Morgunblaðið - 10.04.1988, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 10.04.1988, Qupperneq 3
um til fátækt okkar og heilsuleysi mitt, sem ég loks sigraðist á um 1960. Þrátt fyrir allt hafa orðið töluverðar breytingar á staðnum á þessu tímabili, eins og annars stað- ar í sveitinni og þjóðfélaginu í heild. Við hreiðruðum um okkur í gesta- herberginu, en þar var talið reimt. Þegar við vorum um það bil að festa svefn er lamið bylmingshögg í hús- gaflinn rétt við höfðalagið, síðan annað og þriðja. Þá fórum við á stjá. í ljós kom að stóreflis hrútur var þar að verki. Daginn eftir kom í ljós að túngirðingin lá víðast niðri og aðeins tveir staurar í henni voru óbrotnir. Gripir gengu um að vild. Ekkert vatn var í húsinu, sem hafði verið byggt 1906, ónýt eldavél svo ég þurfti að elda á olíuvél, en um haustið var lögð miðstöð út frá Sólóvél og vatnsleiðsla. Salemi keyptum við sjálf en handlaug var engin, varð að notast við vaskafat undir krananum. Þann vetur tókum við þó að okkur bamaskólann og höfðum bömin í heimavist." Kórbjalla frá 1150 Á næstu ámm var byggt upp í Heydölum, nýtt íbúðarhús og ný kirkja. Þótt miðstöðin væri lagfærð var gólfkuldi svo mikill í gamla húsinu að Anna gekk á vetmm á tréklossum og ullarleistum, en fékk samt kuldabólgu í leggina ofan við leistana. Þegar búið var að reisa nýja húsið flúðu þau í það hálf- byggt um veturinn 1951. Nýja hús- ið var með einföldum gluggarúðum og hrauneinangmn og reyndist svo líka kalt, en þar sem agavél var í eldhúsinu mátti halda þar hlýju. Gamla kirkjan var frá 1856, en sú nýja var vígð 1985. Skömmu síðar brann gamla kirkjan. í nýju kirkj- unni er gamla altaristaflan og núm- erataflan. Og Anna segir mér frá merkum gripum, sem varðveittir em í kirkjunni, tinkaleik og kór- bjöllu frá 1150, sem notuð var fram yfir aldamót þegar eitthvað sérstakt var um að vera, svo sem skímir og þegar konur vom leiddar í kirkju, eins og siður var að gera eftir bams- burð. Var kona síðast leidd í kirkju í Breiðdal árið 1903 og bjöllunni þá hringt. Sr. Þorsteinn Þórarins- son hélt þessum sið, en slíkar sere- moníur vom lagðar niður þegar sr. Pétur sonur hans tók við af honum 1910. Við víkjum að ummælum Önnu hér að ofan um að þá fyrst hafi hún verið orðin of önnum kafin til að gera nokkuð annað er hún gerð- ist prestskona í sveit. Hvað var það sem helst lagðist til utan venjulegra heimilis- og sveitastarfa? „Fyrstu árin var eilífur erill og tíndist ýmis- legt til. í fyrstu var ekki vegasam- band suður um lengra en að Bem- firði og þar sem enginn gististaður var, var oft leitað á prestssetrið. Áður var ekki um neinn snjómðning að ræða og komu menn þá ofan úr sveitinni og létu flytja vömmar á bíl frá Breiðdalsvík í Heydali, því þangað var oftast fært. í sveitinni er siður að gefa kirkjugestum kaffí eftir messu og stundum fundahöld ýmiskonar á prestssetrinu. Fyrst tókum við bömin alltaf heim til spuminga í eina viku fyrir ferming- una og þá þurfti auðvitað að sjá þeim fyrir gistingu og fæði. Enginn augnlæknir var þama og við sömd- um við Bergsvein Ólafsson að hann kæmi og staldraði við hjá okkur. Svo gekk í nokkur ár áður en augn- þjónustu var komið á. Mikið létti á þegar skólahúsið kom að Staðar- borg 1957-58. Á sumrin er þar rek- ið hótel. Við þetta minnkaði gesta- gangur, en þá fór maður að sakna þess að fá bara kveðju frá kunningj- um í hringferð. Fyrstu árin komu frambjóðendur venjulega allir sam- an og gistu sumir hjá okkur. Það var skemmtilegt og glatt á hjalla. Skemmtilegast þó þegar sr. Pétur í Vallanesi var í framboði. Það lagð- ist þó af eftir að þeir fóm að geta ekið um í eigin bílum. Heydalir em í þjóðleið og oft koma hópar og einstaklingar til að skoða kirkjuna. Á sumrin líður varla sá dagur að ekki sé einhveijum sinnt á prests- 88ei JlíllA .iH ílUOAtlUMMUa .Öia/UHUUOiIOM MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. APRIL 1988 B 3 setri. Mér þótti alltaf gaman þegar komu hópar og sakna þess á vissan hátt. En þetta er nú allt annað en var.“ Margt hefur breyst í sveitinni á þessum 40 ámm. Anna segir að ákaflega ánægjulegt hafi verið að fá að upplifa uppbyggingu vega- kerfisins, þegar vegasamband var að komast á. Stöðvarsókn var lögð undir Heydalaprestakall 1925, en þangað var ekki vegasamband og um tíma hætt að halda reiðveginum við. Þegar presturinn þurfti að fara þangað að vetrinum varð hann því að fara gangandi og stundum að skríða yfír hættulegustu staðina í skriðunum. Sem betur fer var það ekki löng leið. En gert var að kosn- ingabeitu eitt árið að ryðja veginn og tók þá ekki langan tíma. Og nú er bflvegur með allri ströndinni. Á fyrstu ámnum gat sr. Kristinn til dæmis aldrei verið heima á jólunum. Byggðin á Stöðvarfirði var þéttust, svo hann messaði þar á aðfanga- dagskvöld og jóladag, en Anna var heima og hugsaði ein um gripina. „Ég vissi lítið af jólum eftir að ég varð prestskona. Þau gengu mest út á það að hirða skepnumar. Ég hafði aldrei þurft að gefa á garða fyrr, það gerðu karlmennimir heima," segir hún. Seinni árin var þetta breytt og sr. Kristinn komst heim í jólamatinn. Heílt þorp reis í Breiðdal Okkur dvelst við spjall um allar þær breytingar sem orðið hafa í Breiðdalnum á hálfri mannsævi, sem Anna kann góð skil á: „Þar reis þorp með þéttbýli miklu seinna en á hinum Áustíjörðunum, enda fjörðurinn breiður og opinn fyrir hafi. Kvikfjárrækt var eini atvinnu- vegurinn fram á miðja 20. öldina. Kýr höfðu menn aðeins til heimilis- nota. Um 1960 byijuðu nokkrir bændur að selja mjólk til Djúpa- vogs, sem entist stutt, enda vegur- inn illfær. í sveitinni bjuggu 307 manns árið 1940 og vom orðnir 257 tíu árum síðar. Þorpið á Breið- dalsvík fór ekki að vaxa fyrr en um miðja öldina þegar þar kom betri höfn, bátar og frystihús. 1960 eru húsin á Breiðdalsvík orðin 17 og íbúamir 93 eða um þriðjungur íbúanna í sókninni. Úr því tók að fjölga, fólk sótti í sfldina og unga fólkið innan úr sveitinni settist þar að. Ekki segir Anna að margir hafi trúað því þegar skólinn var byggður á Staðarborg 1957-58 að þéttbýlið í Breiðdalsvík mundi aukast svo mjög, en nú er í byggingu glæsileg- ur grunnskóli. Nú er lfka á sumrin hægt að aka um Breiðdalsheiði til Egilsstaða og taka þar flugvél eða á vetrum austur með fjörðum og upp Fagradal, þar sem snjómokstur fer fram. Og sama gildir um veginn suður um land til Reykjavíkur. Strandferðaskip koma reglulega við á Breiðdalsvík og póstur kemur frá Egilsstöðum þvisvar sinnum í viku. Það eru miklar breytingar. „Ánægjulegustu árin fyrir austan voru árin sem ég fékkst við að kenna. Ég reyndi einnig að leysa einangrunina með því að taka þátt í félagsstörfum. Var í stjóm Skóg- ræktarfélagsins, formaður Slysa- vamadeildarinnar um hríð og einnig kvenfélagsins, í stjóm Náttúm- vemdarfélags Austurlands og fleira slíkt. Það þótti mér mjög skemmti- legt.“ Við spyijum Önnu hvemig fyrr- verandi prestsfrú úr sveitinni kunni svo við að vera flutt til Reykjavík- ur. „Ég nota orð Áma Þórarinsson- ar og segi að ég sé lifandis ósköp fegin," svarar hún um hæl. En hvað hefur hún fyrir stafni í þéttbýlinu? „Ég fer í sund á morgnana og sæki ýmiskonar námskeið, bók- bandsnámskeið í fyrra og þýskun- ámskeið og ættfræðinámskeið í vet- ur. Svo fer ég út í Hvassaleiti og spila brids við aldraða. Hafði ekki marga til að spila við fyrir austan. Mig vantar ekki verkefnin. En mér finnst ég samt vera búin að missa af strætisvagninum, vera orðin of gömul til að gera það sem ég hefði viljað gera þegar ég var ung.“ Mikiðúrva/af tvískiptum kjólum GOR-RAYpiis, dragtir. Stærðir 34-54. Dragtin, Klapparstig 37. AÐALFUNDUR Landssamtaka áhugafólks um flogaveiki verður haldinn í menningarmiðstöðinni Gerðubergi þriðjudagskvöldið 12. aprílkl. 20.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. PRJÓNAKONUR-LOPAPEYSUR HILDA HF. TEKUR Á MÓTI LOPAPEYSUM Á EFTIRTÖLDUM STÖÐUM Á LANDINU: REYKJAVÍK BOLHOLT 6 SÍMI 34718 SELFOSSI SLÉTTUVEGI 2 SÍMI 99-1444 BORGARFIRÐI FERJUKOTI SÍMI 93-70082 AKUREYRI GRENILUNDI 17 SÍMI 96-22646 HILDA HF., BOLHOLTI 6, SÍMI 34718. FERMINGARTILB OÐ ! GoldStar 20" sjónvarpstæki * Fjarstýring * Viðarkassi og góður hátalari * Sjálfleitari * Video- og tölvu beintenging Greiðslumáti Kr. Fermingartilboð 29.275,- Staðgreiðsluverð 27.800,- . Eurokredit til allt að 11 mán. Engin útborgun Visa raðgreiðslur til allt að 12 mán. Engin útborgun l

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.