Morgunblaðið - 16.10.1987, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1987
B 15
MYIMDBÖIMD
Sæbjörn Valdimarsson
Sá á kvölina..
drama
Choices ★ ★ */2
Leikstjóri: David Lowell Rich.
Framleiðandi: Robert Halmi.
Klipping: Eric Albertson. Tónlist:
Charles Cross. Aðalleikarar: Ge-
orge C. Scott, Jaquline Bisset,
Melissa Gilbert, Laurie Kennedy,
Steven Flynn, Mitch Martin,
Nancy Allison. Bandarisk. Hal
Roach Studios 1986. Skífan 1987.
98 min. Bönnuð yngri en 12 ára.
Eins og nafnið bendir til fjallar
þessi sjónvarpsmynd um valkosti,
nánar til tekið hvað skal gera þegar
ung stúlka, (Gilbert), verður þung-
uð. Faðir hennar, (Scott), sem er
íhaldssamur, dómari, nýkominn á
eftirlaun, gengur hart eftir því að
hún eignist bamið og giftist bams-
föðumum. Sjálf er hún reikul og
óviss. Bisset, hin unga eiginkona
föður hennar, styður Gilbert með
ráðum og dáð uns aðstæðumar
breytast á óvæntan hátt; Bisset
verður sjálf bamshafandi.
Þungun stjúpunnar reynist ekki
minna vandamál í flölskyldunni því
Scott, sem kominn er á sjötugsald-
ur, er gjörsamlega mótfallinn því
að eignast fleiri böm.
Óneitanlega hádramatískt efni
og heldur óvenjulegt og hreint ekki
svo illa farið með það. Einkum em
góðir kaflar í handritinu þar sem
reynt er að kryfja til mergjar og
leysa af skynsemi erfiða og marg-
snúna ákvörðun. Ekki bætir úr skák
að vandamálin eru tvö á heimilinu,
svo gjörólík þó þau séu sama sinn-
is. Góður leikur lyftir Choices yfir
meðallagið, þau standa öll vel fyrir
sínu, Scott, Bisset og ekki síst Gil-
bert, enda vel sjóuð í táraflóði lífsins
eftir margar vertíðir í Húsinu á
sléttunni. Nokkuð eftirtektarverð
mynd sem maður álítur þó fyrst og
fremst sjónvarpsefni.
Þrákelknir
skógar-
höggsmenn
drama
Never Give An Inch ★ ★ V2
Leikstjóri: Paul Newman. Hand-
rit: John Gay, byggt á skáldsögu
Ken Kesey. Tónlist: Henry Manc-
ini. Kvikmyndataka: Richard
Moore. Aðalleikendur: Paul
Newman, Henry Fonda, Lee
Remick, Michael Sarrazin, Ric-
hard Jaeckel, Cliff Potts, Linda
Lawson. Bandarísk. Universal
1971, Laugarásbió 1987.110 mfn.
Bönnuð yngri en 12 ára.
Hér segir frá fjölskyldu skógar-
höggsmanna norður í Oregon, sem
aldrei gefur tommu eftir á hveiju
sem gengur og þeim afleiðingum
sem slík þrákelkni getur haft í för
með sér. Henry Fonda leikur höfuð
Stamper-fjölskyldunnar sem á mik-
ið skóglendi sem hún nýtir af krafti
þrátt fyrir yfirstandandi verkfall
viðarhöggsmanna á svæðinu.
Hægri hönd hans er Paul Newman,
aðrir fjölskyldumeðlimir eru Ric-
hard Jaeckel og endurheimti
sonurinn, sem leikinn er af Michael
Sarrazin.
Það er ekki hlaupið að því að sjá
hvað Newman meinar með heildar-
myndinni en mörg smáatriði eru
listilega vel gerð. Persónumar og
ætlanir þeirra eru þokukenndar.
Einkum á þetta við um Fonda,
Remick og Newman. Bestu hlutar
Never Give An Inch er tvímæla-
laust barátta skógarhöggsmann-
anna við náttúmna, viðarhöggið
sjálft, þar sem menn eru líkastir
dvergum við hliðina á risavöxnum
viðarbolunum og eigin vinnuvélum.
Þá er dauðastríð Richard Jaeckel,
frelsaða bróðurins, einkar eftir-
minnilegt atriði. En hvers vegna
Stamper-amir leggja allt þetta á
sig kemur ekki nógu skýrt fram.
Tæpast til þess eins að éta, sofa
og halda slagnum áfram að morgni.
Neistaflug*
hryllingsmynd
The Possessed ★ V2
Leikstjóri: Jerry Thrope. Hand-
rit: John Sacret Young. Kvik-
myndataka: Charles G. Arnold.
Aðalleikendur: James Farentino,
Joan Hackett, Claudette Nevins,
Eugene Roche, Harrison Ford,
Ann Dusenberry, Diana Scarwid.
Bandarísk. Sjónvarpsmynd 1977.
WHV/Tefli 1987.71 min. Bönnuð
yngri en 16 ára.
í þessari rislitlu sjónvarpsmynd
gerist það helst að hæfileikum
nokkurra, þokkalegra leikara er
varpað á glæ, enda efniviðurinn
bjálfalegur með afbrigðum.
James Farentino leikur klerk sem
misst hefur trúna og fallið í ónáð
hjá drottni, sem skipar honum að
beijast gegn hinu illa uns hann fái
trúna aftur. Leggst nú prestur í
kvennafar og óreglu, að manni
skilst, en sögunni víkur til heima-
vistarskóla þar sem furðulegir
atburðir fara að gerast. Þar er engu
líkara en illir andar gangi Iausir.
Það kviknar í pappírum, glugga-
tjöldum, herbergjum, jafnvel
nemendum og kennurum. Er þá
leitað til klerksins útskúfaða sem
hér fær tækifæri til að hressa upp
á trúna.
Ekki hljómar nú þetta par gæfu-
iega og ekki eru efnistökin skárri.
En einn mikinn vísdóm nemur mað-
ur af fílmunni; ef djöfullinn er
særður út úr manneskju, sem hald-
in er slíku sníkjudýri, breytist hann
gjaman í baunaslubb og pappasaum
er hann tekur efnisform í útrekstr-
inum. Ekki ónýtur fróðleikur það!
En, sem fyrr segir, þá bregður hér
fyrir ágætum leikurum eins og Far-
entino, Hackett, Scarwid, meira að
segja Harrison Ford. Vonandi er
Possessed lægsti punkturinn á ferli
hans.
Vélhjóla-
riddarar
átakamynd
Knightriders ★ ★ V2
Leikstjóri og handrit: Gorge A.
Romero. Kvikmyndatökustjóri:
Michael Gornick. Aðalleikendur:
Ed Harris, Gary Lathi, Tom Sav-
ini, Amy Ingersoll, Patricia
Tallman, Christine Forrest.
Bandarísk, Laurel/United Film
Production 1981. WHV 1986.
Tefli 1987. 141 mín. Bönnuð
yngri en 12 ára.
Knightriders er nokkuð lunkið
og óvænt hliðarskref á löngum og
ströngum hryllingsmyndaferli eins
kunnasta hrollvekjuhöfunds sam-
tímans, Georges A. Romero, (Dawn
of the Dead, Night of The Living
Dead). Myndin fjallar um flokk
manna sem ferðast um landið með
sýningar á mótorhjólaburtreiðum
undir stjóm Eds Harris. Fyrirmynd-
imar sækir hann til sagnanna um
Arthúr konung og riddara hring-
borðsins og þykir orðið flestum í
hópnum sem hann sé farinn að taka
hlutina heldur alvarlega.
Efnið er vissulega frumlegt, að
maður tali ekki um þegar haft er
í huga að það er komið frá Rom-
ero. Knightriders er oftast frekar
áhugaverð en ógnarlangur sýning-
artími drepur hana niður. Myndin
er að vissu leyti uppgjör við hippa-
menningu undangenginna áratuga,
drauma þeirra, lífsskoðanir og
hegðun. Leikurinn er misjafn,
sveiflast frá gæðaleik niður í getu-
ieysi. Þessara mishæða gætir í allri
kvikmyndagerðinni, ekki síst leik-
stjóminni. Sjálfsagt verður Knight-
riders minnst fyrir það eitt að vera
forvitnilegur útúrdúr eftirtektar-
verðs leikstjóra.
FRAMHALDSÞÆTTIR
HVAR/HVENÆR
SjónvarpiA:
Fyrirmyndarfaðlr ...
Áframabraut ........
Heim f hreiðrið ....
Verið þér amlir, Chlps
Antilópan ..........
Góðl dátinn Svelk ..
Súrt og smtt .......
Áystunöf ...........
Við feðglnin .......
Fresno .............
Þrífmtlingarnlr ....
Austurbmlngarnir ....
Matlock ............
Derrick ............
...kl. 20.40
..kl. 19.00
kl. 20.45
kl. 21.55
kl. 18.55
kl.21.05
. kl. 18.55
... þnðjudagur ...kl. 22.10
kl. 19.30
...kl. 20.40
,...kl. 18.30
kl. 19.25
kl. 21.20
kl.21.15
StöA 2:
Mánudagurá miðnmttl .........laugardagur
Ættarveldlð .................laugardagur
Smldarlíf ...................laugardagur
Klassapfur ..................laugardagur
lllurfengur .................laugardagur
Brmður munu berjast .........laugardagur
Heimlllð .....................sunnudagur
Heilsubmllð ..................sunnudagur
Geimálfurlnn .................sunnudagur
Sherlock Holmes ..............sunnudagur
BennyHill ....................sunnudagur
Vísitölufjölskyldan ..........sunnudagur
Fjölskyldubönd ...............mánudagur
Heima ........................mánudagur
Dallas ................ .....mánudagur
Óvmntendalok .................mánudagur
Fimmtán ára ................þrlðjudagur
Miklabraut .................þriðjudagur
Létt spaug .................þrlðjudagur.
Hunter .....................þriðjudagur
Smygl ........
Morðgáta .....
Afbæíborg ....
Fomlrfjendur ...
King og Castle ..
Hvunndagshetja
Lucy Ball ....
HarveyMoon ....
Hasarleikur ..
.miðvikudagur
.miðvikudagur
..miðvikudagur
..miðvikudagur
„fimmtudagur
..föstudagur ...
..föstudagur ...
.föstudagur ...
..föstudagur ...
kl. 11.30
kl. 15.30
kl. 18.45
kl. 20.45
kl. 21.16
kl. 22.05
kl. 11.30
kl. 14.05
kl. 15.05
kl. 20.00
kl. 21.30
kl. 21.55
kl. 20.30
kl. 21.30
kl. 22.30
kl. 23.15
kl. 18.50
kl. 20.30
kl. 21.25
. kl.kl.
22.50
kl. 18.20
. kl. 20.30
...kl. 21.55
kl. 22.25
kl.21.10
kl. 18.15
kl. 18.45
kl. 20.30
..kl.21.55