Morgunblaðið - 04.09.1987, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 04.09.1987, Qupperneq 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1987 Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Frystihúsið i Mallaig hefur nídst niður árin meðan að ekkert gengur að koma af stað fiskvinnslu. EP Eru bakdyrnar á landhelginni að opnast upp á gátt?: Stórfellt tap á rekstri ICESCOT - ÍSSKOTT leiðir til kærumála Flutningaskipið ísafold selt — Fisk- vinnsla í Mallaig á eftir að sitja á hakanum um ófyrirsjáanlega framtíð — f búarnir í Mallaig skaðast mest III. grein Eftír Krístín Benediktsson fréttaritara Morgunblaðsins „Ég hef séð lélegan fisk frá íslandi koma út úr gámum og einnig hef ég heyrt marga fiskkaupmenn hvaðanæva úr Evrópu segja hið sama. Þetta er slæmt fyrir ísland því þar er besti og fallegasti fiskur í heimi. Vandamálið er fyrst og fremst hvernig á að koma honum á markaðinn erlendis í sinni upprunalegu mynd“, sagði Allan McColl, einn af skosku eigendunum í Icescot, er ég staldraði við hjá honum i heimabæ hans, Fort Williams, í Skotlandi á dögunum. íslendingar tapa árlega mörgum milljónum króna vegna stjómleysis í fisksölu erlendis svo og að alltof miklu magni af gömlum og lélegum fiski er mokað inn í gáma og sent á erlenda markaði. Þetta hefur haft þær afleiðingar að verðfall verður á mörkuðunum og bitnar harðast á þeim aðilum sem kapp- kosta að senda góðan fisk og vel frágenginn. Dæmi eru um að fiskur sem undir eðlilegum kringumstæðum er seldur á 70—80 krónur kílóið fari niður í 40—50 krónur kílóið vegna þess að það tekur markaðinn nokkra daga að jafna sig eftir send- ingar af miklu magni af lélegum fiski. Margir hafa eygt stórgróða í fisksölu erlendis sem breyttri flutn- ingatækni en vegna kunnáttuleysis varðandi meðhöndlun á fiski hafa viðskiptin endað með ósköpum. Þeir sem kannað hafa hug fisk- kaupenda í Evrópu komast að sömu niðurstöðu og Allan McColl að þeir eru ekkert of hrifnir af besta fiski í heimi þegar hann kemur út á markaðina til þeirra. Ástæðan er fyrst og fremst að lélegur fiskur- kemur of oft á markaðinn. McColl tók þátt í fyrirtækinu Icescot og fjármagnaði fiskkaup á íslandi, en eitthvað fór alvarlega úrskeiðis, eins og hann orðaði það. Gufuðu 50 milljónir króna upp? „Hugmyndum mínum og sam- böndum sem ég hafði unnið að í mörg ár og kostuðu mig stórfé var hreinlega stolið frá mér og mér bolað burt,“ sagði Helgi Zoéga er hann útskýrði hvemig hans enda- lok varðandi uppbygginguna á fiskvinnslu í Mallaig bar að. „Ungur íslendingur, mállaus og allslaus, kom út og hirti allt frá mér. Mig grunar að einn maður sem starfaði hjá byggðasjóðnum en var HOTEL OG VEITINGASTJÓRAR Mit í stóreldhúsið og veitingasalinn PR 10. september munum við í PR búðinni opna nýjan sýningarsal að Kársnesbraut 106 Kópavogi. Þar munum við sýna það nýjasta sem boðið er upp á í tœkjum og búnaði til rekstrar stóreldhúsa og veitingastaða. f tilefni opnunarinnar kemur hingað til lands sölustjóri og innan- húsarkitekt Dansk storkökken indretning aps. En það fyrirtœki er eitt hið stœrsta sinnar tegundar í Danmörku. Sölustjórinn mun kynna allt það nýjasta sem er að gerast innan stóreldhústœkni- nnar í Danmörku. Einnig mun hún veita ráðgjöf um innréttingar og annað er viðkemur rekstri stóreldhúsa og veitingasala. Þeir sem áhuga hafa á að rœða nánar við dariska sérfrœðinginn og kynna sér það nýjasta sem er að gerast í þessum efnum eru hvattir til að snúa sér til okkar í PR þúðinni sem fyrst. BUÐIN Kársnesbraut 106 Sími: 41375-641418 l;g i dansk | storkekken PÍP indretning aps hættur hafí lagt þetta upp í hend- umar á honum til að koma ár sinni vel fyrir borð. Ég hygg að búið sé að setja í þetta ævintýri 50 milljónir króna sem allt er gufað upp í vitleysis- gangi," sagði Helgi bitur. Icescot verður að veruleika * „Ég heyrði hjá kunningja mínum 1984 að skoski byggðasjóðurinn væri að leita að mönnum til að koma í gang fiskvinnslu í skoska bænum Mallaig og var hugmyndin sú að fluttur yrði fiskur þangað frá íslandi og unninn þar. Ég hafði samband við mann frá Siglufirði og fékk frá honum gögn varðandi þetta mál. í framhaldi af því hafði ég samband við Skotana, sem tóku málaleitan minni vel. Mér var bent á að þeir vildu styrkja og lána pund á móti pundi sem ég útveg- aði,“ sagði þessi íslendingur, sem óvænt kom til sögunnar. Skotamir voru orðnir langeygðir eftir að hjólin færu að snúast í Mallaig eftir að margir íslendingar höfðu komið og skoðað aðstæður án þess að neitt gerðist. Sendinefnd hafði komið til íslands sem í var fulltrúi frá skoska byggðasjóðnum og átti fundi með mörgum fiskverk- endum og útgerðarmönnum án árangurs. Allir voru jákvæðir en enginn tók af skarið. „Ég byijaði á því að fara til Svíþjóðar til að leita mér að fjár- hagslegum bakhjarli og kynntist Svía sem lofaði mér allt að 250 þúsund pundum gegn eignaraðild í fyrirtækinu og átti ég að fá sömu upphæð frá byggðasjóðnum. Ég hélt síðan til Skotlands og nú hófst undirbúningur að stofnun fyrirtæk- isins ásamt mönnum í Mallaig. Undirbúningurinn gekk að ósk- um, en ekki komu peningamir frá Svíþjóð. Ég beið og beið eftir þeim til að geta stofnað fyrirtækið. Þeir voru ýmist á leiðinni eða höfðu misfarist. Allt var orðið klárt f Skotlandi og grunaði okkur þar að Svíinn væri að ljúga og hefði ekkert þessa peninga. Loks, síðla árs 1985, komu 50 þúsund pund, en þá höfðum vð gefíð honum viku frest ef hann vildi vera með. Peningamir komu of seint og ég búinn að ganga frá skráningu á Icescot hjá skráning- arfélagi í Skotlandi. Svíinn kom til Skotlands alveg bijálaður yfir því að hafa fengið aðeins 15% hlut í fyrirtækinu svo honum vom greidd 20 þúsund pund til baka. Upp frá þessu hafði ég hann á móti mér. Hann lét snuðra um mig og tókst að gera mig tortryggileg- an. Hann kom með bréf þar sem ég hafði kvittað fyrir 200 þúsund króna láni í nafni Icescot og sagði hann að ég hefði tekið þessa pen- inga til mín en ætlaði að láta Icescot borga þá. Þetta var allt tómt kjaftæði, en nóg til þess að allt fór upp í loft. Svíinn var með hótanir og sagðist ætla að ná sér niðri á rhér. Komið var fram á haust 1985. Ég stóð í viðræðum við fólk í Skot- landi til að fjármagna fyrirtækið, þar sem Svíinn hafði brugðist. Ég var svekktur og hræddur um að allt væri að fara út um þúfur, þeg- ar ég hitti McColl-bræður. Þeir störfuðu að verslun með kol í Fort Allan McColl talsmaður skosku eigendanna fyrir framan skrif- stofur sinar i Fort Williams. William og komu þeir inn í fyrir- tækið ásamt fjölskyldu kunningja þeirra, John Coats. Nú var gengið frá formlegri stofnun Icescot um miðbik ársins 1986. Minn hlutur í fyrirtækinu var 43% eða hlutafé að upphæð 30 þúsund pund, sem var í raun upp- reiknaður útlagður kostnaður af minni hálfu þann tíma sem tók að koma fyrirtækinu á laggimar. McColl-bræður og John Coats lögðu fram 70 þúsund pund og reiknaðist þeirra hlutur 42% en Svíinn fékk 15% eins og fyrr segir. Skoski byggðasjóðurinn lagði út 90 þúsund pund og við fengum 70 þúsund punda yfirdráttarheimiid hjá viðskiptabanka okkar þannig að samtals höfðum við í rekstrarfé í byijun 230 þúsund pund eða 15 milljónir króna. Það var stefna fyrirtækisins sem allir aðstandendur voni sammála um að ná fótfestu á íslandi sem stórt og traust fyrirtæki í fiskkaup- um hér á landi. Allan fisk skyldi senda á uppboðsmarkaðina f Hull og Grimsby. í þessu skyni er fyrir- tækið ísskott stofnað í nóvember 1986 til að annast fiskkaupin á Islandi í stað þess að versla í gegn- um stóru útflutningsaðilana. Töldum við þetta koma betur út fyrir Icescot þegar til lengra tíma væri litið. Icescot átti 49% í ísskott. Ég var framkvæmdastjóri Icescot og varð stjómarformaður í ísskott og átti sjálfur 25% hlut í því fyrir- tæki. Ungur maður sem fengið hafði nasasjón af þessum ráðagerð- um hafði samband við mig til Skotlands þar sem hann hafði áhuga á að taka þátt í starfsem- inni. Hann var ráðinn fram- kvæmdastjóri ísskott og fannst mér eðlilegt að honum væri gefinn kostur á eignaraðild. Hann eignað- ist því 25% hlut og sá um öll fískkaup ásamt frágangi á fiskin- um til útskipunar. Til að tryggja sér siglingu með fiskinn til Mallaig, sem átti að vera löndunarhöfnin, tók Icescot þátt í stofnun Kæliskips hf. ásamt nokkr- um skipveijum á ísafold sem félagið keypti á fjármögnunar- leigusamningi haustið 1986. Icescot tryggði sér 20% eignar- aðild af félaginu enda mjög háð því að hafa aðgang að öruggum flutningi til Mallaig. Því var þessi leið farin. Við okuldbundum okkur ______abriel GJvarahlutir ^ HamarshöfAa 1 Hamarshöfða 1 Símar 36510 og 83744
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.