Morgunblaðið - 16.10.1987, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1987
B 5
Stöð2:
Hjónabandseijur
■■■■ í þættinum Undur alheimsins ,Nova verður að þessu sinni
"XH 20 fjallað um rannsóknir er leitt hafa I ljós, að stórt gat er
A I t-. komið á ósonlag jarðarinnar.
■I I kvöld verður sýndur
20 fyrri hluti bandarískrar
sjónvarpskvikmyndar
Hjónabandserjur , (The Rules
of Marriage). Myndin Qallar um
Joan og Ken, sem í augum vina
sinna eru í hinu fuilkomna hjóna-
bandi. Þau eiga tvö indæl böm,
13 ára gamla dóttur og 11 ára
gamlan son. En ekki er allt sem
sýnist og undir niðri blundar óán-
ægjan. Brostnar vonir og draumar
veikja stoðir hjónabandsins svo
hamingjuríku ijölskyldulífi stafar
hætta af. Seinni hluti myndarinn-
ar verður sýndur næstkomandi
sunnudagskvöld.
Aðalhlutverk er í höndum
Elizabet Montgomery, Elliott Go-
uld og Michael Murphy, en leik-
stjóri er Milton Katselas. Myndin
fær ★ ★ ★ í kvikmynda-
handbók Scheuers.
Hamingjusöm fjölskylda á
yfirborðinu, en ekki er allt
sem sýnist.
Rás 2:
Tónlistarkrossgátan
■■■■ Tónlist-
-j r 00 arkross-
gátan
verður á sínum
stað í dagskrá
Rásar 2 í dag, í
umsjón Jóns
Gröndals. Lausn-
ir sendist merkt-
ar: Ríkisútvarpið
Rás 2, Efstaleiti
1, 108 Reykjavík
og skulu þær
merktar tónlist-
arkrossgátunni.
Rás 1:
Svanir fljúga hratl
tilheiða
■HM í tilefni af aldarafmæli Stefáns skálds frá Hvítadal, verð-
1 Q30 ur á Rás 1 í dag flutt sérstök dagskrá. Nefnist hún
Aó Svanir fljúga hratt til heiða , en það er upphafslína í
fyrsta kvæði fyrstu ljóðabókar Stefáns, Söngvum förumannsins.
Gunnar Stefánsson tekur þáttinn saman, en lesarar eru Amar Jóns-
son og Viðar Eggertsson.
Stefán frá Hvítadal var frumkvöðull nýs ljóðstfls í íslenskum bók-
menntum, kom fram árið 1918 og hafði mikil áhrif á yngri skáld,
segir í kynningu um þáttinn. Stefán gerðist kaþólskur og orti margt
trúarlegra kvæða til vegsemdar kaþólskri kirkju. Hann var bóndi í
Dölum síðasta skeið ævi sinnar og lést 1933. í þættinum verður
sagt frá ævi Stefáns og skáldskap, lesið úr ljóðum hans og sungin
við þau lög. Þá verða lesnar frásagnir þriggja rithöfunda og vina
Stefáns af honum, þeirra Þórbergs Þórðarsonar, Guðmundar G.
Hagalíns og Haldórs Laxness.
Sjónvarpið:
Veríð þér sælir, hr. Chips
■I Nýr breskur mynda-
55 flokkur hefur göngu
— sína í Sjónvarpinu í
kvöld, að loknum þætti frá hunda-
sýningunni í Víðidal. Er hann í
þremur þáttum, gerður eftir sam-
nefndri bók James Hilton og
nefnist Verið þér sælir, hr.
Chips. Þar em í aðalhlutverkum
þau Roy Marsden, Anne Kristen
og Jill Meager. Þættimir fjalla
um kennara sem reynist ekki mjög
happasæll í upphafi starfsferils
sfns. í lífi hans skiptast á skin
og skúrir, en að lokum fer allt svo
að hann verður einn af ástsælustu
kennumm skólans. Leikstjóri er
Gareth Davies. Kristrún Þórðar-
dóttir þýddi.
Roy Marsden sem hr. Chips.
HVAÐ
ER AÐ0
GERAST \
son, „B[laverkstæði Badda, í leikstjórn
Þórhalls Sigurðssonar. Leikmynd og bún-
ingar eru eftir Grétar Reynisson og
lýsingu annast Björn Bergsteinn Guð-
mundsson. Leikendureru Bessi Bjama-
son, Arnar Jónsson, Jóhann Sigurðarson,
Guðlaug María Bjarnadóttir, Sigurður
Siguijónsson og Árni Tryggvason. —
Þetta er spennuleikrit sem gerist í af-
skekktri sveit. Sögusviöið er Bilaverk-
stæði Badda sem lenti utan þjóðbrautar
þegar nýi vegurinn var lagður um sveitina
og nú eru verkefni stopul. þægilegum
minningum skýtur upp í þessari fábreyti-
legu tilveru þegar gamall vinnufélagi
birtist óvænt til að gera upp sakir. Onnur
sýning verður þriöjudaginn 20. október,
þriðja sýning miðvikudaginn 21. og fjórða
sýning fimmtudaginn 22.
Þjóðleikhúsinu hefurtekist að tryggja sér
tvær sýningar í viðbót á dansverkinu „Ég
dansa viðþig . ..“ laugardaginn 17.
októberog sunnudaginn 18. Hefjast sýn-
ingarnarkl. 20 báða dagana.
Næstsíðasta sýning á „Rómúlusi mikla"
eftir Durrenmatt verður í Þjóöleikhúsinu
í kvöld, föstudaginn 16. október. Síðasta
sýning verður laugardaginn 24. október.
Leikhúsið í kirkjunni
Leikritiðum Kaj Munkerum þessar
mundir á fjölunum í Hallgrimskirkju. Af
sérstökum ástæðum fellur sunnudags-
sýningin niður, en leikið verður á
mánudagskvöld kl. 20.30. Um aðra helgi
verða svo tvær sýningar, sunnudaginn
25. október kl. 16 og mánudagskvöld
kl. 20.30. Aðstandendur sýningarinnar
eru ánægðir með hve henni hefur veriö
vel tekið og óska þess að sjá sem flesta.
eih-leikhúsið
eih-leikhúsiö f kjallara veitingastaðarins
Hornsins í Hafnarstræti — Djúpinu —
frumsýnirsittfyrsta verkefni, „Sögu úr
dýragarðinum" eftir Bandaríkjamanninn
Edward Albee, nk. laugardag, 17. októ-
ber, kl. 14. „Saga úrdýragarðinum" er
fyrsta leikrit Albees, sem annars er þekkt-
astur fyrir „Hver er hræddur við Virginíu
Woolf?" Verkið fjallar um samskipti
tveggja manna, sem hittast af tilviljun í
skemmtigaröi, og örlög þeirra. Thor Vil-
hjálmsson þýddi. Hlutverk í sýningunni
eru tvö og eru þau í höndum Guðjóns
Sigvaldasonar og Stefáns Sturlu Sigur-
jónssonar. Leikstjóri er Hjálmar Hjálmars-
son.
Einnig verða sýningar sunnudaginn 18.
október, miðvikudaginn 21. og fimmtu-
daginn 22. Þær hefjast allar kl. 20.30.
Veitingastaðurinn Hornið býður sýningar-
gestum upp á veitingar fyrir og eftir
sýningar. Miða- og matarpantanir eru í
síma 13340.
Myndlist
Kjarvalsstaðir
Á morgun, laugardaginn 17. október,
opnar Kristján Steingrímur sýningu í vest-
ursal Kjarvalsstaða. Kristján stundaði
nám við Myndlista- og handiðaskóla ís-
lands 1977-1981 og Hochschulefur
bildende Kúnste í Hamborg 1983-1987,
hjá prófessor Bernd Koberling. Ásýning-
unni verða oliumálverk máluð á sl.
þremurárum og grafík. Kristján
Steingrímur hefur tekið þátt í og haldiö
nokkrar sýningar hér á landi og i Þýska-
landi. Sýningin stendurtil 2. nóvember.
Á morgun, laugardaginn 17. október,
verður opnuð á Kjarvalsstöðum sýningin
„Gullsmiöirað Kjarvalsstöðum". 36gull-
smiðir sýna þar verk sfn, sem mörg hver
eru ekki til sölu f verslunum. Verkin eru
t.d. unnin í gull, silfur, eir messing og
járn og skreytt ýmsum tegundum eðal-
steina. Þarna getur að Ifta skartgripi,
korpus, skúlptúra og lágmyndir. Sýningin
stendur til 1. nóvember og er opin alla
dagafrákl. 14 til 22.
Norræna húsið
Finnski grafíklistamaöurinn Outi Heiskan-
en opnar sýningu á verkum sfnum í
anddyri Norræna hússins laugardaginn
17.októberkl. 15.
Outi Heiskanen hefur sýnt áður hér á
landi, bæði í Norræna húsinu og í Gall-
erí Langbrók, auk þess sem hún átti
verk á sýningunni Graphica Atlantica á
Kjarvalsstöðum ífyrra. Hún fæddist árið
1937 í Mikkeli og stundaði nám við Lista-
háskóla Finnlands 1966-C9. Síöan hefur
hún haldið fjölda einkasýninga og tekið
þátt í samsýningum í Finnlandi og víða
um heim. Hún var valin listamaður ársins
(Helsinki 1986. Hún veröur viðstödd
opnun sýningarinnarkl. 15 á laugardag.
Hrafna EggerUdðttlr planótolkarl, Inga Rós IngóHsdóttlr sallólalk-
arl og KJartan Önkaraaon klarinottulolkaH lolka I SoMosaklrkju ó
sunnudaglnn.
Boóbori. OKumólvork ó atriga oftlr Kriatjón Stalngrím.
Sýningin er opin daglega kl. 9-17 og
henni lýkur 1. nóvember.
Hafnargallerí
Kristín Arngrímsdóttir og Alda Sveins-
dóttir hafa opnað sýningu í Hafnargallerí.
Myndir öldu eru unnar með vatnslitum
og olíupastel en myndir Kristínareru
unnar með blandaðri tækni, bleki olíu
og blýanti. Galleríið er opið á venjulegum
verslunartíma.
GalleríBorg
Kjartan Guðjónsson sýnir um þessar
mundir í Gallerí Borg við Austurvöll. Á
sýningunni eru teikningar, vatnslitamynd-
ir og olíumyndir. Sýningin er opin virka
dagafrákl. 10-18ogfrákl. 14-18 um
helgar. Henni Iýkur27. október.
Langbrók
Textílgalleríið Langbrók, Bókhlöðustig 2,
sýnir vefnað, tauþrykk, myndverk, módel-
fatnað og fleiri listmuni. Opið er þriðju-
daga til föstudaga kl. 12-18 og
laugardaga kl. 11-14.
GalleríList
Þetta nýja gallerí er í Skipholti 50 B.
Sýnd eru verk eftir unga og gamla lista-
menn og fjölbreytnin í hávegum höfð.
Reglulega er svo skipt um verk og breytt
til í galleríinu. Gallerf List eropiðfrá
10-18 virka daga og f rá 10-12 á laugar-
dögum.
Gallerí Svart á hvrtu
Ámorgun, laugardaginn 17. október,
verðuropnuð sýning á olíumálverkum
og teikningum Georgs Guðna. Sýningin
eropin kl. 14-18 alla daga nema mánu-
daga. Henni lýkur 1. nóvember.
Gallerí íslensk list
í Gallerí l'slensk list, Vesturgötu 17,
stendur yfir sýning Hafsteins Austmann.
Þareru 30 vatnslitamyndir hans til sýnis
og sölu. Sýningln er opin kl. 9-17 virka
daga og kl. 14-18 um helgar. Henni lýk-
ur25.október.
Heilsuhælið Hveragerði
Ragnar Kjartansson sýnir nú þar keramik-
málverk og höggmyndir en sýningin er
sett upp í tilefni af 50 ára afmæli Náttúru-
lækningafélags Islands. Sýningunni lýkur
31. október.
Gullni haninn
Á veitingahúsinu Gullna hananum eru
Þingvallamyndir Sólveigar Eggerz til sýn-
is. Myndimareru landslag og fantasíur
frá Þingvöllum, unnar með vatnslitum og
olfukrít. Þæreru allartil sölu.
Slunkaríki, ísafirði
Kristinn Guðbrandur Haröarson opnar
sýningu á morgun, laugardaginn 17.
október, kl. 16 og sýnirolíupastelmynd-
ir. Sýningin stendurtil loka októbermán-
aðar. Slunkarfki er opiö fimmtudaga til
sunnudagafrá kl. 16-18.
Safnaðarheimilið,
Grundarfirði
Nú stenduryfir sýning í Safnaöarheimil-
inu á verkum Sigrúnar Jónsdóttur —
veggskreytingum og lömpum. Sýning-
unni lýkur nk. sunnudag, 18. október.
Tónlist
Selfosskirkja
Sunnudaginn 18. október nk. halda
Hrefna Eggertsdóttirpfanóleikari, Inga
Rós Ingólfsdóttirsellóleikari og Kjartan
Óskarsson klarinettuleikari tónleika í Sel-
fosskirkju. Á efnisskránni eru verk eftir
Debussy, FauréogJohannes Brahms.
SJÁ NÆSTU OPNU