Morgunblaðið - 20.09.1987, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1987
B 37
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Lagerstarf
Óskum eftir starfsmanni til að sjá um sam-
setningu á húsgögnum og umsjón með lager
og tollvörugeymslu. Við leitum að laghentum,
duglegum manni, sem getur hafið störf sem
fyrst.
Allar upplýsingar gefnar í húsgagnadeild
okkar á Laugavegi 13 eða síma 625870.
HÖNNUN á • GÆÐI • ÞJÓNUSTA
KRISTJÁN siggeirsson
Laugavegi 13, sími 625870.
Vöruafgreiðsla
Búnaðardeild Sambandsins óskar eftir að
ráða starfsmann í vöruafgreiðslu.
Umsóknir sendist til starfsmannastjóra er
veitir nánari upplýsingar eða hjá skrifstofu-
stjóra í síma 38900.
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉIAGA
STARFSMANNAHALO
SAMBANDSHÚSINU
Gullsmíði
Viljum ráða til reynslu nema í gullsmíði.
Áhugasamir sendi inn nafn, síma og per-
sónulegar upplýsingar til auglýsingadeildar
Morgunblaðsins fyrir 25. september nk.
merktar: „Gullsmíði 5377“.
Starfsfólk óskast
í frystihús Granda hf., Grandagarði.
Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 26766.
GRANDI HF
Vörumarkaðurinn hl.
Óskum eftir starfskrafti á síma, í afgreiðslu
o.fl. í þjónustudeild okkar.
Fjölbreytt starf.
Upplýsingar í síma 78800 kl. 10.00-12.00 og
14.00-17.00 eða bara koma á staðinn.
Vörumarkaðurinn hf.
Smiðjuvegur D18,
opiðkl. 9.00-18.00.
Verslunarstörf
— verslunarstörf
Okkur vantar starfsfólk til afgreiðslustarfa.
Heilsdags- eða hlutastarf. Tungumálakunn-
átta æskileg.
Upplýsingar í versluninni daglega kl. 10.00-
12.00 þessa viku. Ekki svarað í síma.
Islenzkur heimilisiðnaður,
Hafnarstræti 3.
Hjólbarðaverkstæði
Viljum ráða sem fyrst duglegan mann til hjól-
barðaviðgerða. Vinnutími kl. 08.00-18.00
mánudaga til föstudaga, og á haustin einnig
á laugardögum kl. 08.00-16.00. Meiri yfir-
vinna getur orðið á mestu annatímum.
Stundvísi og reglusemi áskilin.
Upplýsingar gefur Páll Pálsson, hjólbarða-
verkstæði Heklu hf.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á hjól-
barðaverkstæði og hjá símaverði.
Hjúkrunar-
fræðingar
Sjúkrahús Skagfirðinga, Sauðárkróki, óskar
að ráða hjúkrunarfræðinga til starfa nú þeg-
ar eða eftir nánara samkomulagi.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
95-5270.
Barnagæsla
Óska eftir barngóðri manneskju til að annast
tvær telpur á aldrinum 1 og 2 ára nokkra
daga í hverjum mánuði.
Upplýsingar i síma 44479.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
NORÐURLANDl VESTRA
Pósthólf 32
560 VARMAHLÍÐ
Framkvæmdastjóri
— Svæðisstjórn mál-
efna fatlaðra N-V
Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Norðurlandi
vestra óskar að ráða framkvæmdastjóra með
aðsetur á Sauðárkróki.
Upplýsingar um starfið veita núverandi fram-
kvæmdastjóri, Guðmundur Pálsson, í síma
95-6232 og formaður svæðisstjórnar, Páll
Dagbjartsson, í síma 95-6115.
Umsóknarfrestur er til 24. september nk.
Umsóknir sendist til skrifstofu svæðisstjórnar,
Norðurbrún 9, 560 Varmahlíð.
Verksmiðjustörf
Óskum að ráða starfsfólk í eftirtalin störf:
★ Aðstoðarfólk í framleiðslu.
Vinnutími frá kl. 5.00-14.00
★ Starfsfólk í pökkun og dreifingu.
Vinnutími frá kl. 5.00-13.00.
Nánari upplýsingar hjá verkstjórum til kl.
14.00.
Brauð hf.,
Skeifunni 11.
Afgreiðslustarf
Óskum að ráða afgreiðslumann í verslun vora.
Eiginhandarumsóknir er tilgreini aldur,
menntun og fyrri störf óskast.
ILUStSl
Ánanaustum
Sfml 28855
Grandagarði 2, 101 Reykjavík.
Hresstog lipurt
starfsfólk, ekki yngri en 18 ára, vantar í vakta-
vinnu. Upplýsingar á staðnum, ekki j síma.
Bleiki pardusinn,
Gnoðarvogi 44.
Skrifstofustörf
Opinber stofnun óskar að ráða starfsmann
til ritvinnslustarfa og annarra skrifstofu-
starfa. Laun skv. launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist auglýsinga-
deild Mbl. merktar: „Ð — 3625“ fyrir 25.
september nk.
Skrifstofustjóri
Á tilraunastöð Háskólans í meinafræði er
laus staða skrifstofustjóra sem sér um dag-
legan rekstur, bókhald og fjármál.
Laun samkv. launakerfi ríkisstarfsmanna.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um
menntun og starfsreynslu skulu sendast for-
stöðumanni fyrir 15. okt. 1987.
Bifreiðaverkstæði
Viljum ráða eftirtalda starfsmenn á fólks-
bílaverkstæði okkar:
1. Áhugasaman bifvélavirkja. Þarf að geta
unnið sjálfstætt. Mjög gjarna glöggur á
rafkerfi bifreiða og viðgerðir á þeim, þó
ekki skilyrði.
2. Laghentan mann í allskonar viðhald og
viðgerðir. Þarf ekki að hafa iðnréttindi,
en áhuga á starfinu.
Mötuneyti á staðnum. Stundvísi og reglu-
semi áskilin.
Upplýsingar gefur Ásgeir Þorsteinsson, þjón-
ustustjóri.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá síma-
verði og á verkstæðinu.
HEKLAHF
Laugavegi 170-172. Sími 695500.
Útkeyrsla
Morgunblaðið, afgreiðslan í Kringlunni vill
ráða ungan, röskan og stundvísan bílstjóra
til útkeyrslustarfa.
Vaktavinna og vinna aðra hverja helgi.
Umsóknir og allar nánari upplýsingar veittar á
skrifstofu okkar.
GiiðntTónsson
RÁÐCJÓF &RÁÐNINCARNÓNHSTA
TÚNGÓTU 5. 101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322
Tilsjónarmenn
Félagsmálastofnun Kópavogs óskar eftir
körlum og konum til að veita börnum, ungl-
ingum og fjölskyldum þeirra félagslegan
stuðning. Um er að ræða 4-8 stundir á viku
að meðaltali.
Boðið verður uppá námskeið fyrir væntan-
lega tilsjónarmenn. Umsóknarfrestur er til
1. okt. nk. Nánari upplýsingar veitir unglinga-
fulltrúi og deildarfulltrúi fjölskyldudeildar í
síma 45700.
Félagsmálastofnun Kópavogs.