Morgunblaðið - 04.09.1987, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1987
Talnablekking Pósts og síma
Hækkanir síst minni en almennar hækkanir
eftír Gísla Jónsson
í Morgunblaðinu þann 21. ágúst
sl. birtist grein eftir aðstoðarpóst-
og símamálastjóra, sem sýnilega er
rituð í tiiefni greinar undirritaðs
um skrefatalningarmálið, sem birt-
ist í sama blaði þann 11. ágúst sl.
í umræddri grein er birt súlurit,
sem á að sýna verðbreytingar á
skrefagjaldi og afnotagjaldi Pósts
og síma frá 1. janúar 1984 í saman-
burði við verð á ýmsri annarri
þjónustu svo og launavísitölu, láns-
kjaravísitölu og gengi á SDR.
Samkvæmt súluritinu á skrefa-
gjaldið að hafa lækkað um 2% enn
afnotagjaldið á að hafa hækkað um
2% á sama tíma og annað, sem
sýnt er, hefur hækkað að meðaltali
um ca. 85%.
Sá blekkjandi samanburður, sem
aðstoðarpóst- og símamálastjóri
gerir, fæst með því að veija „vand-
lega“ upphaf og lok tímabilsins. Það
sést glöggt á meðfylgjandi töflu,
sem sýnir verðbreytingar á skrefa-
gjaldi Pósts og síma frá því skrefa-
talningin var sett á 1. nóvember
1981. Það er t.d. umhugsunarefni,
hvers vegna samanburðurinn er
ekki gerður fram til þess tíma þeg-
ÍSLENSKA flugfélagið Atlanta,
sem Amgrímur Jóhannsson,
flugstjóri, rekur ásamt fleirum,
hefur verið í sólarlandaflugi fyr-
ir nokkur evrópsk flugfélög
undanfamar vikur. Atlanta er
með Boeing 707 vél á leigu frá
írskum aðilum og starfar með
irska flugfélaginu Club Air.
ar greinin er skrifuð, sem væntan-
lega er eftir 11. ágúst sl. Þá hafði
núverandi gjaldskrá verið í gildi í
tæpan IV2 mánuð. Þess í stað er
valið að ljúka samanburðinum dag-
inn fyrir síðustu gjaldskrárbreyt-
ingu, þ.e. 30. júní 1987. Það verð,
sem þá var, hafði gilt frá 1. jan-
úar, eða í hálft ár, en á þeim tíma
hækkaði launavísitalan um 12,4%
og lánskjaravísitalan um 13,6%.
Þama er því alls ekki um sambæri-
legar tölur að ræða.
Hækkanir Pósts og
sima frá því
skr ef atalningin
var sett á
Verðsamanburður er ávallt vand-
meðfarinn. Tímabil, sem valin eru,
geta haft mikil áhrif eins og þegar
hefur verið skýrt, auk þess sem
ýmsar sérstakar ástæður geta
brenglað útkomuna, sé þeirra ekki
getið. Póstur og sími hefiir almennt
ekki komist af með minni hækkan-
ir en aðrar þjónustustofnanir, enda
ekki við því að búast. En hvað gaf
skrefatalningin mikla hækkun? Á
það minnist aðstoðarpóst- og síma-
málastjórinn ekkert. Það er því
„Við höfum til dæmis flogið fyrir
British Island Airways og Spantax
þegar þau hefur vantað viðbótarvél-
ar,“ sagði Amgrímur í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Við erum með
tvær áhafnir eða 15 manns á okkar
vegum, þar af eru fjórir íslending-
ar. Við höfum haft nóg að gera
yfir háannatímann, en sjáum svo
til hvemig þetta þróast í vetur."
ekki úr vegi að líta á verðbreyting-
ar frá því skrefatalningin var tekin
upp.
Skrefatalningin var tekin upp
þann 1. nóvember 1981 og samtím-
is var skrefagjaldið, án söluskatts,
hækkað úr 41 eyri í 45 aura, eða
um 9,8%. Þann 1. nóvember 1982,
þ.e. ári síðar, var skrefagjaldið
komið í 80 aura og hafði þannig
hækkað á einu ári um 77,8%. Síðan
hægir á hækkununum, væntanlega
vegna þess, að skrefatalningin mun
hafa gefið meiri tekjuaukningu en
áætlað hafði verið. Þann 1. júlí sl.
var skrefagjaldið hækkað í kr. 1,56
og er það nú. Það hefur því hækk-
að um 246,7% frá því skrefatalning-
in var sett á. Þessu til viðbótar kom
svo umtalsverð tekjuaukning vegna
skrefatalningarinnar. Það væri
sannarlega tilefni fyrir nýskipaðan
samgönguráðherra að krefjast ítar-
legrar greinargerðar um tekjuaukn-
ingu Pósts og síma á höfuðborgar-
svæðinu þetta tímabil, þar sem
tekið væri tillit tii fjölgunar símnot-
enda. Þá fyrst kæmi fram hin
raunverulega gjaldskrárhækkun.
Til samanburðar má geta þess,
að verðhækkanir á sammbærilegri
opinberri þjónustu, þ.e. á heimilis-
taxta hjá Rafmagnsveitu Reykja-
víkur og á heitu vatni frá Hitaveitu
Reykjavíkur svo og á launavísitölu
og lánskjaravísitölu frá 1. nóvember
1981 þar til í dag, 1. september
1987, voru:
Heimilistaxti RR: 396,4%
Heitt vatn hjá HR: 805,8%
Launavísitala: 479,7%
Lánskjaravisitala: 530,5%
Hækkunin hjá Rafmagnsveitunni
er miðuð við verð án söluskatts og
vérðjöfnunargjalds, en á heitu vatni
eru engin slík gjöld. Tölurnar gefa
því til kynna tekjuaukningu fyrir-
tækjanna. Eins og fram kemur af
framangreindum tölum er hækkun
Hitaveitu Reykjavíkur langt um-
fram vísitöluhækkanir, sem stafar
af því að á tímabilinu fékk Hitaveit-
an leiðréttingu á óeðlilega lágri
gjaldskrá. Auk þess er rétt að upp-
lýsa, að tæpir 3 mánuðir eru síðan
Hitaveitan hækkaði gjaldskrá sína
en aðeins mánuður síðan gjaldskrá
Rafmagnsveitunnar hækkaði.
Af framanskráðu er ljóst, að
246,7% hækkun skrefagjaldsins
að viðbættri tekjuaukningu
vegna skrefatalningar allan sól-
arhringinn svo og vegna fækkun-
ar innifalinna skrefa í afnota-
gjaldi hefur gefið Pósti og síma
tekjuaukningu, sem er fyllilega
í samræmi við hækkanir á heimil-
istaxta Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, ef ekki meiri, svo
og hækkanir á launavísitölu og
lánskjaravísitölu.
Undarlög rök
í grein aðstoðarpóst- og síma-
málastjóra koma enn einu sinni
fram þau fráleitu rök, að færri skref
eigi að vera innifalin í afnotagjaldi
á höfuðborgarsvæðinu en annars
staðar vegna þess að það sé lang-
stærsta símasvæðið. Við síðustu
gjaldskrárbreyting^u var því haldið
fram, að verið væri að aðlaga gjöld-
in raunverulegum kostnaði Pósts
og síma. Þetta sjónarmið virðist
hins vegar ekki gilda fyrir höfuð-
borgarsvæðið. Þar eiga símnotend-
ur að borga fyrir það að búa í
þéttbýli. Þessi rök Pósts og síma
eru haldlaus.
Aðstoðarpóst- og sfmamálastjóri
segir í grein sinni, að fækkunin á
inniföldum skrefum hafí orðið minni
á höfuðborgarsvæðinu en annars
staðar, sem er rangt. Þann 1. októ-
ber sl. hækkaði gjaldskrá Raf-
magnsveitu Reykjavíkur um 8,1%.
Rafmagnsveitumenn falla örugg-
lega aldrei í þann blekkingarvef,
að segja, að orkugjald, sem er 3
krónur, hafi hækkað minna en það
sem er 6 krónur, enda þótt það
hafi breyst minna í krónutölu. Inni-
földum skrefum í afnotagjaldi
fækkaði um 33,3%, bæði á höfuð-
borgarsvæðinu sem og annars
staðar á landinu.
Embættismenn Pósts og síma eru
iðnir við að rökstyðja mál sitt með
tilvitnunum til annarra landa, en
minnast sjaldan á Bandaríkin vegna
þess að það er þeim mjög óhag-
stætt á flestan máta. Varðandi
slfkan samanburð má á það benda,
að það er engin ástæða fyrir okkur
íslendinga að apa alla vitleysu eftir
öðrum þjóðum. Það er ekki endilega
allt rétt, sem þar er gert. Við búum
Gísli Jónsson
„Póstur og sími hefur
almennt ekki komist af
með minni hækkanir en
aðrar þjónustustofnan-
ir, enda ekki við þvi að
búast. En hvað gaf
skrefatalningin mikla
hækkun?“
við all sérstakar aðstæður og eigum
að haga okkar málum eftir þeim.
Það er t.d. full ástæða til þess að
stuðla að ódýrum og auðveldum
fjarskiptum, sem létt geta á hinum
gífurlega umferðarþunga og geta
dregið úr þörfinni á að vera á ferð-
inni í slæmum veðrum.
Skrefatalning Pósts og síma
Frá 01.11.81
Verð er án söluskatts
Tímabil 01.11.81-01.02.82 Qjaldakri 614/81 Kr/akref 0,45
01.02.82-01.05.82 6/82 0,60
01.06.82-01.08.82 220/82 0,67
01.08.82-01.11.82 436/82 0,67
01.11.82-01.02.83 680/82 0,80
01.02.83-11.05.83 29/83 0,91
11.05.83-01.08.83 279/83 1,14
01.08.83-01.08.84 685/83 1,36
01.08.84-01.07.86 335/84 1,36
01.07.85-01.12.85 263/85 1,20
01.12.85-01.01.87 420/85 1,20
01.01.87-01.07.87 508/86 1,82
01.07.87- 247/87 1,56
Skrefatalning var tekin upp 01.11.81
Höfundur er prófessor íraforkur
verkfræði.
Flug:
Atlanta flýgur
sólarlandaflug
<
O)
Þ
Nú eru sprengidagar framundan.
Farðu út í næstu matvörubúð og fáðu þér saltkjöt og súpukjöt frá Sláturfélaginu með 15% afslætti
á meðan tækifæri gefst.
SLÁTURFÉLAG
SUÐURLANDS