Morgunblaðið - 08.03.1988, Side 11
jHorannÞln&ið /ÍÞRÓTTIR ÞRJÐJUDAGUR 8. MARZ 1988
B 11
KRAFTLYFTINGAR / ÍSLANDSMÓT
í !
i ■! r
O O o :e .
o -
o
o L
Morgunblaöiö/Einar Falur
Magnús Ver Magnússon, hafði mikla yfirburði í -125 kg flokki og varð stigahæsti maður mótsins.
Magnús stigahæstur
en Hjalti sterkastur
METAREGN varð á íslandsmeist-
aramótinu í kraftlyftingum sem
fram fór í íþróttahúsinu í Garðabæ
á laugardag. Alls féllu tæplega fjör-
tíu íslandsmet þar af drjúgur hluti
í unglinga- og öldungaflokki.
Magnús Ver Magnússon sem keppti
í 125 kflóa flokki varð stigahæsti
maður mótsins eftir tvísýna baráttu við
Jón Gunnarsson og Hjalta Ámason . Þá
náði Hjalti glæsilegum
árangri í yfirþungavigt
Íiegar að hann setti tvö
slandsmet í bekkpressu
og hann lyfti jafnframt
mestri samanlagðri þyngd á mótinu, 955
kílóum. *
Kvenmennimir létu heldur ekki sitt eftir
liggja þrátt fyrir litla breidd. Aðeins þrír
keppendur voru skráðir til leiks en það
nægði til þrettán íslandsmeta. Annars
varð helsti árangur í hinum ýmsu flokk-
um sem hér segir:
-75 kg.flokkur
Kári Elísson, Már Óskarsson, Jóhanncs Kjartansson,
Jóhann Möller, Rúnar Friðriksson, Sigfús H. Guð-
mundsson.
Það var fjörtíu ára aldursmunur á yngsta
keppanda mótsins og þeim elsta. Sigfús
er aðeins fjórtán ára en Jóhann sem
setti níu met í öldungaflokki er 54 ára.
„Tigriskötturinn", Kári Elísson var
sterkastur í þessum flokki, lyfti 657.5
kílóum. Már lenti í öðru sæti og setti tvö
unglingamet, hann lyfti 230.5 kg. í rétt-
stöðu og 585 kg. í samanlögðu. Jóhann
setti öldungamet í allflestum lyftum
sínum, hann lyfti mest 160 kg. í hné-
beygju, 80 kg. í bekkpressu og 220 kg.
í réttstöðu. Samanlagt var árangur hans
því 460 kg. sem einnig er met.
- 82.5 kg. flokkur
Jón Gunnarsson, Bárður Olsen, son, Ingimundur
Ingimundarson.
Jon kom sá og sigraði í þessum flokki.
Hann sló met Skúla Óskarsson í saman-
lögðu og árangur hans kemur honum í
þriðja sætið á Evrópulistanum í ár í þess-
um flokki. Aðrir keppendur stóðu nokkuð
í skugga Jóns en í öðru sæti var Ólafur
með 680 kg. og Ingimundur varð að
láta sér þriðja sætið að góðu verða.
Bárður sett fimm unglingamet, hann
lyfti mest 282.5 kg. í réttstöðu, 245 kg.
\ hnébeygju og 147.5 kg. á bekknum.
Árangur hans samanlagt er einnig met.
- 90 kg. flokkur
Halldór Eyþórsson, Ólafur Sveinsson, Gunnar Hjart-
arsson, Björgúlfur Stefánsson, Njáll Torfason, Auð-
unn Jónsson.
Halldór hafði nokkra yfírburði í þessum
flokki. Hann lyfti 747.5 kg. Ólafi, sem
mistókst að létta sig niður í 82.5 kg.
flokkinn náði öðru sætinu og Gunnar
lenti í því þriðja. Árangur Auðunns, 555
kg. samanlagt, er eftirtektarverður með
tilliti til þess að hann er aðeins fimmtán
ára.
-100 kg. flokkur
Óskar Sigurpálsson, Magnús Steinþórsson, Snæbjöm
Snæbjömsson, Flosi Jónsson, Birgir Þorsteinsson.
Reyndasti keppandi mótsins Óskar Sig-
urpálsson sem hóf keppni í lyftingum
árið 1965 reyndist sterkastur eftir harða
keppni við Magnús. Óskar lyfti 752.5
kg. sem er öldungamet. Flosi varð í
fjórða sæti þrátt fýrir mikla bætingu en
Birgir náði ekki að jafnhatta neinni lyft
í hnébeygjunni og féll því úr keppni.
-110 kg.flokkur
Jón B. Reynisson, Kristján Falsson, Kjartan Helga-
son.
Árangur Jóns vakti mikla athygli. Hann
l}rfti 700 kg. og bætti þar með sinn eig-
in árangur um tæp 100 kg.
-125 kg.flokkur
Magnús Ver Magnússon, Víkingur Traustason.
Heimsskautabangsinn var nokkuð frá
sínu besta og náði ekki að veita Magn-
úsi neina keppni í þessum flokki. Magn-
ús lyfti 942.5 kg. sem að reyndist besti
árangur mótsins Víkir.gur lét sér hins
vegar duga 725 kfló að þessu sinni.
+125 kg. flokkur.
Hjalti Ámason, Halldór Sigurbjömsson.
Fyrstu fslandsmet Hjalta í karlaflokki
urðu að veruleika á þessu móti en fram
til þessa hafði hann einungis verið að-
gangsharður við unglingametin. Hjalti
setti þrjú met, hann lyfti mest 237.5
kfló sem er besti árangur íslendings frá
upphafi á bekk. Þá bætti hann einnig
metið í samanlögðu með því að lyfta 955
kflóum.
Halldór var heldur ekki ekki aðgerðalaus
á þessu móti því að hann stórbætti met
Torfa Ólafssonar í hnébeygju. Donni lyfti
mest 382.5 kflóum sem er bæting um
fimmtíu kíló. Þess má reyndar geta að
Halldór reyndi einnig við 400 kílóin en
þau reyndust fullmikið af því góða.
Kvennaflokkar
- 52 kg. flokkur.
Bára Gunnarsdóttir tvíbætti metið í rétt-
stöðulyftu en hún lyfti mest 120 kílóum.
Samanlagður árangur hennar var 257.5
kíló sem einnig var met.
- 56 kg. flokkur.
Níu íslandsmet litu dagsins Ijós hjá
Unni Sigurjónsdóttir. Hún lyfti mest
137.5 kg. í hnébeygju, 62.5 kg. í
bekkpressu og 130 kg. í réttstöðu.
Samanlagt er árangur hennar því
330 kíló.
- 67.5 kg. flokkur
Sigurbjörg Kjartansdóttir setti met þeg-
ar að hún lyfti 137.5 kg í hnébeygju og
í samanlögðu 370 kg.
■ Úrslit B/15
Frosti
Eiösson
skrifar
Stórgóður árangur hjá
Unni í hnébeygju
Morgunblaöiö/Einar Falur
Unnur Slgurjónsdóttlr
Ég hef ekki að miklu að keppa í
þessum þyngdarflokki, einungis að
bæta eigin met. Ég hef því hugsað
mér að þyngja mig upp í 60 kflóa
flokkinn þar sem ég ætti að geta
fengið verðuga keppni frá Nínu
Óskarsdóttir", sagði Unnur Sigur-
jónsdóttir sem náði bestum árangri
íkvennaflokki.
Sem dæmi um árangur Unnar á mótinu
þá náði hún að lyfta 137.5 kílóum í
hnébeygjunni sem er aðeins fímm kilóum
minna en Islandsmetið í karlaflokki í
þessum þyngdarflokki.
„Ég átti ekki von á þessum árangri,
sérstaklega ekki í réttstöðulyftunni þar
sem mér hafði gengið illa á æfingum
fyrir mótið. Ég hef æft vel, allt upp í
sex sinnum í viku 2-3 stundir í senn
þegar ég hef haft tíma, en minna þegar
nær dregur mótum,“ sagði Unnur en hún
hóf æfíngar fyrir tveimur árum er hún
kynntist Má Oskarssyni sem hefur verið
atkvæðamikill í unglingaflokki.
„Það er leiðinlegt hve fáar konur hafa
áhuga á þessari íþrótt. Margt kvenfólk
stendur í þeirri meiningu að það tútni
upp af vöðvum við það að æfa lyftingar,
- en það er alls ekki raunin.“
„Stefnan er
að bola Jóni
Páliút
af listanum
„Það var svosannarlega kominn tími til“,
sagði Hjalti Árnason kampakátur eftir að
hafa sett sín fyrstu íslandsmet í fullorðins-
flokki.
„Stefnan hjá mér fyrir mótið var að reyna að lyfta
972.5 kflóum samanlagt og bola Jóni Páli þar með
endanlega út af listanum. Það tókst ekki núna en
það er næsta mál á dagskrá hjá mér.“
Jón Páll getur ennþá státað sig af mestu þyngd
íslendings í samanlögðu, 970 kflóum. Það met var
sett fyrir fjórum árum er JÓn Páll var í - 125 kg.
flokki. Met hans í samanlögðu í yfirþungavigt féll
að þessu sinni og einnig metið í bekkpressu þar
sem Hjalti lyfti mestu þyngd íslendings frá upp-
hafi, 237.5 kflóum.
„Markmið mitt er að verða fimmti Evrópubúinn
til að lyfta einu tonni í samanlögðu. Ég og Magn-
ús Ver höfum keppt að þeirri þyngd og í dag náði
ég að skjóta honum aftur fyrir mig á listanum sem
er mér mjög mikilvægt."
- Er stutt í tonnið hjá ykkur?
„Ég þori ekkert að spá um það. Það er erfitt að
bæta sig þegar að svona hátt er komið. Jón Páll
var t.d. tvö ár að rífa sig upp úr 950 kflóunum yfir
í 970. Ég vona að biðin hjá mér standi ekki svo
lengi en vona að árangurinn í dag verði til þess
að Jón Páll og Torfi byiji aftur, - ég sakna þeirra
mikið úr kraftlyftingunum".
Morgunblaöiö/Einar Falur
Hjaltl Ámason náði eftirminnilegum árangri í bekk-
pressunni.
Stigahæstu menn
Magnús Ver Magnússon varð stigahæstur í karla-
flokki og Unnur Siguijónsdóttir varð efst í kvenna-
flokki. Árangurinn í stigum er fundin út með því
að deilda líkamsþyngd upp í samanlagða þyngd.
Tíu stigahæstu einstakiingar mótsins í karlaflokki
voru eftirtaldin
1. Magnús Ver Magnússon............... 494.6
2. Jón Gunnarsson......................484.6
3. Hjalti Ámason.......................482.3
4. Kári Eltsson....................... 456.7
5. Halldór Eyþórsson...................448.1
6. Halldór Sigurbjömsson..............444.79
7. BárðurOlsen.........................416.3
8. Snæbjöm Snæbjömsson................410.33
9. Ólafur Sveinsson....................404.4
10. Flosi Jónsson........................403.0
Kvennaflokkur
1. Unnur Siguijónsdóttir.................300.6
2. Sigurbjörg Kjartansdóttir.............291.4
3. Bára Gunnarsdóttir....................251.3