Morgunblaðið - 04.09.1987, Page 35

Morgunblaðið - 04.09.1987, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1987 35 Morgunblaðið/HBj. Nýkjörin sijórn bænda, í lok aðalfundarins á Eiðum, f.v.: Ari Teitsson á Hrísum í í Sveinbjarnargerði á Svalbarðsströnd, formaður Stéttarsambands Þóroddsstöðum í Hrútafirði, Böðvar Pálsson á Búrfelli í Grímsnesi, í Mosfellsbæ, Bjarni Helgason á Laugalandi í Borgarfirði, Þórólfur firði, varaformaður, Þórður Pálsson á Refsstað i Vopnafirði og Birk- tndafirði. Jamarkaði: rði að selja lamba- tingahúsum Útflutningsráðið umsjón með verk- inu. í niðurstöðum athugunarinnar, sem lagðar voru fram á aðalfundi Stéttarsambands bænda á Eiðum, kemur fram að ef ráðast á í sölu íslensks kindakjöts á almennum neytendamarkaði í Bandaríkjunum krefst það nýrra vinnubraða í vinnslu kjötsins hér á landi og í markaðssetningunni ytra. Fram kemur að neysla lambakjöts hefur minnkað á undanfömum árum í Bandaríkjunum, verð er lágt í versl- unum, en mikill hluti söluverðsins fer í ýmsa milliliði í Bandaríkjunum. Þá kemur fram að söluaðilar sem selt hafa lambakjöt undir ákveðnum vörumerkjum hafa ná góðum ár- angri, en slíkt tekur langan tíma og er dýrt. Útflutningsráð leggur til að fyrir- tækið Trost verði fengið til að kanna möguleika á sölu til veitinga- husa á Boston-svæðinu. Leitað verði til nokkurra veitingahúsa um að þau bjóði íslenskt lambakjöt á matseðlum sínum til reynslu í ákveðinn tíma. í því sambandi gæti verið nauðsynlegt að bjóðá veitinga- fólki til íslands til að vekja áhuga þeirra og kenna þeima að matreiða lambakjötið. Lagt er til að kynning kjötsins verði vel undirbúin, meðal annars í veitingahúsunum sjálfum. ús verði ekki iur með valdboði híarðlega. í ályktun aðalfundarins segir að fundurinn telji óeðlilegt að allgóð eða löggild slaturhús verði lögð niður með valdboði heldur verði reynt að vinna að fækkun þeirra með samkomulagi á milli sláturleyf- ishafa. Fundurinn telur einnig óeðlilegt að ekki sé gert ráð fyrir sláturhúsi í heilum byggðarlögum, v enda sé ljóst að slíkt leiði til stór- hækkunar á flutningskostnaði sláturfjár. Mikil fækkun sláturhúsa komi í veg fyrir að bændur og þeirra fólk geti stundað slátur- hússtörf. Væri það mikil þversögn nú þegar mikið væri talað um að auka og efta atvinnu í sveitum. imanna gert u grænmetis beitt sömu aðferð við verðlagningu án þess að opinberir aðilar hafi nokkru sinni séð ástæðu til af- skipta þar af. Verðið hafí ráðist af framboði og eftirspum. Sölufé- lagið telur ákvörðun Verðlagsráðs, sem tilkynnt hafí verið án alis rökstuðnings, byggða á rangri túlkun verðlagslaganna og sé að auki haldin alvarlegum formgöll- um. fhugar félagið af þeim sökum að áfrýja henni til dómstóla. Sölufélagið segir furðulegt að Verðlagsráð sjái nú allt í einu brýna nauðsyn til svo óraunhæfra og harkalegra aðgerða sem fram er komið, þegar litið sé til þess að fyrir liggi samþykkt félags- manna um að setja á stofn grænmetismarkað (uppboðsmark- að) á vori komanda. Þá telur félagið að ekki verði ráðið af sam- þykkt Verðlagsráðs með hvaða hætti hægt sé að framkvæma hana og muni því leita eftir skýr- ingum ráðsins á þessu atriði og fleirum. Kosningarnar í Danmörku: Hart er barist um for- sætisráðherrastólinn eftir Jens Erik Rasmussen Kosningabaráttan í Dan- mörku nálgast nú hámarkið og virðast kosningarnar 8. sept- ember í síauknum mæli ætla að verða persónuleg barátta milli Pouls Schliiter, forsætis- ráðherra, og Ankers Jorgens- en, fyrrum forsætisráðherra úr Jafnaðarmannaflokknum. Kosið er á milli borgarlegrar og sósíalistískrar ríkisstjórnar og borgaraflokkarnir standa betur í skoðanakönnunum. Það er einnig kosið milli ólíkra per- sóna. Annars vegar er sigursæll háskólaborgari, Schlilter, sem gengið hefur vel síðustu fimm árin og hins vegar alþýðlegur og baráttuglaður verkamaður, Jorgensen, sem berst með storminn í fangið í kosninga- baráttu sem að líkindum verður hans síðasta. Hér birtast stuttar svipmyndir af þessum tveimur mönnum sem eru forsætisráð- herraefni i kosningabaráttunni og beijast hvor við annan. Bjartsýnismaðurinn Poul Schliiter Afburðabjartsýnismaðurinn Poul Schliiter hefur ástæðu til að ástunda það sem hann oft gerir: Að flauta glaðlega. í öllum skoð- anakönnunum, sem gerðar hafa verið fyrir kosningarnar, gera kjósendur ráð fyrir því að hann verði forsætisráðherra í nýrri fjór- flokkastjóm borgaraflokkanna að kosningunum loknum. ímynd _ forsætisráðherrans og leiðtoga íhaldsflokksins í dönsk- um íjölmiðlum er sigurvegarans. Fjölmargir jafnaðarmenn telja að hann verði forsætisráðherra eftir kosningamar og gífurleg um- skipti þurfa að verða hjá kjósend- um í lokaslagnum til að hann missi af lestinni. Árum saman var Schlúter þekktur sem „maðurinn í öðm sæti“ í danskri pólitík. Þekktari stjómmálamenn í íhaldsflokknum skyggðu á hann en smátt og smátt týndu þeir tölunni, ýmist vegna sjúkdóma eða þeir misstu flugið í baráttunni um flokksvöld- in. 1974 varð Schlúter formaður flokks sem átti í miklum erfiðleik- um og réð aðeins yfir fáum þingsætum. Forsætisráðherrann núverandi, sem í fristundum sínum þeysir um götumar á keppnisreiðhjóli, hleypti lífí í flokkinn á ný. Árið 1982 hafði þingmannatala flokksins tvöfaldast og Schlúter sigraði í keppninni um stól forsæt- isráðherra í harðri samkeppni við Henning Christophersen í borg- aralega flokknum Venstre. Sigursæld Schúters og óumdeild forysta hans í ríkisstjóm borgara- flokkanna var staðfest í síðustu kosningum 1984 er flokkur hans hlaut 42 þingsæti. Talsmenn hinna ríkisstjómarflokkanna hrósa forsætisráðherranum fyrir hæfíleika sína til að sameina flokkana fjóra sem að vísu eru allir taldir hægrisinnaðir en byggja annars á mjög ólíkum for- sendum. Sjálfur segist Schlúter vera „frjálslyndur, íhaldssamur og fé- lagslega meðvitaður." Þrátt fyrir íhaldsstefnu sína er hann miðju- maður í stjómmálum og hefur sveigt flokk sinn nær miðju. Sem dæmi má nefna að um opinbera þjónustu hefur hann sagt: „Um- fang hennar er eins og það á að vera.“ Bestu vopn hans em óbugandi bjartsýni og gott skap. Þessir tveir eiginleikar hafa augljóslega feng- ið almenning til að gleyma því að varðandi skattpíningu, erlendar skuldir ríkisins og atvinnuleysi hefur ástandið sjaldan verið verra. Schlúter er einnig afburða vel að sér í stjómmálum en notar oft gott innsæi sitt til að taka leiftur- snöggar ákvarðanir. Pólitískt tímaskyn hans kom vel í ljós þeg- ar hann boðaði til kosninga. Jafnaðarmenn vom þá með allt niðri um sig, flokksformaðurinn í Búlgaríu og annar tveggja vara- formanna á Indlandi. Refskapur Forsætisráðherranum hefur ekki tekist kveða niður það orð- spor að hann hafí ekki sinnt um þá sem minnst mega sín f þjóð- félaginu. Vinstrisinnar lýsa honum gjaman sem glottuleitum og illgjömum klækjaref. Þrátt fyrir þetta og lögfræðimenntun sína nýtur hann svo mikillar lýð- hylii að hvað það snertir er honum líkt við Anker Jargensen, leiðtoga jafnaðarmanna. Snillingar í samtökum ungra jafnaðarmanna fengu þá hug- mypd að búa til veggspjald þar sem Jargensen er sýndur eins og nýr James Bond með rauða krata- rós í hendinni í staðinn fyrir skammbyssu. í kvikmyndaheim- inum hefur nýr og yngri maður tekið við Bond-hlutverkinu og mörgum fínnst að danskir jafnað- armenn ættu einnig að velja sér nýjan mann tii að vera í fylkingar- bijósti í baráttunni gegn Schlúter. Tilraunir hafa verið gerðar til að velta Jargensen úr sessi en þær hafa allar verið kæfðar í fæðingu. Enda þótt margir séu orðnir þreyttir á formanninum nýtur hann enn þá gífurlegrar samúðar hjá óbreyttum flokksmönnum og verkalýðshreyfíngunni. Flokksmenn óska þess yfirleitt að hann vinni kosningasigur og helst að hann verði aftur forsætis- ráðherra. Það yrði verðugur endir á ferli sem spannar 15 ár sem formaður stærsta stjómmála- flokks landsins, þar af mörg ár jafnframt í sæti forsætisráðherra. Útlitið er ekki bjart sem stendur, f skoðanakönnunum er jafnaðar- mönnum spáð fylgishruni í kosningunum 8. september. Hart barist Jorgensen lætur hrakspámar íhaldsmaðurinn Poul SchlUt- er (t. v.) er talinn einstaklega snjall í að snúa sig út úr pólitískum erfiðleikum. Helsti andstæðingur hans í kosning- unura, Anker Jorgensen, hefur aftur á móti átt erfitt upp- dráttar að undanfömu og spá því margir að hann verði að láta af formennsku í flokki jafnaðarmanna eftir þingkosn- ingamar kosningarnar 8. september. ekkert á sig fá og með 65 ár á bakinu varpar hann sér út í eitil- harða kosningabaráttu sem vel getur orðið sú síðasta fyrir hann. Kannski getur kraftmikill formaðurinn snúið vöm í sókn á lokadögum baráttunnar. Anker Jargensen er hinn dæmigerði Dani og einlæg og alþýðleg fram- koma er beittasta vopn hans á vígvelli stjómmálanna. Allir skilja tungutak hans og hann er í essinu sínu á kosningafundum en aða- landstæðingur hans, Schlúter, nýtur sín best á sjónvarpsskján- um. Fáir hafa þó trú á því að Jorgensen takist að draga Schlút- er uppi og setjast í stólinn eftir- sótta. Fimmtán ár í forystu Anker Jargensen er mótaður af danskri verkalýðshreyfíngu og var formaður stærsta sérsam- bands hennar þegar hann varð forsætisráðherra með örstuttum fyrirvara. Hann fékk klukkustund til að hugsa sig um þegar Jens Otto Krag, þáverandi forsætisráð- herra, dró sig í hlé eftir þjóðarat- kvæðið um aðild Danmerkur að Evrópubandalaginu árið 1972. Jorgensen tók við völdum um sama leyti og olfukreppan skall á og hlaut því það hlutverk að stjóma þjóðarskútunni í efna- hagslegum ólgusjó. Það var erfítt hlutskipti og 1982 hvarf hann frá stjómvelinum nær mótspymu- laust og lét hann borgaraflokkun- um eftir. Honum Iíkar ekki að vera leið- togi stjómarandstöðunnar. Hann á erfítt með að marka skýrar línur í stefnu flokksins og sfjóma óþol- inmóðum þingflokki. Mörkin milli vinnuveitanda og launamanns í þjóðfélaginu verða nú sífellt óljós- ari og Jorgensen hefur vanrækt að endumýja flokkinn og aðlaga hann nýjum þjóðfélagsaðstæðum. Hann stjómar með gamaldags pukursaðferðum og klíkumyndun hefur blómstrað í flokknum á stjómarárum hans. Sem stendur situr hann fremur afskiptur á valdatindinum því að enginn af mögulegum erfðaprinsum vill tengjast of náið veikburða form- anni sem flestir gera ráð fyrir að muni fljótlega láta af völdum. Höfundur er blaðamaður tyá Reportagegruppen ÍÁrósum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.