Morgunblaðið - 04.09.1987, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1987
11
Nýtt tíðnisvið fyrir
farstöðvaeigendur
Opið bréf til Jóns E. Guðmundssonar, Holtsgötu
1, Njarðvík
Frá Félagi farstöð vaeigenda á íslandi
Vegna ummæla þinna og fullyrð-
inga um flarskiptatilraunir á vegum
félagsins og að stjóm félagsins ætli
nú að neyða farstöðvaeigendur yfir
á nýtt tíðnisvið, sem sé með öllu
ónothæft, þykir rétt að taka fram
eftirfarandi:
Tvö sl. sumur, 1985 og 1986, stóð
félagið að tilraunum með endur-
varpsloftnet fyrir 27 Mhz tíðnisvið
á Holtavörðuheiði og á fleiri stöðum.
Þessar tilraunir voru í upphafi
ákveðnar sem tímabundnar og
stefnumarkandi af hálfu félagsins
fyrir deildir að vinna eftir, ef og
þegar þær vildu sinna þessu verk-
efni frekar og árangur yrði sá, að
þeim þætti svara kostnaði. Árangur
af tilraununum er umdeilanlegur,
sums staðar virðist mega bæta sam-
band milli staða og landshluta,
annars staðar ekki. Tilraunum þess-
um er lokið af hálfu féiagsins og
allt frekara framhald á þeim, kostn-
aður sem af Ieiðir og vinna við
staðsetningu netanna, háð ákvörð-
unum deildarstjóma. Glósur þínar
og hnútukast í garð þeirra manna,
sem unnu þetta verk, er ekki svara-
vert, en þér til skammar.
Þú virðist ekki vita, eða vilt
kannski ekki vita, að fyrir tilstuðlan
félagsins hafa stefnuvirk loftnet ver-
ið leyfð á íslandi í nokkur ár. Nú
þegar hefur Póst- og símamálastofn-
unin veitt nokkmm deildarradíóum
og einstaklingum innan félagsins
heimild til notkunar á slíkum netum,
að því tilskildu auðvitað að tryggt
sé, að þau valdi ekki tmflunum á
öðmm fjarskiptum og stjóm félags-
ins mæli með leyfísveitingunni.
Haustið 1978 hófst truflanatíma-
bil á 27 Mhz og lauk ekki að fullu
fyrr en í ársbyijun 1982. Ailan þenn-
an tíma var tíðnisviðið lokað, dag
og nótt, svo ekki var hægt að tala
mjög stuttar vegalengdir, hvað þá
lengri leiðir. Að þessu tímabili loknu
sögðu menn réttilega við stjóm fé-
lagsins: „Þið verðið að gera eitthvað
raunhæft, eitthvað sem er til fram-
búðar, svo félagið þurfi ekki að
ganga í gegn urn annað tmflana-
tímabil. Tryggja verður félaginu
ömgg flarskipti, finna verður ný
tæki, nýtt tíðnisvið fyrir félagið,
aðra mótun, ef kostur er.“ Framsýn-
ir radíóáhugamenn innan félagsins
bentu á nýtt tíðnisvið, 934 Mhz,
ætlað til almenningsnota, sem kynni
að leysa þennan vanda. Stjóm fé-
lagsins sat ekki auðum höndum í
þessu máli, sem er brýnna en flest
önnur. Það hlýtur að vera sérstakt
ánægjuefni allra sannra framfara-
sinnaðra arskiptaáhugamanna, að
Póst- og símamálastofnunin heimil-
aði félaginu nýlega að flytja inn
Qórar 934 Mhz talstöðvar ásamt til-
heyrandi búnaði, til reynslu hér á
landi í nokkra mánuði. Að þeim tlma
liðnum verða tækin send úr landi.
Það er ánægjulegt að geta Iýst
þvl yfir hér og nú, að árangur af
þeim prófunum, sem þegar hafa far-
ið fram, fer langt fram úr öllum
vonum. Nú þegar er ljóst, að t.d.
er vandalaust að samtengja öll radíó
félagsins á suðvesturhominu og
jafnvel víðar og tryggja þeim þar
með 100% tandurhrein fjarskipti,
óháð öllum tmflunum. Því er svo
við að bæta að loftnetin með stöðv-
unum em svo smá, að engin takmörk
em á hversu hátt má fara með þau.
Þau munu ekki fjúka niður, svo lengi
sem undirstöður þeirra bresta ekki.
Þá má fá aukabúnað, magnara og
18 DB bím-loftnet, sem em innan
við einn metri á lengd. Verð stöðv-
anna er allhátt, 28—30 þúsund, ef
keypt er frá Bretlandi, en 15—18
þúsund, ef keypt er frá framleiðanda
I Japan. Ekkert mælir gegn því að
þessi tvö tíðnisvið, 27 Mhz og 934
Mhz, geti unnið saman hlið við hlið
og bætt hvort annað upp eftir að-
stæðum og skilyrðum.
Af félagsins hálfu em hin nýju
tæki hugsuð sem viðbót við það sem
fyrir er, svo losna megi við þá ann-
marka, sem fylgja 27 Mhz tíðnisvið-
inu.
Félagið stendur nú á tímamótum.
Nýtt tmflanatímabil á 27 Mhz er
. hafið. Þær tmflanir, sem heyra hef-
ur mátt af og til I allt sumar, em
aðeins teskeiðarskammtur af því,
sem eftir á að koma. Það er komið
að því að taka verður ákvörðun um
það, hvort félagið skuli standa I
sömu spomm hvað ijarskipti varðar
um ókomin ár, eða hvort menn af
framsýni og dug þora að takast á
við nýja tækni, sem að öllum líkind-
um getur tryggt félaginu ömgg og
tandurhrein flarskipti um ókomin
ár, flarskipti sem tæknilega bjóða
upp á samtengingu alls landsins, en
slík samtenging væri verðugt
langtímamarkmið fyrir félagið að
vinna að. Spádómar I þessa átt em
þó varla tímabærir, því ekki er vitað
á þessari stundu hvort félaginu
stendur til boða að nýta þessa mögu-
leika hér á landi. Engar viðræður I
þá átt hafa átt sér stað við fjar-
skiptayfirvöld, hvað sem síðar
verður.
Jón E. Guðmundsson hefur aldrei
séð þessi tæki, sem um er rætt,
hann hefur aldrei prófað þau, hann
veit ekki hvað þau geta og hvað
ekki, en samt telur hann sig þess
umkominn að dæma þau ónothæf,
jafnvel áður en þau vom ieyst úr
tolli og tekin úr kössunum. Það er
furðulegt að á tlmum sífelldra tækn-
inýjunga, hvar sem er og á öllum
sviðum, skuli vera til menn eins og
Jón E. Guðmundsson. Leita verður
allt aftur til fyrri alda til að fínna
annan eins svartnættishugsunarhátt
og þröngsýni, sem einkennir skoðan-
ir hans. Honum er farið líkt og
bændunum, sem I upphafí aldarinnar
riðu um hémð til að mótmæla til-
komu slmans.
Að lokum þetta: Allar stjómir fé-
lagsins hafa frá upphafi unnið að
málum félagins gagnvart Pósti og
síma. Margt og mikið hefur áunnist,
þó oft hafi þótt seint ganga. Þetta
vita aliir nema einstaka furðufuglar,
sem sitja I hreiðmm sínum og gagn-
rýna það sem gert er. Kasta ónotum
I þá, sem vinna verkin, en leggja
aldrei neitt af mörkum sjálfir. Þú
mátt vita, Jón, að Félag farstöðva-
eiganda hefur aldrei verið málsvari
þeirra, sem bijóta Qarskiptalög. Fé-
lagið byggir ekki á slíkum skollaleik
og að stórfellt smygl blómstri. Full-
yrðingar þínar um að Póst- og
símamálastofnun hafi mútað stjóm
félagsins til að „taka við nýju tíðni-
sviði" em fáránlegar, en segja okkur
að þeir menn, sem ætla öðmm slíkt,
era oftast auðkeyptir fyrir smáaura.
SShew
,m h/rirtaek)unn
ca____________________
^ oq smáum tyrirtaekjunn
lSt6rt.SophoKV Vmoge.num
kleift í
óþarflega;
SÝNING
í sætúni 8
í verslun okkar,
Saetúni, eru til synis
aSw-Sr?
símakertieigaaövera^ boðið hingaö til
-------T^ioghrtntfng*'
* Urt-
umogeinnibæiarlinu
# 80númeraminnimeö
. Flutnlngur á bæjarsímta"
milli innanhússlina.
keríinu gangandi þra ty
SSÍartamrtgrtWa
* FsSvertera^rtr,aae,rt,a
.SÍSK5Í5--*
.*«***«&'%£
möguleika sem stærn uy
,
He\mittstaBki ffl
SÆT0N.8-siM.e9;5oo^^^
Eigendur
eldri vagna!
Bjóðum nýja fjaðraundir-
vagna undir eldri gerðir.
Höfum einnig geymslu á
vögnum í vetur.
Haustverðin
komin!
Tjaldvagnar og fylgihlutir á
haustverði.
Hagstæð verð og greiðslu-
kjör.