Morgunblaðið - 22.01.1988, Qupperneq 1
VIKUniA 23. — 29. JANÚAR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1988
BLAÐ
Dýralífsmyndir
Þó menn greini á um sjónvarpsefni yfírleitt þá hafa
líklegast flestir gaman af sjónvarpsþáttum sem sýna
atferli dýra og þá helst þeim mun undarlega sem það
er. Stöð 2 sýnir á mánudaginn mynd þar sem sýnd eru
afrísk þefdýr, en fáum hefur tekist að kvikmynda þau
fram að þessu.
Sjónvarpið sýnir aftur á móti þætti frá öðrum heims-
hluta, frá Galapagoseyjum útaf strönd Suður-Ameríku,
en óvíða er dýralíf forvitnilegra en á Galapagoseyjum.
Þættimir um dýralíf á Galapagos eru á dagskrá á þriðju-
dögum.
NÍUBÍÓ
Stöð 2 hefur tekið upp þann
hátt að sýna bíómyndir klukk-
an níu á föstudögum og
laugardögum. Að sögn dag-
skrárgerðarmanna á Stöð 2
er verið að reyna að vekja
níubíóstemmningu sem felist
í því að fólk geti gengið að
því vísu að það sé bíó í sjón-
varpinu klukkan níu.
Á föstudaginn verður gaman-
myndin Þegar mamma kemur
í níubíói, en aðalhlutverk í
þeirri mynd leika Paul Michael
Glaser, Dee Wallace og Peggy
McKay. Myndin segir frá karl-
kyns íþróttaþjálfara sem
neyðist til að taka að sér hús-
móðurstörfín meðan eiginkon-
an er úti á vinnumarkaðnum.
Á laugardaginn er kvikmyndin
Vinstúlkur níubíómynd kvöldsins. Vinstúlkur segir frá tveim ungum stúlkum, Anne og Susan, og ólíkum framtí-
ðardraumum þeirra. Þær leigja saman Mð á Manhattan, en svo fer að Anne hittir mann sem hún ákveður
að deila kjörum með. Þrátt fyrir ólík hlutskipti helst með þeim góður vinskapur en Anne öfundar Susan þó
af sjálfstæði hennar og Susan öfundar Anne af öryggi hjónabandsins.
Sjónvarpsdagskrá bls. 2-14
Utvarpsdagskrá bls. 2-14
Skemmtistaðir bls. 3
Hvað er að gerast? bls. 3/6/7
Bíóin í borginni bls. 13
Framhaldsþættir bls. 13
Veitingahús bls. 9/11
Myndbönd bls. 13/16
Guðað á skjáinn bls. 16