Morgunblaðið - 04.09.1987, Page 31

Morgunblaðið - 04.09.1987, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1987 31 Reuter Lögregla beitir táragasi tíl að dreifa hópi verkamanna og varna þeim inngöngu í hótel í borginni Ulsan. Suður-Kórea: Ekiðá verkfallsvörð Ulsan, Suður-Kóreu: LÖGREGLA í borginni Ulsan í S-Kóreu beitti i gær táragasi til að stöðva þúsundir verka- manna og koma í veg fyrir að þeir réðust inn í hótel og versl- anir eftir að félagi þeirra lést þegar sendiferðabil var ekið inn í hóp verkfallsmanna. Maðurinn sem lést hét Chae Tae-Chang og báru félagar kistu hans á herðum sér eftir götum Ulsan. Að sögn vitna fóru þunga- vinnuvélar fyrir hópnum sem stefndi að bækistöðvum helsta útflutningsfyrirtækis S-Kóreu, Hyundai. Rúður voru brotnar í skrifstofubyggingum og bílar eyðilagðir. Öeirðalögregla stöðv- aði verkamennina þegar þeir réðust að Diamond-hótelinu í aðal verslunarhverfi borgarinnar. Þeir sögðust myndu halda uppteknum hætti uns gengið yrði að kröfum þeirra um hærri laun. Chae Tae-Chang féll þegar hann stóð ásamt félögum sínum vörð við skipasmíðastöð þar sem 20 þúsund verkamenn voru í setu- verkfalli. Sendiferðabíl var ekið inn í hópinn með fyrrgreindum afleiðingum. Að sögn verkamanna sem yfírbuguðu bílstjórann og færðu lögreglunni var hann undir áhrifum áfengis. Samkvæmt upplýsingum frá viðskiptaráðuneyti landsins hefur 1 milljarður bandaríkjadala tapast í verkföllunum vegna minni fram- leiðslu. Kína: PVC skolprör Eigum fyrirliggjandi PVC skolprör í stærð- um 110 mm, 160 mm og 200 mm. Hagstætt verð. VATNSVIRKINN//J Ármúlí 21, sími 686455. Lynghálsi 3, sími 673415. Efnahagsumbætur a dagskrá flokksþingsins Peking, Reuter. FYRSTA flokksþing kommún- istaflokks Kina í fimm ár hefst þann 25. október að sögn kínverska útvarpsins. Þetta var fyrsta opinbera yfirlýsingin um þingið sem snúast mun um efna- hagsúrbætur í landinu. Einnig stendur til að yngja upp forystu- lið flokksins eins og Deng Xiaoping leiðtogi landsins hefur itrekað. Á miðvikudag sagði ríkissjón- varpið í landinu að forsætisráðherra landsins Zhao Ziyang hefði skýrt Henry Kissinger fyrrum utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna frá áform- um um að hraða framkvæmd opnunarstefnu landsins. Kissinger er í einkaheimsókn í landinu og gert er ráð fyrir að hann hitti Deng Xiaoping í dag. Búist er við að Zhao Ziyang styrki stöðu sína sem formaður flokksins á þinginu í október. Hann tók við af Hu Yaobang sem varð að segja af sér í janúar í kjölfar stúdentaóeirða. Fjölmiðlar í Kína hafa sagt frá því að margur steinninn liggi í götu efnahagsúrbóta í landinu; fjallháir skýrslustaflar, fundafargan og skriffínnar sem kasta af sér allri ábyrgð. Deng vill aðskilja stjóm- kerfíð, atvinnulífíð og kommúnista- flokkinn til hagræðingar. Ríkis- reknar verksmiðjur eiga að vera í höndum atvinnumanna á hveiju sviði en ekki skrifræðisseggja. Umbætumar takast þó ekki nema ráðandi menn hætti að eyða þremur §órðu hlutum vinnudagsins í funda- höld eins og dagblað sem sérhæfír sig í efnahagsmálum hefur komist að. Ein af umbótatilraununum felst í því að ríkisrekin fyrirtæki þurfa ekki lengur að borga allan hagnað til ríkisins heldur einungis ákveðna samningsbundna upphæð. Það sem vinnst umfram hana mega fyrir- tækin ráðstafa að eigin vild. Þær ráðuneytisdeildir sem fyrirtækin hafa samið við reynast í mörgum tilvikum ábyrgðarlausar og aðstoða skjólstæðinga sína ekki við hráefn- isöflun og flutninga eins og til stóð. Annað þjóðhagslegt vandamál er hvemig nýta megi gífurlegt af- gangs vinnuafl og losna við klíku- skap sem þrífst í landinu. Ekki virðist fullljóst heldur hver tengslin eiga að vera milli verksmiðjustjór- ans með nýfengin völd og flokks- fylltrúans sem áður réð mestu. Óhagræði er einnig að margföldu bókhaldi sem stundað er svo hægt sé að veifa réttri skýrslu eftir því hvaða ráðuneytisdeild kemur í heimsókn, hvort sem það er fulltrúi sem lítur eftir framförum eða annar sem rannsakar fátækt í héraðinu. FTC-tækni mun væntanlega hagnast á hinni miklu eftirspum eftir laxi, og FTC-tækjabúnaðurinn gæti hjálpað laxeldismönnum að anna eftirspuminni. Fyrirtækið hef- ur reyndar ekki miklar áhyggjur af því, þótt neytendur hætti kannski skyndilega að kaupa lax, því einnig er hægt að vinna lúðu í tækjunum og ætlunin er að aðlaga þau vinnslu þorsks og áls. Byggt á Newsweek. Hér sést tækjabúnaðurinn, er gerir að fiski á hálfri minútu. Stúlkan til hægri á myndinni tekur við full- unnum flökum úr vélinni, en félagi hennar fjær stingur laxinum inn. HAUST/VETUR'87/88 Haust- og vetrarlínan frá Jil Sander erkomin. CLARA Kringlunni CLARALaugavegi15 SARA Bankastræti 8 MIRRAHafnarstræti 17 LÍBÍA Laugavegi 35 SNYRTIVÖRUBÚÐIN Laugavegi 76 GJAFA- OG SNYRTIVÖRUBÚÐIN Suöurveri ANETTAKeflavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.