta í dagsferöir.
Nánari upplýsingar og farmiðar í helgar-
ferðir fást á skrifstofunni Grófinni 1, slmar
14606 og 23732.
Ferðafélagið
Á föstudagskvöld kl. 20 verða farnar
helgarferðir til Þórsmerkur, þarsem gist
er í sæluhúsi Ferðafélagsins — Skag-
fjörðsskála/Langadal — þar er aðstaðan
fyrir ferðamenn eins og best verður á
kosið í óbyggðum á fslandi, miðstöðvar-
hitun, tvö eldhús með öllum áhöldum
og stúkuð svefnpláss. Til Landmanna-
lauga veröur líka farið og er þar gist (
sæluhúsi Ferðafélagsins í Laugum, sem
er hitað upp með hitaveitu. Góð aðstaða
er í sæluhúsinu, eldhús með gashellum
og öll áhöld. Heitur pollur til baða er afar
vinsæll af gestum staðarins, enda
óvenjulegt að baða sig í heitri laug í 600
m hæð yfir sjó.
Dagsferðir á sunnudaginn verða tvær.
Sú fyrri verðurfarin kl. 09 og hefst á því
að ekið verður til Þingvalla að Svartagili
og gengið þangað hjá Hvalvatni í Botns-
dal. Kl. 13 verður ekið í Botnsdal og
gengið með Botnsá á Glym (198 m), sem
er hæsti foss landsins.
Dagsferðirtil Þórsmerkur verða í septem-
ber: sunnudaginn 13. og 20. og er
brottför kl. 08.
Aðalstræti 16
i kvöld kl. 20.00 stendur Náttúruverndar-
ráð Suðvesturlands fyrir kynningu á
Aðalstræti 16 (á horni Aöalstrætis og
Túngötu). Guðjón Friöriksson sagnfræð-
ingur mun „lesa" með okkur húsið sem
er sennilega elsta húsið að stofni til í
Reykjavík. Hugtakiö „að lesa hús'' er
ættað frá Þórbergi Þórðarsyni. Guðjón
munsegja sögu hússins og nánasta
umhverfis. Með leyfi húseigenda gengur
Guðjón með okkur um húsið, sýnir okkur
það sem þar er að sjá frá fyrri tíð og
getur um atburði er því tengjast. Hann
mun svo svara spurningum. Allireru
velkomnir. Þátttökugjald er ekkert. Áætl-
að er að vettvangsferðin taki 1 til 11/2 klst.
Gamli hópurinn
sameinast aftur
í Súperman 4
Verður sýnd á næstunni
í Háskólabíói:
Árið 1987 er afmælisár Súper-
manmyndanna. Tíu ár eru liðin
frá því sú fyrsta var gerð og
Kal-El brenndi til Jarðar og skildi
pabba sinn, Marlon Brando,
kampakátan með sínar þrjár millj-
ónir dollara fyrir 10 mínútna leik,
og mömmu sína, Susannah York
(sem fékk talsvert minna), eftir á
plánetunni Krypton sem sprakk í
loft upp með það sama. A Jörð-
inni varð Kal-EI bæði Súperman,
bjargvætturinn skikkjuklæddi, og
Clark Kent, blaðamaðurinn knái.
Það ieið ekki á löngu áður en
hann var farinn að fást við Gene
Hackman, sem lék glæpameistar-
ann Lex Luthor, stíga í vænginn
við Margot Kidder, sem lék blaða-
manninn Lois Lane, og troða sér
í símaklefa.
Súperman tvö flaug í hælfarið
og þrjú og nú er komin mynd
númer fjögur, sem sýnd verður á
næstunni f Háskólabfói (ekki má
heldur gleyma Súperstelpunni
sem varð til einhverstaðar á leið-
inni). Það eru ekki lengur þeir
feðgar Alexander og Ilya Salkind,
sem sjá um framleiðsluna, heldur
GoGo-teymið eða ísraelsku móg-
úiamir Menahem Golan og Yoram
Globus. Þeir keyptu réttinn árið
1985 og þeim var efst í huga að
hóa í gamla hópinn frá því í fyrstu
og annarri Súpermanmyndinni.
Það tókst að nokkru leyti. Hack-
man fannst bara skemmtileg
tilhugsunin að leika Lex aftur,
Kidder var tilbúin fyrir Lois Lane,
Jackie Cooper leikur ritstjórann
Perry White og síðast en ekki síst
leikur Christopher Reeve Súper-
man núna í Qórða sinn.
Hinum stirðbusalega Reeve
hefur ekki vegnað sérlega vel í
kvikmyndunum. Hann er þó mjög
áhugasamur leikari og samdi við
GoGo-teymið um að hann léki
Súperman fyrir þá en í staðinn
fengi hann að ráða svolítið sög-
unni og það sem meira var, fengi
líka að leika í mynd sem Cannon
hafði þá í undirbúningi, heitir
Street Smart og var frumsýnd
fyrir skömmu í Bandaríkjunum.
Það, sem Reeve vildi gera við
Súperman, var að færa hann svo-
lítið niður á jörðina ef svo má
segja. Hans hugmynd var að í
þessari mynd ætti Súperman að
beijast fyrir málefni sem ætti sér
rætur í veruleikanum; alhliða
kjamorkuafvopnun. Þar með er
Kryptoninn farinn að skipta sér
heldur betur af pólitík Jarðlinga,
sem Brando harðbannaði honum
að gera í fyrstu myndinni. Lítill
Súperman (Christopher Reeve) tekur hér undir glæsivagn Lex Luthers (Gene Hackman) og frænda
hans Lennys (Jon Cryer).
Súperman ræðir við óþokkann Lex f nýjustu Súpermanmyndinni.
drengur að nafni Jeremy, sem
hræðist kjamorkuvopnakapp-
hlaupið, kveikir friðameistann f
bijósti Súpermans, sem þegar
hefst handa við að losa heiminn
við vopnin ógurlegu með því að
grýta þeim í sólina. Lex Luthor
hugsar sem svo að þegar öll kjam-
orkuvopn hafa horfíð þann veg
sé kominn tími til að sjá
stríðsmöngurum fyrir nýjum
kjamorkuvopnum en til að svo
megi verða þarf hann auðvitað
að losa sig við Súperman og hann
skapar Kjamorkumanninn honum
til höfuðs.
Handritshöfundar Súpermans 4
eru Mark Rosenthal og Larry
Konner sem gerðu síðast handrit-
ið að Jewel of the Nile. Leikstjóri
er kanadamaðurinn Sidney J.
Furie (The Ipcress File í gamla
daga). Nýtt andiit í Súperman-
myndunum er Mariel Hemingway,
sem leikur nýjan ritstjóra á blaði
Clark Kents, hinu velþekkta en
óiesna, The Daily Planet.
- ai.