Morgunblaðið - 13.10.1987, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.10.1987, Blaðsíða 3
BUtaunblaMft /ÍÞRÓTTIR ÞKŒXJUDAGUR 13. OKTÓBER 1987 B 3 KNATTSPYRNA / BELGIA Guðmundur lagði upp tvö mörkfyrír Winterslag Arnór lék vel með Anderlecht ANDERLECHT, lið Arnórs Guð- hjonsen, gerði jafntefU 2:2 við Beveren í belgísku knattspyrn- unni um helgina. Arnór átti góðan leik. Guðmundur Torfa- son átti einnig góðan leik og lagði upp tvö mörk fyrir Winter- slag er lið hans sigraði Stand- ard Liege 4:2. Leikur Beveren og Anderlecht var mjög skemmtilegur og spennandi. Amór átti mjög góðan leik og átti strax á fyrstu mínútun- um góðan skalla sem markvörður Beveren mátti þakka fyrir að verja. Skömmu síðar náði Nilis forystunni fyrir Anderlecht. Beveren jafnaði fyrir hálfleik og komst síðan yfír í upphafi seinni hálfleiks. Tíu mínútum fyrir leikslok náði fyrirliði Anderlecht, Janssen, að jafna. Anderlecht sótti síðan það sem eftir var leiks en án árangurs. „Leikurinn var góður og spennandi Frá Bjama Markússyni i Belgíu Arnór Guðjohnsan. og ég er ánægður með mína frammistöðu. Ég er þó ekki alveg búinn að jafna mig af meiðsl- unum,“ sagði Amór. Nýji þjálfarinn hjá Anderlecht hefur nú fært Amór af hægri kantinum og inn á miðj- una. Amór sagðist vera ánægður með þessa nýju stöðu. Guðmundur Torfason átti mjög góðan leik með Winterslag er liðið vann Standard Liege 4:2. Guð- mundur átti hjólhestaspymu snemma í leiknum, en boltinn fór rétt yfír. Hann lagði hins vegar upp tvö mörk. Önnur úrslit vom þau að FC Bmgge vann Charlereoi 5:0 á heimavelli og Antwerpen sigraði Waregen 2:1 á útivelli. Anderlecht, Bmgge og Antwerpen em efst og jöfn með 16 stig eftir 10 leiki. Winterslag er í 12. sæti með 8 stig. Ursl!t/B14. Staðan/B14. Guðmundur Torfason. FRJALSIÞROTTIR Norðmenn bjóða íslendingum til landskeppni NORÐMENN hafa boðið ís- lendingum til landskeppni í frjálsíþróttum í Noregi á næsta ári. Hefur það ekki gerst um langan aldur að ís- lendingum sé boðiðtil land- skeppni í frjálsíþróttum, þeir hafa sjálfir þurft að sækjast eftir slíkri keppni. Landskeppnin verður háð í bænum Málselv, sem er skammt suður af Tromsö, 16. júní. Þar mætast landslið Norðmanna og Finna í karla- og kvennagrein- um. Tveir keppendur verða í hverri grein. Fijálsíþróttasam- bandi íslands hefur nú verið boðið að koma inn í keppnina sem full- gildur aðili með karla- og kvenna- lið, með tv^ keppendur í grein. Treysti FRÍ sér ekki til að senda fullt lið til keppninnar stendur sambandinu engu að síður til boða að senda hóp íþróttamanna, sem myndu keppa sem gestir í einstök- um greinum. „Boð Norðmanna er ánægjulegt og sýnir að nágrannaþjóðirnar hafa veitt eftirtekt þeim miklu framförum, sem íslenzkir frjálsí- þróttamenn hafa tekið á síðustu 10 árum eða svo,“ sagði Ágúst Ásgeirsson, formaður FRÍ í sam- tali við Morgunblaðið. „Á þessu stigi er ekki hægt að segja hvort boði Norðmanna um landskeppni við þá og Finna verði tekið. Stjórn FRI bíður fyrst eftir svari um landskeppni við Skota og fleiri þjóðir í Édinborg næsta sumar. Skotar hafa sýnt því áhuga á að íslenzka landsliðið komi þangað til keppni en niður- staða fæst ekki í það mál fyrr en undir næstu mánaðamót. Ef af þeirri keppni verður býst ég við að við sendum aðeins hóp okkar beztu manna til Noregs," sagði Ágúst. HANDKNATTLEIKUR / 2. DEILD KARLA Morgunblaöið/Júlíus Willum Þór Þórsson, sem kunnari er fyrir iðkun knattspymu en handknattleiks, leikur með liði Reynis frá Sand- gerði. Hér stendur hann í ströngu gegn HK um helgina — en HK vöm Kópavogsliðsins er þétt fyrir. HK efst eftir sigra í fyrstu leikjunum Lið HK sigraði Reyni Sandgerði f 2. deild handboltans á laugar- dag 22:18 er liðin mættust í íþrótta- húsinu í Digranesi. Fyrri hálfleikur var slakur af hálfu beggja liða. Lítil ógnun var í sóknar- leiknum og mikið um ónákvæm skot. Njarðvík var oftar fyrr til að skora en leikurinn Frosti Eiðsson skrifar var allan tímann í jafnvægi og í leikhléi var staðan 9:9. Jafnræði var með lengst af síðari hálfleiks en í lokin náði lið HK að sigla framúr. Með sigrinum er HK á toppnum í deildinni eftir tvær umferðir. Liðið þarf hinsvegar að taka sig verulega frá leiknum á laugardag, ætli liðið sér að halda áfram í baráttunni á toppnum. Rúnar Einarsson átti mjög góðan leik í vinstra hominu hjá HK og gamli refurinn, Páll Björgvinsson gerði ágæta hluti í síðari hálfleiknum. Homamaðurinn Viðar Amarsson átti mjög góðan leik í liði Reynis. Leikur liðsins byggist á miklu leyti upp á Willum Þórssyni er átti þokkalegan leik. Einnig var línu- maðurinn Páll Björnsson seigur, fískaði vítaköst og skoraði mörk af miklu harðfylgi í síðari hálfleik Sigbjöm skoraði 10 |Jj ftir jafnan fyrri hálfleik náðu Eyjamenn fjögurra marka for- skoti gegn Haukum, höfðu mark yfir, þegar tæplega hálf mínúta var til leiksloka og með boltann, en urðu að sætta sig við jafn- tefli, því Haukar náðu að jafna 24:24 á síðustu sekúndunum. Fyrri hálfleikur var mjög jafn og spennandi og skiptust liðin á að vera yfir. ÍBV hafði þó oftar yfir- Frá Jóhanni Inga Árnasyni ÍEyjum höndina og leiddi 15:14 í hálfleik. Eyjamenn náðu mest fjögurra marka forskoti í seinni hálfleik, 21:17, en Haukar gáfust ekki upp og söxuðu a'forskotið jafnt og þétt. Heimamenn virtust samt ætla að sigra, vom marki yfír og með bolt- ann, þegar tæplega hálf mínúta var til leiksloka. Er um 10 sekúndur vom eftir skaut Elías Bjamhéðins- son á mark Hauka, skotið var laust, markvörðurinn handsamaði bolt- ann, sendi langa sendingu fram á Ágúst Sindra Karlsson, sem skoraði sitt fjórða mark í leiknum og jafn- aði 24:24,_en það urðu lokatölur. Sigbjöm Óskarsson ÍBV var besti maður leiksins og skoraði 10 mörk í 12 skotum, en Sigurður Vignisson og Páll Scheving skoruðu fjögur mörk hvor. Eggert ísdal var marka- hæstur hjá Haukum með sex mörk, en Ágúst Sindri og Árni Hermanns- son skomðu fjögur mörk hvor. Ármann vann Fylki Guðmundur Hilmarsson skrifar Armann sigraði Fylki í 2. deild íslandsmótins í handknattleik með 22:16 eftir að staðan hafði verið jöfn í hálfleik 7:7. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og skiptust liðin á að skora. Varnir beggja liða vom nokkuð fastar fyrir í fyrri hálfleik og varði þá markvörður Fylkis Guðmundur Sigurðsson þá oft mjög vel. Þegar flautað var til leikhlés var staðan 7:7. Í síðari hálfleik komu Ármenningar tvíefldir til leiks og náðu góðri for- ystu sem þeir héldu allt til leiksloka og endaði leikurinn með sigri Ár- manns sem skorði 22 mörk gegn 16 mörkum Fylkis. Bestir í liði Armanns vom Þráinn Asmundsson sem gerði 5 mörk og gamla kempan Bjöm Jóhannsson sem skoraði 6 mörk. I liði Fylkis bar mest á markverðinum Guð- mundi Sigurðssyni sem varði mjög vel í fyrri hálfleik og þeim Hirti Ingþórssyni og Jón Leví og gerðu þeir báðir 4 mörk. Leikur þessi var frekar slakur og er líklegt að þessi tvö lið muni beij,- ast í neðri hluta 2.deildar í vetur. Staöan/B14. Þjálfari óskast Þróttur, Neskaupstað, óskar eftir að ráða þjálfara fyrir meistaraflokk félagsins í knattspyrnu árið 1988. Upplýsingar gefur Guðmundur Ingvarsson, sími 97-71608.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.