Morgunblaðið - 08.03.1988, Blaðsíða 4
4 B
?Bor9imbIaM& /ÍÞRÓ7TIR ÞRHXWDAGUR 8. MARZ 1988
NBA-BOLTINN
■ RICKEY Green, Utah, skor-
aði 5.000.000. stigið í NBA-deild-
inni frá upphafi með 3-stiga körfu
á lokasekúndu 3. hluta leiksins.
Boltinn sem notaður var í leiknum
verður nú settur á körfuboltasafnið
í Springfield.
■ ÁHORFENDUR flykkjast á
leiki í NBA-deildinni og víst er að
enn eitt aðsóknarmetið verður sleg-
ið í vetur. Detroit Pistons slær
öllum öðrum liðum við, því þeir eru
með tæplega 26.000 manns á leik
að meðaltali og á dögunum sáu
61.893 Detroit vinna sigur á Bos-
ton, 125—108, í Silverdome-höll-
inni í Pontiac, Michigan. Nýtt
met og gamla metið áttu þeir líka,
en það var sett í fyrra í leik gegn
Philadelphia, 52.745 áhorfendur.
■ ÞÓTT margir vilji meina að
Houston hafi grætt á leikmanna-
skiptunum víð Golden State, þegar
þeir seldu Ralph Sampson og
Steve Harris en fengu „Sleepy“
Floyd og Joe Barry Carrol, þá
er George Karl, þjálfari Golden
State, ekki sammála: „Þetta er lið
Sampsons og þegar við höfum náð
að stilla strengina þá mega hin lið-
in fara að vara sig.“
■ ÞEGAR Larry Bird vann 3-
stiga keppnina á dögunum, hljóp
félagi hans úr Boston, Kevin
McHale, á undan honum að bolta-
grindunum og raðaði upp boltunum
þannig að þeir sneru rétt, þ.e. saum-
arnir þvert á hendina á Larry, eins
og hann vill hafa það!! Eftir keppn-
ina var Larry spurður hvort hann
hefði ekki látið McHale hafa eitt-
hvað af verðlaunapeningunum.
Hann tautaði eitthvað fyrir munni
sér sem enginn skildi og sagði svo:
„Ég tók i hendina á honum!!“
Dale Ellls sést hér skora fyrir Seattle.
hreinn sparnaður
* P^vofeul
bclrp 3Si
pulver Julver
CfcWmask.f.mr**,
Lokaslagurinn
eraðhefjast
NÚ þegar síga fer á seinni hlut-
ann í NBA-deildarkeppninni er
ekki úr vegi að líta aðeins á
stöðuna, spá í spilin, og veita
fyrir sér hvaða lið komast í
úrslitakeppnina.
Austurdeildin:
Boston er þar með forystu og Larry
Bird og félagar eru ekki líklegir til
að láta hana af hendi.
Detroit er í öðru sæti og að flestra.
dómi eina liðið
Einar ásamt Atlanta, sem
Bollason gæti ógnað Boston
skrifar eða Lakers í úrslit-
unum. Hörkulið með
sterka varamenn sem gætu riðið
baggamuninn þegar meiðsli fara
að hrjá liðin undir lok vertíðar.
Atlanta og Chicago beijast harðri
baráttu um 3. sætið og ekki útséð
um hvemig þeirri baráttu lyktar.
Við spáum því að Atlanta hafi það.
Milwaukee hefur átt í erfiðleikum
en þeir halda sennilega 5. sætinu.
Tvö ung og efnileg lið beijast hart
um 6. sætið, Indiana með Chuck
Person, Vem Flemming o.fl. og
Cleveland með Brad Daugherty
sem sinn besta mann. Svo sannar-
lega lið framtíðarinnar.
New York, Philadelphia og Was-
hington bítast svo um 8. sætið en
ég held að Charles Barkley og fé-
lagar muni hafa það en það verður
ekki átakalaust. Bæði New York
og Washington em í uppsveiflu.
Leikirnir í 1. umferð úrslitakeppn-
innar gætu þá orðið:
Boston — Philadelphia
Detroit — Cleveland
Atlanta — Indiana
Chicago — Milwaukee
Við spáum því að þau 4 lið sem
halda áfram í 2. umferð verði: Bos-
ton, Detroit, Atlanta og Chicago.
Vesturdeildin:
Los Angeles Lakers em þar með
yfirburðaforystu og engin von til
þess að þeir láti hana af hendi enda
ekki við „niennska" menn að eiga
þar sem þeir Magic Johnson og
félagar em. Annars skín stjarna
Byrons Scott skært núna og hann
hefur aldrei verið betri.
I öðm sæti verður Dallas og jafn-
framt ömggur sigurvegari mið-
vesturriðilsins. Jafnt og skemmti-
legt lið, sem stefnir ömgglega að
því að láta vonbrigði sl. árs ekki
endurtaka sig en þá vom þeir slegn-
ir mjög óvænt út úr 1. umferð úr-
slitakeppninnar af Seattle.
Næst kemur Portland með þá
Clyde Drexler, Kiki Vandeweghe
og Steve Johnson sem aðalmenn,
skemmtilegt lið sem gæti komið á
óvart í úrslitunum.
Fast á hæla þeirra koma svo Den-
ver, Houston og Seattle. Ekki
gott að segja í hvaða röð þau lenda
að lokum en við spáum þessari röð.
Denver hefur sýnt mestar framfarir
allra liða í deildinni frá sl. vetri og
Houston með sitt nýja lið er í stöð-
ugri sókn. Þá er Seattle ekki árenni-
legt með þrístirnið: Dale Ellis, Xavi-
er McDaniel og Tom Chambers.
Utah spáum við 7. sæti í deildinni
og Pétri Guðmundssyni og félögum
í San Antonio því 8.
Þessi lið myndu þá spila saman í
1. umferð:
Los Angeles — San Antonio
Dallas — Utah
Portland — Seattle
Denver — Houston
Öruggt má telja að Los Angeles
komist áfram í 2. umferð (3—0) og
sennilega Dallas en útilokað er að
spá með neinni vissu um hin 2 liðin.
Við skulum þó segja að það verði
Portland og Denver svona bara fyr-
ir „vin minn“ Fat Lever!!
Hvað er Sampson að hugsa á bekknum hjá Houston?
HANDKNATTLEIKUR
Fram áfram
í bikamum
Fram sigraði ÍBV í 4 liða úrslit-
um bikarkeppninnar. Leikurinn
endaði 27:17. Leikurinn var jafn í
fyrri hálfleik og var staðan í leik-
hléi 11:10 fyrir Fram.
í seinni hálfleik var úthaldið a'þrot-
um hjá ÍBV og Framliðið vann ör-
uggan sigur.
Markahæstar hjá ÍBV voru Stef-
anía 5, Andrea og Ingibjörg 4 mörk
hvor.
Hjá Fram skoraði Jóhanna mest eða
5 mörk. Næstar henni voru Guðríð-
ur, Ama og Hafdís með 5 mörk
hver.