Morgunblaðið - 04.09.1987, Side 38

Morgunblaðið - 04.09.1987, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1987 mm #■ Iðnsýningin; Aðsóknin mun betri en gert hafði verið ráð fyrir Morgunblaðið/svpáll Námsbrautastjórar hins nýja háskóla við lokaundirbúning fyrsta starfsárs. Háskólinn á Akureyri sett- urámorgun HÁSKÓLINN á Akureyri verður settur við athöfn í Akureyrarkirkju á morgun, laugardag. Á fyrsta starfsár- inu verður kennt á tveimur brautum, í iðnrekstrarfræð- um og hjúkrunarfræðum. Fyrsta háskólahátíð á Ak- ureyri hefst í kirkjunni á laugardag klukkan 2. Þar mun Haraldur Bessason, for- stöðumaður háskólakennsl- unnar, ávarpa gesti og síðan flytja ávörp núverandi og fyrrverandi menntamálaráð- herrar, þeir Birgir ísleifur Gunnarsson, Sverrir Her- mannsson og Ingvar Gísla- son. Formaður háskóla- nefndar menntamálaráðu- neytisins, Halldór Blöndal, og Gunnar Ragnars, forseti bæjarstjórnar, munu og ávarpa hátíðargesti. Þvi næst verða stutt ávörp náms- brautastjóranna, Margrétar Tómasdóttur og Stefáns G. Jónssonar. Loks verður skól- inn settur með ræðu Harald- ar Bessasonar. unarfræðum og 34 í iðnrekstrar- fræðum. IÐNSÝNINGIN i íþróttahöUinni hefur verið mjög vel sótt og hafa nú þegar um 6000 gestir komið en sýningunni lýkur á sunnudag- inn. „Þetta er mun meira en við gerð- um ráð fyrir,“ sagði Þorleifur Þór Jónsson framkvæmdastjóri sýning- arinnar í samtali við Morgunblaðið. „Það er kannski ekkert óeðlilegt að aðsóknin sé eins og raun ber vitni þvi að fyrirtækin hafa lagt mjög mikið í sína bása. Við þorðum ekki að vera of bjartsýnir þvi að svona stór sýning sem hefur verið látin standa i þetta langan tima hefur ekki verið sett upp á Akur- eyri áður. Það getur jafnvel verið að hún fari langt með að standa undir sér. Akureyrarbær hefur lagt eina og hálfa milljón til sýningarinnar i til- efni afmælisins og til að styðja við bakið á iðnaðinum í bænum en það gæti jafnvel farið svo að við þyrft- um ekki að nota allt það fé. Auk þess verður hægt að nýta aftur sumt af þvi sem keypt hefur verið til sýningarinnar eins og til dæmis m i\ 5—r'.rf % kVí Morgunblaðið/Gylfí Þorleifur Þór Jónsson framkvæmdastjóri sýningarinnar. teppin sem lögð hafa verið á salinn og skilrúmin á milli básanna." Þorleifur sagði að engin sérstök vandamál hefðu komið upp í sam- bandi við sýninguna. „Húsið er að vísu ekki fuilbúið og við höfum þurft að taka tillit til þess en það hefur tekist að yfirstiga það eins og annað sem hefur komið upp,“ sagði Þorleifur að lokum. Kristín Jónsdóttir og Lárus Sverrisson. Yfirlitið yfir orkunotkunina kom mestá óvart LÁRUS Sverrisson og Kristín Jónsdóttir voru meðal gesta á sýning- unni og voru þau ánægð með það sem fyrir augu hafði borið. „Það kom mér mest á óvart að geta fengið yfírlit yfir raforkunotkunina á heimilinu síðasta ár,“ sagði Lárus. Ekki taldi hann þó að hann myndi geta nýtt sér yfirlitið til að draga úr orkunotkuninni. „Orkunotkunin var vel fyrir neðan meðaltalið síðasta ár þannig að ég býst ekki við að hægt sé að gera hana enn minni. Þetta vekur mann þó óneitanlega til umhugsunar.“ Kristín tók undir þetta og sagði að þau hefðu einnig varið talsverðum tíma í að skoða eldhúsinnréttingar á sýningunni enda þyrftu þau að fara að skipta um innréttingu. Kristín var þó ekki viss um að sýningin yrði til þess að þau keyptu frekar íslenska framleiðslu en innflutta. „Auðvitað vil ég frekar kaupa íslenskt en verðið hlýtur að ráða.“ Komst ekki fyrir í básnum ÁSGRÍMUR Ágústsson ljósmyndari er eigandi Norðurmyndar sem er með bás á sýningunni og sagði hann að það hefði verið talsvert að gera í básnum. „Flestir eru auðvitað bara að skoða og athuga til dæmis hvort það þekk- ir fólkið á myndunum í básnum en margir hafa sýnt þessu talsverðan áhuga. Á laugardaginn varð ég sjálfur að vera úti á gangi því að það voru svo margir að skoða. Ég held að það muni borga sig að hafa tekið þátt í þessu, þetta er ákaf- lega ódýr auglýsing. Ég reyni að sýna breiddina í því sem ég geri, sýni ekki bara þessar hefðbundnu andlitsmyndir heldur líka til dæmis hvað hægt er að gera við gamlar mjmdir. Ég hef líka lagt talsvert upp úr góðum frágangi á myndum og sýni hver munurinn er á litmynd sem hefur verið snyrt aðeins og litmynd sem ekkert hefur verið gert við. Það halda margir ljósmyndarar að það þýði lítið að reyna að lagfæra litmjmdir líkt og auðvelt var að gera við svart/hvítar myndir en það er hægt að gera glettilega mikið þótt það sé auðvitað meiri vinna við litmjmdir en svart/hvftar. Ásgrúnur Ágústsson Tónlist á hátíðinni flytja Kristj- án Jóhannsson, Bjöm Steinar Sólbergsson, Norman H. Dennis og Atli Guðlaugsson. Kennsla í hinum nýja háskóla hefst mánudaginn 7. september. Skólinn verður í vetur til húsa á tveimur stöðum, skrifstofur og kennslustofa í húsnæði tækni- sviðs Verkmenntaskólans og tvær kennslustofur í íþróttahöll- inni handan götunnar Á fyrsta háskólaárinu verða nemendur 47 talsins, 13 í hjúkr- Leiðrétting IFRÉTT um tónleika sem halda átti í sal Tónlistarskólans og birtist í Morgunblaðinu í gær var mishermt að tónleikamir yrðu í dag. Hið rétta er að tón- leikarnir voru í gær, fimmtu- dag, og er hér með beðist velvirðingar á þessum mistök- um. Anna Rósa Heiðarsdóttir og Harpa Örvarsdóttir til hægri. Ágætis tilbreyting að vinna héma FATALITUNIN Höfði er eitt þeirra rúmlega 40 fjrrirtækja sem sýna á iðnsýningunni. í bás fyrirtækisins tóku á móti forvitnum gestum vinkonumar Harpa Örvarsdóttir og Anna Rósa Heiðarsdóttir. Þær voru mjög ánægðar með að fá að vinna á sýningunni. „Þetta hefur ekki verið mjög erfitt," sagði Harpa, „og við höfum bara haft gaman af þessu." Þær sögðu að fólk spyrði talsvert um starfsemi fyrirtækisins, hvaða fot það litaði og hvort það tæki að sér að lita föt fyrir almenning. „Við höfum sagt fólki að það geti komið með föt í litun til okkar en annars er mest að gera í að lita föt fyrir önnur fyrirtæki," sagði Anna. „Það er ágætis tilbreyting að standa í þessu enda höfum aldrei unnið við svona sýningu eða eitthvað þessu líkt áður. Þetta er til dæmis allt öðru vísi en það sem við höfum verið að gera í sumar." Talsvert selt á sýningunni PÉTUR Steingrímsson frá Laxámesi í Aðaldal er einn þeirra sem sýnir á iðnsýningunni og deilir hann bás með Önnu Maríu Aradóttur. Pétur var reyndar ekki sjálfur við þegar blaðamaður leit inn á sýninguna en Karl Ásgeirsson leiddi gesti i allan sannleika um það sem var til sýnis. í básnum getur meðal annars að líta flugur fyrir stangveiðimenn sem Pétur hefur hnýtt og litla skildi sem hann hefur unnið og er hvort tveggja til sölu. „Fólk hefur sýnt þessu mikinn áhuga,“ sagði Karl. „Sérstaklega hefur það komið mér á óvart hvað kvenfólk hefur sýnt flugunum mikinn áhuga og virðast þær hafa engu minna vit á þeim en karlamir þótt lax- veiðar hafi hingað til meira verið stundaðar af körlum en konum." Pétur hefur selt talsvert á sýningunni en annars selur hann aðallega er- lendum veiðimönnum og söfnurum. Karl sagði að það hefði komið honum ánægjulega á óvart hve sýningin hefði tekist vel. „Það hafa greinilega allir Iagt sig mjög fram um að hafa sitt framlag sem vandaðast." Asgeirsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.