Morgunblaðið - 10.04.1988, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 10.04.1988, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1988 B 27 I Franska leikkonan Stephane Audran leikur aðalhlutverkið í „Veislu Babettu". Danmörk: Gabriel Axel fær loks uppreisn æru Gabriel Axel er búinn að vinna að gerð mynda fyrir bíó og sjón- varp í mörg ár. Hann er búinn að starfa við leikhús í fjóra áratugi, hvort tveggja sem leikari og leik- stjóri, en það er ekki fyrr en nú að hann hlýtur viöurkenningu í heimalandi sínu, Danmörku, og vekur verulega eftirtekt í útlönd- um. Það var á síðasta hausti að hann frumsýndi mynd sína „Veisla Babettu", sem hann gerði eftir smásögu löndu sinnar, Karenar Blixen, sem hlaut heimsfrægð í annað sinn þegar Meryl Streep lék hana svo eftirminnilega í „Jörð í Afriku" fyrir þremur árum. Gabriel Axel las fyrst þessa smásögu fyrir hálfum öðrum ára- tug og hefur að eigin sögn haft hana á heilanum allar götur síðan. Gabriel var sérstaklega hrifinn af þvi hvernig Karen Blixen (sem oft- lega skrifaði undir nafninu Isak Dinesen til að fela þá staöreynd að hún væri kona!) tókst að sýna betur en nokkrum öðrum rithöf- undi listamanninn sem blundar í sérhverri sál. „Karen blandar saman öllum listgreinum í þessari sögu sinni," segir Gabriel hinn ánægöasti. „Og það sem Karern hafði í huga var að benda okkur á að hvaða list- grein sem þú stundar þá þarf að hlúa að henni með ýtrustu tækni og tilfinningu jöfnum höndum. Hún meinar að það sé jafn erfitt að hanna góðan veitingastað og elda síðan matinn ofan í fólk þannig aö það sé ánægt og að skrifa ein- hverja sögu af listfengi." Gabriel á líka svolítið sameigin- legt með Karen Blixen. Bæði þurftu að ferðast til annarra landa til að hljóta frægð og frama, til að fá viðurkenningu að þau væru lista- menn af lífi og sál. Bæði fyrirlitu menningarklíkur og bæði fengu að gjalda þess. Karen var ekki tekin alvarlega af samlöndum sínum fyrr en leið að dauða hennar og nú, tæpum þrjátíu árum síðar, dá þeir hana úr hæfilegri fjarlægð, og Gabriel Axel hefur svo sannarlega fengið að finna fyrir þeirri gömlu visku að enginn er spámaður í eig- in föðurlandi. Honum tókst ekki að fá fjár- magn í Danmörku til að framleiða „Veislu Babettu". Hann varð að leita til manna í Bretlandi og félag- ar hans þar urðu að leita hófanna í Bandaríkjunum. Það tókst að lok- um. Og loks þegar myndin kom vakti hún talsverða athygli en eng- in verðlaun hlaut hún hjá dönsku kvikmyndaakademiunni, þótt allir væru sammála um ágæti hennar. Sömu sögu er að segja um önnur Kvikmyndaleikstjórinn Gabriel Axel. verkefni sem Gabriel hefur áhuga á. Hann hefur til dæmis lengi lang- að til að gera kvikmynd um gömlu, upphaflegu goðsöguna um Hamlet (amlóða), prinsinn í Danaríki. Gabriel varð verulega frægur árið 1967 þegar mynd hans um klám og nekt var sýnd á Cannes. Skömmu síðar kom hann með myndina „Danish Blue" sem varð mjög vinsæl á sínum tíma og gerði höfundinn ríkan; hann keypti hús á Spáni. En árið 1977 var farið að þrengja um hann í Danmörku og flýði hann á náðir Frakka, og þar hefur verið hans annað heima æ síðan. Hann er tæplega sjötugur þótt hann liti ekki út fyrir að vera nema 55 ára, og hefur verið kvænt- ur franskri konu í 33 ár. Sagan af Babettu er eitthvað á þessa leiö: Hún flýr París eftir að maður hennar og sonur eru skotn- ir til bana á uppþoti á götu úti; og sest að í Noregi (Danmörku í myndinni), og fær starf sem mat- reiðslumeistari hjá tveimur auðug- um, öldruðum systrum. Svo líða árin. Þar til aðra systurina langar til að halda upp á hundrað ára fæöingarafmæli föður þeirra. Ba- betta, sem vinnur mikla peninga í happdrætti um sömu mundir, býðst til að halda upp á afmælið með sérstakri veislu sem hún ætl- ar að útbúa. Og það er ekki fyrr en líða tekur á veisluna að ýmsir leyndir þræðir í ævi Babettu koma í Ijós. „Veisla Babettu" hefur fengið Óskarsútnefningu sem besta er- lenda kvikmyndin árið 1987. Vandaiar ódýrar veggskápasamstæður frá Finnlandi H A1;N ARSTRÆTl 11 SlMl 1U40 Ath.: Ljóðakvöld f Djúpinu kl. 20.30. Verð kr. 55.800 (öll samstæðan). Verslunin er flutt að Suðurlandsbraut 32 Yjf HUSGÖGN OG INNRETTINGAR SUÐURLANDSBRAUT32 68 69 Hagstætt verð Borðstofuborð og 4 stólar. Verð aðeins kr. 42.000,- kr. 38.000,- stgr. Einnig örfá Barrokk-sófasett á sérlega hagstæðu verði. VALHÚSGÖGN Ármúla 8, símar 82275 og 685375. hvítur RANGE ROVER árg. ’84. Vel með farinn. Viðhaldið og þjónustaður reglulega af Heklu hf. Einn eigandi. Ekinn 88 þús. km, að mestu innan- bæjar. 4 dyra, beinskiptur 5 gíra, centrallæsing- ar, útvarp/segulband. Verð 1.150 þús. Bein sala. Upplýsingar í síma 32233. U löfðar til .fólksíöllum starfsgremum! Tviskiptir kjólar VFJHllÍhfÍjUl__ v/Laugalæk s. 33755.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.