Morgunblaðið - 13.10.1987, Síða 9
Jakob Jónsson handar-
brotnaði og verður
minnst 6 vikur í gifsi
KA-menn urðu fyrir því áfalli eftir aðeins
fáeinar mínútur af leiknum gegn Val að Jak-
ob Jónsson fór af velli, meiddur. Er Jakob
stökk upp og skaut að marki fékk hann högg
á þumalfíngur hægri handar og brotnaði fíng-
urinn. Jakob fór í aðgerð er hann kom norður
og kom þá í ljós að meiðsli hans eru mjög
slæm, beinið brotnaði upp í liðinn. Ljóst er
að Jakob verður lengi frá þvi hann verður
minnst sex vikur í gifsi.
JHtrgtraMaMtk /ÍÞRÓTTIR ÞRIÐJUDAGUR 13. OKIÓBER 1987
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
Skúli Gunnsteinsson hefur leikið mjög vel með Stjömunni það sem af er íslandsmótinu. Hann skoraði 9 mörk gegn Víkingum á sunnudaginn, úr 10 skottilraunum,
en hann skoraði einnig 9 mörk gegn KA á dögunum. Sannarlega leikmaður framtíðarinnar sem eflaust á eftir að feta í fótspor föður síns, Gunnsteins Skúlasonar,
og leika með landsliðinu.
Skúli frábær
Morgunblaðið/Einar Falur
Árnl Stefánsson, línumaðurinn knái hjá Þór, skoraði flögur mörk i leiknum á Akur-
eyri, en varð að lúta í lægra haldi. Ámi og félagar era enn án stiga í deildinni, þegar
þremur umferðum er lokið, en á morgun leika Þórsarar gegn KR-ingum í Reykjavík.
Sanngjam
sigur
Stjömunnar
Skúli skoraði 9 mörk úr 10 tilraunum
„ÞAÐ er alltaf ánægjulegt að vinna
Islandsmeistarana. Sigurinn má
fyrst og fremst þakka góðri liðs-
heild. Við höfumæft mjög vel og
hefur Gunnar Einarsson, þjálfari,
gert góða hluti síðan hann kom.
Mótið á eftir að verða mjög spenn-
andi og við lítum á hvern leik sem
úrslitaleik," sagði Skúli Gunn-
steinsson, eftir að Stjarnan hafði
unnið íslandsmeistara Víkings í
Laugardalshöll á sunnudaginn.
Skúli átti stórleik og skoraði alls 9
mörk.
eikur bikar- og íslandsmeistaranna
var mjög skemmtilegur og jafn allan
tímann. Stjaman byijaði betur og náði
fjögurra marka forystu um miðjan fyrri
hálfleik. Víkingar gáfust
ekki upp og náðu að jafna
og komast yfir fyrir leik-
hlé, 13:12.
I síðari hálfleik virtust
Víkingar ætla að kafsigla Stjörnuna er
Vík. — Stjaman
24 :27
Laugardalshöll, íslandsmótið - 1. deild karla,
sunnudaginn 11. október 1987.
Leikurinn í tölum: 0:2, 1:3, 2:4, 3:4, 3:6,
4:6, 6:8, 7:10, 11:10, 12:11, 13:12, 16:13,
17:14, 17:20, 18:20, 18:22, 20:23, 24:25,
24:26 24:27.
Áhorfendur: 400.
Mörk Víkings: Karl Þráinsson 6, Hilmar
Sigurgíslason 5, Ámi Friðleifsson 3, Bjarki
Sigurðsson 3, Sigurður Gunnarsson 3/2, Guð-
mundur Guðmundsson 2 og Siggeir Magnús-
son og Ingólfur Steingrímsson eitt mark hvor.
Varin Skot: Kristján Sigmundsson 12, Sig-
urður Jensson 1.
Mörk Stjörnunnar: Skúli Gunnsteinsson 9,
Gylfí Birgisson 4, Sigurjón Guðmundsson 4,
Hafsteinn Bragason 3, Hermundur Sig-
mundsson 3/1, Einar Einarsson 2 og Sigurður
Bjamason 2/2.
Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson 15,
Höskuldur Ragnarsson 1/1.
Dómarar: Rögnvald Erlingsson og Gunnar
Kjartansson og voru þeir slakir.
þeir komust í 17:14. En þá var eins og
leikmenn gæfu sig ekki alla í leikinn og
létu dómarana fara í taugarnar á sér.
Þá gengu Garðbæingar á lagið og náðu
að skora sex mörk á móti engu. Þama
réðust úrslit leiksins. Víkingar náðu
reyndar að minnka muninn niður í eitt
mark en lengra hleyptu ákveðnir
Stjömumenn þeim ekki og unnu sann-
gjaman sigur.
„Það vantaði einbeitingu hjá okkur út
allan leikinn. Þegar lið er komið með
eins til tveggja marka forystu má ekki
gefa eftir. Það má ekki láta dómara eða
annað fara í taugarnar á sér og gleyma
að spila handbolta. Stjaman er með heil-
steypt lið og spilar sóknarleikinn skyn-
samlega, heldur botlanum og
marktækifærin eru nýtt,“ sagði Arni
Indriðason, þjálfari Víkings, eftir leikinn.
Þetta var einn besti leikur sem undirrit-
aður hefur séð Stjörnuna spila. Liðið lék
sem ein heild og vom sömu leikmenn
notaðir bæði í vöm og skókn allan
tímann. Það var mikið spilað upp á Skúla
á línunni og skorði hann 5 af fyrstu 7
mörkum Stjörnunnar. Víkingar reyndu
síðan að setja fyrir þann leka í vöminni
og tókst það allt fram á miðjan seinni
hálfleik.
Víkingar hafa oft leikið betur. Þeir náðu
að vísu góðum leikkafla um miðbik leiks-
ins en síðan ekki söguna meir. Þeir gerðu
sig seka um mistök bæði í vöm og sókn.
Sóknarleikurinn var þá ráðleysislegur-
töpuðu boltanum í hendur andstæðinga
sinna og sátu svo oft eftir í hraðupp-
hlaupunum.
Karl Þráinsson og Hilmar Sigurgíslason
voru bestir í liði Víkings. Kristján varði
vel í fyrri hálfleik, en aðeins 3 skot í
seinni.
Hjá Stjömunni var Skúli bestur og má
Bogdan, landsliðsþjáflari, hafa auga með
honum í vetur. Skúli skoraði 9 mörk úr
10 skottilraunum. Sigmar Þröstur varði
einng vei. Annars átti liðið í heild góðan
dag.
Valur
Jónatansson
skrifar
ÍR-ingar höfðu betur
í viðureign nýliðanna
Náðu í sín fyrstu stig í vetur til Akureyrar
en Þórsarar eru enn án stiga í deildinni
ÍR-ingar náðu í sín fyrstu stig
í 1. deildinni í ár í nýliðaslagn-
um við Þór, sem fram fór á
Akureyri. Handboltinn sem lið-
in sýndu var ekki mjög burðug-
ur, sérstaklega gerðu Þórsarar
sig seka um mikil mistök f
síðari hálfleik og var sigur ÍR-
inga sanngjarn.
Leikurinn fór rólega af stað.
ÍR-ingar gerðu tvö fyrstu
mörkin en Þór jafnaði og var jafn-
ræði með liðunum megnið af hálf-
leiknum. Undir lokin
Frá komst Þór svo tvö
Reyni mörk yfir og leiddi
Eiríkssyni 10:8 í hléinu.
áAkureyri íR.ingar komu
tvíefldir til leiks í síðari hálfleiks
og tókst að jafna á upphafsmínút-
unum. Þeir sigu svo jafnt og þétt
fram úr og stóðu uppi sem öruggir
sigurvegarar í lokin.
Þórsarar gerðu þau mistök í seinni
hálfleik að láta mjög slaka dómara
leiksins fara í taugamar á sér, og
riðlaðist leikur liðsins við það, en
var þó ekki burðugur fyrir. Það
vantar miklu meiri brodd og þor í
leikmenn Þórsliðsins.
ÍR-ingar létu dómarana hins vegar
ekki fara í taugamar á sér, ein-
beittu sér að því að klára leikinn
og uppskára eftir því.
Frosti Guðlaugsson var mjög
skeinuhættur hjá ÍR, í viiistra hom-
inu. Þá var Ólafur Gylfason dijúg-
ur. Hjá Þór lék enginn af eðlilegri,
lykilmenn voru daufir og verður lið-
ið að taka sig á ef það ætlar að
hirða stig í harðri baráttu deildar-
innar.
Þór - IR
18 : 25
fþrúttahöllin Akureyri, íslandsmótið —
1. deild karla, laugardaginn 10. októ-
ber 1987
Leikurinn í tölum: 0:2, 4:4, 7:7, 8:8,
10:8. 10:10, 12:14, 14:16, 14:20,
15:23, 18:26.
Mörk Þórs: Gunnar M. Gunnarsson
6, Ámi Stefánsson 4, Ólafur Hilmars-
son 4, Sigurður Pálsson 2, Sigurpáll
Ámi Aðalsteinsson 1, Ingólfur Samú-
elsson 1, Baldvin Þór Heiðarsson 1.
Varin skot: Axel Stefánsson 8/1, Her-
mann Karlsson 2.
Mörk ÍR: Frosti Guðlaugsson 6, Ólafur
Gylfason 6, Magnús Ólafsson 3, Orri
Bollason 3, Guðmundur Þórðarson 3,
Bjami Bessason 2, Finnur Jóhannsson
1, Róbert Rafnsson, Matthfas Matt-
hfasson 1.
Variu skot: Hrafn Magnússon 3, Vig-
fús Þorsteinsson 1.
Dómarar: Guðmundur Kolbeinsson og
Þorgeir Pálsson. Þeir voru slakir.
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KARLA
jfHoreimblaÍiib /ÍÞRÓTTIR ÞRŒUUDAGUR 13 OKTÓBER 1987
Morgunblaðið/Júlíus Sigurjónsson
Erllngur Kristjðnsson, einn besti leikmaður KA, tekur hér „blíðlega" á móti Þórði Sigurðssyni í leiknum gegn Val. Þórður náði þama að skjóta áður en
Erlingur stöðvaði hann. Báðir skoraðu þeir tvö mörk í leiknum.
Sáum nú hvers vegna
Valsmönnum var spád
meistaratrtlinum
-sagði Brynjar Kvaran þjálfari KA eftir stórtap að Hlíðarenda
„VIÐ sáum nú hvers vegna
Valsmönnum var spáð Islands-
meistaratitlinum. Þeir sýndu
allt aðra hlið á sér nú en í fyrstu
tveimur leikjunum og við réð-
um einfaldlega ekki við þá,“
sagði Brynjar Kvaran, þjálfari
KA, eftir að Valur hafði burstað
lið hans, 20:10, f 1. deildinni.
Valsmenn voru komnir í 5:1 eft-
ir korter en KA minnkaði
muninn í 8:6 í hléi. Norðanmenn
skoraðu svo aðeins flögur mörk í
seinni hálfleik en
Valsmenn 12 og sig-
ur þeirra var mjög
öraggur.
Aðall Valsliðsins í
þessum leik var gífurlega sterk
vöm en sóknarleikurinn hefði mátt
vera betri. Þar vora allt of mörg
Skapti
Hallgrímsson
skrifar
mistök gerð þegar litið er á hve
sterkir einstaklingar era þarna inn-
anborðs. Enda sagði Stanislav
Modrowoki, hinn pólski þjálfari
Vals, við Morgunblaðið eftir leikinn:
„Þetta var betra en í hinum leikjun-
um, vörnin var góð en sóknin
hræðileg. Mér líður illa þegar ég
sé mína menn klúðra svona mörgum
góðum tækifæram í einum leik.“
Já, sóknarleikur Vals var ekki nógu
yfirvegaður og einbeitingu
skorti stundum. Vömin náði iðulega
boltanum, branað var fram en ekk-
ert varð úr. Og er KA-menn tóku
þá Jón og Júlíus úr umferð langtím-
um saman vora félagar þeirra ekki
nógu hugmyndaríkir; vantaði fram-
kvæði.
Vöm KA-manna var nokkuð góð á
köflum en sóknarleikurinn langt frá
því að vera sannfærandi. KA-menn
Valur - KA
20 : 10
Hlíðarendi, íslandsmótið í handknatt-
leik — 1. deild karla, laugardaginn 10.
október 1987.
Leikurinn í tölum: 1:0, 1:1, 5:1, 7:3,
8:6,10:6,11:8,15:8,18:9,19:9,20:10.
Mörk Vals: Valdimar Grímsson 6/1,
Einar Naaby 3, Jakob Sigurðsson 3,
Júlíus Jónasson 3/1, Jón Kristjánsson
2, Þórður Sigurðsson 2, Gísli óskarsson 1.
Varin skot: Einar Þorvarðarson 14/2.
Mörk KA: Pétur Bjamason 5/3, Erl-
ingur Kristjánsson 2, Friðjón Jonsson
2, Svanur Valgeirsson 1.
Varin skot: Gísli Helgason 11.
Áhorfendur: 400.
Dómarar: Bjöm Jóhannsson og Sig-
urður Baldursson. Þeir voru ekki nógu
samkvæmir sjálfum sér og bitnaði það
heldur á KA mönnum en Völsurum.
ógnuðu ekki nægilega mikið, en
taka verður með í reikninginn að
Jakob Jónsson fór af velli meiddur
strax í upphafí og fímtán mín. fyr-
ir leikslok fékk Erlingur Kristjáns-
son sína þriðju brottvísun og kom
því ekki meira inn á. Það munar
um minna því Erlingur er lykilmað-
ur í vörn og sókn.
Einar Þorvarðarson var besti maður
Vals að þessu sinni, og flestir félag-
ar hans vora sterkir í vöminni. Hjá
KA byijaði Gísli markvörður Helga-
son mjög vel, varði 9 skot í fyrri
hálfleik, en aðeins 2 í þeim síðari.
Erlingur var sterkur og Pétur var
sprækur. Þá era þeir upptaldir sem
léku af nokkuð eðlilegri getu.
Valsmenn vora reknir af velli í sam-
tals 6 mínútur, KA-menn í 10.