Morgunblaðið - 08.03.1988, Síða 12
12 B
KNATTSPYRNA / FRAKKLAND
JBatgnnbloMíi /IÞROTTIR ÞRLEXJUDAGUR 8. MARZ 1988
Juan Rubio einu. Barcelona komst
næst því að skora á 38. mínútu
þegar skot Gary Lineker hafnaði í
stöng.
Spánski landsliðsmiðvörðurinn hjá
Barcelona, Julio Alberto fékk að
'líta sitt sjöunda gula spjald á keppn-
istímabilinu og fer því sjálfkrafa í
leikbann. Hann mun missa af leik
gegn Real Mallorca sem fram fer
í vikunni.
risana að
Real jókforskotið með sigr-
inum á Espanol
REAL Madrid jók forskot sitt í
sjö stig á sunnudag er liðið
vann Espanol á heimavelli 2:0.
Á sama tíma þurftu nágrann-
arnir, Atletico Madrid að sætta
sig við markalaust jafntefli
gegn Murcia, í slakasta leik
Atletico á keppnistímabilinu.
Forskot Real er því fyrir vikið
komið upp í sjö stig.
Leikmönnum Real gekk erfið-
lega að komast í gegn um þétta
vöm Espanol í fyrri hálfleik en í
byijun þess síðari náði Michel Conz-
alez forystunni með góðu skoti eft-
ir sendingu frá Hugo Sanchez.
Sanchez var síðan sjálfur á ferðinni
þremur mínútum fyrir leikslok er
hann skoraði með lúmskum skalla
framhjá Thomas N’Kono sem átti
stórleik í marki gestanna. Mark
Sanchez var það 22. sem Mexí-
kómaðurinn gerir á þessu keppn-
istímabili.
Barcelona náði aðeins jafntefli á
heimavelli gegn botnliðinu Sabadell
og var reyndar heppið að ná stigi.
Miðheiji Sabadell, Júgóslavinn
Bagojc Titanovski misnotaði tvö
opin marktækifæri og félagi hans
Mechelen vann sigur, 1:0, yfir
Charleroi og hefur nú náð tveggja
stiga forskoti á FC Briigge og Ant-
verpen. Kenny Brylle, danski lands-
liðsmarðurinn, skoraði tvö mörk
fyrir FC Briigge, 3:0, yfír Kortrijk.
■ Úrsllt B/14
■ Staðan B/14
Öruggt hjá
toppliðunum
PORTO heldur sjö stiga for-
skoti sínu í Portúgölsku 1.
deildinni og er enn ósigrað eft-
ir 24. umferðir. Um helgina
vann liðið öruggan sigur gegn
einu af botnliðum deildarinnar
Braga, 3:0 og lið Benfica sem
er í öðru sæti deildarinnar með
36 stig þótti sýna stórkostlega
knattspyrnu í sigri iiðsins á
Sporting Lissabon, 4:1.
Það var tvímælalaust leikur
Benfica við Sporting sem
mesta athygli vakti á sunnudag.
Bæði liðin léku í Evrópumótunum
um síðustu helgi en með mismun-
andi árangri. Benfica sigraði And-
erlecht en Sporting tapaði fyrir
ítalska liðinu Atalanta.
Sporting fékk óskabyijun í leiknum
þegar að Brasilíumaðurinn Paulin-
ho Cascavel skoraði af stuttu færi
eftir aðeins þijár mínútur. Það
dugði skammt. Svíinn Mats Magn-
usson jafnaði metin á 13. mínútu
og kom meisturunum síðan yfir
fjórum mínútum síðar. Rétt fyrir
leikhlé jók Rui Aguas muninn og
Aguas var síðan aftur á ferðinni í
síðari hálfleiknum eftir undirbúning
Magnusson.
Fyrirliði Porto, Femando Gomes
kom liði sínu á bragðið gegn Braga
eftir þriggja mínútna leik. Lengi
vel leit út fyrir að Braga tækist að
veijast frekari áhlaupum en á 75.
mínútu bætti Gomes við öðru marki
Porto úr vítaspymu. Útheijinn
Semedo átti síðan síðasta orðið rétt
fyrir leikslok.
Belenenses og Boavista standa vel
í slagnum um Evrópusæti. Bæði
liðin unnu 1:0 sigra um helgina og
em jöfn í 3-4 sæti með þijátíu stig.
Úrsllt B/14
Staðan B/14
Pele fremstur í flokki í Tokýó
Gamli knattspymusnillingurinn
frá Brasilíu, Pele, verður
fremstur í flokki þegar heimslið í
knattspymu leikur gegn japönsku
úrvalsliði í Tokóý 22. apríl. Allur
ágóði leiksins rennur til baráttunn-
ar gegn eyðni.
Margir kunnir kappar verða í sviðs-
ljósinu í Tokýó, eins og Portugalinn
Eusebio, sem lék hér á landi með
Benfica gegn Valsmönnum á ámm
áður, John Neeskens, Hollandi, Tre-
vor Brooking, Englandi, Teofilio
Cubillas, Pem, Paolo Rossi, Ítalíu,
Kevin Keegan, Englandi, Johan
Cmyff, Hollandi, Pat Jennings,
N-Irlandi, Michel Platini, Frakkl-
andi, Oleg Blokhin, Sovétríkjunum
og Alla'n Simonsen, Danmörku.
Kapparnir leggja skóna ekki á hill-
una eftir kikinn í Tokýó. Þeir leika
einnig í Zimbabwe í Afríku 29.
maí, 10. september í París og 10.
október í Los Angeles.
Atletico Bilbao hefndi fyrir 4:1 tap-
ið gegn nágrönnunum Real Soci-
edad fyrr í vetur. Að þessu sinni
var það Sociedad sem mátti þola
ósigur á sínum eigin heimavelli.
Aðstæður til knattspymu vom ekki
upp á það besta vegna mikilla rign-
inga og boltinn gekk lítið á þungum
vellinum. Sigurmark Bilbao kom
strax á tíundu mínútu eftir auka-
spymu. Estanlisao Argote skallaði
knöttinn í stöngina, þaðan barst
hann aftur út á völlinn og Argote
var fljótastur að átta sig og skoraði
af stuttu færi með því að reka hnéð
í knöttinn. Þrátt fyrir tapið er Real
Sociadad enn í þriéja sæti en Bilbao
er í því fjórða.
■ Úrsllt B/14
■ Stadan B/14
Morgunblaðið/Bernharö Valsson
Mark Hataly og félagar í Mónakó fögnuðu sigri yfír Cannes um helgina.
Hately skoraði tvö
ÞAÐ var enski landsliðsmaður-
inn Mark Hately sem kom
Mónakó á bragðið í 1. deildinni
í Frakklandi. Mónakó hafði ekki
skorað mark í þeim tveimur
leikjum sem liðið hafði spilað
eftir vetrarf rfið, en Hately átti
stórleik gegn Cannes og skor-
aði tvö mörk, en Mónakó vann
öruggan sigur, 4:1.
Mónakó er enn í efsta sæti 1.
deildarinnar, en liðinu hafði
ekki gengið sérlega vel í síðustu
leikjum. En um helgina, þegar liðið
mætti Cannes sem var i 5. sæti
fyrir leiki helgarinnar, gekk allt
upp.
Mark Hately gaf liðinu sjálfstraust-
ið að nýju með marki á 5. mínútu
úr vítaspymu. Eftir það gekk allt
upp og Patrice Mega og Jean
Philippe Rohr bættu við mörkum
fyrir Mónakó áður en Mark Hately
bætti öðru marki sínu við á 85.
mínútu og sigur Mónakó öruggur,
4:1.
Racing Clup Paris, sem er í 2. sæti,
gerði óvænt jafntefli gegn botnliði
deildarinnar, Le Havre, 1:1. Forskot
Mónakó jókst því og er nú fjögur
stig.
Bordeaux er enn í 3. sæti þrátt
fyrir að hafa aðeins náð markalausu
jafntelfi gegn Niort.
■ Úrslit B/14
■ Staðan B/14
Fernando Qomes skoraði tvö mörk
fyrir Porto í 3:0 sigri liðsins.
Emlllo Butragueno sést hér í leik Real Madrid og Espanol. Reuter
Mechelen eitt á toppnum
ARNÓR Guðjohnsen var tekinn
af leikvelli á 70 mín., þegar
Anderlecht vann sigur, 3:0, yfir
Waregem. Winterslag vann
óvæntan sigur, 1:0, yfir Bever-
en.
Antverpen mátti þola stórtap,
0:5, fyrir FC Liege. „Ég er
viss um að Mechelen verði meistari
í ár,“ sagði Karel Beyers, þjálfari
Antverpen, eftir leikinn. Leikmenn
FC Liege fóm á kostum og léku
leikmenn Antverpen upp úr skón-
um.
Kendall
áfram
með
Bilbao
HOWARD Kendall, þjálfari
Atletico Bilbao framlengdi
samning sinn við fétagið um
eitt ár um helgína. Þar með
batt Kendall enda á háværar
gróusögur um að hann væri
á förum til Barcelona.
Kendall gerði tveggja ára samn-
ing við Bilbaoliðið fyrir þetta
keppnistímabil og Aneð nýja
samningnum er hann bundinn
félaginu fram til júní 1990.
Samkvæmt fréttum úr enskum
og spænskum blöðum bauð
Barcelona enska þjálfaranum
eina milljón sterlingspunda (Um
70 millj. ísl. króna) fýrir þriggja
ára samning. Sá samningur
hefði gert Kendall að hæstlaun-
aðasta knattspymuþjálfara
heims.
Kendall greindi sjálfur frá því í
síðasta mánuði að hann hefði
rætt við forráðamenn Bareelona
en ákveðið að halda sig áfram
í Bilbao þar sem að félagið hefði
staðið vel við aliar skuldbinding-
ar gagnvart honum.
Hann greindi einnig frá því að
hann hefði tvívegis áður fengið
tilboð um að þjálfa Barcelona
en í bæði skiptin hafí þáverandi
þjálfari liðsins, Teiry Wenables
ákveðið að vera um kyrrt.
KNATTSPYRNA / SPÁNN
KNATTSPYRNA / PORTUGAL
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA / BELGÍA
Sjöstig
skilja Madrid-