Morgunblaðið - 08.03.1988, Síða 6
6 B
/ÍÞRÓTTIR ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1988
K A T A R í N A
W I T T
Katarína á akautasvalllnu f fullum skrúðal
varð hún að hætta æfíngum vegna
lungnakvefs sem ágerðist.
Venjulegur dagur hjá Katarínu
Witt hefst klukkan sjö og er hún
komin á skautana klukkan átta.
Hún æfir mest allan daginn, stund-
um fram á kvöld, þar til hún fer í
háttinn. Hún hefur ekki einu sinni
tíma fyrir kærastann sinn, sem er
trommuleikari í vinsælli hljómsveit
í Austur-Berlín, en hann hefur látið
það gott heita enn sem komið er.
Muller segist ekki vera ánægð með
dagsprógrammið ef Katarína kem-
ur heim þreytt. „Markmiðið er að
hún komist gegnum allar æfingam-
ar hress og sé alltaf í góðu jafn-
vægi.“
Jutta Miiller er ekki eina manneskj-
an sem snýst í kringum Katarínu
Witt, enda þótt hún sé sú mikilvæg-
asta. Henni fylgja einnig sálfræð-
ingur, nuddarar, skautahönnuður
og danshöfundur.
Jutta Miiller varð sextug á þessu
ári og hefur þjálfað skautadansara
í þijátíu og þrjú ár, eða síðan hún
hætti sjálf að keppa, tuttugu og sex
ára árið 1955. Lengst náði hún í
annað sæti í innanlandskeppni.
Fyrsti nemandinn hennar var dóttir
hennar af fyrra hjónabandi, Gabri-
ele Seyfert; hún varð Evrópumeist-
ari fyrst árið 1967 og hlaut silfur-
verðlaun á Ólympíuleikunum 1968.
Næsti nemandi var Jan Hoffmann,
sem tók þátt í Ólympíuleikunum
• 1972, þá aðeins tólf ára gamall;
síðar varð hann Evrópumeistari
§órum sinnum, heimsmeistari
tvisvar. Þriðji nemandinn var Anett
Pötzsch, sem auðvitað vann gullið
á Ólympíuleikunum í Lake Placid
1980 — og einmitt það ár var Jutta
Miiller að kynnast Katarínu Witt.
Miiller hefur á síðari árum gerst æ
djarfari í vali tónlistar og búninga
fyrir skautadansarana. Hún hefur
meira að segja orðið fyrir aðkasti
fyrir djörfung sína, því þegar árið
Vsrkalýðshetja
áskautum
Katarína Witt er aðeins tuttugu
og tveggja ára gömul en hún
hefur engu að síður tekið þá af-
drifaríku ákvörðun að hætta að
taka þátt í keppni strax að lokinni
heimsmeistarakeppninni sem haidin
verður í Búdapest síðar í mars.
íþróttakonur eru sem sagt orðnar
gamlar um leið og þær komast á
þrítugsaldurinn. Engu að síður ná
flestar þeirra að æfa og keppa í
að minnsta kosti áratug; og svo var
líka með Katarínu Witt — sem einn-
ig gengur undir nafninu Katarína
mikla. Hún vann til gullverðlauna
í Sarajevo árið 1984, þegar hún var
átján ára. Og með því að vinna einn-
ig gullverðlaunin í Calgary, varð
Katarína Witt fyrsta skautakonan
til að vinna gullverðlaun á tveimur
Ólympíuleikum í röð síðan norska
skautadrottningin Sonja Heine
vann það afrek 1928 og 1936.
„Það verður alltaf erfiðara og erfið-
ara að skauta með hveiju árinu sem
h'ður," segir Katarína Witt. „Ein-
hverium kann að þykja skrítið að
rúmlega tvítug manneskja eigi erf-
itt með að keppa í þessari íþrótt.
Engu að síður er það sannleikur.
Ég meina ekki eingöngu líkamlega
erfítt, heldur einnig sálfræðilega,
því ábyrgðin sem við verðum að
axla eykst með sérhverium verð-
launapeningi sem við vinnum. Við
þurfum að standa undir nafni.“
Hún er stolt af því að vera kölluð
„verkalýðshetja" heima í Austur-
Þýskalandi. Hún telur að aðrar
þjóðir eigi að bera virðingu fyrir
landi sínu og þjóð þegar henni og
löndum hennar vegnar vel á íþrótta-
sviðinu.
Katarína Witt hefur alla sína tíð
átt heima í Karl-Marx-Stadt, þar
sem verksmiðjur og ekki síður stór-
iðja setja sinn svip á lífið. En bak
ÞAÐ var mál manna að hápunktur vetrarólympíuleikanna í Calgary í
Kanada yrði einvígi skautadrottninganna Debie Thomas frá Banda-
ríkjunum og Katarínu Witt frá Austur-Þýskalandi. Þessir snillingar
skautaíþróttarinnar hafa marga hildi háð og oft verið mjótt á munun-
um. En í Calgary fór á annan veg en ætlað var. Katarína Witt sýndi
það og sannaði svo að ekki verður um villst að hún ein skal kallast
drottning skautaíþróttarinnar, svo mikla yfirburði hafði hún yfir keppi-
nauta sína.
Katarfna ásamt þjálfara sínum og þriðja foreldri, Juttu Múller,
en hún hefur þjálfað marga helstu skautadansara Austur-Þýska-
lands síðan 1955. Sjálf var hún ein fyrsta konan í sósíalísku ríki
til að verða atvinnumaður í skautadansi.
við risabyggingamar sem spúa úr
sér eldi og reyk er að fínna nokkr-
ar geðslegri byggingar, svo sem
íþróttahús og bamaleikvelli. Það
var nefnilega fyrir algera hendingu
að Katarína Witt byijaði að æfa
skautadans. Þar austur frá þarf
ýmislegt fleira en hæfíleika til að
komast áfram, til að mynda hin
réttu sambönd, en strax í æsku var
Katarína farin að hugsa um skáut-
ana, því skautahöllin þar í borg,
Kuchwald, var við hlið dagheimilis-
ins þar sem foreldrar hennar komu
henni fyrir.
Katarína nauðaði í foreldrum sínum
lengi þar til þeir gáfust upp og létu
skrá hana í skautakennslu. Hvorki
kennurum hennar, föður hennar
Manfred, sem er verkstjóri á sam-
yrkjubúi, né móðurinni Kötu sem
er sjúkraþjálfari, kom til hugar að
stúlkan ætti eftir að ná árangri.
Þeim datt ekki einu sinni í hug að
stúlkan ætti eftir að eyða miklum
tíma á skautunum, undir hand-
leiðslu þjálfarans Juttu Muller. En
Jutta Miiller varð smám saraan
þriðrja foreldri Katarínu Witt.
„Foreldrar Katarínu eru vitanlega
stoltir af afrekum hennar," segir
Jutta Miiller, „og þeir vita ennfrem-
ur að ég á svolítinn þátt í vel-
gengni dóttur þeirra."
Þjálfarinn
Líf íþróttamanna í Austur-Þýska-
landi er enginn dans á rósum, allra
síst fyrir afreksfólkið. Kuchwald-
íþróttahöllin er kuldaleg og óaðlað-
andi. Engu að síður krefst Jutta
Muller þess að fólk undir hennar
handleiðslu æfí á hverjum degi, og
duga þá engar afsakanir nema al-
varlegustu veikindi. „Þetta er
vinna," segir Muller, „ekkert annað
en vinna."
Múller lenti í miklum vandræðum
með eina mjög hæfa stúlku, þá sem
hún þjálfaði áður en Katarína kom
til sögunnar. Sú hét Constanze
Gaenze og bjóst Múller við að sú
yrði næsta drottning skautanna.
En Constanze þurfti að eyða mikl-
um tíma hjá læknum og á endanum
ÞaA eru ekkl bara dómarar sem njóta þess að horfa
á Katarínu Witt; einnig ljósmyndarar — en hún hefur
hafnað öllum tilboðum um að gerast fyrirsæta.
Vekur
athygli
Katarína Witt vekur mikla athygli hvarvetna sem
hún kemur fram, ekki aðeins fyrir listræna hæfí-
leika í íþrótt sinni heldur einnig klæðaburð. Hún
hefur verið sökuð um að vera of kynþokkafull!
, ,
Vann hug
oghjörtu
fólksí
Calgary
r