Morgunblaðið - 04.09.1987, Page 56

Morgunblaðið - 04.09.1987, Page 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1987 fftflvA' Nokkrir þátttakenda. Blómaball í Hveragerði Blómaball var haldið í íþróttahúsinu á Hvera- gerði þann 22. ágúst síðastliðinn á vegum Knattspymudeildarinnar á staðnum. Fór ballið hið besta fram, og mættu um 500 manns á stað- inn. Hljómsveitin Þotuliðið lék fyrir dansi. Á ballinu var kosin blómadrottning, og tóku 8 stúlkur þátt í keppninni. Sjö manna dómnefnd kaus Elísabetu Gunnarsdóttur, 17 ára starfsmann á Hótel Örk, blómadrottningu 1987, og var hún krýnd af Hörpu Rós Björgvinsdóttur, sem bar titilinn síðasta ár. Elísabet fékk sólarlandaferð frá Ferðaskrifstofunni Terru, að verðmæti kr. 35'000, í verðlaun, en allir þátttakendur fengu blóm og ilmvatn. Elísabet Gunnarsdóttir, blómadrottning. George Harrison með nýja plötu Gamli bítillinn George Harrison hefur að mestu haldið sér fyr- ir utan sviðsljósið síðan hann sendi frá sér plötuna „Troppo" fyrir fímm árum. Hann hefur verið upptekinn við að vinna við kvikmyndagerðar- fyrirtækið sitt, „Handmade Films", sem hefur gengið býsna vel. En nú ætlar George að ijúfa þögnina, og ný breiðskífa er væntanleg frá hon- um um næstu mánaðarmót. Ekki hefur verið gefíð upp hvað skífan á að heita, en hún á að inni- halda tíu lög sem tekin voru upp í hljóðveri á heimili Harrisons í út- hverfí Lundúna, undir yfírumsjón Jeff Lynne, sem er höfuðpaur hljómsveitarinnar Electric Light Orchestra. Það eru engir aukvisar sem spila undir með Harrison á nýju plötunni, og má þar nefna Ringo Starr, Eric Clapton og Elton John. George hefur ekkert vilja gefa út á það hvort að hann hyggist fara í hljómleikaferð í kjölfar plötuútgáf- unnar, en það yrði þá fyrsta hljómleikaferð bítilsins fyrrverandi síðan árið 1974. Hins vegar hefur Harrison lýst jrfir þeim fyrirætlun- um sínum að gera myndband með einhveiju eða einhveijum laganna á plötunni. Það ættu að vera hæg heimatökin hjá honum, því eins og áður sagði, þá á Harrison heilt kvik- myndagerðarfyrirtæki. ENGILLINN WHITNEY HOUSTON Whitney Houston er ein alvin- sælasta poppstjaman í heiminum í dag, en hún er ekki að sama skapi vinsæl hjá slúðurdálka- höfundum. Ástæðan fyrir því er sú að þeim þykir Whitney nánast óþol- andi fullkomin, og ástunda nær syndlaust lífemi, en slíkt þykir ekki kostur hjá þeim sem hafa þá þokka- legu atvinnu að slúðra um bresti og breyskleika frægðarfólks. Whitney reykir ekki né drekkur, notar ekki eiturlyf, stundar lítið samkvæmislífíð, og hefur ekki átt ■ í neinum hneykslanlegum ástars- amböndum. Reyndar vita menn ekki til að hin 24 ára söngstjama hafí átt í neinum ástarsamböndum, en varla stafar það þó af því að hana skorti tilboðin, því Whitney þykir með fegurstu konum. En þó að Whitney hafí ekki lifað eins skrautlegu lífi og t.d. Ma- donna, er saga hennar engu að síður athyglisverð. Fyrir aðeins tveimur ámm var hún gjörsamlega óþekkt, og fyrsta plata hennar, sem hét einfaldlega „Whitney Houston", þótti fyrirfram ekki líkleg til stóraf- reka. Platan sú hefur nú selst í yfír 13 milljón eintökum, og hefur engin frumraun nokkurs tónlistar- manns fyrr né síðar selst betur. Nýja platan hennar, sem heitir „Whitney" (ekki er nú beint hægt að saka hana Whitney um fmmleika í nafngiftum), hefur líka mnnið út eins og heitar lummur, og lög eins og „Saving All My Love for You“ og „I Wanna Dance With Somebody" hafa gist í efstu sætum vinsældalista um allan heim. Sumir gagnrýnendur segja að tónlist Whitneyar sé innantómt, sykur- húðað iðnaðarpopp, en almenningur er á öðm máli; í nýlegri könnun sem bandaríska tímaritið „People" gekkst fyrir nefndu 40% manna Whitney Houston sem þann popp- tónlistamann sem líklegast væri að ennþá yrði hlustað á á næsta ára- tug. Liv Ullman snýst í mörgu Norska leikkonan Liv Ullman hefur ekki verið mikið í sviðsljósinu að undanfömu, en hún hefur nú í mörg ár helgað mestu af kröftum sínum starfí ^sínu hjá Bamahjálp Sameinuðu Þjóðanna, UNICEF. Liv hefur þó ekki lagt leiklistina á hilluna, og hefur leikið í mörgum kvikmynd- um nú síðustu ár, þó að þær reki kannski ekki allar á fjörar okkar íslendinga. Fyrir skömmu lék Liv Ullman í myndinni „Vertu sæl, Moskva", sem §allar um baráttu gyðinga í Sovétríkjunum til að fá leyfí til að fljdjast til ísrael, og hefíir sú mynd hlotið góða dóma hjá gagn- rýnendum. Nýjasta mynd Liv heitir svo „Hin kæmlausu", en þar leikur hún lífsþreytta, ítalska hefðarfrú og ekkju. Nú í haust leikur hún svo í þýsk-argentískri mynd, sem hlotið hefur heitið „Vinkonumar". Liv býr nú í Bandaríkjunum - þegar hún er ekki á ferð og flugi um heimsbyggðina vegna starfs síns og kvikmyndanna - með eig- inmanni sínum, Donald Saunders, og dóttur sinni, Linn, sem hún átti með Ingmar Bergman. Hún vinnur nú að þriðju bók sinni, en þrátt fyrir skrifín og kvikmynda- leikinn eyðir hún enn mestum tíma sínum í starf sitt á vegum UNICEF. Liv Ullman - falleg og fjölhæf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.