Morgunblaðið - 04.09.1987, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1987
Hótel Örk:
Hótelið verði
starfrækt áfram
- segir Krislján Jóhannesson
sveitarstjóri í Hveragerði
HÓTEL Örk hefur haft mikla þýðingu fyrir Hveragerði alveg frá því
hafist var handa við að byggja það og ég tel afar mikilvægt fyrir
bæjarfélagið að það verði starfrækt hér áfram,“ sagði Kristján Jóhann-
esson, sveitarstjóri í Hveragerði, er hann var spurður um þýðingu
þess fyrir bæjarfélagið, ef rekstri hótelsins yrði hugsanlega hætt.
Kristján kvaðst ekki trúa því að óreyndu að svo færi enda hefði sýnt
sig að rekstrargrundvöllur fyrir starfsemi af þessu tagi væri fyrir
hendi í Hveragerði.
„Þótt núverandi eigandi eigi í fjár-
hagsörðugleikum og ef til vill þurfi
að koma til nýir aðilar til að halda
rekstrinum áfram hefur það sýnt sig
að undanfömu að þetta starf er far-
ið að skila árangri og ég tel að þetta
hótel eigi framtíð fyrir sér,“ sagði
Kristján. Hann sagði að frá því byrj-
að var að byggja hótelið hefði það
haft mikia þýðingu í atvinnumálum
bæjarfélagsins, fyrir utan ýmsa
þjónustu sem hótelið sækti til bæj-
arbúa. Ferðamannastraumur hefði
alltaf verið mikill í Hveragerði og
starfsemi hótelsins hefði verið ein
skraut^öðurin í viðbót varðandi
þjónustu við ferðamenn. Þá væru
ótaldar tekjur vegna opinberra
gjalda sem bæjarfélagið myndi hafa
af rekstri hótelsins í framtíðinni.
„Það er því ljóst að það er mjög
mikilvægt fyrir okkur að þessum
rekstri verði haldið áfram og ég á
bágt með að trúa því að það komi
til með að loka. Það má ekki gerast
því hótelið hefur nú þegar náð í við-
skiptasambönd sem mega ekki
glatast," sagði Kristján.
Morgunblaðið/Sverrir
Birgir ísleifur Gunnarsson menntamálaráðherra afhendir Jóhanni Hjartarsyni áritaða listaverkabók sem
viðurkenningu frá ríkisstjóm íslands i viðurkenningarskyni. Margeir Pétursson er tíl hægri á myndinni
en lengst til vinstri er eiginkona menntamálaráðherra, Sonja Bachman. Héðinn Steingrímsson gat ekki
verið viðstaddur.
Reykjavíkurskákmótið hefst í febrúar á næsta ári:
Sex sterkum stórmeisturum
sérstaklega boðið á mótið
SKÁKSAMBAND íslands hefur
boðið tveimur sovéskum skák-
IDAGkl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa íslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 04.09.87
YFIRLIT á hádegi f gær: Lægð suður og suðaustur af landinu
þokast austur og noröaustur.
SPÁ: í dag verður austan- og norðaustanátt um allt land, víðast
5—7 vindstig og rigning á norður- og austurlandi, en heldur hæg-
ari og þurrt að mestu á suðvestanverðu landinu. Hiti 5—10 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
LAUGARDAGUR OG SUNNUDAGUR: Norðaustlæg átt um mest
allt land, strekkingsvindur á Vestfjörðum, en hægari í öðrum lands-
hlutum. Rigning verður um norðan og austanvert landið, en þurrt
að mestu suðvesturlands. Hiti 7—12 stig.
x Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
\J Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Suld
OO Mistur
|- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gœr að ísl. tíma
htti veöur
Akureyri Raykjavlk 7 9 alskýjað rignlng
Bergen 16 léttskýjað
Helslnki 12 lóttskýjað
Jan Mayen 6 úrkomafgr.
Kaupmannah. 19 léttskýjað
Narssarssuaq 9 léttskýjað
Nuuk 8 skýjað
Osló 17 léttskýjað
Stokkhólmur 17 léttskýjað
Þórshöfn 0 vantar
Algarve 27 helðskfrt
Amsterdam 22 mfstur
Aþena 29 léttskýjað
Barcelona 26 iéttskýjað
Bertfn 20 léttskýjað
Chicago vantar
Feneyjar vantar
Frankfurt 23 léttskýjað
Qlasgow 19 léttskýjað
Hamborg 16 þokumóða
Las Palmas vantar
London 19 skúr
Los Angeles vantar
Lúxemborg 21 skýjað
Madrfd 27 léttskýjað
Malaga 26 mistur
Mallorca 28 mistur
Montreal vantar
NewYork vantar
Parfs 26 hálfskýjað
Róm vantar
Vfn 23 mlstur
Washington 17 léttskýjað
Wlnnipeg 9 alskýjað
mönnum til keppni á næsta
Reykjavíkurskákmóti sem verð-
ur á Hótel Loftleiðum 23.
febrúar til 7. mars á næsta ári.
Sérstaklega hefur verið óskað
eftir Beljavsky og Sokolov. Þá
hefur sambandið hug á á bjóða
Bretunum Short og Nunn, Hiib-
ner frá Þýskalandi og Seirawan
frá Bandaríkjunum.
Þráinn Guðmundsson forseti
Skáksambands íslands tilkynnti
þetta í hófi sem Birgir ísleifur
Gunnarsson menntamálaráðherra
hélt í gær til heiðurs skákmönnun-
um Jóhanni Hjartarsyni, sem
sigraði á á millisvæðamótinu í Ung-
verjalandi, Margeiri Péturssyni
Norðurlandameistara í skák og
Héðni Steingrímssyni heimsmeist-
ara sveina 12 ára og yngri.
Þráinn sagði að verið væri að
senda bréf um skákmótið út um
allan heim. Mótið verður opið en
Skáksambandið mun bjóða sérstak-
lega 6 sterkum skákmönnum og eru
fyrrgreindir skákmenn efstir á
óskalistanum. Einnig sagðist Þrá-
inn eiga von á að margir sterkir
skákmenn tækju þátt í mótinu því
það er haidið skömmu eftir að
áskorendamótinu í Kanada lýkur.
Þráinn sagðist þannig eiga von á
sterkum mönnum frá Bandaríkjun-
um og Norðurlöndunum auk þess
sem hann sagðist vænta þess að
íslensku stórmeistaramir yrðu með-
al þátttakenda.
Reykjavíkurmótið verður opið
eins og áður sagði. Verðlaunafé
mun nema 25.000 bandaríkjadölum
og sjá Flugleiðir um verðlaunin.
Sprengisandur seld-
ur nýjum eigendum
TÓMAS Andrés Tómasson hefur
selt fyrirtækinu GGS hf. veitinga-
staðinn Sprengisand við Breið-
holtsbraut. Engar breytingar eru
fyrirhugaðar á rekstri Sprengi-
sands til að byija með, hvað sem
sfðar kann að verða, að sögn Gis-
surar Kristinssonar fram-
kvæmdastjóra. Gengið var frá
kaupunum sl. sunnudag og tók
GGS hf. við rekstrinum 1. septem-
ber.
GGS hf., sem stendur fyrir „Gæði,
góð þjónusta og stöðugleiki" á og
rekur fjóra Tomma hamborgarastaði
á höfuðborgarsvæðinu. Fyrirtækið
hefur jafnframt selt framleiðsluleyfi
á Tomma hamborgurum til 23
skyndibitastaða um allt land og það
sér um öll innkaup fyrir þessa aðila.
Þeir Gissur og Jónas Þór Jónasson
stofnuðu fyrirtækið fyrir um það bil
fjórum árum síðan þegar þeir keyptu
fyrsta Tomma hamborgarastaðinn,
en auk þeirra eru eigendur fyrirtæk-
isins nú Eggert Olafsson, Helgi
Morgunblaðið/Sverrir
Gissur Kristinsson framkvæmda-
stjóri GGS hf. f Sprengisandi.
Gestsson, Yngvi Öm Stefánsson og
Sigurður Sumarliðason.
Gissur sagði að GGS hf. væri eins-
konar „McDonald“-keðja íslendinga.
Hann sagðist sjálfur hafa kynnst
slíkum rekstri í Bandaríkjunum þeg-
ar hann var þar við nám í hótel- og
veitingarekstri og væri ætlun fyrir-
tækisins að hjálpa fólki, sem hefði
áhuga á veitingarekstri, við að koma
upp skyndibitastöðum í anda Tomma
hamborgara um land allt.
Reykjavíkurdagur Tommahamborgara
og Stjörnunnar:
Jón Páll lyftir 700 kg. bíl
SKEMMTIDAGSKRÁ verður á
Lækjartorgi og við Torfuna í
dag klukkan 13.30 til 19 á vegum
útvarpsstöðvarinnar Stjörnunn-
ar og Tommahamborgara.
Dagskráin hefst á því að Davíð
Oddsson borgarstjóri leikur fyrsta
leikinn í MeistaraQöltefli Jóhanns
Hjartarsonar sem teflir klukkufjöl-
tefli við Hannes Hlifar Stefánsson,
Héðin Steingrímsson, Þröst Þór-
hallsson og fleiri skákkappa á
útitaflinu framan við Torfuna.
Á Lækjartorgi verða skemmtiat-
riði ffá klukkan 15 þegar Ingólfur
Ragnarsson sýnir nokkur töfra-
brögð. Tónleikar hefjast kl. 16 þar
sem ffam koma Stuðkompaníið,
Dada, Laddi, Karl Agúst Úlfsson,
Megas, Greifamir, Björgvin Hall-
dórsson og Eyjólfur Kristjánsson.
Dagskránni lýkur með því að Jón
Páll Sigmarsson reynir að lyfta 700
kg. bfl. Takist það er það einsdæmi
að sögn Magnúsar Kristjánssonar
hjá Stjömunni.