Morgunblaðið - 13.10.1987, Síða 11
BjorflnnHaBib /ÍÞRÓTTIR ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1987
B 11
KNATTSPYRNA / ÍTALÍA || KNATTSPYRNA / VESTUR—ÞÝSKALAND
Napóli
íefeta
DIEGO Maradona skoraði sitt
fyrsta mark fyrir Napóli í vetur
er liðið gjörsigraði nýliða Pesc-
ara 6:0 í deildarkeppninni um
helgina. Napóli komst á topp-
inn við þennan sigur þar sem
lið AS Róma tapaði gegn Ju-
ventus.
Maradona hefur verið gagn-
rýndur harðlega á Ítalíu í
haust fyrir slælega frammistöðu og
áhugaleysi í leikjum, en hann þagg-
aði niður í gagnrýnendum á
sunnudaginn. Maradona skoraði
fjórða mark liðs síns úr vítaspyrnu,
Salvator Bagni gerði 2 mörk og
Francesco Romano, Bruno Giord-
ano og Brasilíumaðurinn Careca
gerðu allir 1 mark.
Italski landsliðsbakvörðurinn An-
tonio Cabrini skoraði eina mark
leiksins á 42. mín. er Juventus sigr-
aði lið Roma, sem hafði ekki tapað
leik í vetur. Stefano Tacconi, mark-
vörður Juventus, stóð þó uppi sem
hetja liðs síns. Hann felldi fram-
heijann Giuseppe Giannini í teign-
um eftir að sá hafði platað hann,
en gerði sér svo lítið fyrir og varði
vítaspymuna sem dæmd var. Það
var Pólveijinn Zbigniew Boniek,
sem einmitt lék áður með Tacconi
hjá Juventus, sem tók vítið. Þetta
gerðist á 30. mín. Boniek hefði því
komið liði sínu yfir hefði hann skor-
að. Boniek hafði skorað í öllum
leikjum mótsins fram að þessu.
Hollendingurinn Ruud Gullit skor-
aði stórglæsilegt mark fyrir AC
Mílanó, beint úr aukaspymu utan
vítateigs, er liðið gerði jafntefli við
Sampdoria, 1:1. Markið kom á 51.
mín. Gianluca Vialli jafnaði með
skalla aðeins tveimur mín. síðar og
þar við sat.
■ Úrsllt/B14.
■ Staðan/B14.
Reuter
Antonlo Cabrlni hefur hér skorað markið sem dugði gegn AS Róma. Ca-
brini er fyrir miðri mynd, en númer n(u er Ian Rush.
Reuter
Stefan Engels hjá Köln og Hans Giinther Bruns hjá Borussia Mönchengladbach beijast um knöttinn í leik liðanna
á laugardaginn. Kölnarliðið vann öruggan sigur og er enn ósigrað eftir 12 umferðir.
t Þýskalandi
Köln enn taplaust
eftir tólf umferðir
Sigraði Gladbach mjög örugglega um helgina
LIÐ 1. FC Köln gjörsigraði Bor-
ussia Mönchengladbach, 4:1, á
heimavelli sínum á laugardag-
inn í þýsku 1. deildinni. Kölnar-
liðið er enn taplaust eftir 12
umferðir í deildinni. Udo Latt-
ek, tæknilefur ráðgjafi hjá
liðinu, hefur mætt í sömu bláu
peysunni á alla leiki liðsins í
vetur og segist ekki þvo hana
fyrr en liðið tapi. Fyrir leikinn
á laugardag var honum fært
þvottaefni að gjöf, en hann
sagðist ekki þurfa að nota það
strax. Það reyndist rétt hjá
honum — peysan verður a.m.k.
ekki þvegin eftir þessa helgi.
að má segja að Daninn Flemm-
ing Povlsen haldi merki
Norðurlandanna á lofti þessa dag-
ana í þýsku knattspyrnunni. Þessi
tvítugi framheiji lék
Frá frábærlega með
Jóhannilnga Kölnarliðinu um
Gunnarssyni helgina og skoraði
þijú mörk. „Það var
ótrúleg tilfinning að skora þrennu,"
sagði hann á eftir. Lið Kölnar hafði
yfirburði. Povlsen skoraði fyrstu tvö
mörk sín með skalla, á 11. og 28.
mín. Uwe Rahn minnkaði muninn
á 68. mín., Rahn skoraði síðan aft-
ur og Hassler gerði fjórðá markið
beint úr aukaspyrnu. Þeir Povlsen
fengu báðir einn í einkunn í öllum
blöðum, sem þýðir leikur á heims-
mælikvarða.
Bayem vann mikilvægan sigur á
útivelli gegn Karlsruhe, 1:0, með
marki Michael Rummenigge af sex
metra færi eftir aukaspyrnu Breh-
me. Bayern þurfti að hafa mikið
fyrir sigrinum, bæði lið sýndu mikla
baráttu og góða knattspyma. Mikið
var um færi á bóða bóga þrátt fyr-
ir þetta eina mark.
Hamburger SV má muna sinn fífil
fegri. Nú tapaði liðið 0:3 gegn
Eintracht Frankfurt á útivelli.
Schulz (15.), Balzis (47.) og Kraaz
(69.) gerðu mörkin. Mikið er um
meiðsli hjá HSV þessa dagana og
hinn reyndi Manfred Kaltz, sem
alla jafna leikur í stöðu hægri ba-
kvarðar, lék nú sem aftasti maður
í vöm, þar sem Ditmar Jakobs er
meiddur.
Werder Bremen sigraði Núrnberg
heima og heldur sínu striki. Ord-
enewitz sem skoraði úr markteign-
um á 54. mín. og tryggði þenna'
mikilvæga sigur.
Öll íslendingaliðin léku á föstudags-
kvöldið, eins og sagt var frá í
laugardagsblaðinu. Uerdingen tap-
aði á heimavelli fyrir Stuttgart 2:5,
og Kaiserslautern sigraði Dortmund
3:1.
■ Úrslit/B14.
■ Staðan/B14.
KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNI LANDSLIÐA
Jafnt hjá Austur—Þjóðveijum
og Sovétmönnum, 1:1, í Beriín
JAFNTEFLI varð í viðureign
Austur—Þjóðverja og Sovét-
manna í 3. riðli Evrópukeppni
landsliða íknattspyrnu í Aust-
ur-Berlín á laugardaginn. Með
sigri hefðu Sovétmenn gull-
tryggt sér sigur í riðlinum, en
til þess dugar þeim jaf ntefli í
leiknum við íslendinga síðar í
þessum mánuði ytra.
Austur—Þjóðveijarnir skomðu
á undan, Ulf Kirsten frá Dyn-
amo Dresden gerði mark á 45. mín.
með góðu skotu utan úr teig sem
Renat Dasayev réð ekki við. Þjóð-
veijamir léku vel strax frá byijun,
en menn höfðu ekki búist við miklu
af liðinu eftir útreið þá sem félags-
lið landsins fengu í Evrópukeppn-
inni á dögunum þar sem þijú af
fjórum vom slegin út.
Sovétmenn sóttu mikið í seinni hálf-
leik en heimamenn vörðust vel, og
það var ekki fyrr en tíu mín. vom
til leiksloka að Sergei Aleinikov
skoraði af stuttu færi. Austur—
þýski markvörðurinn Rene Muller
hafði varið fimafast skot vara-
mannsins Gennady Litovchenko; en
Muller hélt ekki knettinum, sem
hrökk til Aleinikov, og hann skor-
aði auðveldlega.
Detlef Schössler frá Magdeburg var
góður í leiknum, ógnaði sovéski
vöminni nokkm sinnum og átti tvö
góð skot, en Dasayev sá við honum
í bæði skiptin. Þá fékk Matthias
Liebers frá Lokomotiv Leipzig gott
færi en skaut yfir.
Ekki munaði miklu að Daynamo
Kiev-leikmaðurinn Alexei Mikha-
ilichenko kæmi Sovétmönnum yfir
á 20, mín. er hann þmmaði í stöng,
og aftur var hann á ferðinni í seinni
hálfleik en Muller varði þá skot
hans glæsilega.
Austur—Þýakaland: Rene Miiller, Ronald
Kreer, Uwe Zoetzsche, Detlef Schössler,
Matthias Döschner, Uwe Pilz (Jörg Stueb-
ner vm. á 7B. mín.), Matthias Liebers,
Jurgen Raab (Ralf Minge vm. á 83. mfn.),
Ulf Kirsten, Thomas Doll, Andreas Thom.
Sovétrikin: Renat Dasayev, Vladimir Bes-
sonov, Vagiz Khidiatullin (Vasily Rats, vm.
á 72. mín.), Oleg Kuznetsov, Anatoly Bes-
sonov, Vagiz Yaremchuk, Sergei Aleinikov,
Alexei Mikhailichenko, Alesander Zavarov
(Gennedy Litovchenko, vm. á 62. mfn.),
Oleg Protasov, Igor Dobrovolsky.
Áhorfendur voru 20.000.
Staðan
Sovétríkin.....7 4 3 0 12:3 11
A—Þýskaland....6 2 3 1 9:3 7
ísland..........7 2 2 3 4:12 6
Frakkland......6 1 3 2 3:5 5
Noregur........6 1 1 4 4:3 3
Eftirtaldir leikir eru eftir í riðlinum.
14. októben Frakkland-Noregur, 28.
október. Sovétríkin-Ísland og Austur—
Þýskaland-Noregur, 18. nóvemben
Frakkland-Austur—Þyskaland.