Morgunblaðið - 08.03.1988, Blaðsíða 3
fHorgtwblaftift /ÍÞRÓTTIR ÞRWJUDAGUR 8. MARZ 1988
B 3
SKÍÐI / HEIMSBIKARINN
Orkueydsla f Júdó mlóað vlð meAal
mann er um 900 kalóríur ð klukku-
stund.
eða Hnurit um orkueyðslu. Rétt
er að minna á það aftur, að
líkaminn eyðir stöðugt orku,
jafnvel þegar hann er í algjörri
hvíld. Orkueyðsla, bæði í hvíld
og við íþróttaiðkun, fer eftir
aldri mannsins, þyngd og hæð,
en stundum er reiknað með 1200
— 1500 kaloríum á sólarhring
hjá konum og 1500 — 1800
kaloríum á sólarhring hjá karl-
mönnum í algjörri hvíld. Hitinn
Rétt er að minna á að þetta
eru meðalgildi og að mikil frá-
vik eru möguleg eftir því hve
hægt eða hratt er gengið til
leiks. Þeir, sem ætla að losna
við aukakíló með trimmi, geta
reiknað með þvi að þurfa að
eyða 7000 kaloríum til að losna
við 1 kg af fítuvef.
Jóhann Heiðar
Jóhannsson
HREYSTI
Hvemig er orkueyðslan mæld?
Hvað þarf að trimma mikið til að losna við aukakílóin?
síðustu pistlum hefur verið
rætt um orkuvinnslu líkam-
ans. Nú er mál til komið að
skoða orkueyðslu og orkuþörf
við ýmsar athafnir.
Öll starfsemi líkamans krefst
orku. Þeim mun
meiri sem áreynslan
er, þeim mun meiri
er orkuþörfin. Orku-
notkun líkamans í
hvild, við störf eða
við íþróttaiðkanir
má mæla eða meta.
Mælingar á orku-
notkun byggja á því
að hitamyndun
líkamans og súrefn-
isnotkun eru í hlut-
falli við áreynslu og
orkueyðslu. Þannig
má mæla hve mikil
hitamyndunin er hjá
mönnum við íþrótta-
iðkun eða starf og
reikna síðan út
hversu mikil orka
hefur verið notuð.
Þetta er erfíð og dýr
mæling, því að mað-
urinn þarf að vera
inni i hitaeinangr-
uðu búri meðan
mælingar fara fram.
Slíkt er því sjaldan
gert. Þess i stað er algengara
að mæla súrefnisnotkun líka-
mans við ýmis konar áreynslu
og reikna út hver orkueyðslan
hefur verið, því að orkuvinnslu
(bruna) i líkamanum fylgir súr-
efnisnotkun eins og nefnt hefur
verið í fyrri pistlum. Þessar súr-
efnismæiingar eru þó alis ekki
einfaldar og við útreikninga á
orkueyðslu þarf að áætla hlut-
föll efnanna, þ.e. fítu og sykr-
unga, sem orkuna gáfu, til þess
að geta reiknað út orkutölur.
Niðurbrot á fituefnum krefst til
dæmis talsvert meira súrefnis
en niðurbrot á sykrungum. Oft
er reiknað með þvi að orkueyðsi-
an sé um 50 kaloriur (kcal) fyr-
ir hveija 10 lítra af súrefni sem
líkaminn notar og að sú orka
komi úr um það bil 8 grömmum
af sykrungum og um 2 grömm-
um af fitu. Þessi orkueyðsla
samsvarar um 10 mínútna
gönguferð hjá grannvöxnum
manni. Eftir siíkar súrefnismæl-
ingar við mismunandi athafnir
eða íþróttir má setja upp töflur
í umhverfinu hefur einnig áhrif
á orkueyðsluna, hvort sem er í
hvíld eða við áreynslu. Þannig
verður orkueyðslan meiri þegar
kalt er, en minni þegar hlýtt er.
Tafla um orkueyðslu getur
OrkueyAsla vlA IþróttalAkun
Orkueyðsla iþróttamanna er mjög mismunandí.
Talið er að fimleikastúlka eyði um 600 kalorium á
klukkustund.
litið út á eftirfarandi hátt. Mið-
aða er við meðalmann í meðal
holdum og tölurnar em kaloríur (kcal) á klukkustund.
Badminton 450
Blak 350
Borðtennis 300
Dans, rólegur 250
hraður 600
Fjallganga 500
Ganga, róleg 350
hröð 600
Garðvinna, létt 300
Hestamennska, brokk 450
Moka skít 600
Hjólreiðar, rólegar 450
keppni 800
Júdó 900
Laxveiðar 250
ieikfimi, létt 300
erfið 600
Matseld 200
Ritstörf 120
Sipp 700
Sjónvarpsgláp 95
Skokk, rólegt 500
rösklegt 800
Tækjaleikfimi 550
Veggbolti 600
Reuter
Brigltto Oertli sigraði í bruni í Aspen á laugardaginn og er nú efst í heimsbikamum. Hér er hún á fullri ferð í brautinni.
Roswitha Steinerendaði ferilinn með sigri
IMykanen í
sérflokki
SVISSNESKA stúlkan Brigitte
Oertli sigraði í bruni kvenna í
heimsbikarkeppninni í Aspen á
laugardaginn og hefur nú tekið
forystu íheimsbikarnum sam-
anlagt. Á sunnudaginn var
keppt í svigi og þar varð Ros-
witha Steiner frá Austurríki
hlutskörpust.
Brigitte Oertli vann á laugar-
daginn í fyrsta sinn brun-
keppni í sjö ár og skaust þar með
upp fyrir löndu sína, Michelu Fig-
ini, í keppninni samanlagt. Oertli
fór brautina, sem var mjög erfið, á
1:22.83 mínútum og var hálfri sek-
úndu á undan Reginu Mösenlechner
frá Vestur-Þýskalandi sem varð
önnur. Heidi Zeller frá Sviss varð
þriðja á 1:23.21 mínútu.
„ Lánið er fallvallt í skíðaíþrótt-
inni. í gær sá ég þrjár vinkonur
mínar falla illa í æfingaferð í braut-
inni, en í dag er ég á toppnum,“
sagði Oertli eftir sigurinn á laugár-
daginn. Svissnesku stúlkurnar,
Skíðastökkvarinn fínnski Matti Nykanen, sem vann
þrenn gullverðlaun á Ólympíuleikunum í Calgary,
hefur mikla yfirburði í heimsbikarnum samanlagt eft-
ir mót helgarinnar. Hann sigraði bæði í stökki af 90
m palli á laugardag sunnudaginn. Keppt var í Lahti
í Finnlandi.
Nykanen hefur nú 270 stig og er 107 stigum á und-
an næsta keppenda sem er Pavel Ploc frá Tékkósló-
vakíu. Yiri Parma einnig frá Tékkóslóvakíu er þriðji
með 120 stig.
Mattl Nykanen hefur haft mikia yfírburði í vetur.
Vreni Schneider, Maria Walliser og
Beatrice Gafner, féllu allar illa í
brautinni á föstudaginn. Þær urðu
allar fyrir meiðslum og koma líklega
ekki til með að taka þátt í fleiri
mótum í heimsbikamum í vetur.
Austurríska stúlkan Roswitha
Steiner, sem hefur lýst því yfír að
hún ætli að hætta eftir þetta keppn-
istímabil og gerast bankastarfs-
maður,- sigraði í síðustu svigkeppni
heimsbikarsins í vetur á sunnudag-
inn. Steiner er 25 ára og vann
heimsbikarinn í svigi 1986.
Steiner fór brautina á _ 1:16.41
mínútum. Antia Wachter, Ólympíu-
meistari í alpatvíkeppni, varð önnur
á 1:17.05 og Monika Maierhofer
þriðja á 1:17.32 mínútum. Þær eru
allar frá Austurríki.
Aðeins 15 stúlkur af 59 komust
báðar umferðimar klakklaust og
er það met í heimsbikarkeppninni.
Margar stúlkur sögðu að það hafi
verið nánast útilokað að komast í
takt við brautina.
■ Úrslit/B15
Reuter
Roswitha Stelner frá Austurríki
sigraði í síðustu svigkeppni vetrarins.
Hún hefur ákveðið að leggja skíðin á
hilluna eftir þetta keppnistímabil.
SKÍÐI / STÖKK
Oertli sigraði í bruni
ogernú efst
í heimsbikamum