Morgunblaðið - 04.09.1987, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1987
17
Félagsblað BK:
Kennarastöður nær
fullskipaðar 1 grunn-
skólum Reykjavíkur
Árangxir í vegagerð
Þegar ég 6k frá Reykjavík til
Mývatns, um Akureyri, í áður-
nefndri ferð, þá var ég virkilega
stoltur af því, hvílíkt stórvirki hefur
verið unnið af Vegagerð ríkisinns
í gerð þjóðvega með bundnu slit-
lagi. Nýi vegurinn fyrir Vaðalheiði
er til dæmis mjög fallega lagður
og verður alþjóðlegur sómi að hon-
um. Sama má segja um fleiri kafla
á þessari leið, þó að mér hafí fund-
ist þessi bera af. Þá er vegurinn
fyrir Ólafsfjarðarmúla hreint afrek.
Þeim hefur ekki físjað saman vega-
gerðarmönnum þar, þegar loft-
hræddu fólki er meira en nóg boðið,
bara með því að þurfa að sitja í bíl
þar um á sumardegi. Merkilegt
fínnst mér, ef það er ódýrara að
grafa göng í gegnum múlann og
reka þau með tilheyrandi loftræst-
ingu og lýsingu, heldur en að byggja
yfír núverandi veg.
Hvað sem þessu líður, þá er
landið okkar orðið allt annað yfír-
ferðar á þesari leið. Nú hillir undir
það, að fullbílfært verði til Egils-
staða fyrir aldamót, eða fyrr ef
núverandi samgönguráðherra
drífur í hlutunum. Þessum árangri
getur þjóðin verið stolt af, sérstak-
lega þegar á það er litið, að í byijun
aldarinnar voru eiginlega engir veg-
ir til í landinu.
Ferðamannaiðnaður
Mikill vaxtarbroddur er nú talinn
vera fólginn í íslenzkum ferða-
mannaiðnaði. Margt hefur verið
gert í þeim efnum frá því að ég
man eftir mér fyrst, og þrifin klós-
ett voru nær óþekkt fyrirbrigði á
ferðamannastöðum landsins.
Svo ég vitni enn í áðumefnda
ferð mína til Norðurlands í júlí sl.
þá varð ég hreinlega upp með mér
af landanum, þegar ég fylgdist með
afgreiðslunni í Hótel Reynihlíð. Þar
sá ég ungt afgreiðslufólk tala reip-
rennandi frönsku, þýsku, ensku og
Norðurlandamái við gesti og gang-
andi og vera lipurt og kurteist svo
af bar. Hótelið sjálft var allt hið
ágætasta á alþjóðlega vísu, þó það
hafí verið of lítið þessa daga.
Svona þarf þetta að vera sem
víðast. Þó verða íslenskir hótel-
haldarar að gera sér ljóst, að
ferðamanni finnst jafn sjálfsagt að
rennandi vatn og bað sé á hveiju
herbergi, að þar sé einnig litasjón-
varp og myndband, þegar um gott
hótel er að ræða.
Þama á hlaðinu gat svo að líta
ýmsar gerðir ferðamanna. Puttal-
ingar með bakpoka, hjól og tjöld.
Erlendir hópferðabflar með eldhús-
bfla og birgðaflutningabfla, klyfjaða
eldsneyti og vistum. Þetta síðar-
talda lið skilur ekkert eftir í landinu
nema stykki sín og hjólför, þó vel
efnað sé. Hinir fyrri era sjálfsagt
blankir og litlir bógar og ekki verð-
ur amast við þeim hér.
Úgerðarfélag Smyrils hefur góð-
ar tekjur af því að feija þetta fólk
hingað, án þess að borga okkur
nokkuð sem heitir. Við höfum ekk-
ert út úr þessu fólki nema kostnað.
Við lá að loka þyrfti Dimmuborg-
um vegna örtraðar í sumar ssem
leið. Hvergi í heiminum er frítt inn
á svona staði nema hér. Hversvegna
er ekki vörður við hliðið, sem selur
aðgang t.d. á 100 krónur á mann?
Dimmuborgum veitti ekki af fénu
til viðhalds og bóta. Sama gildir
um fleiri staði landsins. Það er til
lítils að tala um ferðamannaiðnað,
þegar ekki hefst annað útúr því en
að fá að gefa ferðamönnum ókeyp-
is leiðbeiningar á erlendum höfuð-
tungum, ásamt því að veita þeim
annarskonar ókeypis þjónustu svo
sem klósett, rennandi vatn og
ókeypis húsaskjól í Herðubreiðar-
lindum og víðar.
Eg vil setja ferðamannaskatt á
alla farþega sem koma með Smyrli,
svo og að banna þeim innflutning
á matvælum og eldsneyti. Það er
óþarfí að gefa með nokkram iðnaði
og þá sérstaklega ekki erlendum
ferðamannaiðnaði. Hversvegna
þurfa flugfarþegar að borga flug-
vallarskatt þegar farið er úr
landinu?
Landið okkar er viðkvæmt gróð-
urfarslega séð. Lífríki þess er í
hættu vegna villimennssku okkar
sjálfra, þó við bætum ekki erlendu
átroðningsliði við. Það er betra að
hafa ferðamennina færri og láta
þá borga sanngjamt verð fyrir að
njóta landsins okkar. Við verðum
að borga fyrir okkur heima hjá
þeim, það er sko ekkert ókeypis.
Þessi svokallaða landkynning,
sem felst í því að þetta lið veður
hér um allt ókeypis, er ekki einung-
is einskis virði heldur beinlínis
stórskaðleg. Stórátaks virðist vera
þörf í skipulagningu móttöku er-
lendra ferðamanna í landinu.
íslendingar hafa ekki lengur ráð
á því að vera flott og gefa allt af
rausnarskap konungakynsins og
Brands ens örva.
Að lokum vil ég segja það, að
ég er ekki sannfærður um, að hug-
myndir Félags iðnrekenda um að
flytja inn erlent verkafólk séu til
þess fallnar að lækka spennuna í
íslenzku efnahagslífí, sem fjár-
mögnuð er m.a. með hallarekstri
ríkissjóðs og erlendum lántökum.
Það er líka hægt að hugsa sér að
hægja á og geyma fískinn í sjónum.
Og vilji Víglundur og co. fara að
flytja inn það sem sænskir kalla
„svartskalla" þá búum við til fleiri
vandamál en við leysum. Það er
vandalaust að afía hvaða fjölda af
slíku fólki sem vera skal. En halda
menn að t.d. 10.000 manns af öðr-
um kynstofnum myndu falla
hávaðalaust inn í íslenzkt víðsýnis-
og umburðarlyndisþjóðfélag? Eða
vill einhver heldur fá blámann.fyrir
tengdason en íslenzkan bjúgna-
kræki?
Höfundur er verkfræðingur.
32 af 88 nýút-
skrifuðum kenn-
urum settir
UM MIÐJAN ágúst höfðu 32 af
88 kennurum sem útskrifuðust í
ár úr Kennaraháskóla íslands
verið settir í kennarastöður.
Kennaraskortur er mismunandi
eftir landshlutum og er
Reykjavík eina fræðsluumdæmi
landsins sem tekist hefur að ráða
grunnskólakennara i nær allar
lausar stöður eins og segir i frétt
i Félagsblaði BK, 7. töhiblaði.
Þar segir enn fremur: „Þess era
mörg dæmi að ekki er einu sinni
spurst fyrir um auglýstar kennara-
stöður hvorki frá kennuram né
leiðbeinendum. Skólastjóram við-
komandi skóla ber saman um að
ástandið í kennararáðningum sé
með allra versta móti og era þó
margir hveijir ýmsu vanir. Athygli-
svert er að á Blönduósi sitja
grannskólakennarar nær allar
kennarastöður, en þar greiðir sveit-
arfélagið 20 yfírvinnustundir á
mánuði hveijum kennara í fullri
stöðu og hlutfallslega fyrir hluta-
stöður."
Þá segir enn fremur að svo virð-
ist sem betur gangi að ráða kennara
að framhaldsskólum en að grann-
skólum. Þó hefur gengið erfiðlega
að ráða kennara í stærðfræði, raun-
greinar, viðskiptagreinar og tölvu-
kennslu á Reylq'avíkursvæðinu.
Framhaldsskólakennara vantar auk
þess í ýmsum greinum utan
Reykjavíkur og hefur gengið illa
að fá kennara að verklegum skólum
vegna þennslu á vinnumarkaðinum
einkum í byggingariðnaði.
Ekið á dreng
EKIÐ var á ungan dreng á reið-
hjóli í Rauðagerði siðastliðið
miðvikudagskvöld.
Drengurinn var fluttur á slysa-
deild til rannsóknar, en hann
reyndist síðar vera ómeiddur og fór
því betur en á horfðist í fyrstu.
Mývatnssveit:
Datt af hjóli
og höfuðkúpu-
brotnaði
ÞÝSKUR ferðamaður datt af
fajóli við Kröflu og höfuðkúpu-
brotnaði síðdegis síðastliðinn
miðvikudag.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Húsavík var maðurinn
fluttur í sjúkraflugi til Reykjavíkur
þar sem meiðsli hans vora könnuð.
ELDHUSUNDRIB
FRAAEG
Margra tœkja maki
á makalausu verði!
AE
ALVEG
EINSTOK
GÆDI
KM21 fráAEG er sannkallað eldhúsundur enda er
fjölhœfnin undraverð.
Bara að nefna það, KM 21 gerir það: Hrærir, þeytir,
hnoðar, rífur, hakkar, blandar, hristir, brytjar, sker...
Eldhúsundrið frá AEG er margra tœkja maki en á
makalausu verði, aðeins kr. 6.903,-
Vestur-þýsk gœói a pessu verói, - engin spurning!
KYNNING UM HELGINA!
Opið laugardag kl. 10-18
og sunnudag kl. 13-18.
A E G heimilistœki
— því þú hleypir ekki hverju sem er í húsverkin!
BRÆÐURNIR
OKMSSONHF
Lágmúla 9, sími: 38820
<
tn
c\i
o>
<
Q
Q