Morgunblaðið - 04.09.1987, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1987
53
Fiskurinn sem Icescot flutti til Mallaig með ísafold var umskipað í
járnbrautarlest. Fyrirhugaðar voru miklar endurbætur á járnbraut-
arkerfinu en óvíst eru um framhaldið.
til að tryggja flutning upp að 200
tonnum í hverri ferð en að öðru
leyti sáu Kæliskipsmenn um að
fylla skipið. Ákveðið var að ef ekki
tækist að útvega þessi 200 tonn
þá styrktum við flutninginn, því
ekki var hægt að ætlast til að þeir
bæru kostnað af að sigla hálftómu
skipi á meðan hjólin færu að snú-
ast,“ sagði framkvæmdastjóri
Icescot.
Skoskt fjármagn
til yf irboða
ísskott byrjaði strax um haustið
að kaupa físk og senda út og gengu
þau viðskipti eðlilega fyrir sig
framan af. Á vetrarvertíðinni eftir
að sjómannaverkfallið leystist buðu
ísskotts-menn útgerðarmönnum og
skipstjórum á Suðumesjum og allt
til Snæfellsness allt að 37 krónum
fyrir kílóið af óslægðum neta-
þorski. Á sama tíma var landsam-
bandsverðið fyrir sambærilegan
fisk um 25 krónur kflóið. Fiskurinn
var síðan slægður í fiskverkunar-
húsi í Garðinum sem fékkst undir
starfsemina, ísaður í kör og gerður
klár til útflutnings. Icescot hafði
fest kaup á körum og kössum, bíl
og lyftara auk skrifstofubúnaðar.
Þetta var allt gert með vilja og
vitund hluthafa.
Fljótt fór að halla undan fæti.
Fiskurinn seldist í nokkrum tilfell-
um á svo lágu verði að það dugði
ekki upp í fískverðið sem var greitt
hér heima. Þá varð fyrirtækið fyrir
verulegum áföllum er talsvert
magn af físki skemmdist og fór í
gúanó. Skuldir við sjómenn vegna
fískkaupa hlóðust upp og hættu
margir að selja þeim fisk.
ísafold sigldi til Mallaig með
fískinn fyrir ísskott en að auki
flutti það töluvert magn af flski
fyrir aðra þar á meðal voru Hom-
fírðingar stórir viðskiptavinir.
Fiskinum var umskipað í Mallaig
og fluttur þaðan með lest til upp-
boðsmarkaðanna í Hull og Grims-
by-.
I Mallaig fékk áhöfnin olíu og
vistir auk þess sem hún fékk hluta
af uppgjöri, en á sama tíma voru
sendir peningar heim til að Icescot
gæti gert upp flutningana og fisk-
kaupin. í endaðan aprfl fór Isafold
síðustu ferðina til Mallaig og flutti
aðeins 7 tonn af físki fyrir ísskott.
Mikil óánægja var komin upp hjá
áhöfninni með aðstöðuna í Mallaig
og þeir fískútflytjendur sem héldu
uppi flutningum skipsins, sérstak-
lega Homfírðingamir, töldu að þeir
stórsköðuðust á því að fiskurinn
færi þessa leið.
Mikil brögð vom á því að fískur-
inn kæmi allt að þremur dögum
seinna á markaðina og voru eigend-
ur íslensku físksölufyrirtækjanna
mjög óhressir með þessar tafir og
seinagang. Sögðu þeir að þessar
tafír orsökuðu verðlækkun á mörk-
uðunum þar sem öll stjómun á
fískmagni á mörkuðunum riðlaðist
fyrir vikið. í Mallaig kannast þeir
aðilar sem sáu um umskipunina
ekki við neinar tafir af þeirra
hendi, því ekki hafi tekið nema sex
tíma frá því skipið kom þar til fisk-
urinn var kominn í lestina á skipinu
sem flutti hann.
Þegar hér var komið sögu fóra
Skotamir að ókyrrast. Skuldir
Kæliskips hf. hlóðust upp og lítið
sem ekkert gert til úrbóta þrátt
fyrir góð orð þar um, að sögn All-
ans McColl, sem annaðist þessi mál
í Skotlandi. „Annað öllu verra var
að uppgefin tonnatala á físki frá
íslandi og sú tonnatala sem síðan
var uppgefin yfir seldan fisk stang-
aðist svo gjörsamlega á að eitthvað
róttækt varð að gera í málinu,"
sagði hann. „Eitthvað mjög alvar-
legt var á seiði. Við höfðum sent
stórfé til íslands en það dugði
hvergi til.“
Þann 6. maí mættu meðeigendur
framkvæmdastjóra Icescot á skrif-
stofu hans í Reykjavík ásamt tveim
lögfræðingum og gáfu honum 5
mínútur til að hafa sig á brott með
sína persónulegu muni. Eftir það
hefur hann ekki fengið aðgang að
bókhaldi fyrirtækisins.
ísafoldin kyrrsett
í framhaldi af óánægju áhafnar
ísafoldar með Mallaig var ákveðið
að sigla beint til Hull með fískinn
í næstu ferð. Þegar Skotunum varð
ljóst að verið væri að fara á bak
við þá bragðust þeir hart við og
létu kyrrsetja skipið þar sem það
lá í Goole skammt frá Hull. Settu
þeir fram kröfur í skipið vegna
skulda að upphæð 70 þúsund pund
eða 4,4 milljónir króna. Deilt hefur
verið um réttmæti þessara krafna
og halda Kæliskipsmenn því fram
að í þessum kröfum séu bakreikn-
ingar vegna flutnings á fískinum
með lestinni. Skotamir vilja meina
að þeir hafí lagt út peninga fyrir
flutningnum á fiskinum frá íslandi
til Mallaig, því séu allar greiðslur
fyrir olíu og vistir skuld sem sé
ófrágengin. Kæliskipsmenn benda
á að þeir hafí ekki fengið greitt
fyrir dautt lestarrými samkvæmt
samkomulagi þar um í upphafi, en
Skotamir kannast ekki við slfkt
samkomulag. Fyrram fram-
kvæmdastjóri Icescot viðurkennir
hinsvegar að þetta samkomulag
hafí verið gert og telur það mjög
eðlilegt til að tryggja fastar ferðir
til Mallaig.
Á meðan þessi deila er óleyst
hefur ísafold verið seld Kaupskip-
um hf. á Akureyri og heitir nú
Hrísey. Kæliskip hf. keypti skipið
upphaflega á fjármögnunarleigu-
samning. Þegar skipið var kyrrsett
setti fjármögnunaraðilinn fram
tryggingu til að losa skipið. Skot-
amir gerðu tilboð í það auk
Kaupskips hf. en það dugði ekki
til svo þeir misstu af því.
Kærumál á báða bóga
Á meðan þetta karp stóð yfír og
í framhaldi af brottvísun fram-
kvæmdastjóra Icescot af skrifstofu
sinni var lögð fram kæra á hendur
honum hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins og henni falið að rannsaka
meinta misnotkun hans á fjármál-
um fyrirtækisins. Töldu meðeig-
endur hans sig hafa rekist á
fjölmörg atriði eftir að þeir tóku
yfir reksturinn sem þeir telja að
þarfnist rannsóknar þar sem hann
átti að hafa nýtt sér sjóði fyrirtæk-
isins töluvert umfram umsamin
laun og dregið sér fé úr reikningum
fyrirtækisins.
Um þessa kæra segir fyrram
framkvæmdastjóri Icescot og
stjómarformaður ísskotts að hann
hafí verið að endurskipuleggja fyrr-
tækið þar sem ljóst var að rekstur
þess gekk ekki upp. Það hafí því
komið sem reiðarslag yfír sig sú
aðför sem gerð var að honum og
sú heift sem þar lá að baki.
„Ég hef ekki gerst sekur um
auðgunarbrot og er tilgangur
skosku meðeigenda minna sem era
ákaflega gramir út af tapinu á fyr-
irtækinu sá einn að koma á mig
höggi. Mun rannsókn ef fram fer
leiða þetta í ljós. Það má hins veg-
ar fínna að nokkram atriðum í
bókhaldi en að um refsivert athæfí
sé að ræða er hrein fjarstæða. Eins
og málum er nú háttað er ég til-
neyddur að kæra þá alla á móti
og mun ég leggja líftryggingarapp-
hæðina sem þeir tóku á mig, 200
þúsund pund, til grandvallar skaða-
bótakröfunum sem ég mun fara
fram á,“ sagði hann.
í lok júlí lagði hann síðan fram
fyrstu kærana og var hún á hendur
framkvæmdastjóra ísskotts. í kær-
unni er þess farið á leit við
Rannsóknarlögreglu ríkisins að
rannsökuð verði eftirtalin kæraat-
riði: „í fyrsta lagi hafí fram-
kvæmdastjórinn annast öll
fiskkaup og tekið til sín öll hrogn
og lifur frá upphafí fram í byrjun
maí og þannig hlunnfarið fyrirtæk-
ið. í öðra lagi hafí orðið óeðlileg
rýmun á fiski og ástæða sé til að
ætla að hann hafí stolið físki frá
fyrirtækinu," segir í umræddu bréfi
til RLR.
„Erum ekki fjársterkur
fj ölþj óðahringnr ‘ ‘
„Við vissum ekki hve mikið var
borgað fyrir fiskinn á íslandi en í
byijun maí sáum við að hlutimir
höfðu farið svo gjörsamlega úr
skorðum að við urðum að grípa til
róttækra aðgerða," sagði Allan
Mccoll talsmaður skosku meðeig-
endanna í samtali er ég átti við
hann í heimabæ hans í Skotlandi,
Fort William, fyrir skömmu.
„Við eram ekki útlendur fjöl-
þjóðahringur með fullar hendur fjár
sem hefur gert tilraun til að fara
inn í landhelgi íslendinga í þeim
tilgangi að setja efnahag þeirra úr
skorðum með gróðasjónarmið að
leiðarljósi. Hver sá sem heldur því
fram hefur rangt fyrir sér. Við er-
um kyrrlátt fólk sem hefur orðið
að vinna hörðum höndum fyrir
okkar peningum. Nú höfum við
orðið fyrir þungum áföllum sem ég
sé ekki ennþá hvemig við föram
út úr.
Við höfðum sent 400 þúsund
pund til íslands og eftir að við
stöðvuðum reksturinn til að fínna
út hvemig málum er háttað kemur
í ljós að skuldir fyrirtækisins era
200 þúsund pund, en samtals era
þetta tæpar 40 milljónir íslenskra
króna og ég óttast að þetta sé tap-
að fé. Okkur er sagt að Svíinn sem
á í fyrirtækinu hafí einnig tapað
stórfé áður en við komum inn í
þennan rekstur.
Okkar markmið nú er að leysa
öll vanskil fyrirtækisins svo enginn
skaðist á þessum viðskiptum. Einn-
ig eram við að endurskipuleggja
reksturinn svo hægt sé að byggja
upp traust og heiðarleg viðskipti í
kringum fískflutning á erlenda
markaði. íslendingar era með fal-
legasta og besta físk í heimi, en
vandamálið er hvemig hægt er að
koma honum í sinni uppranalegu
mynd til Evrópu þannig að físk-
kaupmenn segi: „Þetta er fínn
fískur." Því miður er alltof mikið :
um að lélegur fískur komi í gámum
frá íslandi og stórskaðar það ís- i
lendinga sjálfa hvað mest.
Varðandi uppbyggingu físk-
vinnslu í Mallaig þegar fískflutn-
ingamir á vegum Icescot byrjuðu
fannst mér það of framstætt. Fyrst •
var að koma fískflutningunum í
gang og síðan að huga að físk-
vinnslunni, en eins og málum er
nú háttað getur liðið langur tími
áður en að því kemur,“ sagði Allan
McColl. Hann var dapur og leiður
með stöðu fyrirtækisins.
„Málin era í höndum lögfræð-
inga á íslandi og tíminn sker úr
um hvemig fer. Eitt er víst að svona
fyrirtæki gengur ekki á draumum
eða digurbarkalegu tali.“
Nýja mjúka heimilistækjalínan er komin
Blomberg kynna fyrstir heimilistækja-
framleiðenda glæsilegu mjúku línuna
Blomberg býður stærra og
glæsilegra úrval í innbygging-
artækjum en nokkur annar.
Verið velkomin, við höfum
tíma fyrir þig.
Mercedes Benz og BMW riðu
á vaðið, svo komu húsgagna-
framleiðendurnir.
Nú kynna Blomberg fyrstir
heimilistækjaframleiðenda
þessa gullfallegu línu.