Morgunblaðið - 04.09.1987, Blaðsíða 68
| ALHLIÐA PRENTÞJÓNUSTA |
M GuðjónÓ.hf.
,1 91-27233 I
BRunnsúT
-AFÖRYGGISÁSTÆDUM
Nýjungar
í 70 ár
FOSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Morgunblaoið/Börkur Arnarson
Grunnskólabörn ískólana ídag
UM 13.000 reykvísk grunnskólaböm hafa verið boð-
uð í skóla sína í dag. Þar verður þeim afhentar
stundaskrár og síðan hefst kennsla samkvæmt þeim
á mánudag. Níundi bekkur á að mæta klukkan 9.00
og síðan koma árgangamir koll af kolli, allt niður
í sex ára böm. Það má væntanlega búast bæði við
kvíða og spenningi hjá þeim yngstu sem líklega fá
foreldrafylgd svona fýrsta daginn. Óhætt er að full-
yrða að krakkamir vilji vera vel undir skólastarfið
búið ef marka má þá örtröð sem verið hefur í bóka-
verslunum undanfama daga.
Steinullarverksmiðjan:
Söluaukning
55% milli ára
REKSTUR Steinullarverksmiðj-
nnnar á Sauðárkróki hefur
gengið vel í sumar og að sögn
Þórðar Hilmarssonar fram-
kvæmdastjóra verksmiðjunnar
hefur söluaukning á innan-
landsmarkaði það sem af er
þessu ári verið um 30% í tonnum
talið miðað við sama tíma í fyrra
og 55% ef útflutningur er talinn
með.
Rekstur Steinullarverksmiðj-
unnar var endurskipulagður í vor
og tókst þá að safna viðbótar-
hlutafjárloforðum fyrir allt að 72
milljónum króna og semja um
skuldbreytingar á lánum við er-
lenda aðila.
Þórður sagði að rekstur verk-
smiðjunnar gengi nú eftir þeirri
áætlun sem gerð var við endur-
skipulagninguna í vor, og raunar
ríflega það. Gengið hefði verið frá
greiðsluloforðum vegna hlutafjár-
söfnunarinnar og greiðslur væru
famar að berast auk þess sem vel
gengi að ná auknum markaði.
Hækkanir á far-
gjöldum og sementi
VERÐLAGSRÁÐ hefur heimilað
hækkanir á innanlandsflugi,
sementi, töxtum leigubifreiða og
^fargjöldum sérleyfis- og hóp-
ferðabifreiða. Hækkanimar eru
á bilinu 4 til 9%.
Fyrirhugað
aðstækka
Hótel Esju
FRAM eru komnar tillögur um
að tvöfalda gistirými Hótel Esju.
Tillögumar hljóða upp á stækk-
un um 178 herbergi auk funda-
og veitingaaðstöðu, en fyrir eru
á hótelinu 134 herbergi. Eftir
stækkunina hefði hótelið þá yfir
312 herbergjum að ráða. Búist
er við að stjórn hótelsins taki
ákvörðun iim stækkunina bráð-
lega. Óvíst er hvenær fram-
kvæmdir geta haflst.
Hótel-og veitingaskóli íslands
hefur tekið tvo af þremur fundarsöl-
um annarrar hæðar Hótels Esju á
leigu í vetur undir starfsemi sína.
Hans Indriðason hótelstjóri sagði
að skólanum hefði verið leigð að-
staðan vegna millibilsástands, sem
nú ríkti á hótelinu vegna fyrir-
hugaðra framkvæmda.
Sakaður um
milljónasvik
MÁL starfsmanns fasteignasölu
í Reykjavík, sem handtekinn var
síðastliðið vor vegna kæru um
svik í viðskiptum, hefur nú verið
sent til ríkissaksóknara.
Maðurinn var handtekinn en
sleppt aftur úr haldi í lok maí.
Hann hefur síðan verið í farbanni.
^Að sögn Amars Guðmundssonar,
deildarstjóra hjá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins, er maðurinn sakaður
um stórfelld brot, flársvik, ^árdrátt
og skjalafals. Kærur á hendur hon-
um eru rúmlega tuttugu talsins og
skipta upphæðir sem þær lúta að
milljónum króna. Maðurinn hafði
>ekki réttindi til að stunda fasteigna-
sölu.
Þegar skipveijar á Hvítingi
gáfu sig ekki fram við tilkynninga-
skylduna um kvöldið var þegar
farið að svipast um eftir bátnum.
Laust eftir klukkan 23 voru björg-
unarsveitir fengnar til að ganga
ijörur og Lóðsinn fór út til leitar
við Surtsey. Strax í birtingu á
fimmtudagsmorgun hófu flugvél
Landhelgisgæslunnar, TF-SYN,
og flugvél Vals Andersen í Eyjum
leit úr lofti og síðar um daginn
bættist flugvél frá vamarliðinu í
hópinn. Skip og bátar á svæðinu
hófu einnig leit. Slæm leitarskil-
yrði vom á sjó, slæmt skyggni og
leitarsvæðið stórt.
Far- og farmgjöld í innanlands-
flugi hafa þegar hækkað um 6%.
Fargjald frá Reykjavík til Akur-
eyrar, báðar leiðir með flugvallar-
skatti inniföldum, hækkaði úr 6.120
kr. í 6.480, til Vestmannaeyja úr
4.008 kr. í 4.244, til ísafjarðar úr
5.720 í 6.058 kr. og til Egilsstaða
úr 8.138 kr. í 8.620.
Sementsverksmiðjan hefur
hækkað sement um 4%. Einn poki
af venjulegu portlandssementi kost-
ar nú 370,50 kr. í afgreiðslu
verksmiðjunnar í Reykjavík, en
kostaði áður 344 kr.
Taxtar leigubifreiða hækkuðu að
meðaltali um 6%. Startgjaldið
hækkaði úr 140 í 145 krónur og
biðgjaldið úr 617,05 í 745,32 kr. á
klukkustund. Kílómetragjaldið er
óbreytt, eða 19,92 kr. í dagvinnu
og 29,97 í nætur- og helgidaga-
vinnu.
Þá hafa fargjöld sérleyfís- og
hópferðabifreiða hækkað um 8,4 til
9,2%. Sem dæmi um hækkanir má
nefna að fargjaldið til Akureyrar
hækkaði úr 1.500 kr. í 1.650, til
Hafnar í Homafírði úr 1.650 í 1.780
kr. og Borgamess úr 400 í 440 kr.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Félagar úr Hjálparsveit skáta og Björgunarsveit Vestmannaeyja Ieggja af stað til leitar úr lofti í gær-
morgun.
Hjálparsveit skáta fór á björg-
unarbáti sínum og leitaði við
Heimaey og nærliggjandi úteyjar,
en ekkert fannst. Leit verður hald-
ið áfram í dag.
- hkj.
V estmannaeyjar:
Trillu með tveim-
ur mömium saknað
Vestmannaeyjum.
SJÖ lesta þilfarsbáts með
tveimur mönnum innanborðs,
Hvitings VE 21, er saknað frá
Vestmannaeyjum. Báturinn
fór í róður snemma á miðviku-
dagsmorgun og er skipverjar
gáfu sig ekki fram við tilkynn-
ingaskylduna þá um kvöldið
var þegar hafin leit. Þegar leit
var hætt í gærkvöldi hafði hún
engan árangur borið.
Tveir menn eru á Hvítingi, báð-
ir einhleypir og búsettir í Eyjum.
Þegar síðast heyrðist frá þeim
voru þeir skammt austur af Eyjum
en síðar fréttist að þeir hefðu
ætlað að vitja um lúðulóðir djúpt
suður í Kanti, um 10-12 sjómílur
suður af Heimaey. Veður var gott
fram undir hádegi á miðvikudag
en um eitt leytið hvessti snögglega
og vindur snérist úr norðaustri í
austan 7-8 vindstig. Um nóttina
hvessti enn frekar og fór þá veður-
hæðin á Stórhöfða upþ í 9 vindstig.