Morgunblaðið - 08.03.1988, Page 7
/ÍÞRÓTT1R ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1988
B 7
1983 hótuðu dómaramir í Evrópu-
mótinu að refsa henni og Katarínu
ef Katarína stykki út á hálan ísinn
í sérhönnuðum nærbuxum og dans-
aði í þeim við tónlist eftir Wolfgang
Amadeus. Miiller er fljót að fínna
ný og aðgengileg popplög úr vestur-
heimi handa henni Katarínu sinni.
Á síðasta ári dansaði Katarína við
Bad eftir Michael Jackson.
„Ég er ekki sátt við skautadansinn
eins og hann er um þessar mund-
ir,“ segir Muller. „Ég vona að dans-
inn þróist meira í þá átt að vera
list, hrein og tær list, en ekki spum-
ing um líkamlegan styrk keppenda
eins og þegar áhorfendur vilja sjá
fleiri og fleiri stökk.“ Múller er líka
ósátt við skylduæfíngamar, sem
hún telur ekki þjóna neinum til-
gangi nema ef til vill að gleðja
augu dómaranna.
Nýtur frssgdarinnar
Katarína Witt hefur yndi af skjalli
og smjaðri. Hún hefur ríka þörf
fyrir aðdáun. Þegar hún dansar þá
er hún ekki að dansa fyrir sig ein-
göngu, heldur fólkið sem horfír,
fólkið sem gapir, aðdáendur sína
sem hylla hana í hveiju spori, skjalla
hana í hveiju stökki. Ekki dregur
úr ánægju hennar ef í hópnum eru
karlmenn. Svo má ekki gleyma
myndavélinni, sem Katarína hrein-
lega elskar. f einu orði: Hún nýtur
frægðarinnar út í æsar.
Að sjálfsögðu nýtur Katarína Witt
nokkurra forréttinda heima. Þegar
keppni er lokið þá kýs hún að draga
sig í hlé og hún heldur kyrru fyrir
í íbúð sinni, „paradfsinni sinni" eins
og hún kallar hana, sem er einstakl-
ingsíbúð og ríkið lætur henni í té
fyrir unnin afrek. Katarína fær
einnig bifreið til eigin umráða,
hvítan Wartburg, en venjulega
þurfa þarlendir að bíða f tíu til tólf
ár eftir því að fá slíkan bíl. „Þegar
maður stendur sig vel, þá nýtur
maður nokkurra forréttinda,“ segir
Katarína Witt og telur slíkt sjálf-
sagt.
Vestur.-þýska konan Gudrun Zeller
hefur skipulagt keppnis- og sýning-
arferðir Katarínu Witt í mörg ár
og þekkir hún því skautadrottning-
una vel. Gudmn segir að frægðin
og öll velgengnin hafí alls ekki stig-
ið Katarínu til höfuðs, hún sé
óbreytt manneskja frá því er hama-
gangurinn byijaði fyrir tíu árum.
Hún sé alls ekki montin eða líti
stórt á sig. Hennar eini galli sé hve
kæruleysislega hún renni í gegnum
skylduæfíngamar (sem hún þolir
ekki frekar en Jutta þjálfari henn-
ar). Á heimsmeistaramótinu, sem
haldið var í Cincinatti í fyrra, lenti
hún í fímmta sæti að loknum
skylduæfingunum, og vonbrigðin
voru slík að hún brast í grát. Helsti
keppinautur hennar þar, sem og í
Calgary, Debie Thomas, bar sigur
úr býtum, enda þótt Katarína sýndi
fullkomnun í frjálsu æfingunum og
fór þá þrefalt stökk í fyrsta skipti
á ferli sínum.
Katarína Witt nýtur aðdáunar ekki
aðeins í Austur-Þýskalandi heldur
um heim allan. Hún fær meira að
segja aðdáunarbréf vikulega og í
sumum þeirra fær hún hin undar-
legustu tilboð. Margir hafa beðið
hana að giftast sér. Peggy Fleming,
fyrrum gullhafi á Ólympfuleikun-
um, segir að væri Katarína Witt
bandarísk, þá væri andlit hennar
hvert sem litið væri, í sjónvarpi,
tímaritum, dagblöðum.
„Líttu bara á hana,“ segir Peggy
máli sfnu til stuðnings.
Katarína hefúr mörgum sinnum
fengið tilboð, hvert öðru hagstæð-
ara, um að gerast (jósmyndafyrir-
sæta, þeirra á meðal frá Ford-fyrir-
sætuumboðinu í New York. En
skautadrottningin lftur ekki við
slíkum tilboðum. Hún hefur þegar
skráð sig í leiklistarskóla í Austur-
Berlín þar sem hún mun einbeita
sér að leiklistinni næstu árin.
HJÓ
HANDKNATTLEIKUR / 1 .DEILD KVENNA
IMaumt hjá Víkingi gegn Haukum
Á föstudagskvöld voru spilaðir
þrír leikir í 1 .deild kvenna.
Fram burstaði Þrótt 38:7,
Vikingur vann Hauka naumlega
13:12 og FH sigraði KR 26:22.
Leikur Fram og Þróttar minnti
um margt á leik kattarins að
músinni. Staðan í leikhléi var 21:3
og lauk leiknum sem fyrr segir 38:7!
Mörk Þróttar: Ágústa
Katrín Sigurðardóttir, Sigurlín
FríOríksen Óskarsdóttir og Ema
skrífar Reynisdóttir 2 mörk
hver, Drífa Helgadóttir
eitt mark.
Mörk Fram: Guðríður Guðjónsdóttir og
óma Steinsen 7 mörk hvor, Súsanna Gunn-
arsdóttir 4, Jóhanna Halldórsdóttir, Hafdís
Guðjónsdóttir, Oddný Sigsteinsdóttir, Ósk
Viðisdóttir, Anna Halldórsdóttir og Margrét
Blöndal 3 mörk hver, Ingunn Bemódus-
dóttir eitt mark.
Guðrfður Guðjónsdóttir hefur skorað flest mörkin f 1. deildarkeppninni.
VOdngur - Haulcar 13:12
Haukastúlkur byijuðu vel í leiknum
og leiddu allan fyrri hálfleik.
Vfkingur náði að laga stöðuna rétt
í lok hálfleiksins. Staðan í leikhléi
var 8:7 fyrir Haukum.
Seinni hálfleikur var jafn, en Hauk-
ar þó alltaf einu til tveimur mörkum
yfír. Þegar um 5 mfnútur voru til
leiksloka var staðan 12:11 fyrir
Haukum. Víkingsstúlkur skoruðu
tvö síðustu mörkin og tiyggðu sér
sigur í spennandi leik.
Haukaliðið virkaði hálf andlaust í
Guðríður
hefur skor-
aðmest
Markahæstu leikmenn í 1.
deild kvenna eftir leiki helgar-
innar:
Guðríður Guðjónsd., Fram ...133/47
Margrét Theódórsd., Hauk. .107/45
Ragnheiður Stephensen, Stj...98/60
Sigurbjörg Sigþórsdóttir, KR.89/45
Inga Lara Þórisdóttir, Vík.83/35
Ema Lúðvíksdóttir.Valur....77/46
Katrín Friðriksen, Valur...75/4
Rut Baldursdóttir, FH......73/38
Eva Baldursdóttir, FH........72
Eiríka Ásgrímsdóttir, Vík..67/11
leiknum. Margrét Theódórsdóttir
var potturinn og pannan i sóknar-
leiknum, en á öðrum útispilurum
bar lítið. Þá átti Sólveig í markinu
góðan leik og varði meðal annars
5 vítaskot!
Vikingsstúlkumar vom lélegar
framan af en náðu sér vel á strik
er á leið. Liðið var mjög jafnt í leikn-
um.
Mörk VOdngs: Inga Lára Þórisdóttir, Jóna
Bjamadóttir og Eiríka Ásgrímsdóttir 3
mörk hver, Valdís Birgisdóttir og Heiða
Erlingsdóttir 2 mörk hvor.
Mörk Hauka: Margrét Theódórsdóttir 8/1,
Halldóra Mathiesen 2, Elva Guðmunds-
dóttir og Björk Hauksdóttir eitt mark hvor.
FH-KR 26:22
FH sigraði KR 26:22 eftir að staðan
í leikhléi hafði verið 15:7 fyrir FH.
FH byijaði vel og um tíma stefndi
allt f stórsigur liðsins á KR. KR-
súlkumar sem varma nú fallsæti í
deildinni tóku sér heldur betur tak
í seinni hálfíeik og börðust vel. Það
nægði þeim þó ekki eftir slakan
fyrri hálfleik og töpuðu þær leikn-
um með fjórum mörkum 22:26.
Mörk FH: Rut Baldursdóttir 11/7, Kristín
Pétursdóttir 5, Eva Baldursdóttir 4, Inga
Einarsdóttir og Beglind Hreinsdóttir 2 mörk
hvor, Heiða Einarsdóttir og Anna Jónas-
dóttir eitt mark hver.
Mörk KR: Snjólaug Benjamínsdóttir og
Karólína Jónsdóttir 5 mörk hvor, Birthe
Bitch 4, Sigurbjörg Sigþórsdóttir og Nellý
Pálsdóttir 3 mörk hvor, Bryndis Harðardótt-
ir og Áslaug Friðriksdóttir eitt mark hvor.
■ Staðan B/14
KNATTSPYRNA
U 21 leikur fyrst gegn Hollandi
Búið er að raða niður leikjum íslenska landsliðsins í Evrópukeppni 21
árs landsliða. Island leikur í riðli með V-Þýskalandi, Finnlandi og
Hollandi.
Fyrsti leikur íslands verður gegn Hollandi hér á landi 13. september í ár
og þá verður leikið í Finnlandi 28. september. Fjórir leikir verða leiknir
1989. 30. maí leikur ísland og V-Þýskaland hér á landi og 5. september
koma Finnar í heimsókn. Leikið verður sfðan í Hollandi 10. október og
í V-Þýskalandi 24. eða 25. október.
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR / EM INNANHÚSS
Sjöberg aðeins
hársbreidd
fráheimsmeti
Söguleg hástökkskeppni þarsem bron-
sið var tekið af heimsmeistaranum.
Patrik Sjöberg var ekki langt frá heimsmeti í hástökki.
Reuter
Það var lítið um athyglisverð
afrek á Evrópumeistaramótinu
í frjálsum fþróttum innanhúss
sem hófst í Búdapest í Ungverj-
alandi um helgina. Einvígi
Svíans Patricks Sjöberg við
V-Þjóðverjann Carlo Thráen-
hardt í hástökkskeppninni á
laugardag var þó mikið í sviðs-
Ijósinu.
Sjöberg vann hástökkskeppnina og
náði þar með fram hefndum á Þjóð-
veijann sem að bætti heimsmet
Svfans í hástökki innanhúss f
síðasta mánuði. Hárprúði Svíinn
stökk 2.39 metra, tveimur senti-
metrum hærra en V-Þjóðveijinn
Mogensen og átti n\jög góða heims-
metstilraun víð 2.43 metra.
„Það munaði örlitlu að mér tækist
að komast yfír í þriðju tilrauninni,
en ég er sáttur við árangurinn",
sagði Sjöberg eftir mótið.“
Besta stökk Tranhardt var 2.85 en
mótmæli hans fyrr í keppninni urðu
til þess að sá árangur fékkst ekki
dæmdur gildur. Þjóðveijinn átti þá
að reyna við 2.30 metra þegar til-
raun hans var dæmd ógild vegna
Reuler
Helke Drechsier varð sigurvegari
í langstökku kvenna.
þess að Þjóðveijinn hafði farið yfír
hálfrar mínútu tímamörkin sem
sett eru keppendum í hástökki.
V-Þjóðveijinn mótmælti þessum
úrskurði með því að rífa keppnis-
númer sitt og yfirgefa leikvanginn.
Hann lýsti því yfír að hann hefði
verið hindraðir í atrennu þegar að
tveir hlauparar rákust saman á
hlaupabrautinni fyrir aftan hann.
Iið Rúmena sem átti keppanda í
§órða sæti fór þess á leit að Thrán-
hardt yrði vikið úr keppninni fyrir
mótmæli sín og brot á mótsreglum..
Kærumálið fór fyrir tækninefnd
mótsins sem kom saman á sunnu-
dag og úrskurðaði að Þjóðveijinn
fengi einungis besta stökk sitt áður
en hann yfírgaf leikvanginn metið.
Það stökk var 2.24 og Thráenhardt
varð því að láta sér lynda áttunda
sætið á meðan að Rúmeninn Sorín
Matei fékk Bronsverðlaunin.
í langstökkskeppni kvenna endur-
heimti Austur-Þýska stúlkan Heiki-
Drechsler Evrópumeistaratitilinn
eftir harða keppni við Galinu Chist-
iakova frá Sovétríkjunum.Drechsler
stökk 7.30 metra en besta stökk
Chistiakovu mældist 7.24.
Tékkinn Remigius Machura sigraði
í kúluvarpi með því að kasta 21.42
í sínu þriðja kasti, V-Þjóðveijinn
Karsten Stolz náði að kasta 20.22
og hafnaði f öðru sæti.
Bretinn Linford Christie var fljót-
astur í 60 metra hlaupinu. Hann
fékk tímann 6.57. Belginn Ronald
Desruelles varð að sætta sig við
annað sætið þrátt fyrir mun betra
viðbragð á tímanum 6.60.
Claudia Losch tryggði sér sigur í
kúluvarpi kvenna með því að kasta
20.39 metra sem var þrettán senti-
metrum lengra en besta kast Lar-
issu Peleshenko. HeimSmeistarinn
Katrin Neimké varð að sætta sig
við þriðja sætið en hún varpaði
kúlunni 20.20 metra.
■ Clrslit B/14