Morgunblaðið - 10.04.1988, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 10.04.1988, Qupperneq 18
18 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1988 fclk f fréttum ?■ " v. - •• . Með föður sínum Frank Zappa og systur sinni Moon Unit. DWEEZIL ZAPPA TEKUR SIG SAMAN í ANDLITINU Lýsir yfir áhuga á hjónabandi Dweezil hefur átt erfitt með einkalif sitt. Nú er talin vera einhver von tii þess að festa komist á líf ungs pilts sem heitir því for- vitnilega nafni Dweezil Zappa. Hann hefur lýst yfir í viðtaii, að hann sé afar hlynntur hjóna- bandi og öllu sem því fylgir. Til þessa hefur þessi ungi piltur verið kunnur af annars konar líferni í Hollywood. Eins og foðumafnið bendir til, er Dweezil sonur hljómlistar- mannsins litríka Frank Zappa. Hann á einnig systir með síst ófrumlegra nafoi. Heitir sú Moon Unit Zappa. En Dweezil hefúr erft talsvert af tónlistargáfum föður síns og verið talinn býsna efnilegur poppari síðustu misseri, meira að segja komið stöku lagi á vinsældarlista vestra. En stormasamt einkalíf hans hefur verið honum fjötur um fót. Þó ekki þannig eins og hrjáir marga aðra: Hann reykir ekki. Drekkur ekki. Nennir ekki einu sinni í veisl- ur. Ekki einu sinni út að keyra. En hann er myndarlegur strákur af ríku fólki. Frægur. Og þess vegna er hann eftirsóttur af mörg- um ungmeyjum borgarinnar. Þær hafa komið og farið úr lífi hans og flestar gefast upp á honum vegna þess að það er varla hægt að draga hann út úr herberginu sínu. Þetta kvennahark hefur staðið tónlistarferlinum fyrir þrif- um, því hann tekur hvem aðskiln- að nærri sér. Síðustu stefnuyfir- lýsingar hans gefa fyrirheit um breytta tíma og kannski að það rætist enn frekar úr piltinum á næstu mánuðum og árum? Hin atorkusama Shannen Doherty. Hvernig er þetta hægt? Margir hinna yngri spámanna á hljómlista- og Jeildistar- brautinni eru haldnir óseðjanlegu vinnuþreki. Hjá sumum er það þannig, að þeir eiga líklega ekki annarra kosta völ en að gefa sig í verkin af meiri krafti heldur en kannski er til staðar, í von um að sá happadagur renni upp að við- komandi nái inn uppskeru. Svo eru sumir sem átta sig ekki á því, að þeir eru komnir á skrið og geta hægt ferðina. Einn slíkur er Shannen Doherty, aðeins 16 ára leikkona sem aldrei linnir látun- um. Þrátt fyrir ungan aldur, hefur Shannen haft meira á sinni könnu heldur en gengur og gerist. Hún leik- ur eitt aðalhlutverkið í sápuóperu sem heitir Our House og út frá því lék hún í annarri sem heitir „Little Ho- use - a beginning". Þá hefur hun leikið í þremur sjónvarpskvikmynd- um, Night Shift, Girsl just want to have fun og Secret og Nimh, einnig hefur hún komið fram í framhalds- flokkunum Highway to Heaven, Still the Beaver, Magnum PI ogAirwolf. Og ekki er öll sagan sögð. Stundum er hún að lesa og læra. Síðan vinnur hún tímafrekt starf fynr ýmsar góð- gerðarstofnanir sem fara með mál- efni bama sem sæta ofbeldi á heimil- um sínum. Einnig starfar hún fynr dýravemdunarsamtök og útvegar tugum heimilslausum hundum og köttum heimili ár hvert. I frístund- um(!) sínum stundar bamið síðan dans og hestamennsku. Sefur vænt- aniega aldrei. Strákslegt útlitið og djúp og sterk röddin þykir mörgum kynlegt samkrull. POPPGOÐIÐ RICK ASTLEY „Ég bara botna ekkert í þessu“ Breski poppsöngvarinn Rick Ast- ley hefur heillað unga fólkið síðustu mánuði með ýmsum af lögum sínum og framan af naut hann þess að fólk bar ekki kennsl á hann. Telur hann það hafa staf- að af því, að rödd hans og útlit fara eiginlega ekki saman. Ann- ars vegar er djúp og karlmann- leg rödd, hins vegar prakkara- legt stráksútlit. En nú öldin önn- ur og Astley varð t. d. fyrir því fyrir skömmu, er hann hafði lagt bil sínum við gangstéttarbrún, að annar bíll, troðinn ungmenn- um, stoppaði við hliðina og hann heyrði svo þvoglumæltan kór tyggja látlaust, „þetta er hann, gvuð, þetta er hann....o.s.frv." „Ég bara botna ekkert í þessu, ég hafði ekki gert mér nokkra grein fyrir því hvað frægðin hefði í för með sér. Þetta dæmi er eitt af mýmörgum í seinni tíð,“ sagði hann nýverið í viðtali. Nú, Rick er aðeins 21 árs og ef hann heldur áfram á sömu braut, er ljóst að hann verður að fara að venjast fylgifiskum frægðarinnar, því árin framundan eru mörg. Þess má geta, að Astley byijaði söngfer- il sinn í kirkjukór í Manchester og lagði þar til hástemmda barnsrödd. Er það fór að togna úr honum reyndi hann fyrir sér í ýmsum minni háttar poppsveitum borgarinnar án nokkurs sýnilegs árangurs. Hann var eiginlega að hugsa um að leggja tónlistaráformin á hilluna og var farinn að vinna sem þjónn á veit- ingastað, er það hvarflaði að honum að reyna upp á eigin spýtur og láta hljómsveitir lönd og leið. Um fram- haldið þarf ekki að orðlengja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.