Morgunblaðið - 04.09.1987, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 04.09.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 4, SEPTEMBER 1987 25 Ný plata frá Michael Jackson; Heimildarmynd um söngvarann frumsýnd í ríkissjónvarpi SÖNGVARINN Michael Jackson hefur nú lokið við gerð sjöundu sólóplötu sinnar, BAD, sem kem- ur út í flestum löndum heims nú fyrstu vikuna í september. Stutt heimildarmynd um feril söngvar- ans verður frumsýnd'víðast hvar í heiminum sama dag og platan kemur út og verður þessi mynd sýnd í ríkissjónvarpinu í dag, föstudag, klukkan 19.30. Mikil leynd hefur hvílt yfir vinnslu hljómplötunnar BAD og ýmsar sögusagnir verið á kreiki varðandi aðstoðarmenn Jacksons á plötunni. Forsala hljómplötunnar hefur enda verið með ólíkindum og í Bandaríkjunum seldust rúmlega 2,3 milljónir eintaka í forsölu. í Evrópu hafa yfír milljón eintök selst í forsölu og hér á landi hafa verslan- ir pantað hátt á annað þúsund eintök fyrirfram, sem er einsdæmi þegar um erlenda hljómplötu er að ræða, að því er segir í fréttatilkynn- ingu frá dreifíngaraðilum plötunnar hér á landi. Síðasta sólóplata Micha- el Jacksons, Thriller, sem út kom árið 1982, er mest selda híjómplata allra tíma, hefur selst í rúmlega 38 milljónum eintaka. í heimildarmyndinni, sem sýnd verður í ríkissjónvarpinu í dag, er rakinn ferill Jacksons frá því hann var 6 ára, en þá þegar var hann orðinn stórstjama. Meðal annars er sýnt brot úr kvikmynd sem tekin var þegar hann söng fyrir ráðamenn Motown útgáfunnar í fyrsta sinn ásamt bræðrum sínum. (Úr fréttatilkynningu.) Michael Jackson. • • Okumaðurinn ófundmn EKKI hefur tekist að hafa upp á ökumanninum sem stór- skemmdi fjórar kyrrstæðar bifreiðar á mótum Hverfisgötu og Ingólfsstrætis kl. 1 aðfaranótt laugardagsins. Talið er að ökumaður þessi hafi verið á hvítri eða ljósri Volvo-bif- reið. Þeir sem geta gefíð lögregl- unni nánarí upplýsingar eru beðnir um að hafa samband við slysarann- sóknardeild. Frá skemmtiferð barnamessufólks Fríkirkjunnar út í Viðey í vor. Fríkirkjan í Reykjavík: Fyrsta barnagnðsþj ónusta haustsins á sunnudaginn Á SUNNUDAGINN kemur, 6. september, verður barnaguðs- þjónusta í Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 11,00. Er það fyrsta barnaguðsþjónustan á þessu hausti. Guðspjall dagsins er útskýrt með hjálp mynda á töflu. Smábama- söngvar og bamasálmar eru sungnir. Böm, sem átt hafa af- mæli frá því í vor, em boðin sérstak- lega velkomin og fá svolítinn glaðning. Þá er lesin framhalds- saga. Við píanóið er Pavel Smíd, fríkirkjuorganisti. Hvert bam fær í hendur spjald með helgimynd. í hverri bamamessu er límt sérstakt mætingamerki á spjaldið. Verðlaun fyrir góða ástundun eru veitt tvisv- ar á vetri: eftir áramót og í vor. Foreldrar, svo og afar og ömmur, em hvött til þess að koma með böm sín í bamaguðsþjónustumar, sem em haldnar að jafnaði annan hvem sunnudag kl. 11,00 árdegis. Séra Gunnar Björnsson 16. ágúst s.l. voru liðin 10 ár frá hinum ótímabæra dauða rokkkóngsins ELVIS PRESLEY. Við viljum minnast þessa frábæra söngvara og bjóðum eftirtalda titla á sérstöku tilboðsverði í öllum verslunum okkar. _______ ELVIS ílu'íWmuplitö jKrrurú EXTRA GULLKORN kr. 630,- Safnplata með öllum hressustu lögum kappans, eins og ’Blue Suede Shoes^ "Hound Dog’'og"Don't Be Cruel". £ THE MEMPHIS REC0RD kr. 899,- Tvöföld platasem inniheldur upptökur frá 69 en það ár átti Elvis einmitt gott "comeback" og kom þá með lög á borð við "Suspicious, Minds”og"ln The Ghetto",________________________________________Á □KRINGLUNNI S 689544 □BORGARTÚNI S.29544 QLAUGAVEGI S 29544 THE C0MPLETE SUN SESSI0NS kr. 899 Frábær plata fyrir safnarana. Hér eru öll lög- in sem voru tekin upp í hinu fræga Sun-hljóð , veri og er þar "að finna grunninn að öllu þvl / sem Elvis átti eftir að verða". t (tilv. Árni Matthíasson - Mbl.) /% THE ALL TIME GREATEST HITS kr. 899 Tvöföld safnplata sem inniheldur öll vinsæl- ustu lög Elvis frá upphafi ferils hans til i dánardags.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.