Morgunblaðið - 22.01.1988, Side 13

Morgunblaðið - 22.01.1988, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1988 B 13 Bíóin í borginni BÍÓBORGIN Lögga til leigu ★ ★ Miðlungslögguþriller sem líður fyr- ir ofleik Minelli og vesældarlegan og ósannfærandi Reynolds. -sv. Á vaktinni ★ ★ ★ 1/2 Pottþétt skemmtun. Besta mynd Badham til þessa og það glansar af Dreyfuss í aðalhlutverkinu. -ai. Sagan furðulega ★ ★ ★ Feiknavel lukkuð ævintýramynd af gamla skólanum. Engar Spiel- berg-brellur hafðar í frammi og handrit Goldmans hvort tveggja fyndið og í anda myndskreyttu ævintýrabókanna. -sv. HÁSKÓLABÍÓ Öll sund lokuð ★ ★ ★ 1/2 Frábærlega vel gerður pólitískur þriller með Kevin Costner og Gene Hackman. -ai. STJÖRNUBÍÓ Roxanne Nýjasta gamanmyndin með Steve Martin en í henni leikur hann nú- tímaútgáfu af hinum langnefjaða Cyrano de Bergerac. Ishtar ★ ★ 1/2 Ofvaxin furðusmíð þar sem miklum hæfileikum er sólundað en mun meiri dollarafúlgu kastað á glæ. Bregður þó á nokkra spretti sem minna mann á hvers efni stóðu til. -sv. La Bamba ★ ★ ★ Heiðarleg, vel gerð leikin og upp- tekin mynd um þann merkistónlist- armann Ritchie Vaiens. Hann vann það kraftaverk með einungis ör- fáum lögum á örskömmum ferli að hefja latínskt rokk til vegs og virðingar. -sv. BÍÓHÓLLIN Allir í stuði ★ ★ 1/2 Já, tveir þumlar upp. Lunkin og skemmtileg gamanmynd frá Spiel- bergs-unganum Columbus. -ai. Undraferðin ★ ★ ★ Joe Dante (Gremlins) er hér aftur á ferðinni með lítið síðri skemmti- mynd sem er allt í senn bráðfyndin, spennandi og frábærlega vel unnin tæknilega. -sv. Stórkarlar Grínmynd framleidd af Ivan (Ghostbusters) Reitman um tvo stráka sem vilja komast áfram í lífinu. Sjúkraliðarnir } ★ V2 í myndum sem þessum er aðeins eitt markmið, að skemmta gestin- um, helst með því að skírskota til hans frumstæðustu hvata, kreista hláturinn frekar úr kviðarholinu en heilabúinu. -sv. Týndir drengir ★ ★ Gaman- rokk- unglingahrollvekja með ágætum leikarahópi og brell- um en innihaldið heldur klént. -ai. Skothylkið ★ ★ ★ V2 Þó svo að Skothylkiö sé ekki sú stórkostlega upplifun sem maður átti von á frá hendi meistara Kubricks er í henni að finna glæsi- leg myndskeið sem örugglega verða með því besta sem við sjáum á tjaldinu í ár. -sv. Leynilöggumúsin Basil ★ ★ ★ ★ Einhver alskemmtilegasta og vandaðasta teiknimynd sem hér hefur verið sýnd lengi. (Sýnd um helgar.) -ai. Mjallhvít og dvergarnir sjö ★ ★ ★ ★ Fyrsta teiknimyndin í fullri lengd; tímamótaverk, klassík, gimsteinn. (Sýnd um helgar.) -ai. REGNBOGINN Síðasti keisarinn ★ ★ ★ 1/2 Epískt stórvirki. Efnið og kvik- myndagerðin með ólíkindum margslungin. Síðasti keisarinn er næsta óaðfinnanleg að allri gerð og hefur kvikmyndaárið 1988 með glæsibrag. -sv. Að tjaldabaki ★ ★ Það er engu líkara en Bretar ráði ekki við myndir af þeirri stærðar- gráðu sem hér um ræðir. Heims- frægur þriller Forsytes þynnist út í bragðlausa frásögu sem ekkert skilur eftir sig. Dæmigerð meðal- mennska á öllum sviðum. -sv. í djörfum dansi ★ ★ ★ Hressileg og drífandi mynd, keyrð áfram af líflegri tónlist sjöunda áratugarins en þó enn frekar af dansi sem ætti jafnvel að kveikja líf með dauðyflum! -sv. Hinir vammlausu ★ ★ ★ ★ Gangstermynd níunda áratugarins með úrvalsliði leikara og kvik- myndagerðarmanna. Reynið að missa ekki af þessari. -ai. LAUGARÁSBÍÓ Loðinbarði. Framhaldsmynd Michael J. Fox myndarinnar um menntskæling sem verður úlfur. Jaws — Hefndin. Síðasta ókindarmyndin er jafn slöpp og sú fyrsta var góð. En hér gleður augað hallærislegasta ástarævintýri síðan 1700 og súr- kál. -sv. Stórfótur ★ ★ 1/2 Nú er það ekki lengur Snjómaður- inn hræðilegi heldur huggulegi eftir að Spielberg klófesti hann. -ai. Draumalandið ★ ★ ★ Leikstjórinn Dan Bluth er uppalinn og útskrifaður frá Disney enda ber myndin þess glögg merki. Einkar vönduð teiknimyndagerð en efnis- lega þunn. Það vekur engan höfuðverk hjá yngstu kynslóðinni sem naut sín hressilega á sýning- unni. -sv. Myndbönd Sæbjörn Valdimarsson Úlfar loftsins í Austur- vegi ævintýri AIRWOLF: THE STAVOGRAD INCIDENT >/2 Leikstjóri Ken Jubenvill. Handrit Sydney Burrows. Aðalleikendur Barry Van Dyke, Geraint Wyn Davies; Michelle Scarabelli, Anthony Sherwood. Bandarísk sjónvarpsmynd. Uni- versal/Laugarásbíó 1987.83 mín. Ein nokkurra sjónvarpsmynda sem gerðar hafa verið eftir miðl- ungsmyndinni Airwolf og óskap- lega léleg. En Airwolf er þyrla, sem er flestum þeim kostum búin sem prýtt geta slíkt farartæki og gott betur. Áhöfnin ekki síðri, þtjár bandarískar ofurhetjur sem dunda við að bjarga heiminum. Að þessu sinni koma þær einsog englar af himnum sendir til að afstýra slysi a la Tsjemóbyl. Er í afkáralélegum teiknimynda- stíl, á köflum svo barnalega vitlaus að má hafa nokkurt gaman af. T.d. tala hér Sovétmenn ensku með „hollywood-rússneskuhreim" (utan einn aldraður bóndi!), en hann gleymist yfirleitt líka. Einn garp- anna, sá sem stjórna á í landi, bregður sér í „hættuferð“ austur fyrir tjaldið sjálfsagt til að koma félögunum til hjálpar. Það gleymist hinsvegar að fá honum eitthvert verkefni í handritinu svo manng- armurinn flækist um sviðið einsog höfuðsóttarrolla. O.s.frv, o.s.frv. FRAMHALDSÞÆTTIR Hvar/Hvenær Sjónvarpið: Fyrirmyndarfaðlr kl.Z0.45 Áframabraut kl. 19.05 Paradís skotlð á frest sunnudagur kl. 21.45 George og Mlldred .... mánudagur kl. 19.30 Háskaslóðlr ,.kl. 18.25 Arfur Guldenburgs ... þriðjudagur kl. 22.20 Llstmunasalinn miðvikudagur kl. 22.45 Anna og fólagar flmmtudagur kl. 18.30 Austurbælngar fimmtudagur kl. 19.25 Matlock kl. 21.40 Staupastelnn kl. 19.00 Mannavelðar kl. 21.25 Stöð 2: ÆttarveldlA ...y laugardagur kl. 15.35 Spenser ,.kl. 22.55 Gelmálfurinn kl. 12.05 Hooperman kl. 20.10 Lagakrókar kl. 22.50 Hinlrvammlausu kl. 23.35 Fjölskyldubönd kl. 18.50 Vogunvlnnur kl. 21.10 Dallas kl. 22.00 Ótrúlegt en satt kl. 20.30 Hunter kl. 21.55 Kaldlr krakkar kl. 18.25 Af bae f bora ,,kl. 18.50 Undlrhelmar Miaml miövikudagur kl. 20.30 Óvænt endalok kl. 21.40 Shaka Zulu kl. 22.05 BJargvœtturlnn kl. 20.30 Valdastjórinn kl. 17.65 Bjartasta vonln kl. 20.30 Hasarlelkur lcl. 22.30 Kveiktu frekar á sjónvarpinu. Fær hálfa stjörnu sem skólabókardæmi um lágkúm. Gæti valdið lukku sem skopmynd í Sovét. Óláns- gripir gamanmynd DETECTIVE SCHOOL DROPOUTS^'/2 Leikstj. Philip Ottoni. Handrit Lorin Dreyfuss og David Lands- berg. Framleiðendur Menahem Golan og Yoran Globus.Cannon 1986. Rank Video/Háskólabíó 1987. 87 mín. Miller, lélegasti leynilögreglu- maður veraldar, tekur í einkaspæj- aralæri hálfvitann Wilson, sem hefur það vafasama orð á sér að þylq'a slappasti sölumaður heims. Þeir skussamir lenda síðan í harðvítugu Mafíustríði og liggur leið þeirra fyrst til_ Rómar og síðan vítt og breitt um Ítalíu. Gamaldags eltingaleiks-gaman- mynd, þar sem þyrlað er inní atburðarásina sem flestum auka- persónum, sem eiga að vera spaugilegar (en em það ekki), og umhverfið er hið ásjálegasta, en leikurinn berst m.a. til Pisa og Fen- eyja. Þeim Cannon-mönnum virðast engin takmörk sett hvað hug- myndaflugið snertir, allavega er erfítt að ímynda sér að nokkuð annað kvikmyndaver hafí séð sér _ nokkra hagnaðarvon í framleiðslu á borð við þessa. En það má vera að myndin sé gerð fyrir Ítalíumark- að. OOOOO Alltaf á laugardögum! Upplýsingasími: 685111

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.