Morgunblaðið - 04.09.1987, Page 51

Morgunblaðið - 04.09.1987, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1987 Margrét G. Bjöms- dóttír - Minning Fædd 12. ágúst 1895 Dáin 27. ágúst 1987 Elskuleg, aldurhnigin frænka mín hefur fengið þráiðan frið og heiðrikja mætra minninga og heit hugans þökk eru nú ofar öðru. Það var mannbætandi að kynn- ast svo góðri, greindri og heil- steyptri konu og Margrét frænka mín var og hugurinn reikar til ungl- ingsára, þegar ég fékk að kynnast henni fyrst. Þá átti ég ágæta vist í þrjá vetur hjá frændfólki mínu, því öðlingsfólki, sem þá og æ síðar reyndust mér og mínum svo undra- vel. Þar bjuggu þá fímm systkini undir sama þaki, eiginmenn tveggja systranna og sonur annarrar og allt heimilislíf á báðum hæðum slíkt, að öðru eins og því er tæpast unnt að kynnast. Eindrægni samheldn- innar var yfír öllu og ástúðin og umhyggjan í garð unglingsins slík, að hann, þessi dæmalausi heimaaln- ingur fann sig eins og heima hjá sér. Þar átti Margrét frænka mín sinn mikla og góða hlut, hlý og mild en þó föst fyrir, umhyggjusöm og skilningsrík, en um leið ströng og leiðbeinandi. Hún var afar jafnlynd kona, gleði hennar hljóðlát en ein- læg, mannleg samkennd átti þar einarðan fulltrúa, sjálfstæð var hún í skoðunum og hélt þeim fram af öryggi og festu. Hún var fróðleiks- sjór um menn og málefni, stálminn- ug og sérstaklega vel að sér um þau málefni, sem ekki eru almennt mikið ígrunduð. Hún las mjög mikið, enda bók- hneigð hið bezta, einkum sökkti hún sér niður í lestur rita um trúarbrögð og trúarstefnur og hreifst mjög af kenningum dr. Helga Pjeturs og var því umburðarlynd, víðsýn og fíjáls- lynd, fylgdi þeim skoðunum eftir með góðri málafylgju og æmum rökum. Skinhelgi og hræsni ofsatrúar- innar og kreddur bókstafsins voru henni víðs fjarri, en túareinlægni og vissa var því meiri og sannari. Lífssaga Margrétar var ekki sviptingasöm eða mikil á ytra borði, enda heimilið hennar vettvangur lengst af, störf hennar unnin af elju í kyrrþey af þeirri alúð og sam- vizkusemi, sem henni var svo eiginleg. Hún hefði átt að vera ung í dag með alla sína þekkingarþrá og réttlætisleit með leikandi náms- gáfur, sem hefðu nýtzt vel í fjöl- breytni möguleikanna nú. En þessum góðu hæfíleikum vom á hennar uppvaxtarámm þröngur stakkur skorinn. Þó hef ég við fáa rætt með aðra eins yfírsýn um lífs- sviðið allt, byggða á víðfeðmri þekkingu og rökvísi hennar var fá- gætlega mikil. Seinni árin vom mildin og hlýjan allsráðandi og þess nutum við ríkulega, sem áttum með henni stundir. Margrét var fædd 12. ágúst 1895 að Sléttu í Reyðarfírði og var því rúmlega níutíu og tveggja ára þeg- ar hún lézt. Foreldrar hennar vom hjónin Siggerður Eyjólfsdóttir frá Seljateigi og Bjöm Jónsson, vest- fírzkur prestssonur, sem var bókbindari að mennt. Margrét var næst yngst sex systkina og er nú Jóhann, yngsti bróðirinn það eina eftirlifandi af þeim Seljateigssystk- inum, svo sem þau vom löngum kölluð. Bjöm faðir hennar dó úr lungna- bólgu, þegar Margrét var á fímmta ári og þá fór hún í fóstur til móður- bróður síns Eyjólfs á Borgargerði og konu hans, Margrétar. Þau önd- uðust hins vegar bæði á bezta aldri, þegar Margrét var liðlega níu ára. Þá fór Margrét til móður sinnar og systkina í Seljateigi. Erfíðleikar og fátækt sóttu að æðimörgum á þeim ámm og eðli- lega var lífsbarátta ekkjunnar hörð og ströng. Engu að síður hleyptu þær systur Ásta og Margrét heim- draganum, þegar Margrét er 19 ára og þær fara í Hvítárbakkaskóla og em þar tvo vetur og vinna svo þar fyrir skólakostnaði. Þær vom báðar námsfúsar mjög og næmar með afbrigðum og báðar þráðu þær mjög lengri skólagöngu, en á því var enginn kostur. Heim komin til Reyðarfjarðar fer hún að læra saumaskap hjá Sigríði systur sinni, sem var lærð sauma- kona. Árið 1920 fer hún svo til Noregs og er þar í tvö ár. Þar held- ur hún saumanámi áfram, en einnig lærir hún þar pijónaskap. Margrét þótti afar vandvirk og fær sauma- kona og stundaði þá iðn lengi Díana Mjöil Stefáns- dóttir - Minning Fædd 17. júlí 1974 Dáin 25. ágúst 1987 Miðvikudaginn 2. september var Díana Mjöll jarðsungin frá Glerár- kirkju. Kynni okkar Díönu hófust fyrir fjórum ámm, þegar hún flutti með móður sinni og stjúpföður í nábýli við mig. Fljótlega myndaðist góður vin- skapur með henni og elstu dóttur minni, sem leiddi til samgangs milli fjölskyldnanna. Ég tók snemma eftir því hversu sérstök hún var að allri gerð og virtist fullorðinslegri en jafnaldrar hennar. Hún var velviljuð, kurteis og prúð í framkomu. Mér er minnisstætt atvik frá aðfangadegi jóla, tveimur mánuð- um eftir að Díana veiktist. Þá fékk hún að koma heim af Landspítalan- um yfír jólin. Sjúkdómurinn hafði þá sett mark sitt á hana, en hún lagði það á sig, rétt áður en hátíðin gekk í garð, að koma færandi hendi með jóiagjafir handa mér og fjöl- skyldunni. Þá varð mér ljóst að stundum eru þeir veiku sterkastir. Hún hafði yndi af að gleðja aðra. Þeim góðu eiginleikum, sem hún var gædd, hélt hún til hinstu stund- ar. Gerða, móðir hennar, hefur sýnt fádæma þrek á þessum þungbæru stundu. Það duldist engum að sam- I I tlcuai S 1 IIISKl' band þeirra mæðgna var gott og innilegt. Baráttan var þeirra beggja. Guðmundur, stjúpfaðir Díönu, studdi þær eftir megni. Við Jamie og dætumar sendum Gerðu, Gumma og öðrum aðstand- endum okkar dýpstu samúðarkveðj- ur. Vertu sæl, vor litla ljúfa blíða lof sé Guði, búin ertu’ að stríða. Upp til sælu sala saklaust bam án dvala. Lærðu ung við engla Guðs að tala. - M. Joch. Margrét Jónsdóttir frameftir árum, velvirk og vannst mjög vel. Eystra dvelst Margrét hjá systr- um sínum allt til ársins 1939, en þá flytzt hún með Ástu systur sinni og Eiríki manni hennar til Reykja- víkur, en milli þeirra systra var mjög sterkt samband og Bjöm Grét- ar einkasonur Ástu ber nafn hennar. í Reykjavík á hún síðan heima upp frá því. Þau systkinin fímm, er suður fluttu bjuggu eins og áður sagði öll í sama húsinu á Grettisgötu 45a og þar var Margrét þar til fyrir rúmu ári, að hún fór á elliheimilið Grund og þar lézt hún hinn 22. ágúst s.l. eftir mikil veik- indi í sumar. Margrét giftist aldrei en fjöl- skyldur systkina hennar voru sem hennar eigin og naut undirritaður og Qölskylda hans einstaklega mik- ils góðs af því ástríki allt frá fyrstu tíð. Dálæti hennar var þó mest bundið Bimi Grétari, systursyni hennar, en hann reyndist frænku sinni ágæta vel allt til hins síðasta. Margrét er í dag kvödd þakklát- um huga þeira fjölmörgu sem nutu góðs atlætis og elskusemi á Grettis- götu 45a hjá fjölskyldunum þar, sem allra götu vildu greiða og hvers manns vanda vel leysa. Nú kveður hún síðust þess góða fólks sinnar kjmslóðar, sem þar bjó um langan tíma við rausn og með reisn. Hún var sjálf atgerviskona í sjón og raun, og hélt sínu andlega atgervi allt til hins síðasta, en þráði þó lausn og líkn frá þessu lífí. Nú hefur líknarmild mund lokað augunum hennar og eftir em minningamar einar, yndisgóðar og fagrar. Þær lýsa okkur fram á veginn í trega dagsins. Bróðir hennar og mágkona senda við leiðarlok einlægar þakkarkveðj- ur fyrir kærleiksríka samfylgd. Við hjónin og allt okkar fólk, þökkum af alhug allar þær ágætu stundir, er við áttum með og hjá Margréti frænku minni, vökust umhyggja og einlæg ástúð í okkar garð mun aldr- ei gleymast. Hún frænka mín kær trúði á eilífðarbrautir framtíðar- landsins, þar sem réttlæti friðarins ríkir, þar sem kærleikurinn umvefur allt. Við biðjum henni öll blessunar og þökkum klökkum huga allt og allt. Blessuð sé minning Margrétar Bjömsdóttur. Helgi Sejjan í SKÓLANN,4RA REIKNI FRÁ SILVER SilverReed EB50 boöar upphaf nýrra tíma í gerð skólaritvéla. Hún er full af spennandi nýjungum, ótrúlega fjölhæf og lipur. Fjórir litir, margar leturstæröir, teiknihæfileikar, reiknikunnátta og tenging við heimilistölvu eru aðeins brot af athyglisverðum eiginleikum bessa létta og fallega töfratækis sem alls staðar fær frábærar móttökur meöal skólafólks sem fýlgjast vill með nýjum og skemmtilegum tímum SilverReed EB50 er hönnuð fyrir unga fólkið og framtfðina. ‘^S* ■ 4 lltlr ■ fslenskt leturborð ■ Þflár leturstærðlr ■ Beint letur/hallandl letur ■ SJálfvirk undlrstrikun ■ 16 stafa lelðréttlngargluggl ■ Telkning á skffurltum. súlurltum og ■ Getur vélrltað upp og nlður. ■ Tenglst vlð helmlllstölvur sem telknarl ■ Relknar og setur upp helstu relkniaðferðlr ■ cengur Jafnt fyrlr rafhlöðum og 220v (straumbreytlr fylglr) ■ Létt og pæglleg að gripa með sér hvert sem er. ótrúlegt verð: AÐEINSKR.17.900,- Kíkið inn og reynið sjálf snilli SilverReed EB50 Hún á eftlr að gera skólastarflð bráðskemmtllegt! '7S' SKRIFSTOFUVELAR H.F. Hvertisgölu 33, sími: 62-37-37 > Strc" V bft*« ««« %*e Sk 9« *%.***.' 4-J 1 *

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.