Morgunblaðið - 08.03.1988, Blaðsíða 2
2 B
flUraunfrlaiiib /ÍÞRÓTTIR ÞRWJUDAGUR 8. MARZ 1988
KNATTSPYRNA
KÖRFUBOLTI
FIFA óttasl eydni
Fyrirskipar leikmönnum að leika með legghlífar
Mt«M
Morgunblaðiö/Skapti Hallgtimsson
Ásgelr Sigurvlnsson og Atli Eðvaldsson verða að leika með legghlífar
þegar þeir leika í heimsmeistarakeppninni í knattspymu.
ALÞJÓÐA knattspyrnusam-
bandið, FIFA, hefur fyrirskipað
að allir knattspyrnumenn sem
leika í keppni á vegun sam-
bandsins, leiki með legghlrfar.
Þessa er gert þar sem FIFA
óttast eyðnissmit á knatt-
spyrnuvöllum.
llir leikmenn sem leika í
heimsmeistarakeppninni
verða því að leika með legghlífar.
Forráðamenn FIFA hafa sagt, að
þar sem leikmenn slasist oft illa á
leggjum, sé hætta að blóð berist á
milli leikmanna. Þá er varað við
svömpum, sem eru oft notaðir til
að stijúka blóð af leikmönnum.
Svampamir er notaðir oftar en einu
sinni í leik.
„Mér finnst ekki rétt að skylda leik-
menn til að nota legghlífar. Það er
ekki miklil hætta á að smitast á
knattspymuvelli," sagði Ásgeir Sig-
urvinsson, í samtali við Morgun-
blaðið í tilefni af þessari ákvörðun
alþjóða knattspymusambandsins,
en eins og menn vita þá leikur
Ásgeir sjaldan með legghlífar.
Hann er yfirleitt með sokkana niðri
og leggina bera. „Ég verð að fara
eftir þessum reglum. Verð að fá
mér þunnt pappaspjald."
Eyðnisótti hefur einnig komið fram
í öðrum íþróttagreinum. Þegar Mike
Tyson og Larry Holmes börðust um
heimsmeistaratitilinn í hnefaleikum
á dögunum, þá voru tímaverðir og
dómarar með gúmmíhanska.
Læknar hafa sagt að það sé ekki
mikil hætta á að leikmenn smitist
í knattspymu, en þeir segja að allur
sé varinn góður.
HANDKNATTLEIKUR
Japanir spila tvo
leiki í Eyjum
Japanska landsliðið mætir2. deild-
arliði ÍBV ívináttuleik 2. apríl
JAPANIR koma hingað til
lands 1. aprfl og spila fjóra
leiki. Þeir spila þrjá leiki við
íslenska landsliðið og síðan
æfingaleik við úrvaislið ÍBV.
Japanir mæta ÍBV í Eyjum
laugardaginn 2. janúar og
síðan leika þeir við íslenska lands-
liðið 4. apríl einnig í Vestmanna-
eyjum. 5. og 6. apríl leika þeir
við íslenska landsliðið i Laugar-
dalshöll.
Þessir leikir eru liður í undirbún-
ingi beggja þjóðanna fyrir
Ólympíuleikana í Seoul í Suður-
Kóreu í september, en liðin leika
þar sitt í hvoram riðli. Japanir
hafa góðu liði á að skipa og leika
ekki ósvipaðan handknattleik og
Suður-Kóreumenn. Þeir urðu í
öðru sæti í Asíu-riðlinum á eftir
Suður-Kóreumönnum.
íslenska landsliðið sem mætir
Japan verður að öllum líkindum
aðeins skipað leikmönnum sem
spila hér á landi. Ekki er talið
ráðlegt að fá íslensku leikmennina
sem spila erlendis því mjög mikil-
vægir leikir verða á sama tíma
hjá félagsliðum þeirra.
Aftur
jafnthjá
ÍR og UMFG
ÍR áfrarn á fleiri
stigum skoruðum
á útivelli
Kristinn
Benediktsson
skrifarfrá
Grindavik
Grindavík og ÍR gerðu aftur
jafntefli, 68:68, í seinni leik
liðanna i 8-liða úrslitum bikar-
keppni KKÍ í Grindavík í gær-
kvöldi. Þetta var
sannkallaður bar-
áttuleikur þar sem
barist var á fullu
allan tímann. Á
síðustu sekúndunni skoraðu
Grindvíkingar körfu sem var dæmd
af og við það tiylltust leikmenn og
áhorfendur. ÍR-ingar fögnuðu því
jafntefli þýddi að þeir komust áfram
á fleiri stigum skoraðum á útivelli.
Grindvíkingar létu óánægju _ sína
óspart í ljós við dómarana Ómar
Scheving og Kristinn Albertsson,
en þeir vora alveg vissir um að
síðasta karfan, sem Hjálmar
Hailgrímsson skoraði, hafði komið
of seint. f hávaðanum heyrðist ekki
í klukkunni þegar flautað var af.
Grindvfkingar byijuðu leikinn vel
en misstu IR-inga framúr rétt fyrir
lok fyrri hálfleiks. í seinni hálfleik
leiddi ÍR með fjögurra til tíu stiga
mun þar til á síðustu mfnútunni að
Steinþór Helgason jafnaði fyrir
Grindavík, 68:68, eftir að hafa sto-
lið boltanum. Síðustu sekúndumar
var mikill darraðardans en allt kom
fyrir ekki.
Stig UMFG: Steinþór Helgason 15, Hjálm-
ar Hallgrímsson 14, Guðmundur Bragason
11, Rúnar Árnason 8, Jón Páll Haraldsson
8, Sveinbjöm Sigurðsson 5, Guðlaugur
Jónsson 5 og Eyjólfur Guðlaugsson 2.
Stig ÍR: Karl Guðlaugsson 20, Ragnar
Torfason 15, Vignir Hilmarsson 9, Jón Öm
Guðmundsson 9, Jóhannes Sveinsson 8 og
Bragi Reynisson 7.
KR-ingar tryggðu sér sæti í undan-
úrslitum með þvf að vinna Val ör-
ugglega, 79:64, í seinni leik liðanna
að Hliðarenda á sunnudaginn og
Haukar unnu IJMFN-B, 100:77.
Njarðvík-A spilar seinni leik sinn
við Breiðablik í kvöld og má telja
nokkuð öraggt að þeir tryggi sér
sæti í undanúrslitum ásamt KR, ÍR
og Haukum.
Hef aldrei þreytt _
dómarapróf hjá HSÍ
EftírViggó
Sigurðsson
ÉG verð að svara furðulegum
skrifum þeirra Sigurðar Baldurs-
sonar og Rögnvalds Erlingssonar
í Morgunblaðið og sem etið er
hrátt upp í DV 7. mars.
Staðreyndin er sú, að ég hef
hvorki fyrr né síðar þreytt dóm-
arapróf eða setið námskeið um
handknattleiksreglur á vegum
HSÍ. Fyrir um þremur árum bauð
stjóm HSÍ þá starfandi landsliðs-
þjálfuram til veislu ásamt mökum.
I miðri veislunni stransaði Kjartan
Steinbach inn með nokkrar spum-
ingar varðandi handknattleiks-
reglur í formi krossaprófs.
Var þetta sem hvert annað
skemmtiatriði, enda enginn við-
staddra, hvorki Kjartan sjálfur né
aðrir undir það búnir að þreyta
próf á {'essari stundu. Hvorki Sig-
urður Baldursson né Rögnvaldur
Erlingsson voru í þessu hófi.
Það, að Kjartan Steinbach skuli
nú sýna þeim féiögum þessa
Vlggó Slgurðsson.
pappíra sem einhvem nýjan sann-
leika um kunnáttu mína í reglum
handknattleiksins, er stór brand-
ari og sýnir vel rökþrot þessarra
manna þegar þeir era gagnrýndir.
Persónulegt skítkast á mig frá
þessum mönnum læt ég ekki á
mig fá. Grein Rögnvaldar og Sig-
urðar er vart svaraverð nema
dylgjur um að ég eigi þátt í hvarfi
myndbandsspólu frá sjónvarpinu
er högg fyrir neðan beltisstað og
lýsa þær þessum mönnum og
þeírra innræti betur en mörg orð.
Það er allt f lagi að svara gagn-
rýni, en hún verður að vera heiðar-
leg.
Ég hef stundað handknattleik í
20 ár og spilað með félagsliðum
í þremur löndum. Ég te) mig ekki
þurfa aðstoð Rögnvaldar, Sigurð-
ar eða Kjartans til að skilja reglur
f handknattleik.
Þegar ég leita ráða þá leita ég
til manna með fagþekkingu. Þeir
era til. Að lokum, eina námskeið-
ið sem ég hef setið hjá HSÍ er
A-námskeið fyrir handknattleiks-
þjálfara og hef ég vottfest skjal
upp á það að ég hafi staðist prófið.
Höfundur er þjálfari 1. deildarliðs
FH f handknattleik.
JÚDÓ / ÍSLANDSMÓT UNGLINGA
Morgunblaöið/Guðmundur Svansson
Stúlkumar þijár úr KA sem kepptu á mótinu um helgina, Fjóla Guðnadótt-
ir, Svala Björgvinsdóttir og Lilja Guðnadóttir.
KA-menn fengu 13
gullverðlaun af 21
KA-menn gerðu það gott á ís-
landsmóti unglinga í júdó sem
haldið var á Akureyri um helgina.
Þeir fengu þar 13 af 21 gullverð-
launum og alls 35
verðlaun.
Mótið tókst mjög vel
í alla staði. Kepp-
endur vora alls 90,
og þar af átti KA 36.
Sigur Freys Gauta Sigmundssonar,
Frá Reyni
Éirikssyni
áAkureyri
KA, í +70 kg. flokki pilta, 17 ára
og yngri, vakti mikla athygli. Það
tók hann einungis 20 sekúndur að
tryggja sér íslandsmeistaratitilinn.
Fýrri glímu sína vann hann á 7
sekúndum og þá síðari á 13 sekúnd-
um! Freyr Gauti tók sfðan einnig
þátt í keppni 21 árs og yngri, í +71
kg. flokki, og varð þar í öðra sæti.
■ Úrslit/B 16.