Morgunblaðið - 08.03.1988, Side 5
PgrgnnMatiib /ÍÞRÓTTIR ÞRŒUUDAGUR 8. MARZ 1988
B 5
FYRIRMYND
Uppgangurjúdóíþróttinnar á Akureyri gífurlegur undanfarin ár
Unnið er hljóðalaust og verkin látin tala
Glæsiiegur árangur þrátt fyrir „hörmulega“ æfíngaaðstöðu
Ahugamennska er orð sem
á stundum virðist ekki
lengur til í orðabókum íslend-
inga. í það minnsta virðast
margir æ meira hugsa um pen-
inga eða aðra umbun í einhvetju
formi þegar þátt-
taka í iþróttum er
annars vegar, þrátt
fyrir að slíkt sé ólög-
legt skv. áhuga-
mannareglum
íslenskra sérsam-
banda.
En það er önnur
saga sem ég hyggst
gera að umræðuefni
hér og hrópleg and-
staða þess sem
nefnt er í upphafs-
orðunum. Norður á
Akureyri tók ungur
maður, Jón Óðinn
Óðinsson, sig til fyr-
ir nokkrum árum,
og ákvað að hefja
júdóíþróttina til
vegs og virðingar í
bænum. Nánast
einn síns liðs hefur
honum tekist þetta
ætlunarverk sitt —
og það fyrir all
nokkru reyndar, en
um helgina uppskar
hann enn einu sinni
laun erfiðis síns, er
íslandsmót unglinga
var haldið í gömlu
íþróttaskemmunni á
en ekki er allt búið enn. Jón
Óðinn bætir nefnilega við: „Það
hefur gengið mjög illa að fá
fólk til að starfa í stjóm júdó-
deildar og hef ég séð um þá
hlið málsins ásamt þjálfuninni,
norður þar. Strákamir hans
Jóns Óðins hrepptu 13 af 21
guilverðlaunum sem barist var
um.
Þegar ég var að alast upp á
Akureyri fyrir nokkmm árum
vom ekki margir sem iðkuðu
júdóíþróttina; ég man eftir
Hjalta frænda mínum málara
og sonum hans, og einhveijir
fleiri vom víst í þessu með þeim.
En eins og Jón Óðinn segir (
samtali við Morgunblaðið
síðstliðinn fimmtudagþá byijaði
hann að æfa 1982, „en þá var
mikið af eldri strákum í júdóinu
seiíi flestir vom að hætta og
eftir aðeins eitt ár var ég orðinn
sá eini sem æfði. Ég ákvað að
Allt í Öllu
Jón Óðinn Óðinsson er þjálfari og stjórn júdódeild-
ar KA á Akureyri.
Oddeyri svo maður hefur haft í nógu að
snúast.“ Skyldi engan undra,
þó nóg sé að gera.
Hann hefur lagt sig allan í verk
sitt, svo mjög að mörgum hefur
á köflum blöskrað. Hann hætti
að vinna um tíma til að geta
helgað sig þjálfuninni alfarið.
Og kunn er sú saga að þegar
móðir þjálfarans _ og stjómar-
mannsins Jóns Óðins fór að
kvarta yfír háum símareikning-
um á heimili sínu vegna vafst-
urs sonarins í júdóinu var hún
umsvifalaust gerð að gjaldkera
júdódeildarinnar, og gat því auð-
vitað ekki kvartað lengur!
Jón Óðinn nefnir í fyrrnefndu
samtali að æfingaaðstaða júdó-
manna á Akureyri sé hörmuleg.
Hlaðin verAlaunum
Frlður flokkur KA-manna eftir góðan árangur á íslandsmótinu fyrir réttu
ári. Þeir komu þá, sáu og sigruðu í yngri flokkunum.
þetta gæti ekki gengið og fór
því að hvetja unga krakka til
að æfa og tók að mér að stjóma
æfíngum." Jón Óðinn segir enn-
fremur að þátttakan hafi ekki
verið mikil í byijun, en um 70
krakkar æfi nú að staðaldri.
„Krökkunum er skipt í þrjá
flokka og sé ég um þjálfun
þeirra allra og hef gert síðan
19F3.“
Allir sjá að það er gífurleg vinna
að sjá um þjálfun 70 manns —
Það hefur þó ekki komið í veg
fyrir að nemendur hans hafa náð
árangri. Hann hefur sýnt að vilji
og áhugi á verkefninu geta kom-
ið mönnum langt og að sú tíð
er ekki liðin að menn nenni að
leggja mikið á sig nema fyrir
umbun ! formi veraldlegra verð-
mæta. Starfið er glæsilegt og
mætti margur taka Jón Óðin
Óðinsson sér til fyrirmyndar.
Skapti
Hallgrímsson
FOLX
KA-menn frá Akureyri eru nú famir að undirbúa sig af fullum krafti fyrir átökin í 1. deildinni í knattspymu á sumri
komanda. Helmingur væntanlegra-liðsmanna er nú sunnan heiða við nám eða önnur störf og æfir sá hópur því í
Reykjavík undir stjóm Guðjóns Þórðarsonar, þjálfara, sem kemur á æfingar frá heimili sínu á Akranesi. Þeir KA-menn
sem eru á heimaslóðum nyrðra æfa þar undir leiðsögn Þorvaldar Þorvaldssonar, sem verður aðstoðarmaður Guðjóns í
sumar. Á myndinni að ofan, sem tekin var síðastliðin föstudag, er KA æfði á gervigrasvellinum í Laugardal, em i aftari
röð frá vinstri: Guðjón Þórðarson, Stefán Ólafsson, Amar Bjamason, Anthony Karl Gregory, Valgeir Barðason og Öm
Viðar Amarson, sem nýlega hefur skipt í KA úr Reyni, Árskógsströnd. í fremri röð em, frá vinstri: Eggert Sverris-
son, Þorvaldur Örlygsson og Gauti Laxdal. Eggert er FVamari sem skipti í ÍR fyrr í vetur en nú em allar líkur á þvi að
hann gangi til liðs við KA-menn áður en langt um líður. Pjarverandi er myndin var tekin vom Bjami Jónsson, Steingrimur
Birgisson og Friðfinnur Hermannsson. Það era því ellefu leikmenn KA, eða heilt byijunarlið, sem æfír hér syðra alla jafna!
KA-menn æfa á útivelli!
Morgunblaðið/RAX
■ ÞRÍR ungir knattborðsspilar-
ar fara til Bangkok í Thailandi
2. apríl. Það em þeir Atli Már
Bjarnason, Ásgeir Guðbjartsson
og Brynjar Valdimarsson, sem
taka þátt í heimsmeistaramóti ungl-
inga, 21 árs og yngri, í billiard.
■ UNGLINGAMEISTARA-
MÓT, 21 árs og yngri, í knatt-
borðsleik fer fram 16.-17. mars.
Úrslitaleikur mótsins verður sýndur
á Stöð 2 þriðjudaginn 22. mars.
■ _ FJÓRIR knattspyrnumenn
úr ÍBV fóm utan til Vestur-Þýska-
lands um síðustu helgi og munu
æfa þar með Werder Bremen í
tvær vikur. Það em þeir Heimir
Hallgrímsson, Ingi Sigurðsson,
Tómas Tómasson og Elias Frið-
riksson. Werder Bremen er eitt
frægasta félagslið Vestur-Þýska-
lands og er liðið nú í efsta sæti
úrvalsdeildarinnar.
I ÞRÍR kylfingar af Suður-
nesjum ásamt enska kylfingnum
Brian Waites unnu liðakeppni á
PRO-AM golfmóti sem fram fór á
Marbella á Spáni 7. til 14. febrú-
ar. Leiknar vom 72 holur með
punktafyrirkomulagi. Golfmótið fór
þannig fram að keppt var í 4ra
manna liðum með þremur áhuga-
mönnum og einum atvinnumanni.
Fjórmenningarnjr spiluðu á samtals
á 543 höggum. í Suðurnesjaliðinu
vom auk Waites, Pétur Antons-
son, Jóhann Benediktsson og Sig-
urgeir Guðjónsson. Þeir félagar
kepptu aftur í liðakeppni viku síðar
og lentu þá í 4. sæti á 546 höggum.
■ AÐALSTEINN Sigurgeirs-
son var endurkjörinn formaður
íþróttafélagsins Þórs á Akureyri
á aðalfundi þess síðastliðinn föstu-
dag. Stjórnin var öll endurkjörin,
en hana skipa að auki: Rúnar
Gunnarsson, varaformaður, Ragn-
ar B. Ragnarsson, gjaldkeri, Páll
Baldursson, rítari, Kristján
Torfason, spjaldskrárritari, Gunn-
þór Hákonarson, meðstjórnandi
og varamenn em Árni Gunnars-
son, Reynir Karlsson og Ævar
Jónsson. Þá var Hallgrímur
Skaptason endurkjörinn fulltrúi
Þórs í stjóm íþróttabandalags Ak-
ureyrar, ÍBA.
■ J.B. Worral dæmir leik Arse-
nal og Luton í úrslitum enska deild-
arbikarsins sem fram fer á Wem-
bley 24. apríl. Worral er íslend-
ingum að góðu kunnur því hann
var yfirdómari á Reykjavíkurleik-
unum í knattspymu 1986 er ís-
lendingar mættu írum og Tékk-
um.
■ A USTUR—ÞÝSKA ólympíu-
landsliðið í knattspyrnu, sem er með
íslendingum í riðli, lék æfingaleik
við Grikkland á dögunum og gerði
jafntefli, 1:1. Leikurinn fór fram í
Grikklandi. Alexis Slexiou skor-
aði fyrir Grikkland en Wagel jafn-
aði fyrir A-Þýskaland.
■ MANCHESTER United hef-
ur nú áhuga á að kaupa Gary
Pallister frá Middlesbrough, fyrir
eina milljón pund. Það er mikill
hugur er í herbúðum félagsins að
byggja upp nýtt gullaldarlið, en
United varð síðast Englands-
meistari 1968. Miklar breytingar
em framundan á Old Trafford.
Talið er að Jesper Olsen og Gor-
don Strachan verði látnir fara frá
félaginu.
■ FRANK Arnesen, danski
landsliðsmaðurinn í knattspyrnu,
hefur mikinn hug á að enda knatt-
spymuferil sinn með Eindhoven í
Hollandi, e_n hann leikur nú með
félaginu. „Ég á tvö ár eftir sem
atvinnuknattspymumaður. Ég hef
mikinn hug á að vera áfram hér
hjá Eindhoven," segir Arnesen,
sem er 31 árs.
■ VASA-gangan á skíðum, sem
fer fram árlega í Svíþjóð, endaði á
eftirminnilegan hátt um helgina.
Flestir vonuðust eftir að Tomas
Vassberg mundi vinna sigur í
göngunni. _Svo var ekki, því að
bræðurnir Öijan og Andres Blom-
quist komu, sáu og sigruðu. Þeir
vom með ömgga fomstu og þegar
áhorfendur reiknuðu með geysilegri
keppni á milli þeirra á lokametmn-
um, fóm þeir séð að engu óðslega.
Þeir veifuðu til dalastúlkunnar, sem
veita átti verðlaun. Hún kom á
móti þeim. Þá tóku þeir hana upp
og bám hana í mark. Fyrst átti að
láta ljósmyndir skera úr um hvor
þeirra kæmist á undan í mark.
Bræðumir þvertóku fyrir það og
sögðust ekki mæta í verðlaunaaf-
hedinguna. Þeir myndu afsala sér
verðlaununum, ef það yrði gert.
Þetta er í fyrsta skipti sem tveir
vinna sigur í Vasa-gönginni, er er
90 km ganga.
I ÞORBERGUR Aðalsteinsson
átti mjög góðan leik með Saab,
þegar félagið lagði Hellas að velli,
18:16, um helgina. Þorbergur, sem
var tekinn úr umferð, skoraði þijú
mörk. Saab á enn möguleika á að
trygga sér rétt til að leika í „AIls-
venskan" næsta keppnistímabil.
■ ROGER Carlson, landsliðs-
þjálfari Svía í handknattleik, til-
kynnti um helgina að hann myndi
hætta með sænska landsliðið eftir
Ólympiuleikana í Seoul. Það er
búið að bjóða Bengt Johnanns-
syni, þjálfara Drott, starfið.
■ STJÓRN Chelsea kom saman
í gær, eftir að stjómarformaðurinn
K.W. Betes kom snöggt heim úr
sumarfríi í Ríó í Brasilíu. Blöð í
Englandi voru búin að slá því upp
að John Hollins, framkvæmda-
stjóri félagsins, yrði rekinn.
Chelsea hefur leikið sextán leiki í
röð án sigurs. Eftir fundinn til-
kynnti Betes að Hollins, sem væri
með þriggja ára samning, yrði
áfram hjá félaginu. Einnig að
Kerry Dixon myndi verða áfram
og sömuleiðis Mike Hazard.
■ JOHN Wark, skoski landsliðs-
maðurarinn hjá Ipswich, var skor-
inn upp í gær fyrir meiðslum á hné
á sjúkrahúsi í Ipswich. Þessi 30
ára leikmaður, sem Ipswich keypti
frá Liverpool á 100 þús. pund fyr-
ir rúmum mánuði, mun ekki leika
meira með félaginu á þessu keppn-
istímabili.
■ TOTTENHAM gaf út þá yfir-
lýsingu í gær, að Terry Venables,
framkvæmdastjóri félagsins, myndi
ekki taka að sér landsliðsþjálfara-
starf Wales í hlutastarfi.
■ BRUCE Grobbelaar, mark-
vörðurinn litríki hjá Liverpool var
kallaður „Regnbogamaðurinn" eftir
leik sinn gegn QPR. Hann mætti
til leiks í búningi, sem var í sex lit-
um. Var hinn skrautlegasti.
■ ALEX Watson, bróðir Dave
Watson, landsliðsmiðvarðar hjá
Everton, lék sinn fyrsta leik með
Liverpool gegn QPR. „Hann stóð
sig frábærlega vel,“ sagði Kenny
Dalgiish um hinn 19 ára nýliða.
fl FRAMARAR halda árlegt
herrakvöld sitt fösutdaginn 11.
þessa mánaðar og verður það nú í
fyrsta skipti í hinu nýja félags-
heimili þeirra við Safamýri. Hægt
er að panta miða í félagsheimili
Fram alla vikuna.