Morgunblaðið - 10.04.1988, Side 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1988
Brezku fiskmark-
aðirnir:
Fermingarskeyti ritsímans
Móttaka fermingarskeyta er hafin. Sími skeytamóttöku er 06.
Viðskiptavinum til þæginda býður ritsíminn þeim að velja ein-
hvern eftirtalinna texta:
A: Innilegar hamingjuóskir á fermingardaginn, kærar kveðjur.
B: Bestu fermingar- og framtíðaróskir.
C: Hamingjuóskir til fermingarbarns og foreldra, kærar kveðjur.
D: Guð blessi þér fermingardaginn og alla framtíð.
E: Hjartanlegar hamingjuóskir á fermingardaginn. Bjarta framtíð.
Meðalverð þessara skeyta er um 190 kr. Þeir sem óska geta að sjálfsögðu
orðað sín skeyti sjálfir.
Fermingarskeyti má panta með nokkurra daga fyrirvara, þó þau verði ekki
borin út fyrr en á fermingardaginn.
Símstjórinn í Reykjavík.
NORDMENDE 14" - 12 V/220 V
14" Nordmende 3604
litsjónvarps-tækið er
bæði fyrir 12 & 220
volta spennu, tilvalið í
sumarhúsið eða sem
aukatæki á heimilið.
Fullkomin fjarstýring,
inniloftnet, tenging
fyrir heyrnartól og
frábær myndgæði, að
sjálfsögðu í litum.
Þetta er einmitt tækið
sem beðið hefur verið
eftir ! Bjóðum Visarað-
greiðslur og Eurokredit
greiðslukjör.
22.610,-
kr./stgr.
Almennt verð 23.800,- SKIPHOLTÍ19^ SÍMI29800
EFTIRTALIN FYRIRTÆKI SELJA NORDMENDE: Kaupfél. Fram Hafnarbraut 2 Neskaupstað
Blómabúöin sf Skólabraut 23 Akranesi Frístund sf. Holtsgötu 26 Njarövík
Radionaust Glerárgötu 26 Akureyri Samkaup Njarðvík
Kaupfél. Húnvetn. Húnabraut 4 Blönduósi Rafbúö Jónasar Þórs Aöalstræti 73- Patreksfiröi
Einar Guöfinnss. hf. Vitastíg 1 Bolungarvik Bókabúöin Urö Asgötu 5 Raufarhöfn
Kaupf. Borgfiröinga Egilsgötu 11 •Borgarnesi Mikligaröur v/Holtaveg Reykjavík
Rafmagnsv. Sv. G. Kaupvangi Egilsstöðum Lykill Búöareyri 25 Reyöarfiröi
Verslunin Fell Grundargötu 49 Grundarfirði Versl. Hegri Aðalgötu 14 Sauöárkróki
Blómsturvellir Munaöarhóli 25 Hellissandi G. Á. Böðvarss. hf. Austurvegi 15 Selfossi
Videoleiga Hellu Þrúövangi 32 Hellu Stálbúðin hf. Fjaröargötu 1 Seyðisfirði
Versl. Sig. Sigfúss. Höfn Hornafiröi Aöaibúöin Aöalgötu 26 Siglufirði
Kaupfél. Ringeyinga Garöarsbraut 5 Húsavik Kaupfél. Stööfirö. Stöövarfiröi
Straumurhf. Silfurgötu 5 ísafirði Verslunin Húsiö Aöalgötu 22 Stykkishólmi
Stapafell hf. Hafnargötu 29 Keflavik Kjarni sf. Skólavegi 1 Vestmannaeyjum
S. Kristjánss. raft.v. Hamraborg 11 Kópavogi Kaupfél. Skaftf. Víkurbraut 26 Vik
Sel Skútustöðum Mývatnssveit Tengill sf. Fjaröargötu 5 Þingeyri
Aldrei
lægra verð
ákola
VERÐ á kola á fiskmörkuðunum
í Bretlandi á fimmtudag var
lægra en nokkru sinni fyrr, 26,76
krónur á kíló að meðaltali. Verð
á öðrum fisktegundum var líka
lágt á fimmtudag, en þokaðist
lítillega upp á föstudag. Skýring-
in er talin offramboð.
í vikunni voru alls seld um 2.500
tonn af ferskum fiski héðan á þess-
um mörkuðum. Meðalverð úr gám-
um var 47.91 og 51,91 úr skipum,
sem seldu samtals 336,9 tonn. Alls
var selt fyrir 121,7 milljónir króna.
Á fimmtudag voru seld 505 tonn
úr gámum héðan. Heildarverð var
21 milljón króna, meðalverð 41,59.
Þorskurinn fór á 48,53, ýsan á
46,90 og kolinn á 26,76. Á fostudag
voru seld 175 tonn úr gámum fyrir
samtals 8 milljónir króna. Meðal-
verð var 45,87. Þorskurinn fór á
51,20, ýsan á 51,50 og kolinn á
34,13.
Kambaröst SU seldi í Hull á
fimmtudag og fötudag, samtals 165
tonn, mest þorsk. Heildarverð var
8,7 milljónir króna, meðalverð
52,80.
Meðalverð á helztu fisktegundum
í Bretlandi frá áramótum er sem
hér segir: Þorskur 64,19, ýsa 80,69,
ufsi 37,61, karfi 38,40, koli 73,19
og gráíúða 77,94. Verð á öðrum
tegundum var 62,49 og öllum að
meðaltali 67,39 krónur.
Sýnir
1 Hafnar-
galleríi
OPNUÐ hefur verið sýning á 14
olíumyndum eftir Ástu Guðrúnu
Eyvindardóttur á loftinu í Bóka-
verslun Snæbjamar, Hafnar-
stræti 4.
Ásta fæddist 1959 í Reykjavík.
Hún stundaði nám við Myndlista-
og handíðaskóla íslands, síðan við
Central School of art and design í
London. Hún m.a. hefur sýnt prent-
listarmyndir og myndverk á Sel-
fossi. Þetta er fyrsta sölusýning
Ástu en henni lýkur 24. apríl.
(Fréttatilkynning)
Kent-sagan
„Signrvegar-
ar“ komin út
ÚT ER komin hjá Prenthúsinu
fjórða bókin í spennusagnaröð-
inni Kent-sagan. Bókin heitir
Sigurvegarinn, en áður em
komnar út Bastarðurinn, Föður-
landsvinur og Uppreisnarmaður.
Sigurvegarar hefst í Pennsyl-
vaníu árið 1878. Philip Kent er
óbreyttur hermaður í örþreyttum
her Washingtons hershöfðingja.
Hermennina skortir mat, búninga,
þjálfun og aga. Aumur mannafli
sem eygir enga von í stríðinu gegn
úrvals hermönnum frá Englandi,
sterkasta herveldi heims. En það
sem veldur Philip mestum áhyggj-
um er að Rackman skipstjóri, sem
er illræmdur kvennabósi, ógnar lífi
Onnu, konu Philips. Hræðilegt hug-
boð verður til þess að Philip ákveð-
ur að gerast liðhlaupi.
(Úr fréttatUkynningu)