Morgunblaðið - 13.10.1987, Blaðsíða 16
KNATTSPYRNA / NOREGUR
Gunnar Gíslason Noregs-
meistari í fyrstu tilraun
Gunnar Gíslason varð Noregs-
meistari með Moss í knatt-
spymu eftir að hafa unnið Molde,
helsta keppinautinn, 2:0, í hreinum
úrslitaleik á heima-
Frá velli Molde á laugar-
Jóni Úttari daginn.
Karissyni Mikil spenna var í
/ oregi loftinu og hinir rúm-
lega 12 þúsund áhorfendur sáu einn
skemmtilegasta og besta knatt-
spymuleik ársins í Noregi.
Það vom leikmenn Molde sem byij-
uðu betur. Fyrstu 30 mínútumar
sóttu þeir stöðugt og áttu fjölmorg
marktækifæri, en markvörður
Moss, sem lék sinn besta leik í ár,
varði oft á tíðum ótrúlega.
Heilladísimar voru svo sannarlega
með Moss í leiknum. Moss byggði
smn leik á skyndisóknum og upp-
skar árangur í fyrri hluta seinni
hálfleiks, er Carspen Bachke fékk
stungusendingu, sem hann skoraði
úr — eftir að hafa leikið á vamar-
mann þmmaði hann boltanum í
netið af 12 metra færi.
Á næst síðustu mínútu leiksins
wEgerí
skýjunum
íí
„ÞAÐ er erfitt að segja hvernig
ég hef það. Moss kom upp úr
2. deild í fyrra og sigraði í 1.
deild í ár. Það hefur ekki komið
fyrir áður, er ótrúlegt, frábært.
Maður skilur ekki að þetta hafi
gerst — en við stöndum uppi
sem meistarar. Ég er í skýjun-
um yfir þessu öllu saman og
verð 100% áfram hjá félaginu,"
sagði Gunnar Gíslason, leik-
maður Moss, við Morgunblað-
ið eftir að Moss hafði sigrað
Molde í hreinum úrslitaleik.
Fleiri þúsund manns fögnuðu
leikmönnum Moss, þegar þeir
komu heim sem norskir meistarar
1987. „Þetta er dásamlegt. Öll stóm
félögin, sem ráða
Frá yfír miklu fjár-
JóniÓttari magni, em slegin út
Karissyni af Moss þrátt fyrir
iNoregi það standi langt
að baki hvað fjárhagsgetu varðar.
Moss er eins og góð fjölskylda þar
sem allir þekkja alla og allir vinna
fyrir hvem annan. Andinn hefur
verið frábær og ekkert hefur komið
uppá, sem skyggir á hina góðu sam-
stöðu, er ríkir í herbúðum okkar.
!g er sérstaklega ánægður með að
við náðum að rífa okkur upp eftir
slaka frammistöðu í haust — barátt-
og samstaðan hafði þau áhrif
ai,
ýk
an
að við náðum að sýna okkar rétta
andlit þegar mest á reyndi. Þjálfari
okkar á sinn þátt í velgengninni,
en hann er mjög sérstakur persónu-
leiki sem gott er að vinna með,
hann er sem einn af okkur strákun-
um í liðinu,“ sagði Gunnar.
Vilji, skap, barátta
Hver er helsti munurinn á
norskri og íslenskri 1. deildar-
knattspyrnu?
„Hér í Noregi em mörg góð lið og
margir góðir leikmenn. Breiddin er
mikið meiri. Hér ráða knattspymu-
menn yfir meiri tækni og fag-
kunnáttu og aðstaða er hér öll
önnur en heima. Hér getum við æft
10 mánuði á ári með því að nýta
velli innanhúss og gervigrasvelli.
Einnig vil ég nefna að hér æfír
maður í vinnutímanum og getur
haft kvöldin fyrir fjölskylduna, sem
hefur mikla þýðingu. Það em meiri
peningar í fótboltanum hér þar sem
leikmenn fá meira fyrir sinn snúð
— sérstaklega þegar vel gengur.
Ég vinn hálfan vinnudag í banka
hér í Moss, þar sem ég get skotist
í burtu þegar ég þarf vegna æfínga
eða keppni. Það sem Islendingar
hafa fram yfír er viljinn, skapið og
það að gefast aldrei upp. Barátta
og aftur barátta er það sem gildir.
Á þessu sviði geta Norðmenn mikið
lært.“
Gunnari hefur gengið vel að læra
norskuna og telur að það hafi haft
allt að segja í sambandi við öll sam-
skipti og aðlögun að norskum
háttum. Gunnari líkar mjög vel að
búa í Moss. „Hér ríkir hálfgerð
Akureyrarstemmning, sem er róleg
og afslöppuð — ekki neitt Reykja-
víkurstress".
Leikadferðin heppnaðist
Gunnar var ánægður með úrslita-
leikinn.
„Við byggðum leik okkar upp á
skyndisóknum gegn Molde, sem
leikur Wimbledon-fótbolta, þar sem
allt byggist upp á háum fyrirgjöfum
á tvo hávaxna leikmenn staðsetta
í vítateig andstæðinganna. Þessi
leikaðferð heppnaðist 100%. Allt
liðið lék vel, sérstaklega vörnin og
markvörðurinn var frábær.
Hvað er framundan?
„Það er landsleikur gegn Rússum
um mánaðarmótin og síðan ferð til
Kanaríeyja mcð fjölskylduna í boði
Moss.“ Áð lokum bað Gunnar fyrir
kveðjur til fjölskyldu og vina á ís-
landi og er þeim hér með komið á
framfæri.
bætti Moss við öðru marki. Þar var
að verki Geir Hemæs eftir góða
fyrirgjöf frá Bachke. Mínútu síðar
flautað dómarinn til leiksloka, Moss
var norskur meistari 1987.
Molde hafði boltann lengst af - en
Moss sigraði með vel útfærðum
skyndisóknum og mikilli baráttu.
Markvörður Moss átti stórleik,
Gunnar Gíslason lék vel á miðj-
unni, en það var sigur góðrar
liðsheildar sem öðru fremur skóp
þennan sæta sigur.
Brann héH sætinu
Bjami Sigurðsson og félagar í
Brann björguðu sér frá falli með
stórsigri yfir Tromsö í Bergen, 5:0.
Það var sem aðeins eitt lið væri á
vellinum — Brann hafði yfirburði á
öllum sviðum. Leikmenn voru órag-
ir við að sýna hvað í þeim býr,
samspil, samvinna og leikgleði sat
í fyrirrúmi í vöm sem sókn. Brann
átti góðan dag, allir léku vel, en
Bjami hafði lítið að gera í markinu.
Þess má geta að Brann hefur leikið
til skiptist í 1. og 2. deild frá 1979
og það er fyrst núna sem það nær
að leika tvö ár i röð í 1. deild.
Önnur úrslit:
Ham Kam-Lilleström...........2:1
Kongsvinger-Mjöndalen........1:0
Rosenborg-Start..............4:1
VTeringen-Bryne..............1:0
Lokastaðan (22 umferðir):
Moss 44 stig, Molde 41, Kongsvin-
ger 39, Rosenborg 39, Bryne 34,
Tromsö 31, Váleringen 30, Brann
30, Lilleström 29, Ham Kam 29,
Mjöndalen 25, Start 25.
„ a Morgunblaðift/Jón Sigurðsson
Noregsmeistarinn
Gunnar Gíslason stóð sig mjög vel hjá Moss í sumar og varð Noregsmeistari á sínu fyrstu keppnistímabili hjá liðinu-
Moss-liðið kom upp úr 2. deild í fyrra. Gunnar er mjög ánægður með veru sína hjá liðinu og segist, í viðtalinu hér vi
hliðina, verða áfram ytra.
GETRAUNIR: 122 111 21X X X 2
LOTTO: 3 4 5 6 18