Morgunblaðið - 13.10.1987, Page 10
10 B
IBoratmfrlaMfr /ÍÞRÓTTIR ÞRJÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1987
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Everton-liðið frá-
bært gegn Chelsea
EVERTON er á mikilli siglingu
þessa dagana. Liðið burstaði
Chelsea á heimavelli á laugar-
daginn og nálgast toppinn
óðfluga. Hvorki QPR né Li-
verpool léku á laugardaginn,
QPR sat hjá en leik Liverpool
í Wimbledon var f restað vegna
mikils vatnsveðurs. Tveimur
öðrum leikjum í 1. deild var
reyndar frestað af sömu orsök-
um — viðureign Coventry og
Southampton og Watford og
Newcastle.
Leikmenn Everton fóru á kostum
á Goodison Park. Graeme
Sharp, sem skoraði fjögur um fyrri
helgi í Southampton, skoraði nú tvö
og hefur sennilega
aldrei leikið betur en
í haust. Fyrst skor-
aði hann af stuttu
færi, renndi knettin-
um í netið, og síðan með fallegum
skalla. Adrean Heath skoraði síðari
tvö mörkin áður en Kerry Dixon
gerði eina mark Chelsea undir lok-
in.
Frá
Bob Hennessy
iEnglandi
John Hollins, stjóri Chelsea, hélt
leikmönnum sínum í heila klukku-
stund í búningsklefanum eftir
leikinn. „Það eru engin stórvand-
ræði hjá okkur. Það er einfaldlega
best að tala um hlutina meðan þeir
eru mönnum enn í fersku minni,“
sagði Hollins.
Howard Kendall, fyrrum stjóri
Everton sem nú er við stjórnvölinn
hjá Atlico Bilbao á Spáni, var með-
ai áhorfenda á Goodison Park og
var hrifinn af sínu gamla liði. „Li-
verpool-liðið hefur byijað frábær-
Iega, en Everton lék stórkostlega
knattspymu í dag og verður í barát-
tunni á toppnum ásamt Liverpool,"
sagði hann. Áhorfendur voru
32.004.
Davis var frábœr
Paul Davis, blökkumaðurinn snjalli
hjá Arsenal, var frábær í leiknum
gegn Oxford. Skoraði fyrra mark
liðsins og stjómaði leik þess á miðj-
unni. George Graham, stjóri
Arsenal, hrósaði Davis í hástert
eftir leikinn og sagði að landsliðs-
þjálfarinn gæti ekki lengur litið
fram hjá honum. „Davis er svo ró-
legur á vellinum að hann minnir
mig á miðvallarleikmann á megin-
landinu," sagði Graham. Síðara
markið gerði Steve Williams á 86.
mín. — þrumaði í netið af 25 metra
færi; sannkallað glæsimark. Arse-
nal vann þarna sinn 7. sigur í röð.
í þessum leikjum hefur liðið skorað
12 mörk en ekki fengið eitt einasta
á sig. „Góður varnarleikur er list,
og vöm okkar hefur verið leikin
nánst fullkomnlega að undan-
fömu," sagði Graham á eftir.
Áhorfendur á Highbury voru
25.244.
Robson í sviðsljósinu
Manchester United vann Sheffield
Wednesday á Hillsborough í Sheffi-
eld og var það aðeins í annað skipti
á 33 ámm sem það gerist. Bryan
Robson, fyrirliði enska landsliðsins,
var nú færður í sína gömlu stöðu
á miðjunni, en hann hefur leikið í
vöm United að undanförnu. Það
er þó ekki til frambúðar. Alex
Ferguson, stjóri United, sagðist ein-
ungjs hafa viljað hafa fleiri menn
á miðjunni en venjulega vegna
slæms ástands vallarsins; þess
vegna hefði hann fært Robson
framar. Robson skoraði fyrst í eigið
net, skallaði þangað eftir hom-
spymu á 10. mín., en jafnaði svo á
þeirri 40. með glæsilegu skoti.
Brian McClair skoraði tvö mörk í
leiknum og Clayton Blackmore eitt.
Mel Sterland gerði síðara mark
Wednesday í lokin. United-liðið lék
ekki vel þrátt fyrir sigur, Wednes-
day fékk mörg góð færi, en Gary
Walsh í marki United varði oft
mjög vel. Hann var því hetja liðs
sfns en vissi ekki mikið af því! Hann
lenti í samstuði strax á fjórðu
mínútu, fékk heilahristing og „skalf
eins og hrísla" í leikhléi, svo vitnað
sé í Alex Ferguson. Kevin Moran,
varnarmaðurinn harðskeytti, fer
venjulega í markið þegar eitthvað
á bjátar hjá United, en hann hafði
einnig fengið heilahristing í sama
atviki í byrjun leiksins, þannig að
Walsh var látinn leika áfram. Hann
lék mjög vel í seinni hálfleik en
strax á eftir var farið með hann í
flýti á sjúkrahús ^ þar sem hann
dvaldi yfir nótt. Áhorfendur voru
32.779.
Forest vann í Derby
Brian Clough, sem stýrði liði Derby
County til stórra sigra á áttunda
áratugnum, kom þangað á ný um
helgina með lið Nottingham Forest
og fór með þijú stig á brott. Lið
hans sigraði 1:0 og það var Paul
Wilkinson sem skoraði eina markið.
Áhorfendur: 22.394.
Leikur Norwich og Tottenham á
Carrow Road var mjög góður. Ke-
vin Drinkell skoraði fyrst fyrir
heimaliðið, Belginn Nico Claesen
jafnaði en Wayne Biggins gerði sig-
urmarkið á 63.mín. Stjórar liðanna
voru báðir ánægðir með sína menn,
Ken Brown hjá Norwich sagði:
„Þetta var besti leikur okkar á tíma-
bilinu," og David Pleat hjá Spurs
sagði: „Ég get ekki skammað leik-
menn mína. Þeir léku vel, léku til
sigurs _en það tókst ekki í þetta
sinn.“ Áhorfendur voru 18.669.
West Ham er nú í fimmta neðsta
sæti eftir jafntefli á heimavelli gegn
Charlton. Paul Ince skoraði fyrst
fyrir heimamenn á 7. mín. en Garth
Crooks jafnaði fyrir Charlton eftir
hálftíma leik.
Kevin Dillon átti frábæran leik með
Portsmouth er liðið sigraði Luton
3:1 á heimavelli sínum. „Þegar Dill-
on nær sér á strik er hann ekki
síðri en bestu leikmenn hér á landi,“
sagði Alan Ball, stjóri Portsmouth,
eftir leikinn. Dillon hefur ekki verið
í liðinu að undanfömu og sagðist
Ball hafa átt í vandræðum með hve
áhugalaus hann væri á köflum.
Fyrst skoraði hann með glæsilegu
skoti af 25 m færi og síðan úr víta-
spyrnu, og svo lagði hánn upp þriðja
markið sem gamla brýnið Paul
Mariner skoraði, en hann hafði
komið inn á sem varamaður. Mick
Harford skoraði mark Luton úr
vítaspymu.
Skotland
Ian Ferguson skoraði eina markið
er Dundee United sigraði Rangers
í toppleik dagsins. 18.214 áhorfend-
ur sáu skemmtiegan leik. Frank
McAvennie skoraði strax í sínum
fyrsta leik fyrir Celtic eftir að hann
kom frá West Ham í 3:1 sigri á
Morton. White og Walker skoruðu
líka fyrir Celtic en Ales O’Hara
fyrir Morton.
~n
Reuter
Þaul Davls þrumar boltanum í netið hjá Oxford á laugardaginn eftir aðeins ellefu mínútur. Hann lék frábærlega að
þeBSU sinni og sagði George Graham, stjóri Arsenal, að hann ætti skilið að fá tækifæri i enska landsliðinu.
KNATTSPYRNA / PORTÚGAL
Reuter
Brasilískl vamarmaðurinn Celso hjá Porto (til vinstri) í baráttu um knöttinn
við Aparicio í leiknum gegn Vitoria frá Setubal um helgina. Jafntefli varð, 4:4.
Atta marka leikur
nýliða og meistara
EVRÓPUMEISTARAR Porto
gerðu jafntefli, 4:4, gegn nýlið-
um Setubal í portúgölsku 1.
deildarkeppninni um helgina.
Porto er enn í efsta sæti deild-
arinnar.
Leikurinn var mjög skemmtileg-
ur. Þrátt fyrir að meistararnir
næðu forystunni strax á 10. mín.
neituðu nýliðamir að gefast upp.
Manuel Femandes náði að skora
fjórða mark Setubal og jafna leikinn
er aðeins fimm mín. vom til leiks-
loka. Þess má geta að þjálfari liðsins
er hinn gamalkunni enski þjálfari
Malcolm Allison, en liðið þykir leika
mjög skemmtilega undir hans
stjóm, og hefur komið á óvart í
vetur.
Sporting frá Lissabon var tvívegis
marki á heimavelli gegn Guimaraes
og náðu aðeins jafntefli, 2:2, en
Maritimo fékk á sig tvö mörk seint
í leiknum gegn Boavista og tapaði
2:3.
Það lið sem mest hefur komið á
óvart í vetur er Penafiel, „smálið"
úr norðurhluta landsins sem er í
þriðja sæti á eftir Porto og Sport-
ing. Um helgina sigraði liðið
Farense 3:2. Benfica, frægasta lið
Portúgal, gengur hins vegar ekki
vel þessa dagana. Liðið tapaði 0:1
í Chaves. Eina markið var skorað
úr vítaspyrnu á síðustu mínútu
leiksins. Benfica hefur ekki byijað
svona illa í deildinni í áraraðir. Lið-
ið er nú í 10. sæti deildarinnar.
■ Úrslit/B14.
■ Staöan/B14.
HOLLAND / BIKARKEPPNIN
Varalið Ajax
slóSpartaút
ÞAÐ var ekki leikið í deildar-
keppninni um helgina heldur
varfyrsta umferð bikarkeppn-
innar á dagskrá. Úrvalsdeildar-
liðin áttu frekar auðvelt með
að komast áfram því í fyrstu
umferð leika þau ekki innbyrð-
is. Þetta fyrirkomulag kemur
sér vel fyrir landsliðið, sem
leikurá morgun, miðvikudag,
mikilvægan leik í undankeppni
Evrópumótsins, við Pólverja.
Landsliðsmenn gátu því
hugsnlega sparað sig fyrir
þann leik.
Þó var töluvert um óvænt úrslit
og þar má nefna að B-lið Ajax
sló Sparta út úr bikarnum, með
tveimur mörkum gegn einu, en
Sparta var framan
af hausti í efsta
sæti 1. deildarinnar.
Ajax-liðið er skipað
mjög efnilegum leik-
mönnum, sem eru flestir innan við
tvítugt, og að auki var Frank Stap-
leton með þeim, en Ajax keypti
hann frá Manchester United í vor.
Frá
Hróðmari
Sigurbjörnssyní
iHollandi
Hann hefur ekki komist í A-Jið fé-
lagsins að undanförnu.
Þá sló áhugamannaliðið Top út lið
Utrecht 3:0, en síðamefnda liðið
komst áfram í 2. umferð Evrópu-
keppninnar með því að slá út
ungverskt lið.
Önnur lið úr úrvalsdeildinni komust
auðveldlega áfram.
Annars snýst hér allt um landsleik-
inn á morgun, en Hollendingar
verða helst að vinna hann. Lands-
liðsþjálfaranum er vandi á höndum
því nokkra máttarstólpa vantar. Þar
á meðal Frank Rijkaard, sem ekki
hefur stundað æfingar í tvær vikur
en þjálfarinn, Rinus Michels, taldi
hann hvorki í andlegu né líkamlegu
ásigkomulagi til að taka þátt í svo
mikilvægum leik. En þrátt fyrir
aðvaranir Johan Cruyff valdi hann
Arnold Muhren, en sem eini örv-
fætti miðjumaðurinn í landsliðinu,
er hann mjög mikilvægur. Cmyff
taldi Muhren, sem orðinn er 36
ára, ekki í nógu góðri æfingu, en
þjálfarinn taldi sig samt ekki geta
án hans verið.