Morgunblaðið - 04.09.1987, Side 62
62
MORGUNBLAPIÐ, FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1987
nBg SOcfii \?kro& pú
vxr'ir oÁ fiiriCL."
Ást er...
.. lika hjá hundum.
TM Reg. U.S. Pat Off. — »11 righu raurved
® 1987 Lcm AngatM Time* Syndicat*
LögTeglaji? Maðurinn
minn er að reyna að ræna
frá mér sjálfsmeðvitund
minni ... Er það ekki
rán?
Skiljanlega last þú ekki
svona blöð þegar þú
varst ungur, enda voru
þau ekki til.
HÖGNIHREKKVISI
•»
í
„pýeALÆKNilRiNN 'A refíTO&USru
OG SJÓTTU HÆ£> TAKK. "
Áfengismál:
Ekki batnar það!
Kæri Velvakandi
„AJltaf fjölgar Fólksvagni,"
sögðu auglýsingamar í gamla daga
— og alltaf fjölgar brennivínsútsöl-
unum um allt land og brennivíns-
leyfum til allra mögulegra stofnana.
Ráðamenn hafa ekki við.
Það er eins og þetta sé sá lífelexír
sem einn geti komið í staðinn fyrir
allar þarfír. Það skiptir litlu þó
áhrifín verði öll neikvæð fyrir fólk
og þjóðfélag. Þeir sem keppast um
að koma glundrinu í viðskiptavinina
eru ekki í vafa um að það sé eitur.
En svo fara þeir með faðirvorið:
„Eigi leið þú oss í freistni..." og
freista svo bara annarra og þá er
allt ( stíl.
Þetta er sá flottræfílsháttur sem
dýrkaður er í dag. Og háværar
raddir eru uppi um að Ferðaþjón-
usta bænda vilji ekki vera eftirbátur
við að koma þessum vökva í kverk-
ar ferðamanna. Og þykir fáum
mikið, því hvað er mjóikin á við
brennivínið? Enda fær hún nú þessa
dagana annan farveg. Og svo mys-
an. Hún gengur ekki því menn
verða ekki nógu vitlausir af henni
og svo er hún alltof ódýr og heil-
næm. Við verðum að vera í takt
við tímann. Það er það sem gildir.
„Þó borgir standi í báli — og
beitt sé eitri og stáli — þá skiptir
mestu máli — að maður græði á
því,“ sagði Steinn Steinarr í gamla
daga. Og er það ekki þetta viðhorf
sem ræður í viðskiptalífínu um þess-
ar mundir.
„Og það skal í hann hvað sem
það kostar," segja brennivínsþjón-
ustumar, „og það eina sem dugar
eru æ fleiri vínveitingahús." Þá
geta nefnilega allir verið jafnvit-
lausir. Og það er ekki svo vitlaust!
Auðvitað láta ráðamenn undan
því þeir em til þess að smjaðra fyr-
ir fólki en ekki að hafa vit fyrir
því. „Frelsi til að verða sér til
skammar," er kjörorðið. Og nú bíða
menn spenntir. Hvenær fá vöggu-
stofumar vínveitingaleyfi?
Árni Helgason, Stykkishólmi
Þessir hringdu . . .
Seðlaveski
Rautt Iðnaðarbanka-seðlaveski
tapaðist í Álfheimum fyrir
nokkm. í því var vísa-kort, tölvu-
bankakort o. fl. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að hringja í
síma 31821.
Gleraugxi
Stálgrá gleraugu fundust ný-
lega í bíl en nokkuð hefur verið
um að fólk hafí fengið far með
bílnum að undanfömu. Eigandi
þeirra er beðinn að hringja í síma
72657.
Svikin fyrirheit um
skr efátalningu
NN hringdi:
„Nýlega var gerð breyting á
gjaldheimtu símans þannig að nú
er skrefatalning f gangi á kvöldin
og um helgar. Þetta hefur komið
sér illa fyrir marga, sérstaklega
gamalt fólk sem ekki á gott með
að komast leiðar sinnar og heldur
sambandi við kunningjana um
símann. Fyrir nokkmm áram full-
yrti þáverandi samgöngumálaráð-
herra, Steingrímur Hermannsson,
að skrefatalningu yrði aldrei beitt
á kvöldin eða um helgar. En nú
hefur nýskipaður samgöngumála-
ráðherra sjálfstæðismanna breytt
þessu. Er ekki hægt að taka mark
á orðum ráðherrana, em þeir ekki
ábyrgir orða sinna?"
Plastpoki með þremur
litlum pökkum
Plastpoki með þremur litlum
pökkum tapaðist í fríhöfninni í
Keflavík 26. ágúst. Nafnið Hug-
rún er skrifað á einn pakkann.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
um að hringja í sfma 79511.
Kvenúr
Kvenúr tapaðist á Hverfisgötu
eða Laugaveg fyrir skömmu.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 19584.
Víkverji skrifar
Ohætt er að segja að úttekt við-
skiptablaðs Morgunblaðsins á
Sambandi fslenzkra samvinnufé-
laga í síðustu viku hafí komið
mörgum í opna skjöldu. Sú úttekt
leiddi í ljós að samvinnuhreyfingin,
þ.e. Sambandið, kaupfélögin og hin
ýmsu fyrirtæki samvinnuhreyfíng-
arinnar em samanlagt með hærri
telqur en íslenska ríkið. Menn töldu
sig vita að SÍS væri sem ríki í
ríkinu en fáa hefur órað fyrir að
veldi þess væri slíkt sem úttektin
leiddi í ljós. Glöggur maður hefur
bent á að hér eftir verði óhjákvæmi-
legt að nefna lýðveldi vort “Sam-
bandslýðveldið Island“H
XXX
ingeyingar hafa orð á sér fyrir
að vera menningarlega sinnað-
ir og hlynntir varðveizlu íslenzkrar
tungu. Því brá Víkveija illilega í
brún er hann sá í nýlega Lögbirt-
ingablaði að á Húsavík hefur verið
stofnað fyrirtækið Easy físk hf. og
það meira að segja með þátttöku
Framkvæmdalnasjóðs Húsavíkur-
bæjar. Finnst ykkur þetta hægt
Þingeyingar góðir?
Kínverski utanríkisviðskiptaráð-
herrann er nýfarinn heim úr
opinberri heimsókn. Samkvæmt
blaðafregnum lét ráðherrann þess
getið að hápunkturinn ferðarinnar
hingað hafí verið þegar hann lék
hring á golfvellinum í Grafarholti í
ausandi rigningu s.l. þriðjudags-
morgun! Og þessi golfleikurinn var
meira segja ekki á dagskránni og
setti hina opinbera dagskrá vem-
lega úr skorðum!
Þetta vekur þá spumingu hvort
opinberar heimsóknir af þessu tagi
séu ekki rangt skipulagðar og lítt
áhugaverðar fyrir hina opinbem
gesti. Vfkveiji telur sig hafa heim-
ildir fyrir því að kínversku gestun-
um hafí þótt hið endalausa þramm
í gegnum verksmiðjur og fískiðjuver
ansi þreytandi. Svo kann að fara
að einn hringur á golfvellinum rejm-
ist íslendingum drýgri í viðskipta-
samningum við Kínveija en
skoðunarferðir og langir fiindir.
XXX
I* þessari viku fer fram á íslandi
ráðstefna næringafræðinga með
þátttöku Qölmargra erlenda gesta.
Ráðstefnur af þessu tagi hafa fjöl-
margt jákvætt f för með sér fyrir
íslendinga en þær kosta líka skatt-
borgarana dijúgan skilding, eins
og sjá má þegar dagskrá ráðstefn-
unnar er skoðuð.
Ráðstefnan hófst á þriðjudaginn
á Hótel Sögu með móttökuveizlu í
boði utanríkisráðuneytisins. Á mið-
vikudaginn var kvöldboð á Kjarvals-
stöðum, þar sem borgarstjórinn í
Reykjavík var gestgjafí. í kvöld er
kvöldverðarboð á vegum sjávarút-
vegs- og iðnaðarráðuneytisins á
Hótel Sögu og á morgun er hádegis-
verður á Flúðum í boði landbúnað-
arráðuneytisins og kvöldboð á
Þingvöllum á vegum menntamála-
og heilbrigðisráðuneytanna. Svo er
bara að vona að næringarfræðing-
amir borði ekki yfír sig!
XXX
Að lokum vill Víkveiji nota tæki-
færið til að hrósa íslenzka
landsliðinu fyrir frábæra frammi-
stöðu gegna Austur-Þjóðveijum.
Piltamir okkar sýndu og sönnuðu
í þessum leik að þeir þurfa ekki að
vera atvinnumenn til að standa sig
í baráttunni við þá beztu. Framund-
an er landsleikur við Norðmenn.
Víkveiji gerir það að tillögu sinni
að sama lið verði látið leika þann
leik að viðbættum tveimur atvinnu-
mönnum, Ásgeiri Sigurvinssyni og
Amóri Guðjohnsen.