Morgunblaðið - 04.09.1987, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1987
Morgunblaðið/KGA.
Fjölmenni var á áheyrendapöllum borgarstjórnar í gærkvöldi til að
fylgjast með umræðunum um dagvistunarmál.
Utvegsbankinn hf.:
Starfsfólk sækir um að-
ild að Lífeyrissjóði VR
BANKARÁÐ Útvegsbanka ís-
lands hf. hefur sótt um aðild að
Lífeyrissjóði verzlunarmanna
fyrir starfsfólk bankans, en frá
þvi bankanum var breytt í hluta-
félag 1. mai hafa starfsmenn
hans ekki átt aðild að lifeyris-
sjóði. Viðræður um þetta hafa
staðið yfir frá því í júni.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Þorgeir Eyjólfsson forstjóri Lífeyr-
issjóðs verzlunarmanna að borist
hefði fonnleg ósk um aðild starfs-
manna Útvegsbankans að sjóðnum
frá starfsmannafélagi og bankaráði
bankans 10. júní í vor og hefðu
viðræður staðið yfir síðan. Þorgeir
sagði að lífeyrissjóðnum væri feng-
ur að aðild bankans því starfsmenn
hans eru rúmlega 380 talsins og
iðgjöld sem berast munu lífeyris-
sjóðnum vegna þessara starfs-
manna verða uþb. 30 milljónir á ári.
Þorgeir var spurður hvort þessar
viðræður hefðu haft áhrif á þá
ákvörðun sjóðsins að taka þátt í
kaupum á hlutafé ríkisins í Útvegs-
bankanum ásamt 32 aðilum öðrum.
Þorgeir sagði að stjóm sjóðsins
hefði vissulega staðið frammi fyrir
því að ef ekkert yrði aðhafst hefði
starfsfólk bankans farið að greiða
í lífeyrissjóð Sambandsins þótt það
hefði raunar þegar komið til tals í
FYRSTI viðræðufundur tilboðs-
gjafa í hlutabréf Útvegsbanka
Islands og viðskiptaráðherra
stóð í rúman klukkutíma í gær
og er næsti fundur fyrirhugaður
eftir rúma viku. Tíminn fram að
því verður, að sögn Jóns Sigurðs-
sonar viðskiptaráðherra, notað-
ur til að skoða ýmsa möguleika.
Jón sagði við Morgunblaðið í
gærkvöldi að viðræðumar á fundin-
vor, þegar Útvegsbankanum var
breytt í hlutafélagsbanka, að
Ufeyrissjóður verzlunarmanna
keypti þar hlutabréf.
um hefðu verið mjög vinsamlegar
en vildi að öðm leyti ekkert segja
um hvað þar hefði verið rætt.
Samkomulag varð milli við-
skiptaráðherra, samvinnuhreyfíng-
arinnar og 33 aðila hóps um
sameiginlegar viðræður um sölu
760 milljón króna hlutafjár ríkisins
í Útvegsbankanum. Hugsanlegt er
að síðar komi inn í þessar viðræður
fulltrúar starfsfólks og viðskipta-
vina bankans og sparisjóðir.
Tímamörk á þessar viðræður voru
sett við septemberlok.
Fyrsti fundur um Útvegsbankann í gær:
Næsti fundur
er eftir viku
Davíð Oddsson á borgarstjórnarfundi í umræðum um vanda dagvistarstofnana:
Skortur á starfsmönn-
um gæti varað næstu ár
VANDI dagvistarstofnanna var
ræddur á fundi borgarstjórnar í
gærkvöldi. Fulltrúar minnihlut-
ans fluttu á fundinum tillögu um
að borgarstjóm myndi lýsa yfir
vilja sínum að launakjör þeirra
starfsmanna, sem annast umönn-
un og hjúkrun baraa, sjúkra og
aldraðra yrðu tekin tíl sérstakrar
skoðunar. Sagði Davíð Oddsson,
borgarstjóri, vanda dagvistar-
heimila ekki vera eingöngu
kjaramál. Þúsundir starfskrafta
vantaði í flestar starfsgreinar og
hætta á að þetta ástand myndi
vara næstu árin. Tillögu minni-
hlutans var vísað til borgarráðs
að beiðni Davfðs Oddsonar borg-
arstjóra.
hækkuð.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarfulltrúi Kvennalistans, sagði
þetta ástand í dagvistarmálum vera
orðið nær viðvarandi og þyrfti meira
að koma til en að hækka iaunin.
Ýmsa hluti þyrfti að taka til athug-
unar s.s. vetrarfrí fyrir starfsmenn
þar sem þetta væru mjög erfíð störf.
Davíð Oddsson, borgarstjóri,
sagði þá fulltrúa sem töldu þetta
vera eingöngu kjaramál tala eins
og þeir væru einir í heiminum og
það snerti ekki Reykjavíkurborg að
samtals um 4000 manns vantaði í
störf í flestum stéttum, þar af vant-
aði borgina um 80 manns í umrædd
störf. Sagði hann besta dæmið um
hið slæma ástand í þessum málum
vera að ýmsir væru nú að athuga
möguleika á að flytja inn erlent
vinnuafl. Reykjavíkurborg ætti líka
einhverja sök á þeirri miklu þenslu
sem nú væri en hún hefði á síðustu
5 árum byggt 12 dagvistarheimili
þar sem störfuðu alls um 200
manns. Taldi borgarstjóri líkur á
að þetta yrði árviss vandi næstu ár.
Aðalstræti 8:
Framkvæmdum frestað
Kristín Ólafsdóttir, borgarfulltrúi
Alþýðubandalagsins, ræddi stöðu
dagvistarmála og hversu erfíðlega
hefði gengið að ráða fólk til dagvist-
arstofnana. Sagði hún útlit fyrir að
ástandið yrði enn verra og að borg-
arstjóm ætti að íhuga hversu lengi
skyldi halda þessum rekstri áfram.
Það væri spuming eins og ástandið
væri í dag. Vandann taldi hún ekki
verða leystan nema laun yrðu
„ÞAÐ hefur ekki verið tekin nein
ákvörðun um framhaldið,“ sagði
Birgir Ómar Haraldsson, sem sér
um byggingaframkvæmdir á veg-
um Sölumiðstöðar Hraðfrystihú-
sanna við Aðalstræti 8. íbúar
Gijótaþorps hafa mótmælt fram-
kvæmdunum og stjórn skipulags
ríkisins hefur samþykkt að fram-
kvæmdum verði frestað þar til
deiliskipulag hverfisins liggur
fyrir.
„Við emm með öll okkar leyfi í
lagi og getum þess vegna haldið
áfram. Við munum halda áfram að
girða lóðina ef við fáum frið til þess,“
sagði Birgir. Hann sagði að engin
fyrirmæli hefðu borist frá borgaryfír-
völdum um að framkvæmdir verði
stöðvaðar og að borgaryfírvöld hefðu
ekki fengið tilmæli frá skipulagsyfir-
völdum þar að lútandi.
„Við munum að sjálfsögðu endur-
skoða okkar mál og sjá til þess að
við séum ekki utan við lög og rétt.
Það verður ávallt stefna okkar að
fyllsta öryggis sé gætt á þessu svæði
og sem dæmi má nefha að öryggis-
verðir frá Vara gæta lóðarinnar að
næturlagi. Við höfum samband við
þau yfírvöld sem hlut eiga að máli,
lögreglu og byggingarfulltrúa,"
sagði Birgir.
Laun sláturhúsafólks á Norður-
og Vesturlandi hækka um 30—40%
LAUN starfsfólks sláturhúsanna
á Norður- og Vesturlandi hækka
um 30—40% í sláturtíðinni i
haust, miðað við síðastliðið haust.
Vinnumálasamband samvinnufé-
laganna, fyrir hönd sláturleyfis-
hafa innan SÍS, og verkalýðs-
félögin á svæðinu gerðu
samkomulag um þetta á Akur-
eyri í gærmorgun. Ekki hafa
tekist samningar á milli verka-
lýðsfélaganna á Suðurlandi og
Vinnuveitendasambands íslands
um laun sláturhúsafólks hjá SS
og fleiri sláturhúsum á Suður-
landi.
Hjörtur Eiríksson framkvæmda-
stjóri Vinnumálasambands sam-
vinnufélaganna sagði í gær að nú
hefði verið í fyrsta skipti gerður
heildarsamningur um laun slátur-
húsafólks á Norður- og Vesturlandi.
Launin hefðu verið samræmd og
hækkuðu launin misjafnlega mikið.
Einnig væri erfítt að meta hækkun-
ina vegna mismundandi launakerfa
í sláturhúsunum. Hann taldi þó að
launahækkanir væru almennt á bil-
inu 30—40% frá fyrra ári og mat
það sem 5—7% hækkun umfram
það sem almennir launþegar hafa
fengið á þessu tímabili.
Borgarsljóm:
Afgreiðslu-
tímanum
enn frestað
TILLAGA um að afgreiðslutími
smásöluverslana i Reykjavík
verði gefinn fijáls var á dagskrá
fundar borgarstjómar í gær en
ákveðið var að vísa tillögunni til
borgarráðs.
Tillögunni var frestað að beiðni
borgarfulltrúa minnihlutans þar
sem ljóst var að breytingartillaga
yrði lögð fram á fundinum. í henni
er gert ráð fyrir að sérstaklega
þurfí að sækja um leyfi til borgar-
ráðs til að hafa opið á sunnudögum.
Einnig felst í henni breyting á tíma-
mörkum þeim sem sett voru í
upphafiegu tillögunni.
Tvö skip
seldu í
Bretlandi
TVÖ islensk fiskiskip seldu á
ferskfiskmarkaði í Bretlandi í
gær. Þorri SU seldi í Grimsby
89 tonn fyrir um 5,3 milljónir
króna eða 58,93 krónur að meðal-
verði. Af aflanum voru nm 60
tonn þorskur, sem fór á 61,22
að meðalverði. Halkion VE seldi
í Hull um 110 tonn fyrir um 5,3
milljónir og fékk 47,94 krónur
að meðalverði. Um 48 tonn var
þorskur sem fór á 58 krónur að
meðalverði.
Síðan á mánudag hafa rúmlega
800 tonn af gámafíski verið seld á
Bretlandsmarkaði fyrir samtals
51,7 milljónir króna og er meðal-
verð 64,11 krónur á kílóið. Af
aflanum voru um 497 tonn þorsk-
ur, sem fór á 62,60 að meðalverði,
um 147 tonn af ýsu fóru á 68,36
krónur að meðalverði og 89 tonn
af kola á 72 krónur að meðalverði.